Þjóðviljinn - 12.08.1986, Síða 2
_________________FRÉTTIR_____________
Neytendasamtökin
Krefjast verðlækkunar
Neytendasamtökin hóta aðgerðum efekkert er gert ímálunum. Kartöflur hafa hœkkað um
74% fráþvííjúlísl.. Agúrkur um 58% frá þvíífyrra. Engin samkeppni.
Neytendur hafa enga valmöguleika
„Frá því í byrjun júní sl. hefur
verð á kartöflum hækkað úr 47
kr. að meðaltali í 82 kr. kflóið,
sem er rösklega 74% hækkun“
sögðu talsmenn Neytendasamtak-
anna á blaðamannafundi sem
Neytendasamtökin efndu til í gær
í tilefni þess að samtökin krefjast
verðlækkunar á kartöflum og
fleiri tegundum garðávaxta sem
hafa hækkað mikið undanfarið.
Á fundinum kom í ljós að verð
á kartöflum í byrjun september í
fyrra, þegar nýjar íslenskar kart-
öflur voru komnar á markað, var
37 kr. kílóið. Þær eru því seldar
nú á 122% hærra verði, tæpu ári
síðar. í fréttatilkynningu samtak-
anna segir að á undanförnum 12
mánuðum hafi framfærsluvísi-
talan hækkað um 21,5% og mat-
vöruvísitalan um 23%. Eðlilegra
verð á kartöflum væri því að með-
altali um 45 kr. kílóið.
Forsvarsmenn Neytendasam-
takanna sögðu að þeir vissu að
kartöflur ættu að lækka eitthvað
en það sem nefnt hefur verið er
svo lítil verðlækkun að vart er tal-
andi um hana. Sem dæmi má
nefna að gullauga lækkar í dag úr
82 kr. kílóið í 78 kr..
Neytendasamtökin bentu
einnig á það að fyrir ári síðan
kostuðu gulrófur 43 kr. kílóið og
höfðu mánuði síðar lækkað í 28
kr.. Nú kosta þær um 90 kr.. Eðli-
legra verð á rófunum nú væri um
53 kr. og ættu þær að lækka í 34
kr. fram til næstu mánaðamóta,
miðað við eðlilega verðlagsþró-
un. Vegna þess að ekki er von á
því að garðávextir lækki verulega
á næstunni vilja Neytendasam-
tökin skora á framleiðendur og
dreifingaraðila að lækka verð nú
þegar á kartöflum og öðrum
garðávöxtum sem hækkað hafa
óeðlilega mikið. Samtökin benda
á að svona hátt vöruverð leiðir til
minnkandi neyslu á þessu holl-
meti og eykur það enn á offram-
leiðslu í landinu.
Neytendasamtökin beina því
til alþingismanna, að á næsta
þingi verði felld niður heimild til
Fullt hús
matar
Nýsvínalæri 245 kr. kg.
Nýrsvínabógur 247 kr. kg.
Svínakótelettur 490 kr. kg.
Ódýru
lambaskrokkarnir
rúllupylsurfylgjameð 182 kr. kg.
Lambahryggir 253 kr. kg.
Lambalæri 258 kr. kg.
Nautagullasch 460 kr. kg.
Nautabuff 550 kr. kg.
Nautahakk 10 kg.pk. 250 kr. kg.
Ódýra
hangikjötið læri 348 kr. kg.
Ódýrir
hangiframpartar 225 kr. kg.
opið laugardaga
kl. 7-16
Verið velkomin.
landbúnaðárráðherra um að
leggja á allt að 200% jöfnunar-
gjald á innfluttar kartöflur. Þessi
álagning hefur eingöngu orðið til
að hækka verð á kartöflum og fá
fólk til að sætta sig við mjög hátt
vöruverð. Forsvarsmenn samtak-
anna sögðu að ráðherra hefði
stimplað alla vertíðina vitlaust
inn og brenglað verðskyn al-
mennings.
Samtökin óska eftir því við
verðlagsyfirvöld, að nú þegar fari
fram rannsókn á verðmyndun
kartaflna og annars grænmetis og
verði borið saman við verðmynd-
un áður en verðlagning var gefin
frjáls.
Samtökin segja ennfremur í
fréttatilkynningu að kartöflur og
garðávextir séu nauðsynjavara
sem fráleitt sé að leggja á toll eða
önnur gjöld. Því hvetja samtökin
stjórnvöld til að fella niður gjöld
á þessari vöru þegar hún er flutt
inn til landsins.
