Þjóðviljinn - 20.08.1986, Blaðsíða 13
HEIMURINN
Sjónvarpstæki
eru nú á einu af hverjum níu
heimilum í borgum í Kína. Svo
segir í skýrslu sem gefin hefur
verið út þar í landi vegna ráð-
stefnu sem haldin er þar þessa
dagana um inniend fjölmiðla-
mál. Sjónvarpstæki eru því
komin inn á 30 milljón heimilí í
borgum landsins. I skýrslunni
sagði einnig að nú, rúmum
áratug eftir að sjónvarpið hélt
innreið sína í Kínaveldi, megi
segja að 3000 af um það bil
100.000 þorpum í landinu geti
kallast sjónvarpsþorp þar sem
hver fjölskylda í þessum þorp-
um á að minnsta kosti eitt
sjónvarpstæki.
Mafían
ftalska var tvisvar beðin um að
styðja valdaránstilraunir á ítal-
íu á síðasta áratug, segir í
skýrslu sem nýlega var gerð
opinber á Ítalíu og fjallar um
umfang Mafíunnar í ítölsku
þjóðlífi. Það var Tommaso
Buscetta sem upplýsti um
þetta. Hann rauf heit sitt um
þagnarskyldu við Mafíuna og
sagði lögreglunni frá því að
árið 1970 og aftur árið 1979
hefði verið leitað til Mafíunnar
um stuðning. Buscetta sagði
að fjármálaspekúlantinn Mic-
hele Sindona hefði eytt 70
dögum í Palermo árið 1979 til
að fá mafíósa þar í borg til að
styðja valdarán alþjóðlegra
frímúrara á Sikiley og stofna
þar sjálfstætt ríki. Samkvæmt
framburði Buscetta bað Sind-
ona um 300 liðsmenn Mafíunn-
ar til aðgerða á Sikiley. í skýrsl-
unni er einnig að finna frásögn
Buscetta um að hann hefði
ásamt öðrum Mafíuleiðtoga
komið á framfæri innan Mafí-
unnar skilaboðum frá yfir-
mönnum í ítalska hernum um
aðstoð 8000 mafíumanna til að
skapa slíkan óróa í borgum á
Ítalíu að tilefni gæfist til valda-
ráns
Hvítabirnir
eru ekki hvítir á feldinn heldur
gegnsæir. Það eru sovéskir
vísindamenn sem segjast hafa
uppgötvað þetta. Feldurinn
virðist hvítur, segja þeir, þar
sem sólarljósið varpar þannig
birtu á hol og litlaus hár bjarn-
dýrsins.
Bretar
vilja frelsi frekar en peninga,
hljóðar niðurstaða úr könnun
sem breska sjónvarpsstöðin
London Weekend Television
lét Gallup stofnunina gera fyrir
sig. Aðeins níu prósent að-
spurðra sögðust helst af öllu
vilja verða ríkir, miðað við 38%
í Japan og 15% í Bandaríkjun-
um. 70% aðspurðra sögðust
vilja „lifa eins og mig lystir“
frekar en að „verða ríkur“. Þá
vildu 61% aðspurðra aðallega
„eiga næga peninga í banka“.
Aðeins 8% aðspurðra vildu
„vinna í þágu samfélagsins".
Picasso
málverkið „Grátandi kona“
sem fyrir stuttu síðan var stol-
ið af safni í Ástralíu af sam-
tökum sem bera það merkilega
nafn, „Áströlsku menningar-
hryðjuverkasamtökin", hefur
nú fundist á ný. Það fannst í
skáp á járnbrautarstöð í Mel-
bourne eftir að maður sem
ekki sagði til nafns, gaf vís-
bendingu um staðinn í símtali
til dagblaðs í borginni. Sam-
tökin umræddu höfðu hótað
að brenna málverkið ef ekki
yrði gengið að kröfum þeirra.
Kröfurnar voru um að ríkið
legði aukið fjármagn til menn-
ingarmála og stofnaði tvenna
sjóði til styrktar ungum lista-
mönnum. Umslag mun hafa
fundist með málverkinu en
ekki var upplýst um innihaldið.
Málverkið var óskemmt.
