Þjóðviljinn - 20.08.1986, Qupperneq 15
ÍÞRÓTTIR
Skotland
Souness í 3ja
leikja bann!
21 af22fékk viðbótaráminningu
Graeme Souness, fram-
kvæmdastjóri Glasgow Rangers
og fyrirliði skoska landsliðsins,
var í gær dæmdur í 3ja leikja
bann af skoska knattspyrnu-
sambandinu.
Souness var rekinn af leikvelli
fyrir gróft brot í fyrsta leik Ran-
gers í úrvalsdeildinni fyrr í þess-
um mánuði. Mikil slagsmál brut-
ust þá út á vellinum og níu leik-
menn voru bókaðir. I gær var
ákveðið að 21 leikmaður af þeim
22 sem léku leikinn skyldu hljóta
áminningu. Aðeins Alan Rough
markvörður Hibernian slapp en
hann stóð álengdar og horfði á
alla hina slást. Rangers var sekt-
að um 5000 pund og Hibernian
um 1000 pund. -VS/Reuter
Eskifjörður
Fyrsta opna mótiö
Golfklúbbur Eskifjarðar
gengst fyrir sínu fyrsta opna móti
á Byggðarholtsvelli um næstu
helgi, 23. og 24. ágúst. Mótið kall-
ast Opna Mazda-mótið og er
haldið í tengslum við 200 ára af-
mælishátíð Eskifjarðarkaupstað-
ar og einnig í tilefni 10 ára afmæl-
is klúbbsins.
Masda-umboðið, Bflaborg hf,
er bakhjarl mótsins og gefur öll
verðlaun sem eru mjög glæsileg.
Aukaverðlaun eru mörg, þar ber
Akureyri
Bjarni
úrleik
Bjarni Sveinbjörnsson, framherj-
inn marksækni, mun ekki leika meira
með Þór í 1. deildinni í knattspyrnu á
þessu keppnistímabili. Hann slasaðist
í leik gegn ÍBV í 5. umferðinni í sumar
en var að ná sér á ný þegar krossbönd
í hné gáfu sig á æfíngu fyrir skömmu.
Bjarni ætlar að vera seinheppinn því
sl. sumar missti hann af síðari um-
ferðinni vegna meiðsla. _ys
Landsleikirnir
Laufey
ekki með?
Litlar líkur eru á að Laufey Sig-
urðardóttir geti leikið með ís-
lenska landsliðinu gegn Sviss ann-
að kvöld og á laugardaginn. Hún
meiddist á æfingu hjá IA í fyrra-
dag, en Laufey leikur eins og
kunnugt er með vestur-þýska 1.
deildarliðinu Bergisgladbach.
Þetta er áfall fyrir íslenska liðið
því Laufey er ein besta og
reyndasta knattspyrnukona
landsins.
-VS
Knattspyrna
Spjótkast
Sigurður
vanní
Svíþjóð
Sigurður Einarsson sigraði í
sterkri og tvísýnni spjót-
kastkeppni sem fram fór í Ver-
nemo í Svíþjóð í fyrrakvöld.
Hann kastaði 75,86 metra,
sænski methafinn Dag Wennlund
varð annar með 75,82 m, Reidar
Lorentsen frá Noregi þriðji með
75,58 m og Einar Vilhjálmsson
fjórði með 73,42 metra.
-VS
Frakkar
töpuðu
Frakkar máttu þola 2-0 tap
gegn Svisslendingum í landsleik i
Lausanne í gærkvöldi. Heinz
Hermann og Beat Sutter gerðu
mörk heimamanna. Frakkar
stilltu upp aðeins fjórum fasta-
mönnum úr HM-liði sínu, þeim
Bats, Amoros, Battiston og Stop-
yra, en þeir búa sig nú undir.
leikinn hér á landi þann 10. sept-
ember.
