Þjóðviljinn - 12.08.1986, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 12.08.1986, Qupperneq 5
stutt Þroskaþjalfun Starfsfólk stoppar Rætt við Kristjönu Sigurðardóttur þroskaþjálfa um starf hennar á Kópavogshæli og málefni þroskaheftra Kristjana Sigurðardóttir deildarþroskaþjálfi í Hús- inu, sambýli fyrir þroska- hefta í Kópavogi, hefur starfað með þroskaheftu fólki síðan 1960. „Þegar ég var að læra þá vorum við kallaðar gæslusystur, og það lýsir ágætlega viðhorfi þeirra tíma,“ sagði Krist- jana. Hún er fædd á Kúvík- um í Reykjafirði en uppalin ásamt níu systkinum á Djúpuvík. Áhugann á starf- inu telur hún að hún hafi fengið strax sem barn á Ströndunum því þar var töluvert af vangefnu fólki sem flakkaði milli bæja og var á hálfgerðum vergangi. „Margt af þessu fólki myndi vera á sambýli sem Húsinu í dag,“ sagði Kristjana. „En það var alls staðar tekið vel á móti því, kannski vegna þess að þetta var lítill hreppur og einangraður þannig að allir þekktu alla og tóku þeim eins og þeir voru. Við krakkarnir ólumst því upp við að líta á vangefna sem eðlilegan hlut í tilverunni. Kobbaskeið var úr silfri Ég man vel eftir einum manni sem kom stundum heim, sá var kallaður Kobbi. Hann var mjög matlystugur og fékk að borða hjá okkur með sérstakri skeið úr silfri sem var kölluð Kobbaskeið. Mamma dreif upp veisluborð þegar hann kom og við krakkarn- ir horfðum á hann borða eða skófla í sig matnum með stóru skeiðinni. Einu pari man ég líka eftir sem lifði á því að flakka á milli bæja og alls staðar var það leyst út með matargjöfum og klæðnaði. Mitt viðhorf hefur mótast af þessu og mér hefur alltaf liðið vel með þessu fólki. En þegar ég sagði systkinunum mínum að ég ætlaði að læra þetta þá varð allt vitlaust. Pabbi og mamma stóðu þó með mér og ég fór í skólann 1960. Þá bjuggu nemendurnir inn á.Kópavogshæli því það var þá svo út úr að við gátum ekki búið í Reykjavík og farið á milli því starfið hófst klukkan sex á morgnana. Þá átt- um við að vekja vistmennina og sennilega heftir reksturinn á þessu verið hugsaður þannig að þetta var rekið einsog spítali. Kópavogshælið var í tveimur hús- um, karla- og kvennahúsi en blandað var á deildunum getu- lega séð. Þetta voru einu bygg- ingarnar og stóðu austan við gamla Holdsveikispítalann. Það var búið við þröngan kost en upp úr þessu var byrjað að byggja lengjuna sem er núna deildir 7- 10. Þá byrjuðu öfgarnar í bygging- unum í öfuga átt að mínu mati. Þetta var byggt flannastórt og átti að vera svo bjart og flott. En gangarnir eru svo stórir og vega- lengdirnar svo miklar að það er mjög óhentugt. Manneskjulega hliðin gleymdist alveg. Vangef- inn einstaklingur verður að labba marga tugi metra á milli vistar- vera. Nálægð við annað fólk er van- gefnum mjög mikilvægt og þess vegna finnst mér svo gott að vinna í Húsinu sem er skipulagt einsog venjulegt heimili. Og ég finn stóran mun á vistmönnum sem hafa dvalist á fjölmennari og stærri deildum áður. Öryggis- kenndin eykst og það er staðr- eynd að það er ekki hægt að vinna með þroskaheftum einstak- lingum fyrr en þeir geta treyst á umhverfið og mann sjálfan. I litl- um sambýlum geta þeir heldur ekki einangrað sig og allt starf verður auðveldara." Troðlð á deildunum - Aðstaðan hlýtur þó að vera betri en þegar þú hófst störf 1960? „Jú vissulega. Húsnæðið í þá daga var þó ágætt miðað við þeirra tíma mælikvarða, en það gekk erfiðlega að fá starfsfólk. Hælið var útúr og Strætisvagnar Kópavogs ekki farnir að ganga. Aðeins einn starfsmaður var á kvöldvakt en vistmennirnir fóru snemma í háttinn, annars hefði þetta ekki gengið. Það var troðið á deildunum og þá varð Kópa- vogshæli að taka við öllum sem komust ekki að á öðrum stöðum, tii dæmis á Skálatúni eða Sól- heimum. Við fengum líka marga frá Kleppjárnsreykjum. Það sem bjargaði miklu var að þarna voru duglegir vistmenn sem gátu hjálpað mikið til. í dag eru ein- staklingar sem vinna með okkur á Hælinu sem voru þar þegar ég byrjaði. Ég man eftir einum sem vakti okkur alltaf á réttum tíma á morgnana en við vissum aldrei hvort hann kunni á klukku. Það veitir þessu fólki lífsfyllingu að hafa slíkt hlutverk og það er mjög mikilvægt. í dag fylgjast þau vel með öllu sem varðar starfsfólkið og fjöl- skyldulíf þess, spyrja eftir börn- unum og þess háttar.