Þjóðviljinn - 06.08.1986, Blaðsíða 1
1936-1986 ÞJOÐVILJINN 50 ARA
6
ágúst
1986
miðviku-
dagur
174. tölublað 51. árgangur
IÞROTTIR
VIÐHORF
HEIMURINN
►að var mikið fjér á útiMHum um helgina og þesai myrnl var teton á þ)éÉhití6 í iyjum þegar menn voru at gera sig klára fyrir Stuðmannatoatiið í Herjólfsdat.
Mynd Ari.
Verslunarmannahelgin
Fjör um allt land
Um 25.000gestir voru á skipulögðum hátíðum. Alltfór vel fram.
10.000 í Vestmannaeyjum og 6000 í Galtalœk.
Brennukóngurinn í Eyjum brenndist
Utihátíðir um landið gengu
stórslysalaust fyrir sig um
helgina. Flest var í
Vestmannaeyjum, á milli 10-
11.000 manns og að sögn Þórs Vil-
hjálmssonar formanns þjóðhátíð-
arnefndar var minna annríki í
sjúkratjaldinu en áður miðað við
mannfjölda og höfðu læknar þar
plástrað og tekið spor í um 170
manns á laugardeginum.
Sigurður Reimarsson, brenn-
ukóngur Eyjamanna síðastliðin
30 ár, varð þó fyrir því óhappi að
brenna sig í andliti og á höndum
þegar hann kveikti í brennunni á
föstudaginn. Búið var að hella
olíu á köstinn og gekk Sigurður of
nálægt honum til að kasta kyndli
á hann. Hann er nú á sjúkrahúsi
en er á batavegi.
Á Gauknum, útihátíð í Þjórs-
árdal, voru um 3000 gestir og í
Galtalæk komu um 6000 manns,
mest fjölskyldufólk en þó meira
af unglingum en verið hefur.
Þetta var í 19. sinn sem bindindis-
mót var haldið í Galtalæk en það
27. af þeim mótum sem templar-
ar hafa staðið fyrir.
Á útihátíð Faralds að Laugum
komu um þúsund manns og er
það heldur minna en vonast var
eftir að sögn Eggerts Þorleifs-
sonar.
Vestfirðingar fjölmenntu í
Skeljavík við Hólmavík og töldu
mótshaldarar að þangað hefðu
komið um 15-1600 manns, þrátt
fyrir gleymsku sjónvarpsmanna
þegar þeir veittu öllum öðrum
hátíðum ókeypis auglýsingu í
þættinum „Unglingarnir í frum-
skóginum" fyrir helgi. Skeljavík-
urhátíðin fór vel fram og sagðist
Matthías Lýðsson lögregluþjónn
vilja koma á framfæri þakklæti
fyrir hönd lögreglunnar til
vestfirsku unglinganna sem voru
Kvennaathvarfið
Borgin
borgar
Reykjavíkurborg greiddi 300
þúsund krónur til Samtaka um
kvennaathvarf í síðustu viku og
hefur þá greitt að mestu þá upp-
hæð sem samþykkt var á fjár-
hagsáætlun fyrir þetta ár.
Greiðslan kom í kjölfar viðræðna
fulltrúa samtakanna við borgar-
yfirvöld í síðustu viku. Samtökin
hafa sótt um aukafjárveitingu frá
borginni.
Guðrún Jóhannsdóttir starfs-
maður athvarfsins sagði í samtali
við blaðið í gær að þessar 300 þús-
und krónur færu beint í rekstur
athvarfsins, en áður hefur safnast
talsvert fé til viðgerða á húsnæð-
jnu eins og kunnugt er.
Þær Sigríður Stefánsdóttir,
Úlfhildur Rögnvaldsdóttir og
Helga Árnadóttir bæjarfulltrúar
á Akureyri lögðu í síðustu viku
fram tillögu í bæjarstjórn um að
Akureyrarbær greiddi athvarfinu
100 þúsund króna styrk vegna
fjárhagsörðugleika þess, en til-
Iögunni var vísað í bæjarráð.
