Þjóðviljinn - 06.08.1986, Blaðsíða 15
!
ÍÞRÓTTIR
Frakkland
Frakkarkaupa
HM-stjörnur
Franska félagið Brest hefur
keypt tvær af stjörnum
Heimsmeistarakeppninnar í
knattspyrnu. Brasilíumanninn
Julio Cesar og Argentínumann-
inn Jose Luis Brown.
Julio Cesar á ekki beint góðar
minningar um Frakkland, en eins
og flestir muna var það einmitt
hann sem misnotaði seinasta vítið
gegn Frökkum í 8-liða úrslitum.
Hann hlakkaði þó til að leika í
frönsku deildinni og sagði
franska knattspyrnu mjög líka
þeirra brasilísku. Hann hafði
áður fengið tilboð frá stóru liðun-
um í Brasilíu s.s. Sao Paulo og
ónefndu 1. deildarliði á Ítalíu.
Hann kaus þó frekar að gera
fimm ára samning við Brest.
Jose Luis Brown er líklega
þekktastur fyrir að hafa skorað
fyrsta mark Argentínu í úrslita-
leiknum við V-Þýskaland. Hann
hafði áður fengið tilboð frá Val-
encia á Spáni og Cologne í Þýska-
landi.
Alls munu því þrír leikmenn úr
sigurliði Argentínu leika í
frönsku deildinni sem hófst í gær.
Þeir Julio Olitarcoecher mun
leika með Nantes við hlið félaga
síns Jorge Burruchaga sem var
þar síðasta keppnistímabil.
Forráðamenn Brest vildu ekki
gefa upp kaupverðið á þeim
Brown og Cesar, en sögðu verðið
vera lægra en geta leikmannanna
segði til um.
-Ibe/Reuter.
Bretland
Butcher
til Rangers
Enski landsliðsmaðurinn
Terry Butcher sem lék með
Ipswich skrifaði um helgina undir
samning við Glasgow Rangers.
Kaupverðið var 725.000 pund
eða 44 milljónir íslenskar krónur.
Butcher sem er 27 ára lék mjög
vei í Heimsmeistarakeppninni og
var m.a. valinn í Heimsliðið.
Hann er þriðji leikmaðurinn sem
Graham Sounes kaupir síðan
hann tók við í maí. Hann var áður
búinn að kaupa markvörðinn
Chris Woods frá Norwich og
sóknarmanninn Colin West frá
Watford.
Þá er skoski landsliðsmaðurinn
Richard Gough á leið til Eng-
lands. Hann hefur farið fram á
sölu frá Dundee United og vill
spila á Englandi. Glasgow Ran-
gers höfðu áhuga á honum, en
stjórn félagsins kom í veg fyrir
það. Líklegast er að hann fari til
Tottenham. -Ibe/Reuter.
Ítalía
Skipta um
þjálfara
Azeglio Vicini þjálfari ítalska
U-21 liðsins var um helgina skip-
aður næsti þjálfari ítalska lands-
liðsins. Hann tekur við af Enzo
Bearzot sem hefur þjálfað ítalska
liðið undanfarin 11 ár og fylgt
þeim þrisvar í Heimsmeistara-
keppnina þ.ám. árið 1982 þegar
þeir urðu heimsmeistarar.
Vicini tekur strax við, en Be-
arzot óskaði eftir að hætta þegar
samningur hans rann út eftir
Heimsmeistarakeppnina.
Vicini þjálfaði U-21 árs liðið í
10 ár með góðum árangri. Hann
lék á sínum yngri árum með Sam-
podoria og Vicenza. Ekki hefur
verið nefnt hve lengi samningur-
inn gildir, en líklega mun hann þó
þjálfa ítalska liðið fram yfir
Heimsmeistarakeppnina 1990.
Fyrsti leikur Vicini er vináttu-
landsleikur gegn Grikklandi í
október. -Ibe/Reuter.