Afvopnunarráðstefnan í Stokkhólmi
Bjartsýni um árangur
Síðasti hluti afvopnunaráðstefnunnar í Stokkhólmi hófst ígœr og ríkir
bjartsýni meðalþátttakenda, sérstaklega eftir tilboð Sovétmanna um
eftirlit erlendra ríkja með hernaðarlegum umsvifum innan Sovétríkj-
Stokkhólmi - Fulltrúar Banda-
ríkjanna og Sovétríkjanna á af-
vopnunaráðstefnunni í Stokk-
hólmi lýstu í gær báðir yfir vilja
landanna til að komast að mál-
amiðlun svo áþreifanlegur ár-
angur yrði á ráðstefnunni. Síð-
asti fundur hennar hófst í gær.
Viðbrögð bandarískra yfir-
valda við yfirlýsingu Gorbat-
sjofs Sovétleiðtoga um fram-
lengingu tilraunabanns Sovét-
manna með kjarnorkuspreng-
ingar til áramóta, koma hins
vegar til með að hafa neikvæð
áhrif.
Báðir fulltrúar minntu hins
vegar á að mikið verk væri enn
eftir að vinna, á þeim fimm vik-
um sem nú eru til stefnu. Sovét-
ríkin buðust til að leyfa erlendum
ríkjum að fylgjast með hernaðar-
legum umsvifum sínum einu sinni
til tvisvar á ári. Vestræn ríki hafa
fagnað þessu tilboði og sagt það
mikilvægt skref í átt til samkomu-
lags. Oleg Grínefskí, formaður
sovésku sendinefndarinnar sagði
á fréttamannafundi í gær að þessi
ákvörðun hefði verið tekin í síð-
ustu viku þegar unnið var að
endurskoðun stefnunnar í af-
vopnunarmálum. „Stokkhólms-
ráðstefnan hefur nú sögulegt tæk-
ifæri til að ná árangri og það væri
ófyrirgefanlegt ef þetta tækifæri
yrði látið ónotað," sagði Grínef-
skí.
anna tvisvar aari
Hann gagnrýndi Bandaríkja-
menn hins vegar harðlega fyrir
viðbrögð þeirra við tilkynningu
Gobatsjofs um að Sovétríkin
hefðu ákveðið að framlengja
bann sitt við tilraunum með
kjarnorkuvopn til áramóta. Gor-
batsjof hvatti bandarísk yfirvöld
til að fresta tilraunum með kjarn-
orkuvopn en Bandaríkjamenn
afneituðu því. Larry Speakes,
talsmaður Reagans Bandaríkja-
forseta, drap þessari hvatningu
hins vegar á dreif. Hann sagði
m.a.: „Við höfum ætíð verið
áhugasamir um einhvers konar
eftirlit með kjarnorkusprenging-
um (Bandarískir vísindamenn
hafa nýlega sýnt fram á að slíkt er
mögulegt). Það sem við þurfum
nú að gera er að hlusta á tilboð
Sovétmanna, athuga hvort þau
fullnægja skilyrðum okkar og
halda síðan áfram út frá þeim nið-
urstöðum.“ Speakes sagði einnig
að bandarísk yfirvöld vonuðust
til þess að bann við tilraunum
með kjarnorkuvopn yrði tekið
upp á væntanlegum leiðtogafundi
á þessu ári.
Speakes endurtók það viðhorf
Bandaríkjastjórnar að Gorbat-
sjof hefði farið að hvetja til banns
við tilraunum með kjarnorku-
vopn þegar Sovétmenn hefðu
lokið tilraunum með það kjarn-
orkuvopnakerfi sem þeir hafa nú
yfir að ráða. „Bandaríkin þurfa
hins vegar að halda áfram tilraun-
um með kjarnorkuvopn til að
tryggja áframhaldandi öryggi
kjarnorkuvopnakerfis landsins,“
sagði Speakes. Bandaríkjamenn
hafa á þessu ári tilkynnt um 14
kjarnorkusprengingar neðan-
jarðar, þar af sjö á þessu ári, frá
því Gorbatsjof Sovétleiðtogi til-
kynnti bann Sovétmanna við til-
raunum með kjarnorkuvopn, 6.
ágúst, 1985.
