Þjóðviljinn - 23.08.1986, Page 9
MENNING
Þau spila: Martial Nardeau flautu-
leikari, Guðrún Sigurðardóttir
sellóleikari, Ásdís Valdimarsdóttir
lágfiðluleikari og Szymon Kuran
fiðluleikari. (Mynd KGA)
Tónlist
Kristskirkja er á góðri leið með
að verða mikil miðstöð í ís-
lensku tónlistarlífi og Tónlist-
arfélag kirkjunnar umsvifa-
mikiðmenningarapparat. Það
lætur ekki sitja við töðugjöldin
nú á sunnudaginn, heldur
verða aðrirmerkirtónleikar
næstkomandi miðvikudag 27.
ágústklukkan 20.30.
Þá leika fjórir tónlistarmenn
sex verk eftir ýmsa af meisturum
klassískrar tónlistar. Szymon
Kuran fiðluleikari, Guðrún Sig-
urðardóttir sellóleikari, Martial
Nardeau fiautuleikari og Ásdís
Valdimarsdóttir lágfiðluleikari
koma fram á tónleikunum og við
báðurn þau að segja nánar frá
verkunum sem leikin verða.
„Við byrjum á Divertimento
eftir Haydn. Það er verk fyrir
tríó, flautu, fiðlu og selló. Þetta
var mjög vinsælt verk á klassíska
tímanum, frekar létt og var
gjarnan spilað úti við ýmis hátíð-
leg tækifæri. Við tókum þá stefnu
þegar við settum saman efnisskrá
þessara tónleika að hafa verkin
frekar í léttari kantinum, að velja
ekki of þunglamaleg verk.“
Þá verður frumflutt verk eftir
Szymon Kuran, sem ber titilinn
Ciacconetta. Það er fyrir einleiks-
fiðlu og leikur höfundur það
sjálfur. Hvernig lýsir hann verk-
inu?
„Ég skrifaði þetta verk í
Reykjavík í fyrra, 1985. Það er
stutt verk og byggt svipað upp og
barokkmúsík, án þess þó að það
hljómi eins og barokkverk. Þarna
er ákveðið þema á sveimi en svo
koma ýmis tilbrigði útfrá því.“
Þriðja verkið á efnisskránni er
eftir sjálfan Ludvig van Beetho-
ven:
„Þetta verk hans heitir einfald-
lega Serenada og var mjög vin-
sælt á þessu klassíska tímabili.
Serenöður og Divertimenti voru
algeng og vinsæl verk á þeim
tíma. Verkið er samið fyrir
flautu, fiðlu og lágfiðlu og er í sjö
köflum. Það má segja um þetta
eins og verkið eftir Haydn, að
þessi tónsmíð er af léttara taginu
og telst ekki til alvarlegri verka
Beethovens. Ýmis tilbrigði
leikast þarna á, stuttar nótur og
kaflarnir eru til skiptis hægir og
hraðir.“
Eftir hlé kemur svo verk eftir
Martial Nardeau sem hann kallar
Deux Piéces. Höfundur fær orðið:
„Þetta verk skrifaði ég upphaf-
lega fyrir tvær fiðlur árið 1973. Ég
breytti því síðan, lauk við það nú í
ár og skrifaði það upp fyrir
flautu, fiðlu og selló, og það verð-
ur frumflutt þannig á íslandi á
tónleikunum á miðvikudags-
kvöldið. Verkið skiptist í tvo
kafla, hægan og hraðan sem
leikast á.“
Martial er í sólóhlutverki í
fimmta verki tónleikanna sem er
stykki fyrir einleiksflautu eftir
franska tónskáldið Jacques Ibert,
sem er tiltölulega lítt þekktur hér
á íslandi:
„Þetta er ákaflega melódískt
og skemmtilegt verk. Það var
samið í kringum 1930. Jacques
Ibert er nýlega látinn í Frakk-
landi en þar var hann rnjög fram-
arlega í tónlistalífinu, bæði sem
tónskáld en einnig í sambandi við
aðra þætti tónlistarlífsins svo sem
tónlistarkennslu, tónleikahald og
þess háttar.“
Á miðvikudagstónleikunum
rekur lestina enginn annar en
sjálfur Wolfgang Amadeus Moz-
art, en leikinn verður kvartett
eftir hann fyrir fiðlu, lágfiðlu,
selló og flautu. Hvers konar verk
skyldi það vera?
„Það er sama sagan að þetta
verk er ekki það alvarlegasta sem
Mozart gerði. Svo skemmtilega
vill til að hann samdi það 1786
þannig að það er tvö hundruð ára
gamalt rétt eins og Reykjavík og
má kalla þetta afmælisverk tón-
leikanna. Mozart semur þetta
verk upp úr óperu eftir ítalskt
tónskáld, Paisello að nafni. Hann
tekur stef úr þessari óperu og auk
þess stef héðan og þaðan m.a. úr
frönskum sönglögum og sýður
þetta svo saman á mjög skemmti-
legan hátt.“
Tónlistarmennirnir eru ís-
lenskum tónlistaraðdáendum að
góðu kunnir. Szymon Kuran er
pólskur og hefur verið hér í tvö ár
og er annar konsertmeistari Sin-
fóníuhljómsveitar íslands og
konsertmeistari í hljómsveit ís-
lensku óperunnar. Hann er auk
þess tónskáld og mun Sinfónían
flytja á næsta vetri nýtt verk eftir
hann. Martial Nardeau hefur ver-
ið hér í fjögur ár og spilar með
Sinfóníunni og kennir og sama
gerir Guðrún Sigurðardóttir.
Ásdís Valdimarsdóttir er hins-
vegar búsett í Þýskalandi þar sem
hún starfar með þýskri kamrner-
hljómsveit ásamt með lágfiðlu-
námi í Köln. - pv
Myndlist
Guðmundur
sýnir
á Húsavík um helgina
Guðmundur Björgvinsson
myndlistarmaður heldur um
helgina sýningu í Hliðskjálf á
Húsavík. Guðmundur sýnir þar
vatnslitateikningar. Sýningin
opnar á laugardaginn klukkan
tvö og henni lýkur á mánudag.
SVÆÐISÚTVARP REYKJAVÍKUROG NÁGRENNIS
Stærsta flugsýning sem haldin hefur verið hérlendis hefst á Reykjavíkurflugvelli
laugardaginn 23. ágúst kl. 14.00. Útvarpað verður frá sýningunni og hefst bein
útsending kl. 13.30 og stendur til kl. 18.30 á FM 90.1
Þeir sem hug hafa á að fylgjast með sýningunni geta komið sér
fyrir þar sem vel sér yfir flugvöllinn, haft með sér ferðatæki, horft
á sýningaratriðin, hlustað á lýsingar, létta tónlist, viðtöl við
framámenn [ fluginu og við ofurhugana sem leika liátir sínar í
loftinu, á FM 90.1.
riíi#
Meðal sýningaratriða verða hópflug, svif-
drekasýning, flug í loftbelg, fallhlífarstökk,
listflug, módelflug og flugsveitir herja 5.
landa sýna. Það verður líf [ loftinu yfir
Reykjavík á laugardaginn og þá er bara
að horfa til himins ög hlusta á FM 90.1.
RIKISUTVARPIÐ
Svæðisútvarp Reykjavíkur og nágrennis
Efstaleiti 1 108 Reykjavík sími: 6-88-188
Auglýsingasímar: Lesnar puglýsingar - 2-22-74 |Leiknar
68-75-11.
Klassík í Kristskirkju
Scx klassísk verk flutt á miðvikudagskvöld