Þjóðviljinn - 11.07.1986, Blaðsíða 8
I dag er í tísku „aö hætta aö reykja", krakkarnir í bæjarvinnunni upp í Golfskála í Grafarholti láta móöann mása. Frá
vinstri: Herdís, Helga, Ásta, Dóra, Guðrún, Gunna, Andrés, Stefán, Einar og Hrönn fremst. Ljósm.: Sig.
IftC
„Hvaö er ógeðslegra en 10 börn í tunnu? 1 barn í 10
tunnum,“ félagarnir Gunnar og Benni í fínu formi meö vin
sinn Diðrik Heiðar forstjóra á milli sín. Þeir vildu koma því
áframfæri að þeirværu alveg rosalegaduglegirað vinna.
GLÆTAN
Vigga og Matta 15 ára: „Viö viljum gjarnan brosa í hring fyrir Glætuna en
getum þaö ekki fyrir eyrunum." Ljósm.: Sig.
Topp 10
og Karlinn í tunglinu
Glætan réðst á stóran hóp
og bað um viðtal. Þau voru
meira en til í það því þá gátu
þau fngið sér löglega pásu.
Þau heita: Herdís, Helga, Ásta,
Dóra, Guðrún, Gunna, Andrés,
Stefán, Einar og Hrönn.
Hvað gerið þið við sumar-
kaupið ykkar?
Helga: „Ja, ég er nú að læra á
klarinett en mig langar líka til að
eignast saxófón svo að ég er að
.safna mér fyrir því í sumar.
Sumarkaupið dugir nú samt
ekki.“
Allir: „Maður verður að spara
og borga skólabækurnar næsta
vetur. Svo borgum við skóla-
gjaldið, það kostar um 1500 kr. í
menntaskólunum og í Iðnskólan-
um en 10.000 í Verslunarskólan-
um. Við ætlum næstum því öll í
sitthvorn skólann. Annars er
þessi vinna svo stutt og það er
ekki sjéns að við getum átt pen-
ing fram á vetur.“ Sumir voru að
hugsa um að fá sér vinnu með
skólanum næsta vetur t.d. í
sjoppum. „Okkur finnst að það
ætti að hækka þetta kaup.“
Glætan spurði hvað væri
draumasumarstarfið þeirra. „Vel
launað starf“ var svarið. Marga
langaði til að vinna í öskunni eða í
byggingarvinnu. Stelpurnar lang-
aði mest til að fá vinnu í fatabúð.
Strákarnir sögðu að til að fá vel
borgaða vinnu þarf maður að
vera orðinn 16 ára og vera í góðri
klíku.
Farið þið mikið að skemmta
ykkur?
Allir: „Nei, ekkert mjög
mikið. Stundum fer maður í
Topp 10 en það er dýrt inn, kost-
ar 400 kr. Svo er til annar ung-
lingaskemmtistaður sem heitir
Karlinn í tunglinu en við förum
aldrei þangað. Þar eru alltaf svo
fáir. “
Stelpurnar vildu taka það fram
að þeim þætti það skrítið að á
skemmtistaðnum Topp 10 væru
karlkyns dyraverðir sem leita á
stelpunum við innganginn. Þeim
fannst að þetta ætti að banna.
SA
Pakkir til
borgarstjórans
fyrir „gott“ kaup
„Hér í bæjarvinnunni er
hörkustuð. Hópurinn er svo
góður, en kaupið er lélegt,“
sögðu þær Vigga og Matta.
„Maður þarf að vera orðinn 16
ára til að geta fengið betur bor-
gaða vinnu. Kaupið dugir ekki
neitt fram á vetur, mamma og
pabbi verða líklega að borga fyrir
okkur skólabækurnar í haust.
Kaupið er bara fyrir fötum og
vasapening. Við skemmtum okk-
ur samt ekki mikið. Það er líka
frekar slæmt að vinnan hættir svo
snemma. Við höfum ekki vinnu
nema út júlí og pínulítið af ág-
úst.“ Vigga ætlar í MR í vetur en
Matta í Iðnskólann að læra hár-
greiðslu eða bflamálun.
Hvað gerið þið fyrir utan vinn-
una?
Vigga og Matta: „Við förum í
Aerobic leikfimi og í bíó. Matta
fer líka stundum í Bústaði í borð-
tennis og fleira.“
§
Skoðanir
óskast
Lesandi góður, hvað finnst þér'
að Glætan eigi að taka fyrir? Er
nóg skrifað fyrir unglinga?
Hringdu eða skrifaðu til Glæt-
unnar og segðu okkur skoðun
þína. Ef þú veist um eitthvað
skemmtilegt eða (leiðinlegt) sem
er að gerast hjá unglingum, ekki
luma á því. Síminn er 681333 og
heimilisfangið er: Glætan, Þjóð-
viljinn, Síðumúla 6, Reykjavík.
Notaðu tækifærið, komdu
skoðun þinni á framfæri.
Vinsældalistar Þjóðviljans
Fellahellir 1. (-) Who’s Johnny - El de Bage 2. (-) Papa dont preach - Madonna 3. (4) Atlantic is caliing - Modern talking 4. (-) Þrisvar í viku - Bítlavinafélagið 5. (9) Dance with me - Alphaville 6. (8) Jeanny - Falco 7. (-) Venus - Bananarama 8. (~) God thank youre woman - Culture Club 9. (6) Holding back the years - Simply Red 10.(—) When tomorrow comes - Eurythmics Grammiö 1. (1) Blús fyrir Rikka - Bubbi Morthens 2. (2) The Queen is dead - The Smiths 3. (3) Contenders - Easterhouse 4. (-) The Singer - Mick Cave 5. (-) Ramons - Animal Boy 6. (-) The go-Betweens - Liberty Belle 7. (7) Simply Red - Picture Book 8. (9) Bjarni Tryggva 9. (-) Big Country - The Seer 10.(—) Peter Gabriel - So Rás 2 1. ( 1) Þrisvar í viku - Bítlavinafélagið 2. ( 3) The edge of heaven - Wham! 3. ( 7) Papa don’t preach - Madonna 4. ( 2) Re-sepp-ten - Danska fótboltalandsliðið 5. ( 8) Atlantic is calling - Modern talking 6. ( 6) When tomorrow comes - Eurythmics 7( 9) Blue - Fine Young Cannibals 8(23) If you were a woman - Bonnie Tyler 9(11) Who’s Johnny — El De Barge 10.(30) Hunting high and low - A-ha