Þjóðviljinn - 11.07.1986, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 11.07.1986, Blaðsíða 2
FRETTIR RHMR Kjaradómur veldur vonbrigöum Dómur Kjaradóms um sérkjarasamning Bandalags háskól- BHMR-manna fjarri því að vera leiðrétting gagnvart hinum amenntaðra ríkisstarfsmanna hefur valdið mikilli ólgu meðal almenna vinnumarkaði. félagsmanna BHMR. Niðurstaða Kjaradóms kveður á um Hér fara á eftir viðbrögð nokkurra félagsmanna við dómi 8,3% launahækkun að meðaltali en slík hækkun er að mati Kjaradóms, og viðbrögð fjármálaráðherra. Kjaradómur Skrípaleikur Kristján Thorlacius: Munum ekki mœta afturfyrir þessum dómi Við eigum varla orð til að lýsa því hvað við erum undrandi á þessum dómi. í rauninni er búið að þvæla okkur í tvö ár með ýms- um Ioforðum um leiðréttingu með hliðsjón af kjörum þeirra sem ekki starfa hjá ríkinu. Þetta sagði Kristján Thorlacius formaður Hins íslenska kennara- félags þegar Þjóðviljinn leitaði álits hans á niðurstöðu Kjara- dóms. Kristján sagði: Það er óumdeilt, að það er gífurlegur kjaramunur þarna á. Þetta er staðfest í forsendum dómsins, en þar kemur fram að um veruiegan mun er að ræða. Þeir nefna töluna 35%. Við telj- um hins vegar að munurinn sé meiri. Menn áætla að hann sé allt að 60%. Kristján sagði niðurstöðu Kjaradóms fráleita. Þeir teldu sig vera að leiðrétta kjör félags- manna BHMR en í raun væru Kristján: Alvöru samningsrétt þeir ekki að leiðrétta eitt eða neitt. Sú hækkun sem fengist hefði væri jafnvel minni en þær hækkanir sem orðið hefðu ann- arsstaðar. Nú munum við, sagði Kristján, berjast fyrir því að fá aivöru samningsrétt. Við erum endan- lega búin að afskrifa þessa kjara- dómsleið. Við höfum eytt gífur- legum tíma og fjármagni til að safna gögnum og byggja upp okk- ar rök. Niðurstaða Kjaradóms er hins vegar með þeim hætti að framvegis munum við ekki mæta fyrir þessum dómi og taka þátt í þeim skrípaleik sem þar við- gengst. G.Sv. Kjaradómur Hörmulegt fyrir Háskólann Hörður Filippusson: Niðurstaða Kjara- dóms kemur eins og köld vatnsgusafram- an íokkur Þessi niðurstaða er hörmulcg fyrir Háskólann. Hún kemur eins og köld vatnsgusa framan í okk- ur, sagði Hörður Filippusson for- maður Félags háskólakennara um niðurstöðu Kjaradóms í launamálum BHMR. Þetta er hörmulegur dómur fyrir BHMR í heild, sagði Hörð- ur. Mér sýnist fullreynt að Kjara- dómur mun ekki færa okkur þá leiðréttingu sem búið var að lofa. Háskólakennarar hafa lengi sýnt þolinmæði í launamálum, í og með vegna þess að mörgum er það nokkurt hugsjónamál að haldið sé uppi almennilegum há- skóla á íslandi. Með niðurstöðu Kjaradóms er verið að sýna Háskólanum og starfsmönnum hans óvirðingu Hörður: Óvirðing við háskólann sem er hreint með ólíkindum. Benda má á að með þessum dómi er ungum manni sem kemur heim til lektorsstarfa eftir 6 til 10 ára nám ætluð laun sem ná ekki helmingi þess sem opinberir aðil- ar staðfesta að eru nauðsynleg til að framfleyta lítilli fjölskyldu. Stofnun sem svona er búið að á ekki bjarta framtíð fyrir höndum. Hörður kvaðst óttast að nú héldi áfram sú þróun að menn hyrfu úr stöðum sínum við Há- skólann og aðrir kæmu ekki í staðinn. Sagði hann að það færð- ist nú í vöxt að menn tækju ekki þær stöður sem þeir fengju þegar þeir fréttu hvernig launakjörum væri háttað. G.Sv. Ég kalla það ekki samninga, ef manni eru dæmd lúsarlaun BHMR Fullan samningsrétt Með dómum sínum nú hefur Kjaradómur brugðist þeirri laga- skyldu að leiðrétta kjör félags- manna BHMR, segir í ályktun frá fundi launamálaráðs og samning- anefnda BHMR í gær. „Þetta er gert með rangtúlkun á lögum og fullkomnu skilnings- leysi á framlögðum gögnum. Með almennum hækkunum um 6-9% frá 1. mars sl. sýnir dómur- inn einu sinni enn að lög og rök eru honum léttvæg" segir í álykt- uninni. Minnt er á yfirlýsingar stjórnvalda um réttmæti launa- leiðréttingar og talið að Kjara- dómur beiti rangfærslum í for- sendum dómsins. „Fundurinn skorar á Launa- málaráð að segja þegar í stað upp gildandi samningum og knýja á um fullan samningsrétt. Jafn- framt hvetur fundurinn félags- menn til að leita allra leiða í kjar- abaráttunni.