Þjóðviljinn - 06.08.1986, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 06.08.1986, Blaðsíða 5
VHDHORF Fljótum við sofandi að feigðarósi? „Vér lifum á öld sérfræðing- anna sem einblína hver um sig á vandamál sinnar greinar án þess að gera sér grein fyrir eða skeyta um samband þeirra við heildina, sem þau eru hluti af“. Þessi orð Rachel Carson komu í huga minn við lestur smá klausu í Morgun- blaðinu 23. júlí sl.. Þar kemur fram að Danir hafi bannað inn- flutning á húsgögnum sem í er of mikið af efninu formaldehyd. í greininni kemur fram að ekkert sé fylgst með þessu efni hér á landi og eins að það stæði öðrum nær heldur en húsgagnainnflytj- endum þar sem formaldehyd væri mikið notað sem rotvarnarefni. Frá hollustuvernd ríkisins komu þær upplýsingar að ekki væru til nógu góð mælingartæki til að greina formaldehyd. Ég verð að viðurkenna að þetta er ofvaxið mínum skilningi. Þegar rætt er um eiturefni þá vill enginn taka afstöðu, bera við að ekki sé full sannað að efnin séu hættuleg mönnum, eða vísa hver á annan. Þessir sömu aðilar virð- ast ekki vera í vafa þegar um nátt- úruleg lyf eða bætiefni er að ræða sem fjöldi fólks hefur þörf fyrir og hjálpar því að halda heilsu í þessari gerviefnaveröld sem þrengir æ meir að okkur. Nei, þá stendur ekki á því að finna þeim allt til foráttu og salan er stöðvuð samstundis. í Morgunblaðinu 24. júlí er haft eftir Ólafi Ólafssyni land- lækni að 15 áf hverjum lOþúsund látist af völdum aukaverkana lyfja og eins að kostnaður lyf- læknisdeilda vegna aukaverkana lyfja geti numið 15-17 miljónum króna á þessu ári. Gerum við okkur í raun grein fyrir hve þetta eru óhugnanlegar staðreyndir? Ólafur segir enn fremur að ekkert lyf sem fram- leitt er í heiminum sé án auka- verkana. Sem betur fer er sá hópur fólks alltaf að stækka sem gerir sér grein fyrir því hve gerviefnin eru hættuleg manninum. Þess vegna er það ófyrirgefanlegt þegar þessu fólki er meinað að hagnýta sér þau náttúrulegu efni sem völ er á meðan eiturefnin fá að flæða inn í landið án eftirlits. Bókin „Raddir vorsins þagna" eftir bandaríska líffræðinginn Rachel Carson var gefin út af AB 1965. Það er óhætt að segja að það er mögnuð bók. Þegar ég las þessa bók fyrir 20 árum síðan hugsaði ég með mér „þetta er nú heldur mikil svartsýni" en í dag sé ég að Rachel Carson tók ekki of djúpt í árinni. Því miður hefur sú von hennar ekki ræst að maður- inn bæri gæfu til að snúa þessari óheillavænlegu þróun við áður en í óefni væri komið. Eitt af þeim fjölmörgu viðfangs- Hrefna Magnúsdóttir skrifar Reykur og sót hafafylgt okkur í gegnum ald- irnaren eiturefnin, gerviefnin og geislarnir semframleidd eru á rannsóknastofum um all- an heim hafa aðeins fylgt okkur í u.þ. b. 40-50 ár og afleiðingarnar afþeim eru þegar orðnar skelfilegar. efnum sem Carson tekur fyrir í bók sinni er efnið úretan. Vitað er að úretan getur valdið krabba- meini. Við rannsóknir á músum hefur komið fram að sé þeim gef- ið úretan fá þær Iungnakrabba og ekki aðeins þær heldur einnig ungar þeir sem þær ganga með. I raun og veru komust ungarnir ekki í snertingu við efnið nema í móðurkviði, sem bendir til að efnið hafi komist í gegnum leg- kökuna. í dag er úretan mikið notað, ekki aðeins sem skordýraeitur heldur einnig í ýmsar efnavörur eins og plast, lyf, dúka og ein- angrunarefni. í ljósi þessara stað- reynda er líklegt að eins geti farið fyrir móður og barni ef móðirin kemst í of mikla snertingu við úr- etan. Ef við lítum á fleiri atriði úr bók Carson þá segir hún m.a.: „Leiðin til krabbameins getur einnig verið óbein í þeim skiln- ingi að efni, sem ekki er krabba- meinsvekjandi í venjulegum skilningi, raskar eðlilegri starf- semi einhvers líffæris þanriig að afleiðingin verði krabbamein. Dæmi um það er krabbamein í