-VS/Reuter
Pólland
hæst Mazda 323 GXL skutbíl sem
veittur verður þeim sem fer holu í
höggi á 5. braut. Byggðarholts-
völlur er nú í mjög góðu ástandi
en mikil vinna hefur verið lögð í
að gera hann sem bestan fyrir
mótið.
Skráning fer fram í símum 97-
6294 og 97-6397 og skal vera Iok-
ið fyrir kl. 20 á föstudagskvöld.
Noregur
Þrenna
Sævars
Sævar Jónsson landsliðsmiðvörður
í knattspyrnu gerði sér lítið fyrir um
síðustu helgi og skoraði 3 mörk þegar
Brann sigraði Sunndal 5-1 í norsku 2.
deildinni. Mörkin gerði Sævar á 20
mínútna kafla og breytti stöðunni úr
1-1 í 4-1. Hann er greinilega í góðri
æfíngu og það lofar góðu fyrir lands-
leikina í haust. Brann er með 3ja stiga
forystu í 2. deild og Bjarni Sigurðsson
markvörður hefur sjaldan þurft að
sækja boltann í netið í sumar.
-VS
Katowice
öflugt
GKS Katowice, mótherjar
Fram í Evrópukeppni bikarhafa í
knattspyrnu í haust, eru áfram í
efsta sæti pólsku 1. deildarinnar.
Um helgina vann Katowice 2-0
útisigur á Gornik Walbrzyck og
er með 6 stig eftir 3 umferðir
ásamt Gornik Zabrze. Það er
greinilegt að Framarar eiga í
höggi við öfluga andstæðinga, en
til þess hefur Katowice aldrei orð-
ið pólskur meistari.
-VS/Reuter
Steinn Jóhannsson vann
afrekið í drengjaflokki.
HM/Sund
Eðvarð með
5. besta tíma
Áttundi í úrslitasundinu
Eðvarð Þór Eðvarðsson náði Paul Kingsman, N. Sjálandi.....2:04,08
fimmta besta tímanum í 200 m Eðvarö Eðvarösson, Islandi.....2:04,22
baksundi á heimsmeistaramótinu Eins og sést á þessu er aðeins
í Madríd í gær. Hann setti glæsi- einn Vestur-Evrópubúi, Hoff-
legt Islandsmet í undanrásunum, meister, á undan Eðvarð.
2:03,03 mín., en hafnaði síðan í 8.
sæti í sjálfu úrslitasundinu á Tvöfalt heimsmet
2:04,22 mín. Metsund hans hefði . , . , ,, . .
nægt til að hljóta 5. sætið þar. _ Austur-þyska stulkan Kr.stm
Gamla metið hans var 2:05,77 0t,to sett' tv?falt hein\sn}f' a
mín. og árangur Eðvarðs er glæsi- n?ot'nu 1 1>aö var ' 4x100 m
legur. Hannhefurskipaðséríröð skrlðsundl kvenna hun.synn
þeirra fremstu i heimi í sinni fyrsta sprettmn a he.msmet.. 100
grejn metrunum, 54,73 sek, og bætti
Sovétmaðurinn Igor Poliansky með Þvt6 ara 8amalt met löndu
var í sérflokki í úrslitasundinu og S1,mar’Barhoru Krause. Sveit A.
sigraði á 1:58,78 mín. sem er met Þyskalandssett. s.ðan he.msmet.
áheimsmeistaramóti. Annarsfór sun ínu, 3.-40,57 min
úrslitasundið þannig: _ Austur-Þyskaland hefur feng.ð
flest gullverölaun a motinu, 8
Igor Poliansky, Sovétríkjunum.1:58,78 talsins, og 5 silfur Bandaríkin
FrankBaltrusch, A.Þýskalandi.2:01,11 eru með 4 gull, 7 Sllfur og 4 brons
Frank Hoffmeister, V.Þýskalandi...2:02,42 og Kanada kemur næst með 3 gull
DanVeatch.Bandaríkjunum.......2:02,82 Qg 2 brons
Sean Murphy, Kanada.......2:03,54 6 ' vc/d
Sergei Zabolotnov, Sovétríkjunum 2:03,73 —Va/Keuter
Kvennaknattspyrna
ÍA vann KR
Berst við Breiðablik um 2. sœtið
besta
ÍA á enn möguleika á 2. sætinu í
1. deild eftir 3-1 sigur á KR á
KR-vellinum í gærkvöldi. ÍA og
Breiðablik eru með 24 stig hvort
og eiga tvo leiki eftir, og mætast í
næstu viku.