Framleiðendum benda sam-
tökin á að í dag væri hægt að flytja
inn kartöflur sem í verslun kost-
uðu á bilinu 44-57 kr. kílóið. Ef
jöfnunargjaldið væri ekki við
lýði, myndu þær kosta á bilinu
29-39 kr. kflóið og þykir það lítið
borið saman við meðalverð á nýj-
um íslenskum kartöflur sem er 72
kr. eftir lækkunina í dag.
Á blaðamannafundinum
sögðu forsvarsmenn Neytenda-
samtakanna að ef frjáls álagning
þýðir svo mikla verðhækkun,
sem raun ber vitni, þá áskili sam-
tökin sér rétt til að krefjast að
verðlagsákvæði verði tekin upp á
nýjan leik eða þau grípi til að-
gerða til að knýja niður vöru-
verð.
Aðspurðir um hvernig aðgerð-
ir Neytendasamtökin myndu
grípa til, sögðu þeir að haldið yrði
uppi áróðri til að fá neytendur til
að forðast að kaupa ákveðnar
vörutegundir.
Að lokum benntu samtökin á
að raunveruleg samkeppni er
ekki til staðar og enginn val-
möguleiki fyrir hendi. 4 dreifing-
araðilar eru í landinu en þeir eru
allir með nánast sama heildsölu-
verð. Það er liðin tíð að keypt sé
af bændum beint. Búið er að
kippa innfluttningi út úr sam-
keppninni með einföldu banni,
þannnig að nú hefur neytandinn
enga valmöguleika, sögðu for-
svarsmenn Neytendasamtak-
anna. SA.
Á blaðamannafundi sem Neytendasamtökin héldu í gær. F.v. Jónas Bjarnason, formaður landbúnaðarnefndar, Krist-
björn Jónsson, starfsmaður samtakanna, Jóhanns Gunnarsson formaður Neytendasamtakanna.
Sviptingasamt miðtafl
Sjötta skákin í heimsmeistara-
einvíginu var tefld í gær og fór í
bið í jafnteflislegri stöðu. Kaspa-
roff hóf leikinn með kóngspeðinu
og Karpoff svaraði með Petrofls
vörn en hún þykir afar traust.
Kasparofl fórnaði peði og upp-
hófust þá miklar flækjur. Hann
bauð upp á annað peð og virtist
um tíma vera að knésetja Karp-
off. En svarta staðan var seig.
Hornsteinn hennar var fírna-
sterkur ríddari á e6. Eftir mikil
uppskipti kom upp endatafl þar
sem hrókar og mislitir biskupar
voru á borðinu. Hvíta peðastaðan
er veikari, tvipeð á h-línunni en
ekki auðgert að hagnýta sér það.
Biðskákin verður tefld áfram á
morgun.
Hvítt: Kasparoff
Svart: Karpoff
1. e4 - e5
2. Rf3 - Rc6
3. Rxe5 - d6
4. Rf3 - Rxe4
5. d4 - d5
6. Bd3 - Rc6
7. 0-0 - Bg4
8. c4 - Rf6
9. Rc3 - Bxf3
10. Dxf3 - Rxd4
Þannig tefldist 15. skákin í öðru ein-
vígi þeirra Karpoffs og Kasparoffs.
Þálék Karpoff 11. Hel+ Be712. Ddl
en Karpoff skilaði peðinu til baka og
síðan var samið um jafntefli eftir lið-
lega 20 leiki. Nú breytir Kasparoff út
af og virðist nýja leiðin hvassari.
11. De3+ - Re6 14. Be4 - Db5
12. cxd5 - Rxd5 15. a4 - Da6
13. Rxd5 - Dxd5 16. Hdl - Be7
Fyrstu leikirnir voru tefldir hratt en
nú lögðu meistararnir höfuðin í bleyti
svo um munaði. Enn einu sinni hefur
Kasparoff biskupaparið og staðan er
opin svo þeir njóti sín vel. Meðan
hvíti hrókurinn stendur á dl getur
svartur ekki hrókað langt og það er
hættulegt að hróka stutt. Hér kom til
greina að leika 17. Dh3 eða Df3 (eftir
c7-c6 er svarta drottningin úr leik) um
hríð en hvítur bauð upp á annað peð.