Golflandsmótið
Úifar og Steinunn sigmðu
- í meistaraflokki. Ulfar yngsti íslandsmeistari frá upphafi.
Jóhann og Alda sigruðu í 1. flokki
Úlfar Jónsson GK, sigraði
glæsilega í meistaraflokki karla á
Golflandsmótinu sem lauk um
helgina. Úlfar er aðeins 17 ára og
er því yngsti íslandsmeistari frá
upphafi. Steinunn Sæmundsdótt-
ir átti góðan endasprett og sigraði
í meistaraflokki kvenna.
Úlfar var í öðru sæti tvo fyrstu
dagana. Hann komst í fyrsta sæt-
ið á þriðja degi og var þá tveimur
höggum á undan Ragnari. Síð-
asta daginn lék hann svo af öryggi
og lék á 74 höggum, en Ragnar á
75.
Ragnar Ólafsson var sá sem
flestir spáðu sigri þegar mótið var
hálfnað. Hann náði ekki að halda
út og lenti því í 2. sæti.
Frammistaða Gylfa Kristins-
sonar GS vakti mikla athygli.
Hann var í 16.-17. sæti eftir ann-
an daginn en endaði í því þriðja.
Lék af snilld tvo síðustu dagana,
72 högg sem var besti árangur
mótsins.
Úrslit í meistaraflokki karla:
1. Úlfar Jónsson GK 299
78-74-73-74
2. Ragnar Ólafsson GR 302
74-75-78-75
3. Gylfi Kristinsson GS 305
83-78-72-72
4. Sigurður Pétursson GR 309
79-75-76-79
5. Gunnar Sigurðsson GR 309
79-81-72-77
Steinunn Sæmundsdóttir var
efst í meistaraflokki kvenna eftir
annan daginn, en lék mjög illa á
þriðja degi og missti forystuna til
Ásgerðar Sveinsdóttur. Hún lék
svo mjög illa á síðasta degi, en
Steinunn var í essinu sína og sigr-
aði í meistaraflokki kvenna.
Úrslit í meistaraflokki kvenna:
1. SteinunnSæmundsdóttir GR 342
88- 82-93-79
2. Ásgerður Sveinsdóttir GR 346
91- 81-84-90
3. Jóhanna Ingólfsdóttir GR 346
86-86-88-86
4. Karen Sævarsdóttir GS 354
89- 91-89-85
5. RagnhildurSigurðard. GR 356
92- 83-92-89
í fyrsta flokki karla var keppni
jöfn. Jóhann náði forystunni
strax í upphafi, en aðrir voru ekki
langt undan. Fyrir síðasta dag
munaði aðeins 5 höggum á fyrsta
og áttunda manni. Jóhann lék vel
síðasta daginn og tryggði sér sigur
í 1. flokki karla.
Úrslit í 1. flokki karla:
1. Jóhann R. Kjerbo GR 319
80- 79-81-79
2. Guðmundur Bragason GG 322
82- 81-78-81
3. Gunnlaugur Jóhannsson GL 322
81- 81-79-81
4. Guðmundur Arason GR 323
83- 82-77-79
Alda Sigurðardóttir GK sigr-
aði með yfirburðum í 1. flokki
kvenna. Munurinn á henni og
næstu á eftir voru 34 högg.
Úrslit í 1. flokki:
1. Alda Sigurðardóttir GK 341
85-83-87-86
2. ÁgústaGuðmundsdóttir GR 375
94-95-96-90
3. Aðalheiður Jörgensen GR 376
100-92-95-89
Áður hefur verið fjallað um
annan og þriðja flokk, en við
látum efstu menn fljóta með til
upprifjunar.
I öðrum flokki karla sigraði
Ögmundur Ögmundsson, GS,
eftir bráðabana við Lúðvík
Gunnarsson, GS, þeir voru báðir
með 334 högg. Bernharð Boga-
son, GE, og Tómas Baldvinsson,
GG, voru jafnir í 3.-4. sæti með
336 högg, en Bernharð sigraði í
bráðabana. í fimmta sæti var Jón
P. Skarphéðinsson, GS, með 338
högg.