æxlunarfærum, sem virðist vera í einhverju sambandi við misvægi í kynhormónum: þetta misvægi getur stundum verið afleiðing þess að eitthvað hefur haft þau áhrif á lifrina að hún getur ekki lengur stjórnað magni kynhorm- ónanna í blóðinu. Klórsambönd kolvatnsefna eru einmitt í hópi þeirra efna, sem geta á þennan hátt orðið óbeint völd að krabba- meini, því að þau eru öll að ein- hverju leyti eitruð fyrir lifrina. Kynhormónarnir eru vitaskuld alltaf til staðar í líkamanum og gegna því nauðsynlega hlutverki að örva vöxt í sambandi við æxl- unarfærin. En líkaminn á í fórum sínum stilli, sem gætir þess að ekki safnist of mikið fyrir af þeim, það er lifrin sem heldur réttu jafnvægi milli karl- og kvenkynhormónanna (báðar gerðir myndast í líkömum beggja kynja, en misjafnlega mikið). En þetta getur lifrin ekki, ef skortur er á B-vítamínum í líkamanum. Þegar svo er safnast fyrir óeðli- lega mikið af estrogenum (kvenkynshormónum) í líkaman- um. Hvaða áhrif hefur það? Um það höfum vér næga vitnneskju, að minnsta kosti í dýrum. Við til- raunir, sem gerðar voru í lækna- rannsóknastofnun Rockefellers, kom í ljós, að kanínur, sem voru með skemmda lifur af völdum sjúkdóms, fengu margar leg- krabba, sem talið var að myndast hefði af því að lifrin gat ekki lengur gert estrogenin í blóðinu óvirk, svo að þau náðu því magni að valda krabbameini. Víðtækar tilraunir á músum, rottum, mar- svínum og öpum sýna, að estro- gengjöf í langan tíma (ekki endi- lega mikið) hefur valdið breytingum í vefjum æxlunarfær- anna, „í sumum tilfellum góð- kynjuðum, en í öðrum tilfellum illkynjuðum æxlum“. Æxli í nýr- um hafa verið framkölluð í hömstrum með því að gefa þeim estrogen. Enda þótt læknar séu ekki sammála um það, að svipaðra á- hrifa gæti gætt hjá mönnum, er margt sem styður þá skoðun. Af 150 legkrabbatilfellum, sem læknar við Royal Victoria spítala McGillháskólans rannsökuðu, fundu þeir óeðlilega mikið est- rogen í blóðinu hjá tveim af hverjum þrem sjúklingum. Af 20 legkrabbasjúklingum, sem síðar voru rannsakaðir, voru 18 með of mikið estrogen í blóðinu. Það þarf enginn að segja mér að sú mikla ofnotkun á hormón- um í dag, t.d. í getnaðar- varnarpillum, hafi ekki áhrif á konur, það tekur að vísu lengri tíma heldur en hjá dýrum, það er líka að koma á daginn að krabba- mein í konum er alltaf að aukast. Læknar segja okkur að það sé vegna aukinna reykinga - „þetta minnir á strákinn sem kallaði úlf- ur, úlfur, en svo var enginn úlf- ur“. Það er á hreinu að reykur og sót hafa fylgt manninum frá því að eldurinn var fundinn upp og formæður okkar ólu allan sinn aldur í hlóðareldhúsunum í reyk og sóti, að vísu voru aðeins nátt- úruleg efni notuð við brennsluna, héldu sinni frjósemi meðan þær voru á barneignaaldri og skiluðu henni áfram til næstu kynslóða. Það er ekki aðeins að krabbam- ein sé að aukast hiá konum held- ur eykst ófrjósemi hröðum skref- um og þar eru ekki öll kurl komin til grafar enn. Já, reykur og sót hafa fylgt okkur í gegnum aldirnar en eitur- efnin, gerviefnin og geislarnir sem framleidd eru á rannsóknar- stofum um allan heim hafa aðeins fylgt okkur í u.þ.b. 40-50 ár og afleiðingarnar af þeim eru þegar orðnar skelfilegar. Ef við lítum á þróunina þessi ár þá tökum við í röð krabbamein, ofnæmi, sykur- sýki, hjartasjúkdóma og að lok- um síðasta stigið, sem réttilega hefur verið nefnt eyðni. í gegnum bók Rachel Carson gengur lifrin eins og rauður þráður vegna þess að öll efni sem líkaminn kemst í snertingu við fara í gegnum hana. Lifrin er fullkomnasta efnaverksmiðja sem til er og meðan hún þurfti aðeins að vinna úr náttúrulegum efnum sem hún gjörþekkti og var hönnuð til að sjá um var allt í lagi. Eftir að maðurinn fór að búa til ný efni eftir pöntun með því að breyta sameindunum, efnum svo gjörólíkum