Þjóðviljinn - 20.08.1986, Blaðsíða 1
1936-1986 ÞJÓÐVILJINN 50 ÁRA
MENNING
MANNLÍF
ÍÞRÓTTIR
HEIMURINN
Afmœliskostnaður
Yfir hundrað miljónir
Samanlagt beinn og óbeinn kostnaður hátt á annað hundrað miljóna króna
Líkur má leiða að því að beinn
og óbeinn kostnaður við af-
mælishátíð Reykjavíkurborgar
hafi verið hátt í 200 miljón króna.
Á fjárhagsáætlun borgarinnar
voru 19 miljónir settar undir lið-
inn afmælishátíð, en undir þann
lið fellur allur beinn kostnaður
við hátíðarhöldin. Kostnaður við
kaup á fánastöngum og hátalar-
akerfi er talinn nema um 32 milj-
ónum, en samkvæmt heimildum
Þjóðviljans kostaði kerfið 26
miljónir en ekki 10 miljónir eins
og gert var ráð fyrir á fjárhagsá-
ætlun. Mismunurinn, eða 6 milj-
ónir, er kostnaður við kaup á fán-
astöngum. Áætlaður kostnaður
við tæknisýninguna var 24 milj-
ónir, en auk þess hefur áætlaður
kostnaður við uppbyggingu
Borgarleikhússins á árinu farið
langt fram yfir áætlun, en þar
verður tæknisýningin til húsa.
Undir liðinn Ýmis kostnaður
voru settar 20 miljónir en á síð-
asta ári var 8 miljónum ráðstafað
undir þennan lið. Samkvæmt
heimildum Pjóðviljans hefði sú
upphæð, undir eðlilegum kring-
umstæðum, hækkað um u.þ.b. 2
miljónir og má því reikna með að
10 miljónum hafi verið varið sér-
staklega til hátíðarháldanna: Af
þessari upphæð er m.a. greiddur
kostnaður við móttöku erlendra
og innlendra gesta.
Auk þess kostnaðar sem
nefndur hefur verið hefur tölu-
verðu fé verið varið til annarra
hluta svo sem kaupa á leiktækj-
um, hreinsunaraðgerða og snyrt-
ingar á útivistarsvæðum. Áuk
þess mun gerð kvikmyndarinnar
um Reykjavík og rits um sögu
Reykjavíkur kostað talsvert fé,
sömuleiðis sögusýningin, og er
enn ógetið mikillar næturvinnu
borgarstarfsmanna og starfs-
manna afmælisnefndar síðustu
vikur. Er ekki ósennilegt að
beinn kostnaður við afmælið fari
yfir 100 milljónir, og með
óbeinum kostnaði fari upphæðin
að nálgast 200 milljónir. Hér er
ekki tekið tillit til tekna sem
borgin hefur af afmælinu.
-K.Ól.
Milljón fyrir
súkkulaðipakka
Auckland - Bandarískur skóla-
drengur fékk nýlega eina
milljón dollara inn á banka-
reikning sinn með því að
stinga súkkulaðipakka inn í
hraðbanka í stað ávísunar.
Málið komst ekki upp fyrr en
tveimur vikum síðar þegar dreng-
urinn viðurkenndi verknaðinn
fyrir kennara sínum. Drengurinn
stakk einfaldlega þunnum súkk-
ulaðipakka inn í vélina og skipaði
henni að setja milljón dollara á
reikning sinn. Tölvan samþykkti
það og næstu daga tók drengur-
inn 1500 dollara út af reikningi
sínum.
IH/Reuter
Mengun
Stórátak gegn mengun
Sjávarútvegsráðherrar Norðurlanda lýsaþungum áhyggjum sínum vegna mengunar íhafinu
Síðastliðinn mánudag komu s.s. skiptingu loðnukvóta við Jan Mayen. Stofnuð hefur verið nor- henni m.a. ætlað að undirbúa
sjávarútvegsráðherrar Norð- þessu sinni um helstu ágreinings- ræn embættismannanefnd til að frekari fundarhöld ráðherranna á
urlandanna saman til fundar í efni þjóðanna í fiskveiðimálum, fjallaumfiskveiðimálefniogmun næstu árum. -yk
tengslum við norrænu fiskimála-
ráðstefnuna sem haldin er á Ak-
ureyri að þessu sinni. Merkasta
niðurstaða fundarins er ályktun
sem þeir samþykktu þar sem þeir
lýstu áhyggjum sínum vegna
mengunar hafsins og lögðu á það
áherslu að stórátak yrði gert til
varnar lífríkis þess.
