Þjóðviljinn - 23.08.1986, Page 15
Garbur
IÞROTTIR
Valsmenn leystu
fyrstu þrautina
Sigruðu Víði sanngjarnt en sluppu vel ílokin
Valsmenn leystu í gærkvöldi
fyrstu þrautina af þremur. Þeir
náðu aS sigra Víði 1-0 í Garðin-
um, nokkuð sanngjarnt, og eru
nú tveimur sigrum frá íslands-
meistaratitlinum. Fjögurra stiga
forysta, en hana getur Fram
minnkað niður í eitt á ný í dag.
Eins og við var að búast var
baráttan mikil á báða bóga. Vals-
menn sóttu mun meira lengi vel
enda lagði Víðir áherslu á vörn-
ina þar sem Daníel Einarsson var
sem klettur að vanda og Ólafur
Róbertsson baráttuglaður. Valur
Stadan
í 1. deildarkeppninni í knattspyrnu:
Valur . 16 11 2 3 28-6 35
Fram 15 9 4 2 30-11 31
ÍBK . 15 9 1 5 21-20 28
ÍA . 15 7 3 5 26-16 24
KR . 15 5 7 3 17-10 22
Víðir . 16 5 4 7 19-19 19
Þór . 15 5 4 6 18-25 19
FH . 15 4 3 8 20-31 15
Breiðablik : 15 3 3 9 12-31 12
ÍBV . 15 1 3 11 14-36 6
I dag kl. 14 mætast FH og Þór í
Hafnarfirði og ÍBV leikur við Fram í
Eyjum. KR og ÍBK leika á Laugardais-
vellinum kl. 19 á sunnudagskvöldið
og á sama tíma kvöldið eftir mætast
ÍA og Breiðablik á Akranesi.
Garður
Víðir
50 áia
Knattspyrnufélagið Víðir í
Garði heldur uppá 50 ára afmæli
sitt eftir viku, laugardaginn 30.
ágúst. Þá verður mikið um dýrðir
en annað kvöld, sunnudagskvöld,
fer fram fyrsti liðurinn á afmælis-
dagskránni. Víðir leikur gegn úr-
vali úr öðrum félögum innan
íþróttabandalags Suðurnesja,
Grindavík, Reyni, UMFN og
Höfnum, og hefst viðureignin á
Garðsvellinum kl. 19.
fékk nokkur góð færi í fyrri hálf-
leik sem nýttust ekki. Ámundi
Sigmundsson var einn gegn Jóni
Örvari Arasyni markverði á 25.
mín. en skaut beint á hann. Jón
Örvar varði fast skot Ámunda á
35. mín. og rétt á eftir sló hann
boltann í horn eftir langskot Sig-
urjóns Kristjánssonar. Eina um-
talsverða tilraun Víðis í fyrri hálf-
leik var þegar Daníel Einarsson
þrumaði á markið á 43. mín. en
Guðmundur Hreiðarsson varði.
Það sama var uppi á teningun-
um framanaf síðari hálfleik, eða
þar til Valur náði forystu. Þá fékk
Sigurjón boltann hægra megin,
rétt utan markteigs, og skaut
föstu skoti í stöng. Boltinn hrökk
beint til hans aftur og þá skoraði
Sigurjón af öryggi, 0-1.
Víðismenn hresstust við þetta,
eins og svo oft þegar þeir fá á sig
mark, og fóru að sækja meira.
Guðjón Guðmundsson átti gott
skot á 73. mín. sem Guðmundur í
Valsmarkinu varði en Valsmenn
sluppu svo sannarlega með
skrekkinn á 83. mín. Þá var Grét-
ar Einarsson skyndilega aleinn
gegn Guðmundi markverði,
mark blasti við en Grétar skaut
beint á Guðmund sem sló bolt-
ann yfir slána. Fleiri færi gáfu
Valsarar ekki á sér og héldu í bæ-
inn með 3 dýrmæt stig.