Þrátt fyrir þetta var mikil
bjartsýni ríkjandi þegar fundur-
inn hófst í Stokkhólmi í gær. Við-
ræðunum á að ljúka 19. septemb-
er og nokkrum dögum síðar
munu fulltrúar Bandaríkjanna,
Kanada og allra Evrópuríkja
utan Albaníu hittast í Vín til að
athuga stöðu mála. Síðustu þrjú
árin hafa fulltrúar á ráðstefnunni
í Stokkhólmi rætt möguleika á
samkomulagi sem kæmi í veg
fyrir að styrjöld brytist út í Evr-
ópu fyrir slysni eða mistök í út-
reikningum. Embættismenni
innan Nato hafa sagt að þörf sé á
eftirliti til að tryggja að hernaðar-
leg umsvif séu ekki í árásarskyni.
Mikill ágreiningur er enn um
ýmis mál milli risaveldanna
tveggja. Þar á meðal er spurning-
in um eftirlit. Embættismenn
innan Nato halda því fram að til-
boð Sovétmanna um eftirlit með
herafla tvisvar á ári sé alls ekki
nægilegt.
Spánn
50 ár frá dauða Lorca
Gabriel Garcia Lorca. Sungnir voru
Flamenco söngvar við staðinn sem talið er að
hann hafi verið myrturá
Granada - Um það bil 200
manns söfnuðust í gær saman
í Viznar í Granada héraði til að
minnast þess að í gær voru lið-
in 50 ár frá því að spænskir
fasistar myrtu spænska Ijóð-
skáldið Gabriel Garcia Lorca.
Fólkið safnaðist fyrir í gili sem
talið er að Lorca hafi verið
leiddur í til aftöku þann 19. ágúst,
1936, rétt fyrir dögun. Fólkið
söng Flamenco söngva og hélt á
kertum. Lorca var handtekinn
16. ágúst, 1936, mánuði eftir að
spænska borgarastyrjöldin hófst.
Líkami hans fannst aldrei en
sagnfræðingar telja sig vissa um
að að hann hafi verið skotinn 18.
eða 19. ágúst.
Stærsta dagblað Spánar, E1
Pais, sagði í gær að morðið á
Lorca væri tákn um dauða 4000
menntamanna sem fasistar drápu
í borgarastyrjöldinni.
Winnie Mandela heldur ræðu á
útifundi, nú er kvikmynd í undir-
búningi um líf hennar.
Bandaríkin
Kvikmynd
um
Winnie
Mandela
Los Angeles - Camille Cosby,
eiginkona Bills Cosby, þess er
skemmtir íslendingum í ís-
lenska sjónvarpinu á laugar-
dagskvöldum, hefur fengið öll
réttindi að gerð kvikmyndar
um æviferil Winnie Mandela,
einn leiðtoga svartra í S-Afríku
og eiginkonu hins fangelsaða
Nelsons Mandela.
Camille Cosby ætlar sér að
verða framleiðandi að myndinni
um Mandela ásamt Judith Ruth-
erford James. Þá er ekki talið ól-
íklegt að gert verði leikrit byggt á
ævisögu Winnie Mandela sem
nefnist „Móðir þjóðar" og er
skrifuð af Nancy Harrison. Um-
boðsmaður Cosby hjónanna,
Norman Brokaw, vildi ekki segja
hversu mikið fjármagn væri í spil-
inu né vildi hann segja hvort
Mandela hefði þegið greiðslu
fyrir réttinn. Hann sagði að þegar
yrði hafist handa við kvikmynda-
gerðina.
Brokaw hafði eftir Winnie
Mandela frá heimili hennar í S-
Afríku að hún væri „mjög ánægð
með að vinna með frú Cosby að
því að segja heiminum sögu
mtna“. Camille Cosby hefur í 18
mánuði reynt að fá leyfi Mandela
til að gera kvikmyndina. „Hún
telur líf Winnie Mandela ekki að-
eins þýðingarmikið á heimsmæli-
kvarða, heldur telur hún söguna
fjalla um mjög sterka konu“,
sagði umboðsmaðurinn, Brok-
aw, við fréttamenn í fyrradag.