“ - Hver eru helstu vandkvæðin í þessu starfi? „Alvarlegasti vandinn er sá að starfsfólk helst svo stutt við vegna lágra launa. Það er mjög erfitt fyrir vangefna að þurfa að laga sig að tugum starfsfólks um ævina og gerir allt erfiðara. Ef maður fer í sumarfrí þá halda þau að maður sé að hætta, svo vön eru þau örum mannabreytingum. Okkur finnst slæmt ef börn okkar þurfa að skipta um kennara og vitum að það eykur á öryggisleysi þeirra. Vangefið fólk þarf alltaf að búa við þetta öryggisleysi og eins og ég nefndi áðan þá er ekki hægt að vinna með vangefnum nema kynnast þeim og vinna traust þeirra. Kallaði okkur líknarsystur Þetta er vandamál í öllum upp- eldisstéttum í dag sem þarf að leysa. í þetta nám ætti enginn að fara nema að áhuginn sé svo mik- ill að hann geti verið í þessu í langan tíma en staðni þó ekki. Margir halda að þeir sem vinna með þroskaheftum séu svo „gott“ fólk en það er ekki nóg og raunar rangur skilningur. Ein frænka mín kallaði okkur alltaf „líknars- ystur“ en ekki gæslusystur því hún misskildi starf okkar alveg. Þroskaþjálfastarf byggist heldur ekki eingöngu upp á fagmennsku þó hún sé nauðsynleg. Sterk skapgerð og þolinmæði eru nauðsynlegir eiginleikar. Þetta er bæði líkamlega og andlega erfið vinna og áhugi á málefninu er því nauðsynlegur. Það er eðlilegt að hver starfsmaður geti ekki unnið í langan tíma við ströng prógrömm einsog til dæmis atferlismótun krefst og sumir finna sig best í að starfa með fullorðnum einstak- lingum í sambýli. Þetta er sú vinna sem ég kann best við, og eitt atriði finnst mér mikilvægt hér í Húsinu. Á matmálstímum sitjum við öll við kringlótt eldhúsborð en í gamla daga þá sat allt fólkið við stór langborð og svo var bara skammtað á línuna. Minn draumur er að keypt verði upp ein gata með litlum húsum og fólkið búi við skipulag einsog er í Húsinu. Það væri áreiðanlega ódýrara þegar upp væri staðið og langtum betra fyrir fólkið. Það er engin lausn að kaupa fín og dýr einbýlishús í einhverju út- hverfi þar sem enginn veit að íbú- arnir eru vangefnir, þau geta ein- angrast jafnmikið þar og inni á stórri stofnun." Mestu framfarirnar | voru að opna stofnunina - Helstu framfarirnar í málefn- um þroskaheftra? „Það eru lyfin meðal annars. Nú eru komin mikið betri lyf, bæði við geðkvillum sem oft fylgja vangefni og eins floga- veikilyf. Mestu framfarirnar eru þó þær að opna stofnunina meira og leyfa vistmönnum að fara um og hafast eitthvað að. Fólk sem er fullt af ónotaðri orku hneigist alltaf meira til óæskilegs atferlis. Það var til mikilla bóta þegar vangefnir fóru að fá vasapeninga sem þeir geta ráðstafað að eigin vild. Þessir peningar gera okkur kleift að fara með þeim í bíó, leikhús og svo framvegis. Áður borguðum við starfsmennirnir stundum slíkt úr eigin vasa og gátum þar af leiðandi lítið farið með þau. Það voru engir pening- ar til og ef einhver átti afmæli þá kom fyrir að við borguðum gjafir sjálf. Núna geta þau keypt jóla- og afmælisgjafir handa hvort öðru og ættingjum. Þau hafa mjög mikla ánægju af að fara í bæinn og versla og mér hefur alltaf fundist mjög gaman að halda upp á jólin með þeim, gleð- in er svo mikil.“ - Að lokum, mikilvægustu at- riðin til bóta fyrir þroskahefta einstaklinga? „Að unnið sé með fáum í litlu rými og að kjör starfsfólks séu bætt til þess að það haldist lengur við í starfinu. Við mundum sjálf varla vilja búa með hundruðum einstaklinga yfir ævina og því ætt- um við þá að ætlast til þess að vangefnir þurfi þess?“ -vd. Kristjana Sigurðardóttir þroskaþjálfi: starf þroskaþjálfa er mjög krefjandi, bæði líkamlega og andlega, og ófaglært starfsfólk er okkur því mikil stoð. Mynd E.ÓI. Þriðjudagur 12. ágúst 1986 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.