Þjóðviljinn - 06.08.1986, Blaðsíða 9
Afvopnun
Nýtt
friðarskref
í Mexíkó
Sex þjóðarleiötogará afvopnunarfundi í Ixtapa ídag, á Hírósímadaginn.
Búist við nýjum tillögum til stórveldanna um tilraunahlé.
Frumkvæðið frá þingmannasamtökunum PGA, - Ólafur Ragnar
Grímsson situr fundina. Ingvar Carlsson í stað Palme
I dag, sjötta ágúst, Hírósíma-
daginn, hittast í Ixtapa á suð-
vesturströnd Mexíkó leiötogar
þeirra sex ríkja sem fyrir
tveimur árum bundust sam-
tökum um nýtt frumkvæði í
friðar- og afvopnunarmálum.
Þetta er annar fundur leiðtog-
anna, og er búist við að frá
fundinum komi nýjar tillögur
um afvopnunarmál, og sér-
staklega um leiðir til að stöðva
tilraunir með ný kjarnorku-
vopn og til að tryggja að hugs-
anlegur samningur þess eðlis
verði haldinn.
Fundinn sækja Rajiv Gandhi
forsætisráðherra Indlands, And-
reas Papandreou forsætisráð-
herra Grikklands, Raul Alfonsin
forseti Argentínu, Miguel de la
Madrid forseti Mexíkó, Julius
Nyerere fyrrverandi forsætisráð-
herra Tansaníu sem enn telst einn
af leiðtogum ríkis síns, og Ingvar
Carlsson forsætisráðherra Sví-
þjóðar, sem nú tekur stöðu Olofs
Palme í þessum hópi.
Sexmenningarnir hafa undan-
farið einbeitt sér að því að þrýsta
á ráðamenn Sovétríkjanna og
Bandaríkjanna í afvopnunarmál-
um, og nú síðast hvatt ríkin til að
stöðva tilraunir með kjarnorku-
vopn. Ríkisstjórnirnar sex hafa
boðist til að annast eftirlit á til-
raunasvæðum Bandaríkjanna og
Sovétríkjanna þannig að tryggt sé
að ríkin haldi tilraunabannið, og
er talið að frumkvæði leiðtog-
anna eigi stóran þátt í því að Gor-
batsjoff Sovétleiðtogi brást ný-
Frá Delhi-fundinum: Olof Palme, Raul Alfonsin, Andreas Papandreou.
Forseti Mexíkó, de la Madrid, forsætisráðherra Grikklands, Papandreou, og
Singh forseti Indlands á Delhi-fundinum í janúar í fyrra.
til Peking, - allt á næstu fimm
mánuðum.
í fyrrasumar voru leiðtogunum
afhentir listar með nöfnum 83
Nóbelsverðlaunahafa í ýmsum
greinum, þarsem lýst var stuðn-
ingi við friðarfrumkvæði. í þann
stuðningshóp hafa síðan bæst 45
ríkisstjórnir, Jóhannes Páll II
páfi, 120 bandarískir þingmenn,
og fjöldi friðarsamtaka.
En hvað um árangur? Því verð-
ur auðvitað ekki spáð nú hvað
leiðtogafundurinn í Ixtapa leiðir
af sér. Og forsvarsmenn leiðtoga-
bandalagsins orða árangurslýs-
ingar hingaðtil mjög varlega,
sama er að segja um forystu al-
þjóðasamtakaþingmanna, PGA.
Annarsvegar eru skref frammá-
við í friðar- og afvopnunarmálum
yfirleitt alltaf að þakka mörgum
samvirkum öflum frekar en einu
frumkvæði, samtökum eða
manni, hinsvegar er ráðlegt að
fara mjög hægt í að hrósa sér eða
öðrum fyrir slík skref, - þótt ekki
sé nema vegna þess að hver sem
dómur sögunnar kann að verða
er taktískast að leyfa leiðtogum
stórveldanna að njóta í samtíð
þeirra pólitísku ávinninga sem
þeir kunna að sjá við að leggja
leikana á að fylgjast með því að
tilraunabanni yrði hlítt, og voru
niðurstöður nefndarinnar
kynntar á fundi undirnefndar
leiðtogabandalagsins í Genf í
október. Leiðtogarnir sex sendu
þeim Reagan og Gorbatsjoff síð-
an yfirlýsingu fyrir Genfar-fund
risaveldaforingjanna í október
þarsem lagt var að þeim að semja
um tilraunabann og þeim kynntar
tillögur um eftirlit með slíku
banni, og fólu þær meðal annars í
sér aðstoð ríkjanna sex við það
eftirlit.