I öðrum flokki kvenna sigraði
Sigríður B. Ólafsdóttir, GH,
nokkuð örugglega með 389 högg,
Björk Ingvarsdóttir, GK, var í
öðru sæti með 397 högg og Krist-
ine Eide, NK, varð í þriðja sæti
með 400 högg.
Högni Gunnlaugsson, GS,
sigraði í þriðja flokki á 342 högg-
um. Rúnar Valgeirsson, GS varð
í öðru sæti með 350 og Jóhannes
Jónsson, GR í því þriðja á 352
höggum.
Þetta landsmót er af flestum
talið það besta frá upphafi, varð-
andi skipulagningu. Allar tíma-
setningar stóðust og eiga Logi
Þormóðsson, Ómar Jóhannsson
og Kristján Einarsson hrós skilið
fyrir þá miklu vinnu sem þeir
lögðu á sig til að mótið tækist sem
best og sú vinna skilaði sér. ,,
° -Ibe.
Úlfar Jónsson, yngsti íslandsmeistari frá upphafi og fyrsti (slandsmeistari
GK. Hann er aðeins 17 ára. Mynd: E.ÓI.
Ítalía
Udinese í aðra deild
ítalska 1. deildarfélagið Udin-
ese var í gær dæmt niður í aðra
deild, af aganefnd ítalska Knatt-
spyrnusambandsins, fyrir að
hafa hagrætt úrslitum. Þá var
Lanerossi Vicenza sem vann sér
sæti í 1. deitd síðasta keppnis-
tímabil, dæmt til að fara aftur í
aðra deild.
í stað þessara liða koma Em-
poli og Pisa. Þá voru tvö annarrar
deildar lið dæmd til að byrja
næsta keppnistímabil með 5 stig í
mínus og eitt lið með 4 stig í mín-
us.
Þetta er ekki eina mútumálið á
Ítalíu. ítölsku heimsmeistararnir
frá 1982 voru á dögunum allir
dregnir fyrir rétt fyrir brot á
gjaldeyrislögum. Líklegt þykir að
þeir peningar sem um ræðir hafi
farið í að múta leikmönnum
Camarou til að ítalska liðið kæm-
ist örugglega og áreynslulítið
áfram. Það er þó ekki búið að
staðfesta það. -Ibe/Reuter.
Stelnunn Sæmundsdóttir islandsmeistari kvenna 1986, púttar af öryggi.
Drengjalandsliðið
Lentu í fimmta sæti
íslenska drengjalandsliðið
lenti í 5. sæti á Norðurlandamót-
inu sem haldið var í Danmörku.
íslensku strákarnir léku tvo ieiki
um helgina, sigruðu Færeyinga
4-1 og töpuðu fyrir Norð-
mönnum 1-2.
Þegar þrjár mínútur voru liðn-
ar af íeiknum gegn Færeyjum var
staðan 2-0. Þá tóku Færeyingar
upp á því að pakka í vörn og var
ekki óalgengt að sjá alla Færey-
ingana inní eigin vítateig. ísland
náði þó að bæta einu marki við
fyrri hálfleik. Færeyingar komust
aðeins meira inn í leiltinn í síðari
hálfleik og náðu að skora, en ís-
lendingar bættu líka einu marki
við og leiknum lauk því með sigri
íslands 4-1. Mörk íslands
skoruðu þeir Ingólfur Ingólfsson
2, Axel Vatnsdal og Sigurður
Bjarnason.
ísland lék svo gegn Noregi og
tapaði 1-2. Staðan í hálfleik var
1-1. Mark íslands gerði Sigurður
Bjarnason.
ísland lenti því í 5. sæti, en það
gefur kannski ekki rétta mynd af
getu liðsins því strákarnir töpuðu
oft mjög naumlega.
-Ibe
Miðvlkudagur 6. ágúst 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15