Þjóðviljinn - 12.08.1986, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 12.08.1986, Blaðsíða 16
MOOHUIMN 1936-1986 ÞJÓÐVILJINN 50 ÁRA Háskólinn Hugmyndir um kennslugjöld Nefndskipuð afmenntamálaráðuneyti hefurskilað áliti. Sigmundur Guðbjarnarson rektor: Ekki sammálaþessari hugmynd. Björk Vilhelmsdóttir FVM: Vœri vegið að jafnrétti til náms Nýlega hefur skilað áliti nefnd sem menntamálaráðherra skipaði á síðasta ári til að gera tillögur um fjárlaga- og þróunar- áætlun fyrir Háskóla Islands 1986-1989. í skýrslu þessari eru margháttaðar tillögur, svo sem um meira og betra húsnæði fyrir Háskólann, fleiri stöðugildi, dregið verði úr kennsluálagi og lagt er til að kennsla á háskóla- stigi verði hafin á Akureyri 1987. Bent er á fjármögnunarleiðir og vekur það athygli að þar er sett fram það sjónarmið að tekin verði upp kennslugjöld við Há- skólann. „Þetta er aðeins hugmynd, ekki tillaga“ sagði Árni Gunnars- son hjá menntamálaráðuneytinu. Sigmundur Guðbjarnarson rekt- or, sem átti sæti í nefndinni, var spurður að því hvort einhugur hefði verið um þessa hugmynd og hvort hann væri henni samþykk- ur. Hann sagði að þetta sjónar- mið hefði komið fram hjá á- kveðnum aðilum í nefndinni en hann væri því ekki samþykkur. „Það er eðlilegt að menn velti þessu fyrir sér þegar skórinn kreppir að, en þetta er ekki á dag- skrá hjá okkur“ sagði Sigmund- ur. í sama kafla skýrslunnar er meðal annars lagt til að Há- skólinn taki gjöld fyrir þá þjón- ustu sem honum er ekki skylt að veita. Árni Gunnarsson skrifstofu- stjóri í menntamálaráðuneytinu sem einnig átti sæti í nefndinni, var spurður að því hvaða þjón- usta það væri og svaraði hann því til að hér væri átt við pappírs- kostnað sem fylgir ljósritun kennslugagna fyrir nemendur. Nú er það svo að hver nemandi greiðir 700 krónur árlega í papp- írsgjöld og var Sigmundur Guð- bjarnarson rektor því spurður hvort þau gjöld yrðu þá felld nið- ur. „Þetta pappírsgjald hefur verið mönnum mikill þyrnir í augum“ sagði Sigmundur „og margir telja sig vera að greiða kostnað fyrir aðra því þörf fyrir ljósritun er mismunandi eftir deildum. Ef farið verður að þessari tillögu þá mun þetta 700 króna gjald leggj- ast niður og það metið í einstök- um deildum hve mikið nemendur þurfa að greiða í pappírs- kostnað“. „Ef tekin verða upp kennslu- gjöld við Háskólann þá er vegið að jafnrétti til náms“ sagði Björk Vilhelmsdóttir í Félagi vinstri manna í samtali við blaðið. „Við munum standa gegn því að það verði á ný forréttindi þeirra efn- aðri að komast til mennta.“ -vd. Jarðfrœði Rússar sprengja í Eyjafirði Tilgangurinn er að frœðast um jarðlög undir blóm- legum landbúnaðarhéruðum Eyjafjarðar essa dagana er hópur sov- éskra jarðfræðinga að hefja jarðlagarannsóknir í Eyjafirði með bergmálsmælingum. Að sögn Einars Kjartanssonar, jarðeðlisfræðings hjá Orkustofn- un, eru þessar rannsóknir fram- kvæmdar þannig að lögð er röð af skynjurum á jörðina og fram- köiluð sprenging. Skynjararnir nema síðan endurvarpið af hljóð- bylgjunum sem fara ofan í jörð- ina og með þessu móti á að vera hægt að verða nokkurs vísari um samsetningu jarðlaga. Dr. Muzylev, foringi sovéska leiðangursins, sagði að þeir reiknuðu með að verða við þessar rannsóknir í Eyjafirði fram á haustmánuði, sennilega fram í október. Það ætti ekki að koma eyfirsk- um bændum á óvart þótt þeir heyri sprengingar af og til á næstu vikum og eflaust verða einhverjir þeirra góðfúslega beðnir leyfis til að vísindamennirnir fái að fara yfir land þeirra. -yk. Sovósku vísindamennirnir fyrir framan einn farkostinn sem virðist búinn undir öllu meira torleiði en víðast þekkist í eyfirskum sveitum. Mynd: -yk. Útvarp/sjónvarp Rætt um fjölmiðlarisa ísfilm ístöðugum viðrœðum við íslenska sjónvarpsfélagið og íslenska útvarpsfélagið. Rœtt um sameiginleg hagsmunamál og jafnvel samruna Ísfilm hf. stendur nú í viðræðum við íslenska sjónvarpsfélagið og íslenska útvarpsfélagið. Rætt er um ýmis sameiginleg hagsmunamál þessara aðila og ennfremur hvort möguleiki sé á samstarfi og jafnvel samruna. Þær viðræður sem hér um ræðir hafa farið mjög leynt og eru for- svarsmenn framangreindra aðila ekki tilbúnir til að upplýsa í hverju nákvæmlega viðræðurnar felast. Eftir því sem Þjóðviljinn kemst næst er ekki fráleitt að um einhverskonar samruna verði að Bílslys Jacquillat látinn Franski hljómsveitarstjórinn fórst í bílslysi í fyrrinótt Jean-Pierre Jacquillat Franski hljómsveitarstjórinn Jean-Pierre Jacquillat lést í bílslysi í fyrrinótt í suðurhluta Frakklands. Hann var einn í bfln- um og á leið til sumarhúss síns á þessum slóðum. Jean-Pierre Jacquillat var fæddur árið 1935 og var íslend- ingum að góðu kunnur. Hann var aðalstjórnandi Sinfóníuhljóm- sveitar íslands í sex ár, frá 1980 til vors 1986 þegar hann hélt sína formlegu lokatónleika sem að- alstjórnandi Sinfóníunnar; eftir- minnilega tónleika þar sem leikin var tónlist eftir Ravel og Berlioz, en Jacquillat var dugmikill túlk- andi tónlistar síns heimalands. Hann var einnig maðurinn á bak- við vel heppnaða tónleikaför Sin- fóníuhljómsveitar íslands til Fra- kklands. Þótt Jean-Pierra Jacquillat hafi látið formlega af föstu starfi við Sinfóníuhljómsveit íslands í vor, væntu menn þess að íslendingar fengju notið krafta hans áfram. Þessi hörmulegi atburður slekkur þá von. -pv ræða, einkum þá íslenska sjón- varpsfélagsins og ísfilm. Kristján Jóhannsson stjórnar- formaður ísfilm staðfesti í sam- tali við Þjóðviljann í gær að fyrir- tæki hans ætti nú í viðræðum við íslenska sjónvarpsfélagið og ís- lenska útvarpsfélagið. Ekki vildi Kristján upplýsa í hverju þessar viðræður væru fólgnar, hins veg- ar sagði hann að hér væri um tvö aðskilin mál að ræða, þ.e. annars vegar Sjónvarpsfélagið og hins vegar Útvarpsfélagið. Einar Sigurðsson hjá Út- varpsfélaginu staðfesti að hafa átt í viðræðum við ísfilm og það gerði einnig Jón Óttar Ragnars- son hjá Sjónvarpsfélaginu. Hvor- ugur vildi þó skýra frá gangi þess- ara viðræðna, en skv. heimildum Þjóðviljans ræða menn helst hvernig komist verði hjá harðri samkeppni og undirboðum. Þær umræður munu nú hafa leitt til þess að menn eru farnir að skoða möguleikann á sameiginlegum rekstri. G.Sv. Norðurland Hátið AB um helgina Alþýðubandalagið í Siglufírði efnir til fjölskylduhátíðar að íþróttamiðstöðinni á Hóli í Siglu- fírði dagana 16.-17. ágúst nk.. Á Hóli er hin ágætasta aðstaða til slíkra samkomuhalda. Gistirými er þar fyrir um 40 manns, svefnpokapláss, tjaldstæði og úti- grill. Dagskráin verður leikin af fingrum fram en þarna verður sungið, farið í leiki og gönguferð- ir, kvöldvaka verður við varðelda o.fl.. Þótt Alþýðubandalagið í Siglu- firði standi fyrir þessari fjölskyld- uhátíð verður það varla eitt um hituna. Alþýðubandalagið á Norðurlandi eystra varð að aflýsa sinni hátíð fyrr í sumar, vegna veðurs. Hafa nú ýmsir þar um slóðir fullan hug á að bæta sér það upp með því að sækja Siglfirðinga heim um næstu helgi. Vart þarf að efa að Alþýðubandalagsfólk í Skagafirði og Húnaþingi hugsi sér einnig til hreyfings. Stefnt er að því að þátttakend- ur í fjölskylduhátíðinni mæti við íþróttamiðstöðina frá kl. 14.00 laugardaginn 16. ágúst. Þátttaka óskast tilkynnt í síma: 71142 (Brynja), 71406 (Sigurleif), 71712, vinnusími, eða 71624, heima (Hafþór). -mhg

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.