í mars hvöttu leiðtogarnir sex
Reagan og Gorgastjoff til að
fresta nýjum kjarnorkuvopnatil-
raunum þangað til þeir hittust á
ný, og buðust þá til að annast eft-
irlit á tilraunastöðum og hlust-
unareftirlit innan landamæra
risaveldanna.
Tregða Sovétmanna í eftir-
litsmálum hefur hingaðtil verið
einn stærstur þrándur í götu í við-
ræðum um tilraunabann. í vor
hefur hinsvegar brugðið svo við -
og efast enginn um að þar á frum-
kvæði leiðtoganna sex mikinn
hlut að máli - að Gorbatsjoff
framlengdi tilraunastöðvun í So-
vét, fyrst til loka mars, og síðan til
Að loknum viðræðufundi sendinefndar alþjóðlegu þingmannasamtakanna PGA með
Shevardnadze utanríkisráðherra Sovétríkjanna í Moskvu í apríl síðastliðinn. Á þeim
fundi kom í fyrsta sinn fram að Sovétríkin væru tilbúin að veita eftirlitsmönnum annarra
ríkja aðstöðu innan landamæra sinna til eftirlits með tilraunabanni. Á myndinni eru frá
vinstri: Relur teér Beek formaður utanríkisnefndar hollenska þingsins, Frank von
Hippel prófessor við Princeton-háskólann í Bandaríkjunum og tæknilegur ráðgjafi
PGA, Shevardnadze, Ólafur Ragnar Grímsson formaður framkvæmdanefndar PGA,
Nicholaus Dunlop framkvæmdastjóri PGA.
lega skár en áður við hugmynd-
um um slíkt eftirlit.
Marquez og
Boesak
Auk leiðtogafundarins eru
ýmsar samkomur í Mexíkó þessa
viku, og taka ýmsir kunnir
stjórnmála-, menningar- og vís-
indamenn þátt í þeim, meðal
annarra Alan Boesak prestur og
mannréttindamaður frá Suður-
Afríku, friðarverðlaunalæknir-
inn Bernhard Lown frá Banda-
ríkjunum, Nóbelsrithöfundurinn
kolumbíski Gabriel Garcia
Einn frumkvöðlanna, Olof Palme,
á leiðtogafundinum í Delhi í janú-
ar 1985. Ingvar Carlsson tekur
stöðu hans á fundinum í Mexíkó.
Marquez, Carlos Andres Peres
fyrrverandi forseti Venezúela,
Jerome Weisner yfirmaður MIT-
háskólans í Bandaríkjunum og
vísindalegur ráðgjafi Kenndys á
árum áður, o.s.frv.
Áður en leiðtogafundurinn
hefst kemur saman undirbún-
ingsnefnd í Mexíkóborg, en í
henni situr meðal annars Ólafur
Ragnar Grímsson sem er formað-
ur framkvæmdanefndar alþjóð-
legu þingmannasamtakanna
PGA, Parliamentarian Global
Action á ensku. Þau samtök eiga
frumkvæði að friðarbandalagi
sexmenninganna. f samtökunum
eru rúmlega sexhundruð þing-
menn frá 36 löndum.
Samstarf leiðtoganna sex hófst
í maí 1984 með yfirlýsingu um að
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 6. ágúst 1986
John Kenneth Galbraith hagfræðiprófessor við Harvard og Pierre Trudeau fyrrverandi
forsætisráðherra Kanada að loknum Aþenufundinum í janúar í fyrra.
þeir hefðu tekið sig saman um
nýtt frumkvæði til afvopnunar,
og stefndu að því að skapa trú-
verðugt og óháð afl sem gæti
auðveldað risaveldunum sam-
ræðu og áætlun um afvopnun. Til
þess arna eru ríkin sex vel f sveit
sett. í hópnum eru fulltrúar fimm
heimsálfa, flest óháð hernaðar-
bandalögum, njóta öll álits um
heiminn, og bæði Bandaríkja-
menn og Sovétmenn eiga í hópn-
um fulltrúa sem þeir hljóta að
bera fullt traust til.