Mjög skiptar skoðanir munu hafa
verið um styrkveitinguna í bæjar-
stjórninni.
Bæjarstjóm Garðabæjar hefur
samþykkt aukafjárveitingu til at-
hvarfsins að upphæð 30 þúsund
krónur. Vitað er að nokkur
sveitarfélög að auki íhuga nú að
styrkja starfsemina.
Þá hefur konunum borist
stuðningur víða að frá einstak-
lingum og félögum, m.a. frá Há-
teigskirkju, sem greiddi 50 þús-
und krónur.
-«g
Kasparoff
vann
að hans sögn „framúrskarandi
skemmtilegt fólk.“
Ferðafólk fjölmennti víðar á
landinu, 300 manns voru í Bjark-
arlundi, um 2000 í Atlavík og
svipað á Þingvöllum.
Sjá bls. 6-7 'vd-
Fjórða skákin í heimsmeistara-
einvíginu fór í bið á mánudags-
kvöldið en Karpoff gafst upp í
gær án þess að tefla frekar.
Kasparoff tefldi miðtaflið mjög
vel og urðu biskupar hans meiri
og sterkari en aðrir menn á borð-
inu. Flann hefur nú hlotið 2Vz
vinning en Karpoff l'/2 vinning.
Næstu skák á að tefla í dag en
skáksérfræðingar í London töldu
ekki ósennilegt að Karpoff tæki
sér frí eftir hrakfarirnar í fjórðu
skákinni. -jt
Sjá bls. 2
Mjólkurbú Flóamanna
Framleiðsla minnkar um fimmhing
Mjólkurframleiðslan dróst saman um 22.8% í júlí.
4.08% samdráttur í landsframleiðslu fyrstu sex mánuði ársins.
Grétar Símonarson: Sé ekki fram á mjólkurskort
Mjólkurframleiðsla hjá Mjólk-
urbúi Flóamanna á Selfossi dróst
saman um 22.8% í júlímánuði
miðað við sama mánuð í fyrra.
Samdrátturinn nam 14.6% í júní.
Hins vegar hefur mjólkurfram-
leiðsla á landinu aukist um 1.8%.
Það sem af er þessu verðiagsári,
sem lýkur um næstu mánaðamót.
„Það er gífurlegur samdráttur
og ég á ekki von á að hann verði
minni nú í ágúst. En hins vegar
gerum við ráð fyrir að ástandið
batni með nýju verðlagsári og ég
er ekki svo svartsýnn að ég sjái
fram á mjólkurskort," sagði
Grétar Símonarson mjólkurbús-
stjóri á Selfossi í samtali við blað-
ið í gær.
Mikill samdráttur hefur einnig
orðið á síðustu mánuðum hjá
Mjólkursamlagi KEA. Að sögn
Þórarins Sveinssonar mjólkur-
samlagsstjóra varð 9.8% sam-
dráttur í júlí, en framleiðslan hef-
ur minnkað um 7.42% frá ára-
mótum miðað við sömu mánuði í
fyrra.
Eiríkur Davíðsson hjá fram-
leiðsluráði landbúnaðarins sagði
í gær að samdráttur á landinu öllu
hafi verið 14.77o í júlí miðað við
júlí 1985. Fyrstu sex mánuði árs-
ins var samdráttur í mjólkurfram-
leiðslu landsmanna 4.08%. Ef á
hinn bóginn er miðað við verð-
lagsár, sem hefst 1. september,
hefur framleiðslan aukist um
1.8% eins og áður segir.
Samkvæmt reglugerð um bú-
mark ábyrgist ríkið fulla greiðslu
til bænda á 107 miljónum
mjólkurlítra á þessu verðlagsári.
Nú þegar hafa verið framleiddir
101.5 miljónir lítra og átti Eiríkur
von á að framleiðslan færi tals-
vert fram yfir 107 miljónir lítra.
-gg