17. b4 - 0-0
Peðið er óholt, t.d. 17. ... Bxb4 18.
Db3 c5 19. Bd3 Db6 20. Bb5+ Kf8
21. Bb2 og kóngur svarts er á ver-
gangi en menn hans ná ekki saman.
18. Dh3 - g6
19. Bb2 - Dc4
í síðasta leik hvíts kom til álita að
leika 19. b5 (Db6) til að halda b-
peðinu. Annars er staðan afar flókin.
20. Hd7 - Ha-e8
Ef 20. ... Dxb4 kemur 21. Bxg6 og
vinnur.
21. Bd5 - Dxb4
22. Bc3 - ...
8
7
6
5
4
3
2
1
IX
AAiniiii
4
m,
abcdefgh
JSST Laugalæk 2 — S: 686511
2 SlÐA - ÞJÓÐVILJINN Þrlðjudagur 12. ógúst 1986
Hárskurður
Landslið
til Veróna
Heimsmeistarakeppnin í hár-
greiðslu og hárskurði verður
haldin í Veróna á Ítalíu dagana
14.-16. september nk.
íslendingar munu nú í fyrsta
skipti senda lið í keppnina og hef-
ur þjálfun keppenda nú staðið
yfirínokkramánuði. Landsliðiðí
hárgreiðslu hefur verið undir
handleiðslu eins besta þjálfara
Hollands, John Scholts. Þó John
sé ungur að árum hefur hann
geysilega mikla keppnisreynslu
og hefur unnið yfir 280 bikara í
keppnum út um allan heim.
í júnímánuði síðastliðnum fór
landsliðið á viku námskeið í Hol-
landi, þar sem John lagði línurnar
fyrir þjálfun þeirra. í framhaldi af
því mun hann koma hingað helg-
ina 8.-11. ágúst og endanlega
leggja fram drög að þjálfunar-
prógrammi fyrir keppnina.
Þátttaka íslands í keppninni
verður án efa mikil landkynning-
og hugur í keppendum að standa
sig sem best.
Landslið íslands er þannig
skipað:
Hárgreiðsla:
Dóróthea Magnúsdóttir,
Hársnyrtistofunni Papillu
Guðfinna Jóhannsdóttir, Hár-
greiðslustofunni Ýr
Helga Bjarnadóttir, Hárgreiðslu-
stofunni Carmen
Hárskurður:
Eiríkur Þorsteinsson, Rakara-
stofunni Greifanum
Gísli V. Þórisson, Rakarastof-
unni Hárlínunni
Hugrún Stefánsdóttir,
Hársnyrtistofunni Papillu
Dómarar:
Arnfríður ísaksdóttir og Torfi
Geirmundsson.
(Fréttatilkynning).
Nú virðast öll spjót standa á svarti en
riddarinn bjargar honum.
22. ... - Rf4
Nú skiptist upp í endatafl því ef
drottningin víkur sér undan kemur
23. ... Dxb3og24. ... Re2+ ogsvart-
ur vinnur.
23. Bxb4 - Rxh3+ 2S- H*c7 - b6
24. gxh3 - Bxb4 26■ Hxa7 - Kg7
Orustureykinn hefur lagt til hliðar.
Peðastaða hvíts er veikari en meðan
mislitir biskupar eru á borðinu þarf
hann lítið að óttast. Næstu leikir voru
leiknir hratt. Einföld leið fyrir hvítan
til jafnteflis var 27. Hb7 Bc5 (eftir
Ba5 er biskupinn úr leik) 28. a5 bxa5
29. Hxa5 og síðan að pressa á f7-
peðið.
27. Hd7 - Hd8
28. Hxd8 - Hxd8
29. Hdl - Hd6
30. Hd3 - h5
31. KH - Hd7
32. Kg2 - Bc5
33. Kfl - h4
34. Bc4 - He7
35. Hf3 - Bd6
36. Kg2 - Hc7
37. Bb3 - fS
38. Hd3 - Bc5
39. Hc3 - Kf6
40. Hc4 - g5
41. Hc2 - Ke5
Hér fór skákin í bið. Karpoff hefur
heldur betri stöðu. Eftir hrókakaup
er staðan dautt jafntefli en meðan
hrókarnir eru á borðinu má þvæla
stöðuna eitthvað, binda hvíta kóng-
inn við peðaveikleikana í horninu og
pota sínum kóngi áfram.