Sovétríkin/Israel
Ólíkar skoðanir á Helsinkifundinum
Fundursovéskra og ísraelskrafulltrúafékk skjótan og óvœntan endi
og Sovétmenn segja engarfrekari viðrœður íaðsigi, ísraelsmenn segja
fundinn hins vegar upphafað bættum samskiptum þjóðanna
Moskvu, Jerúsalem - í gær, ein-
um degi eftir aö viðræðum
lauk skyndilega milli ísraeis-
manna og Sovétmanna í Hels-
inki, voru fulltrúar þjóðanna
ekki sammála um árangur af
hinum 90 mínútna langa fundi.
Talsmaður sovéska utanríkis-
ráðuneytisins, Gennadí Gera-
simof, sagði í gær við fréttamenn
að engar frekari viðræður væru
fyrirhugaðar milli þjóðanna um
konsúlasamskipti þjóðanna.
Engin samskipti hafa verið milli
þjóðanna frá því í sex daga stríð-
inu. Gerasimof sagði að ísraels-
menn hefðu farið langt út fyrir
verksvið fundarinns í Helsinki
með því að ræða um búferlaflutn-
inga sovéskra gyðinga til fsraels.
Gagnrýndi Gerasimof utanríkis-
ráðherra ísraelsmanna harðlega
fyrir að lýsa sovéska gyðinga
verðmikla eign ísraelsmanna.
Gerasimof sagði slíkan út-
úrsnúning sýna hrokafull afskipti
af sovéskum innanríkismálum.
Yfirlýsing Sovétmanna er
mjög á skjön við yfirlýsingar ísra-
elskra fulltrúa fljótlega eftir
fundinn á mánudaginn. Utan-
ríkisráðherra ísraelsmanna, Yts-
ak Shamir, sagði á mánudaginn
að viðræðurnar hefðu verið já-
kvætt upphaf á viðræðum við
yfirvöld í Moskvu. í gær endur-
tók síðan háttsettur embættis-
maður í ísraelska utanríkisráðu-
neytinu fyrri orð ráðherrans.
Embættismaðurinn bætti því hins
vegar við á fundi með frétta-
mönnum í ísrael að enn væri ekki
fyrir hendi vísbending Sovét-
mönnum um að endurlífga ætti
diplómatískt samband ríkjanna.
Sovésk yfirvöld vildu senda
átta manna sendinefnd til ísraels í
að minnsta kosti mánaðarferð til
að skoða rússneskar kirkjueignir
í ísrael. Yfirvöld í ísrael eru ekki
á móti slíkri heimsókn en vilja að
Sovétmenn svari með því að leyfa
heimsókn ísraelskra diplómata til
Sovétríkjanna í því augnamiði að
athuga ísraelska sendiráðiö í
Moskvu sem nú stendur autt en
ísraelsmenn borga enn leigu af.
ísraelski embættismaðurinn
sagði einnig í gær að ísraelsku
diplómatarnir myndu þá vilja
hafa samband við ísraelska þegna
í Sovétríkjunum, aðallega ísra-
elska araba sem stunda nám í so-
véskum háskólum. Ekki er ljóst
hvort ísraelsmenn vilja fá að ná
sambandi við gyðinga í Sovétríkj-
unum sem hafa haft í frammi
andóf gegn yfirvöldum.
Embættismaðurinn ísraelski
sagði einnig í gær að ísraelsmenn
hefðu vissulega velt því fyrir sér
að viðræðurnar hefðu átt sér stað
þrátt fyrir að Sovétmenn gerðu
sér grein fyrir að þær myndu ekki
mæta velvilja Arabaþjóða. Em-
bættismaðurinn gaf í skyn að end-
anlegt markmið Sovétmanna
væri að eiga stóran þátt í við-
ræðum um frið í Miðaustur-
löndum. Slíkt hefur mikið verið í
höndum Bandaríkjanna hingað
til. Yfirvöld í Sovétríkjunum vilja
halda friðarráðstefnu í Mið-
austurlöndum en ísraelsmenn
vilja að Sovétmenn taki upp dipl-
ómatísk tengsl við þá áður en af
slíkum friðarviðræðum yrði.
Miðvikudagur 20. ágúst 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13