Þjóðviljinn - 20.08.1986, Blaðsíða 16
Hljóðritanir
Gamall djass undir
skemmdum
Menningarsjóður veitti eitt
sinn 10.000 krónur til
Jazzvakningar til þess að styrkja
útgáfu okkar á hljóðritunum
Gunnars Ormslevs en að öðru
leyti höfum við ekki fengið opin-
bera styrki til menningarstarfs
þess sem við innum af hendi,
sagði Vernharður Linnet for-
maður Jazzvakningar í samtali
við blaðið, en Jazzvakning hyggst
nú saekja um opinbera fjárhags-
aðstoð til þess að unnt verði að
bjarga gömlum djass-hljóðritun-
um undan skemmdum.
„Ástæðan fyrir erfiðri stöðu ís-
lensks djasslífs er sú að hér eru
engir opinberir styrkir veittir til
þess einsog gert er annars stað-
ar,“ sagði Vernharður. „Djazzi
er ekki ennþá skipað á bekk með
öðrum listgreinum hérlendis.
Hér liggja gamlar hljóðritanir
undir skemmdum úti um allan bæ
og þegar við vorum að gefa út
plötuna með Gunnari Ormslev
fundum við ótrúlegustu hluti í bíl-
skúrum hjá fólki. Má þar á meðal
nefna upptökur með Lee Konetz
sem voru gerðar hér í kringum
1950.
Kristján Magnússon á einnig
gott safn sem hann verður að fá
aðstöðu til að endurvinna. Hann
hefur unnið mikið menningaraf-
rek með þessu safni sínu og í raun
þá hefði Ríkisútvarpið átt að sjá
um þetta en hér áður fyrr þá henti
það gömlum hljóðritunum.
Þannig að ég á ekki von á öðru en
opinberir aðilar bregðist vel við,
þetta er þarft verkefni,“ sagði
Vernharður Linnet að lokum.
-vd
»«
Gunnar Jónasson tekur við málverki
Mynd KGA______________________
Hátíðartónleikarnir
af Ragnari J. Ragnarssyni, formanni Flugsögufélags islands. Á bakvið þá er eina rammíslenska flugvélin TF-Ögn.
Skinn
Flug
Ögnin
afhjúpuð
Endursmíðifyrstu og
einu rammíslensku
flugvélarinnar
afhjúpuð ígœr
í gær var afhjúpuð eina alís-
lenska flugvélin, sem smíðuð hef-
ur verið og á það bæði við um
hönnun og smíði. Það var Gunn-
ar Jónasson sem hafði yfirumsjón
með endursmíði TF-Ögn, sem
var upphaflega smíðuð árið 1933
af Gunnari og Birni heitnum Ol-
sen. Flugvélinni var þó ekki flogið
fyrr en 1940 því vél vantaði í
hana. I desember sama ár var
henni flogið í síðasta sinn.
TF-Ögn er til sýnis á sýning-
unni Flug 86 í skýli 1 á bak við
Loftleiðahótelið á Reykjavíkur-
flugvelli.
Sýningunni lýkur sunnudaginn
24. ágúst og er haldin í tilefni 50
ára afmælis Flugmálafélagsins og
Flugmálastjórnar en Svifflugfé-
lag Islands á einnig 50 ára afmæli
um þessar mundir.
í tilefni þessara afmæla verða
flugdagar út þessa viku.
-Sáf/S.dór
Allt í plati
Öll tónlistflutt af
segulbandi. Páll
Pampichler Pálsson:
Ekki beint listrœnt að
stjórna segulbandi.
„Þetta var ekki beint mjög list-
ræn tilfinning,“ sagði Páll Pam-
pichler Pálsson, er hann var
spurður hvernig hefði verið að
stjórna segulbandi, því öll tónlist
sem flutt var á Arnarhóli á hátíð-
arkvöldið var tekin upp fyrirfram
og sama gilti um hátíðarverk Jóns
Þórarinssonar sem Sinfóníu-
hljómsveitin lék undir stjórn
Páls. Hljóðfæraleikararnir léku
því á hljóðfæri sín sem látbragðs-
leikarar en ekki sem tónlistar-
menn.