Leikurinn var rólegur framan-
af og staðan í hálfleik 0-0. Kristín
Reynisdóttir skoraði síðan fyrsta
mark ÍA á 5. mínútu síðari hálf-
leiks. Sæunn Sigurðardóttir bætti
við marki, 0-2, á 26. mín. en ung
og efnileg stúlka, Helena Ólafs-
dóttir, minnkaði muninn í 1-2.
Þegar 10 mín. voru eftir innnsigl-
aði síðan Karítas Jónsdóttir sigur
ÍA, 1-3. Úrslitin voru sanngjörn,
lið í A spilaði ágætlega, KR sýndi
gott spil á köflum en var með al-
veg bitlausa sókn.
-MHM
Unglingakeppnin
HSK vann 20 greinar
JónA. Magnússon sigraði ífjórum í drengjaflokki
HSK átti fiesta sigurvegara í
Unglingakeppni Frjálsíþrótta-
sambands Islands sem fram fór á
Valbjarnarvelli um síðustu helgi.
HSK sigraði í 20 greinum alls en
keppt var í flokkum pilta, sveina
drengja, telpna, meyja og
stúlkna.
KR átti sigurvegara í 11 grein-
um, FH í 10, Ármann í 8, UMSK í
5, USAH í 3, UÍA í 2, HSH í 2 og
UMFK átti 1 sigurvegara.
Jón A. Magnússon, úr HSK,
sigraði í flestum greinum, eða 4 í
drengjaflokki. Þrjár greinar
unnu Hafdís Sigurðardóttir og
Fanney Sigurðardóttir, Ár-
manni, Fríða Rún Þórðardóttir,
UMSK, Finnbogi Gylfason, Þór-
unn Unnarsdóttir og Gunnar
Smith, Ármanni.
Bikarverðlaun voru veitt fyrir
besta afrek í hverjum flokki. Þau
hlutu: Bergþór Ottósson, USAH
(50,36 m í spjótkasti pilta), Finn-
bogi Gylfason, FH (2:01,5 mín. í
800 m hlaupi sveina), Steinn Jó-
hannsson, KR (1:58,2 mín. í 800
m hlaupi drengja), Fanney Sig-
urðardóttir, Ármanni (5,47 m í
langstökki telpna), Elín Jóna
Traustadóttir, HSK (1,63 m í há-
stökki meyja), og Hafdís Sigurð-
ardóttir, Ármanni (26,4sek. Í200
m hlaupi stúlkna).
-VS
Handbolti
Blikar
ogFH
Það verða Brciðablik og FH
sem leika til úrslita á Sumarmóti
HSÍ, meistaraflokki karla, í
Digranesi í Kópavogi í kvöld.
Leikurinn hefst kl. 21.15 en á
undan, kl. 20, leika Fram og ÍR
um 3. sætið.
Breiðablik vann Gróttu 27-24 í
gærkvöldi og Fram vann Hauka
26-20. Breiðablik fékk 6 stig í A-
riðli, Fram 4, Haukar 2 en Grótta
ekkert.
FH vann ÍR 35-24 í B-riðli og
fékk 4 stig, ÍR 2 en HK ekkert
stig. Valsmenn mættu ekki til
leiks þannig að þátttökuliðin
urðu 7 í stað 8.
-VS
Miðvikudagur 20. ágúst 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15