-SÓM/Suðurnesjum
Víðir-Valur 0-1 (0-0) * * *
Garðsvöllur, 22. ágúst
Dómari Eysteinn Guðmundsson « *
Áhorfendur 670
0-1 Sigurjón Kristjánsson (68.)
Stjörnur Viðis:
Daníel Einarsson «
Jón Örvar Arason ♦
Ólafur Róbertsson *
Stjörnur Vals:
Sigurjón Kristjánsson * ♦
Ámundi Sigmundsson «
Guðmundur Hreiðarsson «
3. deild
Allt í hnút!
Fylkir vann ÍR og ÍK er með bestu stöðu
Gífurleg spenna er komin í
toppbaráttu SV-riðils 3. deildar-
innar í knattspyrnu eftir 2-1 sigur
Fylkis á ÍR á gervigrasinu í gær-
kvöldi. IR hefur 23 stig og á einn
leik eftir, við Reyni í Sandgerði,
Fylkir er með 22 og á einn eftir,
heima gegn Grindavík, en ÍK hef-
ur 21 stig og á tvo leiki eftir,
heima við Ármann í dag og gegn
Stjörnunni í Garðabæ. ÍK á því
mesta möguleika á 2. deildarsæt-
inu.
Leikurinn í gærkvöldi einkennd-
ist af mikilli baráttu, enda mikið
í húfi. Baldur Bjarnason skoraði
fyrir Fylki eftir aðeins 6 mínútur
en Halldór Halldórsson jafnaði
fyrir ÍR á 18. mínútu. Það var
síðan Orri Hlöðversson sem
tryggði Fylki sigur með skalla-
marki eftir hornspyrnu fimmtán
mínútum fyrir leikslok. -VS
Frjálsar
Öldungamótið framundan
Meistaramót íslands í frjálsum
íþróttum öldunga verður haldið í
Laugardal um næstu helgi. 30. og31.
júlí, og hefst kl. 14 báða dagana.
Konur 30 ára og eldri og karlar 35 ára
og eldri hafa rétt til þátttöku. Keppt
verður í öllum venjulegum meistara-
mótsgreinum sem næg þátttaka fæst í
(minnst 3) og höfð hliðsjón af tíma-
seðli Meistaramóts fslands. Þátttaka
tilkynnist í síðasta lagi á miðviku-
dagskvöldið, 27. ágúst, til öldunga-
ráðsmannanna Höskulds (667141 og
25088), Kjartans (52848 og 52046)
eða Olafs (75292 og 26133) eða til
skrifstofu FRÍ (83386 og 83686).
Sund
Eðvarð tíundi
Setti íslandsmet á 50 metra braut og varð annar í B-úrslitum.
Ragnheiður Í26. sœti af32 keppendum
Eðvarð Þ. Eðvarðsson varð 10.
af 42 keppendum í 100 m bak-
sundi á heimsmeistaramótinu í
Madríd í gær. Hann varð ellefti í
undanrásunum á 58,09 sekúnd-
um en síðan annar í B-úrslitum,
milli þeirra sem voru í sætum 9-
16, og synti þá á 57,86 sekúndum.
Þetta er íslandsmet á 50 metra
braut en íslandsmet Eðvarðs á 25
metra braut er 57,07 sekúndur.
Mike West varð sigurvegarí í B-
úrslitunum á 57,72 sekúndum.
Hann hafði misst af sæti í aðal-
úrslitasundinu eftir aukakeppni
við Frank Baltrusch en þeir
höfðu fengið sama tíma í undan-
rásunum.
Það var síðan Sovétmaðurinn
Igor Poliansky sigraði í sundinu,
rétt eins og í 200 m baksundinu.
Hann synti á 55,58 sekúndum í
úrslitunum sem er met á
heimsmeistaramóti. Dirk Ric-
hter frá A.Þýskalandi varð annar
á 56,49 og Sergei Zabolotnov frá
Sovétríkjunum þriðji á 56,57 sek.