„Maður þurfti fyrst og fremst
að herma eftir sjálfum sér en var
ekki að túlka tónlist. Þetta var
svolítill vandi því maðurinn er
ekki vél og við flutninginn mátti
ekki muna broti úr sekúndu. En
þetta tókst vel og það var fyrir
öllu. En ég vildi ekki þurfa að
gera þetta oft því lifandi tónlist er
mun skemmtilegri.“
Þetta mun vera í fyrsta skipti
sem Sinfóníuhljómsveitin þykist
spila á útitónleikum, hinsvegar
hefur verið notast við segul-
bandsupptöku í sjónvarpi.
-Sáf
Refir á rétlri leið
rátt fyrir að meðalverð á refa-
skinnum frá íslandi hafi ekki
verið nema 1400 kr. sem er mjög
lágt, þá tel ég að við séum á réttri
leið. Verðmunurinn sem verið
hefur á íslensku skinnunum og
skinnum frá Norðurlöndunum er
o g hefur verið að minnka vegna
þess að íslenskir refaræktendur
eru að ná betri tökum á greininni,
sagði Jón Ragnar Björnsson hjá
Sambandi loðdýraræktenda í
samtali við Þjóðviljann í gær.
Höfuð ástæðurnar fyrir þessu
lága skinnaverði í ár sagði Jón
vera tvær. í fyrsta lagi er refa-
ræktin það ung hjá okkur og hef-
ur verið í mjög örum vexti að
bændur hafa sett öll bestu dýrin á
en þeim lakari hefur verið fargað.
í öðru lagi hefur lækkun dollar-
ans farið afar illa með menn í ref-
aræktinni. Hann sagði að meðal
verðið á refaskinnum hefði verið
1400 kr. sem fyrr segir, fyrir
skinnið sem er lágt, en hann benti
á að sveiflunar í báðar áttir frá
þessu meðalverði hefðu verið um
það bil 250 krónur, sem þýðir að
bestu skinnin fóru á 1650 kr. sem
er viðunandi.
Allt bendir til metfjölda ferða-
manna í ár, að sögn Rögnu
Samúelsson hjá Ferðamálaráði
Islands. Fyrstu sjö mánuði ársins
komu tæplega 68 þúsund útlendir
ferðamenn til landsins, en á sama
tíma í fyrra var fjöldi þeirra 59
þúsund.
Fyrstu sex mánuði ársins jókst
fjöldi ferðamanna um 13% í heild
miðað við fyrra ár. Ferðamann-
astraumur jókst mest frá Norður-
löndum, eða um 22%. Einnig
varð aukning á fjölda þýskra og
bandarískra ferðamanna, þrátt
fyrir að samdráttur hafi orðið í
heild í ferðum Bandáríkjamanna
vegna bombuhræðslu þar í landi.
Fjölgun norrænna ferðamanna
má að einhverju leyti þakka
kynningarherferð sem verið hef-
ur á Norðurlöndum, en einnig
hefur aukið ráðstefnuhald hér á
landi haft sín áhrif.
Ragna sagði að framboð á
skipulögðum hópferðum hefði
ekki minnkað og yrði fyrirsjáan-
lega svipað á næsta ári. Ferða-
menn sem oft nefndust í daglegu
tali „puttalingar“ væru á undan-
haldi og réði þar mestu að nú
gefst fólki kostur á ýmsum af-
sláttarmiðum meðáætlunarbílum
sem unnt væri að tengja gistingu
að vild.
Um ferðalög íslenskra ferða-
manna sagði Ragna að þar hefði
einnig orðið aukning í ár. Komur
íslendinga til landsins voru fyrstu
sjö mánuði ársins 54 þúsund á
móti 49 þúsund í fyrra. Ekki voru
haldbærar neinar tölur um ferða-
lög innanlands, en þó er ljóst að
rdT er einnig um aukningu að
•æða.
Práttfyrir að meðalverð refaskinna frá Islandi hafi verið lágt áþessu ári telja menn að íslenskir
refarœktendur séu á réttri leið en þeirhafa orðið að setja á öll bestu dýrin enfargað þeim lakari
vegna mikillar útþenslu ígreininni
Þá taldi Jón nauðsynlegt fyrir
íslenska refaræktendur að fjölga
litaafbrigðum með kynblöndun
en nú eru menn nær eingöngu
með bláref, en hann er undir-
staða allrar litablöndunar. Jón
sagði að mjög hátt verð væri á
ýmsum litaafbrigðum og að því
yrði stefnt að fá þau fram hér á
landi.
Verð á minkaskinnum er aftur
á móti hátt um þessar mundir og
ágæt afkoma hjá minkaræktend-
um.
-S.dór