í ályktuninni segir m.a. að ráð-
herrarnir séu sammála um að fela
samstarfsnefnd Norðurlandanna
um fiskveiðimálefni að fjalla um
þær afleiðingar sem mengun
hafsins hefur í för með sér fyrir
lífið í hafinu og um leið að skipt-
ast á upplýsingum um þær ráð-
stafanir sem gripið er til í hverju
einstöku landi í þeim tilgangi að
bæta lífsskilyrðin í hafinu eða
varðveita þau.
Ráðherrarnir fjölluðu ekki að
Arnarstofninn
Færri ungar komast upp
Bretar grunaðir um að hafa eyðilagt varp
Að sögn taismanna Fugla-
verndunarfélags íslands eru
nú um 18 arnarungar að verða
fleygir úr hreiðrum og er það tals-
vert færra en í fyrra, en þá kom-
ust 24 ungar upp.
Vitað er að á 27 stöðum þar
sem arnarpör hafa helgað sér
óðal hefur varp misfarist, en óðal
nefndist það yfirráðasvæði sem
örninn helgar sér er hann er kyn-
þroska. Ástæður til þess að varp
misheppnast má oft rekja til þess
að kynþroska fugl parar sig við
ókynþroska fugl, en slíkt er al-
gengt þar sem arnarstofn er lítill.
Arnarstofninn er enn í útrým-
ingarhættu og þau lög gilda nú að
ekki má koma nálægt arnar-
hreiðri fram til 1. júní á vorin.
Grunur leikur á að ferðir tveggja
Breta sem sögðust vera að taka
myndir af valshreiðrum, hafi
eyðilagt varp í einu arnarhreiðri,
en stórar sektir liggja við slíku.
Ungir ernir hafa sést á þessu ári
í Reykjavík, Suðurnesjum og í
Eyjafirði, auk þess sem þeir hafa
verið greindir á venjulegum arn-
arslóðum. -GH
Vestfirðir
Mlklll
afli
Togararnir meðl40-
150 lestir eftir5-6 daga
veiðiferðir
Bátar og togarar á Vestfjörð-
um hafa veitt afar vel í sumar, en
uppá síðkastið hefur afli verið
með eindæmum góður.
Togarar hafa verið að koma
með þetta 140-150 lestir eftir 5-6
daga veiðiferðir, sem er með því
besta sem gerist. Þá hefur afli
handfærabáta verið með albesta
móti. Þeir hafa legið í stórum og
góðum þorski undanfarið.
Afli handfærabáta fer að mestu
leyti í salt. Aftur á móti er afli
togaranna, sem ekki er unninn í
frystihúsunum, sendur út í gám-
um og hefur verið mikið um slík-
an útflutning frá ísafirði í sumar.
Þá hefur afli rækjubáta einnig
verið góður og sumir bátar þegar
búnir með kvóta sinn. Pétur Ein-
arsson á hafnarvoginni á ísafirði
sagði að mikil atvinna væri nú á
ísafirði og frekar að það vantaði
fólk til vinnu en hitt. „Það er eins
og allir strekki suður hvernig sem
á þvf stendur,“ sagði Pétur, en að
hinir sem eftir væru hefðu meiri
en næga atvinnu.
-S.dór
Davíðssálmar voru rokkaðir við unglingafjöld á Arnarhóli í gær. Mynd KGA.
Skák
Jóhann
sigraði
Jóhann Hjartarson sigraði
glæsilega á opna breska samveld-
ismótinu í skák. Jóhann hlaut 8
vinninga af 9 mögulegum sem er
mjög góður árangur. Næstu
menn fengu 7 vinninga og er því
sigur Jóhanns mjög afgerandi.
Meðal þeirra sem Jóhann lagði
að velli voru stórmeistararnir
Plaskett, DeFirmian og Kudrin. í
síðustu umferðum sigraði hann
DeFirmian í 32 leikjum og Ku-
drin í aðeins 26 leikjum. G.Sv.