því sem áður hefur þekkst að náttúran getur hvorki umbreytt þeim eða eytt, þá segir það sig sjálft að lifrin hlýtur að lenda í miklum vanda. Og svarið við þeim vanda er eyðni, líkam- inn eyðir sjálfum sér. í bókinni gerviefnin sem AB gaf út árið 1967 segir: „Öldum saman var maðurinn háður nátt- úrunni um öflun efnis til húsa, fata og tækja. Nú hefur hann snú- ið sér til efnafræðinnar og fær gerviefni, sem oft eru betri en náttúrulegu efnin“. Það er spurning fyrir hvern þessi efni eru betri. Neðar á sömu blaðsíðu: „Gerviefnanna bíður framtíð, sem er eins ótakmörkuð og snilli þeirra manna, sem skapa þau“. Nú er það svo að snilli hugans er háð því að orkustöð líkamans sé í lagi, aftur á móti getur líkam- inn starfað án hugans. Maðurinn er farinn að líta á sig sem guð með því að búa til nýjan heim, heim gerviefna, og þó að alltaf séu að koma í ljós fleiri sannanir fyrir því að þessi heimur er ekki lífvænlegur þá neitar hann að viðurkenna að honum hafi mis- tekist. Það nýjasta er að konur sem vinna við tölvuskjái eigi á hættu fósturlát og eins að fóstur- skaðar aukist til muna. Ef geislarnir hafa svo mikil áhrif á fóstur, sem er mjög vel varið í líkama konunnar, hvaða áhrif hafa þeir þá á konuna sjálfa? Ég ætla að vitna áfram í bók Rachel Carson þar sem hún segir: „í stuttu máli má segja að þau rök sem styðja þá skoðun, að skor- dýraeitur geti óbeint valdið krabbameini, eru reist á þeirri staðreynd, að þau valda tjóni á lifrinni og skorti á B-vítamínum, sem hvort tveggja hefur í för með sér ofvöxt estrogena, sem líkam- inn framleiðir sjálfur. Við þau bætast svo gerviestrogen, sem vér komumst nú í vaxandi mæli í snertingu við - í fegrun- arsmyrslum, lyfjum og matvæl- um og í sambandi við ákveðnar atvinnugreinar. Þegar öll þessi áhrif koma saman, er full ástæða til að óttast þau“. Til þess að snúa þessari þróun við verðum við að viðurkenna að okkur hefur mistekist að bæta sköpunarverk guðs. í staðinn fyrir að krabbameinsvekjandi efnum hafi verið útrýmt aukast þau ár frá ári. Fæðið er að mestu gerilsneytt, rotvarið og litað, að ekki sé talað um sykurneysluna sem er óhugnanleg. Það má segja að börn og unglingar lifi nánst á gosdrykkjum og sælgæti. Það væri sannarlega þörf á því að setja aðvörunarmerkingar á þess- ar vörur, eins og t.d. ofneysla sykurs eykur hættuna á syícur- sýki, ofnæmi, krabbameini og hjartasjúkdómum. Vatns- og loftmengun eykst einnig hröðum skrefum. Frá stóriðjum og út- blæstri bíla myndast koltvíildi sem kemur til baka í súru regni sem er að eyða skógum á norður- hveli jarðar að ógleymdri kjarn- orkunni sem virðist vera að vaxa manninum yfir höfuð. Byggingar og styttur sem staðið hafa ó- skemmdar gegnum aldirnar eru á síðustu árum að molna niður. Eins er að fara fyrir mannslíkam- anum, gervilíffæraiðnaðurinn eykst með hverju ári og með sama áframhaldi verður ekki langt í að við verðum vélmenni með plastæðar. En er velmegunin svokallaða ekki of dýru verði keypt ef við verðum að gjalda hana með líf- inu? Hrefna Magnúsdóttir er húsmóð- ir í Mosfellssveit. Sveittir lögregluþjonar? Mig langar að koma því á fram- færi að það hlýtur að vera mjög þreytandi fyrir lögregluþjóna landsins að þurfa að hafa ein- kennishúfu á höfðinu að sumar- iagi. Ég náði tali af nokkrum þeirra, og þeir segja allir að'það sé erfitt að vera með einkennishúfi á höfðinu að sumarlagi, þeir svitni svo mikið á höfðinu. í flestum löndum er sá háttur hafður á að lögreglumerkið er haft fyrir ofan brjóstvasann á einkennisbún- ingnum, en þá ganga lögreglu- menn þar allir berhöfðaðir, enda ólíkt þægilegra að sumarlagi. Er ekki von á breytingum á þessu hérna í samræmi við önnur lönd? Unnur Jónsdóttir, miðill. FRA LESENDUM Miðvikudagur 6. égúst 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.