Ragnheiður Runólfsdóttir
keppti í 200 m fjórsundi og varð (
26. sæti af 32 keppendum á
2:29,53 mín. sem er þremur sek-
úndum lakari tími en íslandsmet
hennar. Ragnheiður hefði þurft
að synda á 2:20,19 mín. til að
komast í úrslitasundið.
Eðvarð hefur í Madríd sýnt
framá að hann er kominn í hóp
bestu baksundsmanna heims.
Hann náði sem kunnugt er 8. sæti
og var með fimmta besta tímann í
200 m baksundinu og setti glæsi-
legt Norðurlandamet.
Michael Gross frá V. Þýska-
landi sigraði í 200 m flugsundinu í
gær á glæsilegan hátt, á 1:56,53
mín., og er það annar besti tími
sem náðst hefur á þessari vega-
lengd. Hinn er heimsmet Gross,
1:56,24 mín. -VS/Reutcr
Laugardagur 23. ágúst 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15
Sigurðarmálið
Leikbann staðfest
✓
Víðir með stigin úr leiknum við IBK
Dómstóll KSÍ kvað í fyrrakvöld
upp þann úrskurð að leikbann
það sem héraðsdómstóll UMSK
dæmdi Sigurð Björgvinsson, leik-
mann ÍBK, í fyrr í sumar hafi
verið lögmætt. Héraðsdómstóll á
Suðurnesjum hafði áður dæmt á
sama hátt.
Víðismenn eru því með stigin
þrjú og markatöluna 3-0 úr leik
sínum við ÍBK. Sigurður lék þá
með ÍBK þótt hann væri í um-
ræddu leikbanni og ÍBK vann
leikinn 1-0.
Keflvíkingar geta áfrýjað mál-
inu til dómstóls ÍSÍ en í gær lá
ekki fyrir hvort þeir myndu gera
það. Stigin eru afar dýrmæt fyrir
báða aðila, með þau innanborðs
eru Víðismenn nánast örugglega
sloppnir við fall í 2. deild en
möguleikar ÍBK á fslands-
meistaratitlinum skerðast til
muna við missi þeirra. _VS
England
Robson ekki með
Tvísýnt um Shilton og Grobbelaar
Bryan Robson, fyrirliði Manc-
hester United og enska landsliðs-
ins í knattspyrnu, situr meðal
áhorfcnda þegar Man.Utd sækir
Arsenal heim í fyrstu umferð
ensku 1. deildarinnar í dag. Rob-
son gekkst undir aðgerð á öxl eftir
heimsmeistarakeppnina í Mexíkó
og óvíst er að hann geti leikið fyrr
en eftir nokkrar vikur.
Tveir af kunnustu markvörð-
um deildarinnar eru meiddir og
óvíst að þeir verði með í dag. Pet-
er Shilton hjá Southampton er
tognaður á hálsvöðva og Bruce
Grobbelaar, sem hefur staðið í
ntarki Liverpool samfleytt í 317
síðustu leikjum, er tognaður í
nára. Tint Flowers hjá Sout-
hampton og Mike Hooper hjá Li-
verpool taka stöður þeirra ef með
þarf.
-VS/Reuter
Bryan Robson er kallaður dýrasti
áhorfandi í ensku knattspyrnunni
vegna tíðra meiðslaforfalla.