Dehlí-lxtapa
í yfirlýsingu sexmenninganna
var lagt til að strax yrðu stöðvað-
ar allar tilraunir með kjarnorku-
vopn og öll framleiðsla og upp-
setning slíkra vopna, og síðan
samið um verulegan niðurskurð á
kjarnorkuafla risaveldanna með
frekari afvopnun fyrir augum.
Samhliða þyrfti að styrkja Sam-
einuðu þjóðirnar og tryggja að fé
sem nú er veitt til hernaðar rynni
þangað sem þess er brýnust þörf.
Fyrsti leiðtogafundur ríkjanna
var haldinn í Nýju Dehlí í janúar
1985, og var þá ákveðið að
leiðtogarnir sæktu hver í sínu lagi
heim ráðamenn í kjarnorkuveld-
unum fimm, Sovét, Bandaríkjun-
um, Kína, Frakklandi og Bret-
landi, til að kynna þeim frum-
kvæði sitt og knýja á um skref í
afvopnunarátt. 1 Delhí var lögð
áhersla á allsherjarbann við til-
raunum með kjarnorkuvopn og á
bann við tilraunum með
geimvopn, framleiðslu þeirra,
uppsetningu og notkun.
Strax að Delhí-fundinum lokn-
um fóru fjórir leiðtoganna til
Aþenu og settust þar á rökstóla
með um fjörutíu alþjóðlegum
forystumönnum á sviði stjórn-
mála, trúarbragða, viðskipta, vís-
inda og friðarmála, þar á meðal
hagfræðingnum bandaríska John
Kenneth Galbraith, Bruno
Kreisky fyrrverandi Austurrík-
Aþenu. Á myndinni eru meðal annarra: Dr. Castro framkvæmdastjóri Alkirkjuráðsins, Carlos Andreas Peres fyrrverandi
forseti Venesúela, Julius Nyerere fyrrverandi forseti Tansaníu, Dr. Klipi framkvæmdastjóri Arababandalagsins, Sonny
Ramphal framkvæmdastjóri Breska samveldisins, Aga Khan fyrrverandi forstöðumaður Flóttamannahjálpar SÞ, John
Kennet Galbraith hagfræðingur, Dr. Pastore framkvæmdastjóri Samtaka lækna gegn kjarnorkuvá, Velikoff forseti
Vísindaakademíu Sovétríkjanna, Ólafur Ragnar, Joop den Uyl fyrrverandi forsætisráðherra Hollands.
iskanslara og Aga Khan prinsi,
fyrrum yfirmanni Flóttamanna-
hjálpar SÞ.
83 Nóbels-
verðlaunahafar
Þessir fundir vöktu mikla al-
þjóðlega athygli og undirbjuggu
jarðveginn fyrir næstu skref:
heimsóknir leiðtoganna sex til
höfuðborga kjarnorkuveldanna,
Papandreou til Moskvu, Alfons-
in til Washington, Nyerere til
London, Gandhi til Washington,
de la Madrid til Parísar, Nyerere
lóð sitt friðarmegin á vogarskál-
arnar.
Eftirlit
þriðja aðila
Bandalag leiðtoganna sex virð-
ist þó eiga stóran þátt í því að
samræður risaveldanna um til-
raunir með kjarnorkuvopn eru
nú vænlegri en oft áður, og annað
þeirra, Sovétríkin, hafa breytt
um stefnu í þessum efnum.
Um mitt ár í fyrra stóðu þing-
mannasamtökin fyrir stofnun
rannsóknarnefndar þriggja
kunnra jarðfræðinga um mögu-
dagsins í dag, - og féllst jafnframt
á eftirlitstillögur sexmenning-
anna. Og er nú vonast til að þessi
stefnubreytng Sovétmanna létti
róðurinn þeim öflum innan
Bandaríkajanna sem hvatt hafa
Reagan forseta til að fallast á slíkt
bann, en báðar deildir Banda-
ríkjaþings hafa hvatt forsetann til
viðræðna um slíkt bann.
Með fundi leiðtoganna sex í
vikunni er fylgst af eftirvæntingu,
og þess vænst að þeir nái enn einu
skrefi í þeirri milligöngu sem þeir
hafa hafið, - milligöngu sem þeg-
ar hefur sannað gildi sitt.
Þýtt - endursagt/-m
Mlðvikudagur 6. ágúst 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9