“ Kjaradómur Uppsagnir Birgir Björn Sigur- jónsson: Menn íhuga alvarlega að segja upp störfum Það voru gríðarlega miklar væntingar um þennan dóm, sagði Birgir Björn Sigurjónsson starfs- maður BHMR. Hann sagði að nú þegar fyrir lægi að þessar vonir hefðu brugðist væru menn al- mennt mjög miður sín. Birgir sagði að mjög margir veltu því nú alvarlega fyrir sér hvort þeir myndu starfa áfram hjá ríkinu. Hann nefndi sem Birgir Björn: Vonbrigði dæmi að á Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins myndu menn al- mennt segja upp störfum ef ekki yrði einhver breyting á. G.Sv. Kjaradómur Þetta eru hrikalegir samningar Sigríður Elefsen: Pyrfti e. I. v. að borga verkalýðsforingjunum sam- kvœmt þeim þrælasamningum sem þeirgera Þetta eru hrikalegir samningar sem okkur eru dæmdir. Eg held að þessi málalok sýni glöggt að Kjaradómur á ekki lengur rétt á sér, sagði Sigríður Elefsen vara- formaður kjararáðs Félags ís- lenskra náttúrufræðinga í samtali við Þjóðviljann í gær. Sigríður sagði að í sjálfu sér hefði þessi niðurstaða ekki kom- ið sér mjög á óvart, fólk væri orð- ið ýmsu vant þegar launamál væru annars vegar. Hún sagði að þau laun sem náttúrufræðingar fengju væru langt frá því að geta talist eðlileg. í raun væri þetta þrælakjör. Sigríður bætti við að þessi dómur sýndi mönnum og sannaði að til að ná mannsæmandi launum væri nauðsynlegt að beita hörku. Menn virtust einfaldlega ekki hlusta á neitt annað. Almennt sagði Sigríður að launaþróun hérlendis væri orðin mjög hættuieg, en ein af ástæðum lágu launanna væri óvenju slöpp verkalýðsforysta sem ekki væri í neinum tengslum við láglauna - fólkið. Mennirnir sem ættu að gæta hagsmuna láglaunafólksins væru margir hverjir með um 100 þúsund á mánuði. Ég held, sagði Sigríður, að til að bæta þau launakjör sem hér viðgangast þyrfti e.t.v. að borga þessum verkalýðsforingjum laun samkvæmt þeim þrælasamning- um sem þeir hafa verið að gera fyrir láglaunafólk. G.Sv. Ljósmyndir ísland snemma á öldinni Sýning á Ijósmyndum Danafrá íslandi 1908- 1914 í dag verður opnuð í Þjóðminj- asafninu sýning á ljósmyndum sem daninn Rudolph Craner tók á íslandi á árunum 1908-1914. Rudolp Craner starfaði hér á landi á þessum árum við land- mælingar og kortagerð á vegum danska hersins, en þá sá herinn um öll störf af þessu tagi. Ru- dolph myndaði mikið og á sýn- ingunni eru myndir úr öllum landsfjórðungum og sýningin sett upp þannig að gestir fikra sig með myndum Craners sólarsinnis um landið frá Reykjavík. Ekkja hans færði safninu þess- ar myndir að gjöf 1972 og er Þessi mynd er á sýningunni og er af Rudolph Craner að störfum. þarna auk annars að finna kópí- eringar eftir hann sjálfan. -pv Kjaradómur BHMR Fjármálaráðherra vill aukinn samningsrétt Þorsteinn Pálsson: Tel að núverandi samningakerfi hafi gengið sér til húðar Ég tel að niðurstaða þessa dóms sé á þann veg að eðlilegt sé að endurskoða þetta samningak- erfi, sagði Þorsteinn Pálsson fjár- málaráðherra í samtali við Þjóð- viljann í gærkvöld. Þorsteinn kvaðst hafa tekið þetta mál til umræðu á ríkis- stjórnarfundi í gærmorgun og lýst þar þeirri skoðun sinni að eðlilegt væri að stokka upp í þessum mál- um og leitast við að færa kjaramál ríkisins yfir í venjulega samninga. Fjármálaráðherra benti þó á að eðli máls samkvæmt gætu ákveðnar stéttir ekki farið í verk-' föll. Það er óþolandi, sagði Þor- steinn, að hluti af launum opin- berra starfsmanna sé ákveðinn í samningum en annar með dómi. Mér finnst því eðlilegt að þessi mál verði endurskoðuð með það í huga að færa ákvörðun um kaup og kjör meira yfir í samninga og taka þau úr höndum Kjaradóms. Þorsteinn Pálsson kvaðst hafa lýst þessum sjónarmiðum sínum á ríkisstjórnarfundi. Hann ítrek- aði að fullur samningsréttur yrði að takmarkast við þá hópa sem gætu farið í verkföil, því vitaskuld gæti verkfallsréttur ekki náð til allra starfa. Þessi mál verða rædd nánar á ríkisstjórnarfundi næstkomandi fimmtudag, sagði Þorsteinn, en það er ekkert launungamál að ég tel að núverandi samningakerfi hafi gengið sér til húðar. G.Sv. 2 SÍÐA - ÞJÖÐVILJINN ; Föstudagur 11. júlí 1986

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.