DJÓÐVIUINN
UMBOÐSMENN
Kaupst. Nafn umboðsmanns Heimili Sími
Garðabær Anna Jóna Ármannsdóttir Suðurbraut 8 651141
Hafnarfjörður Anna Jóna Ármannsdóttir Suðurbraut 8 651141
Keflavík Ingibjörg Eyjólfsdóttir Suðurgötu 37 92-4390
Keflavík Guöríður Waage Austurbraut 1 92-2882
Njarðvík Kristinn Ingimundarson Faxabraut 4 92-3826
Sandgerði Þorbjörg Friðriksdóttir Hólagötu 4 92-7764
Garður Benedikt Viggósson Eyjaholti 16 92-7217
Mosfellssveít Stefán Ólafsson Leirutanga 9 666293
Akranes Finnur Malmquist Dalbraut 55 93-1261
Borgarnes Sigurður E. Guðbrandsson Borgarbraut 43 93-7190
Stykkishólmur Einar Steinþórsson Silfurgötu 38 93-8205
Grundarlj. Guðlaug Pétursdóttir Fagurhólstúni 3 93-8703
Ólafsvík Jóhannes Ragnarsson Hábrekku 18 93-6438
Hellissandur Drífa Skúladóttir Laufás 6 93-6747
Búðardalur Sólveig Ingólfsdóttir Gunnarsbraut 7 93-4142
ísafjörður Esther Hallgrímsdóttir Seljalandsvegi 69 94-3510
Bolungarvík Ráðhildur Stefánsdóttir Holtabrún 5 94-7449
Flateyri Sigríður Sigursteinsd. Drafnargötu 17 94-7643
Suðureyri Þóra Þóröardóttir Aðalgötu 51 94-6167
Patreksfjörður Nanna Sörladóttir Aðalstræti 37 94-1234
Bíldudalur Hrafnhildur Þór Dalbraut 24 94-2164
Hvammstangi Baldur Jensson Kirkjuvegi 8 95-1368
Blönduós Snorri Bjarnason Urðarbraut 20 95-4581
Skagaströnd Ólafur Bernódusson Bogabraut 27 95-4772
Sauðárkrókur Steinunn Valdís Jónsdóttir Öldustíg 7 95-5664
Siglufjörður Sigurður Hlöðversson Suðurgötu 91 96-71406
Akureyri Haraldur Bogason Norðurgötu 36 96-24079
Dalvík Þóra Geirsdóttir Hólavegi 3 96-61411
Ólafsfjörður Magnús Þór Hallgrímsson Bylgjubyggð 7
Húsavík Aðalsteinn Baldursson Baughóli 31B 96-41937
Reykjahlíð Þuríður Snæbjörnsdóttir Reykjahlíð 96-5894
Raufarhöfn Sigurveig Björnsdóttir Vogsholti 8 96-51276
Þórshöfn Arnþór Karlsson Laugarnesvegi 29 96-61125
Vopnafjörður Sigurður Sigurðsson Fagrahjalla 14 97-3194
Egilsstaðir Páll Pétursson Árskógum 13 97-1350
Seyðisfjörður Sigríður Júlíusdóttir Botnahlíð 28 97-2365
Reyðarfjörður Ingileif H. Bjarnadóttir Túngötu 3
Eskifjöröur Þórunn Hrefna Jónasdóttir Helgafelli 3 97-6327
Neskaupst. Ingibjörg Finnsdóttir Hólsgötu 8 97-7239
Fáskrúðsfj. Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Hlíðargötu 8 Ö7-5239
Stöðvarfjörður Guðmunda Ingibergsdóttir Túngötu 3 97-5894
Höfn i Hornaf. Ingibjörg Ragnarsdóttir Smáratúni 97-8255
Selfoss Margréf Þorvaldsdóttir Skólavöllum 14 99-2317
Hveragerði Erna Valdimarsdóttir Heiðarbrún 32 99-4194
Þoriákshöfn Guðrún Eggertsdóttir Básahrauni 7 99-3961
Eyrarbakki Ragnheiður Markúsdóttir Hvammi 99-3402
Stokkseyri Þór Sigurðsson Stjörnusteini
Laugarvatn Bragi Hinrik Magnússon Héraðssk. Laugarv. 99-6238
Vík í Mýrdal Sæmundur Björnsson Ránarbraut 9 99-7122
VeStmeyjar Ásdís Gisladóttir Búastaðabraut 7 98-2419