Þjóðviljinn - 27.08.1986, Side 3

Þjóðviljinn - 27.08.1986, Side 3
FRFTTIR Skólaaksturinn Engin spilling héma Sverrir Hermannsson: Vil byltaþessu kerfi. Hef aðeins nasasjón af ástandinu Mér vitanlega er ekki um neina spillingu eða misnotkun að ræða á fjármunum sem ætlaðir eru til skólaaksturs. Þetta kostar einfaldlega svona mikið, sagði Guðmundur Ingi Leifsson fræðslustjóri Norðurlandsum- dæmis vestra í gær aðspurður um sannleiksgildi þeirra orða menntamálaráðherra að spilling og misnotkun þrífist í sambandi við skólaaksturinn. Sverrir Hermannsson hefur sem kunnugt er boðað tillögur, sem gera ráð fyrir að framlög ríkisins til skólaaksturs, gæslu og reksturs mötuneyta verði lækkuð úr 230 miljónum í 25 á fjárlögum næsta árs. Sveitarstjórnarmenn hafa várað mjög við þessum hug- myndum og þykir ljóst að mörg sveitarfélög á landsbyggðinni munu ekki geta tekið á sig aukinn kostnað við þennan rekstur. Sverrir var spurður í gær hvað hann ætti við þegar hann talar um spillingu og misnotkun, en hann vildi ekki útskýra það nánar eða nefna dæmi um slíkt framferði. Hann sagðist ekki hafa rannsakað þessi mál heldur að- eins fengið nasasjón af ástand- inu, en þó vissi hann nóg til þess að ætla að hrinda þessu kerfi um koll. Ráðherrann var inntur álits á andstöðu Framsóknarmanna við þessum hugmyndum sínum og sagði hann þá: „Ég vona bara að þeir taki rökum og held að þeir muni gera það áður en langt um líður. Þeir hafa tekið heilmiklum sönsum í lánasjóðsmálinu. Það er allt að koma“. Ráðherrann nefndi sérstaklega til rúmlega 6 miljónir króna sem fara í skólaakstur á þessu ári til Húnavallaskóla. Guðmundur Ingi sagði þá tölu ekki óeðliiega háa. „Þetta er víðlent svæði og þessar tölur hafa verið samþykkt- ar hér á fræðsluskrifstofunni. Við höfum ekki fengið neinar athuga- semdir frá ráðuneytinu eða ríkis- endurskoðun og ég kannast ekki við neina spillingu í mínu um- dæmi“, sagði Guðmundur Ingi. -gg Brúðkaup Natóskip í Sundahöfn I tilefni árlegra heræfinga Nat- óflotans í Norðurhöfum hafa verndararnir ákveðið að heiðra Reykvíkinga með því að senda þeim herskip til að dást að frá í dag og frammá laugardag. Þetta er freigáta, heitir U.S.S. DOYLE, með 250 manna áhöfn. Hún liggur við Sundahöfn. Á föstudag getur almenningur látið teyma sig um borð. Flotaæfingarnar heita Nort- hern Wedding 1986, „Brúðkaup í Norðurslóðum“. Ölfusá Laugardalshöll Hugvitsmenn á Heimilinu 138 sýnendur á Heimilinu ’86. Fjöldi skemmtiatriða á dagskrá: trúðar, jafnvœgislistamenn, skákkeppni og töframaður. Verður slegið heimsmet í bökubakstri? Meðal atriða á sýningunni Heimilið ’86 sem hefst í Laugardalshöil á morgun verður sérstök deild sem ber heitið Hug- vit ’86, en þar munu íslenskir hu- gvitsmenn, ráðgjafar og stoðfyr- irtæki hugvitsmanna sýna hug- myndir og verk sín. Þar geta gest- ir barið augum 24 uppfinningar af margs konar tæi og verða veitt sérstök verðiaun fyrir bestu hug- myndina. fíjörn Hermannsson, einn eigenda Kaupstefnunnar sem stendur fyrir sýningunni, sagði í samtali við Þjóðviljann að 138 sýnendur tækju þátt í Heimilinu ’86 og þar væri að finna flest það sem að notum kæmi við heimili og heimilishald. „Tilgangurinn með svona sýningarhaldi er sá að koma á framfæri hvers konar vörum og þjónustu og að gefa Byrjað á ósavegi Ljúka á við um 3 kflómetra veg- arspotta frá Eyrarbakka út að Ölfusárósum nú í haust og eru áætlaðar 10 miljónir króna til verksins á fjárlögum þessa árs. Vegarlagningu yfir ósana á að Ijúka að fullu árið 1988 sam- kvæmt vegaáætlun og er gert ráð fyrir að framkvæmdir muni kosta alls hátt á annað hundrað miljón- ir króna. Björn Hermannsson: tilgangurinn með svona sýningu er að gefafólki kost á að kynnasér það helsta í vörum og þjónustu á einum stað en einnig einfaldlega að skemmta fólki. Ljósm.: KGA. fólki kost á að kynna sér það sem á boðstólum er á einum stað“, sagði Björn. Undirtitill sýningarinnar í Laugardalshöll er sýning - mark- aður - skemmtun. Segja ein- kunnarorðin talsvert um það sem haft er í frammi. Meðal skemmtiatriða má nefna sérstak- an skákbás þar sem stórmeistarar og alþjóðlegir meistarar úr 01- ympíuliði íslands tefla við gesti frá kl. 16-19 alla sýningardaga. Vel þekktir fjöllistamenn skemmta á Heimilinu ’86, The Commodore Cabaret. Þar er að finna trúða, jafnvægislistamenn og sjónhverfingamanninn Shalid Malik. í baksal og á útisvæði verður rekið Skemmtiland fyrir yngri kynslóðina þar sem boðið, verður upp á hvers konar leiki og, þrautir. Barnagæsla verður á sýn- ingunni. Heimilið ’86 hefst á morgun, fimmtudag, kl. 18.00 en lýkur sunnudaginn 7. september. Er opið virka daga frá 16-22 en um helgar frá 13-22. - v. Þessi framkvæmd hefur staðið fyrir dyrum í fjölda ára og stóðu lengi miklar deilur um réttmæti hennar. Það var hins vegar ekki fyrr en í fyrra að þetta komst inn í vegaáætlun. Framkvæmdir hóf- ust í sumar og verður haldið áfram í haust, en aðal fram- kvæmdatími verður næstu tvö árin eins og fyrr segir. Byggja á rúmlega 300 metra langa brú yfir ósana og er það stór kostnaðarliður, en auk þess þarf að flytja mikið efni á staðinn til uppfyllingar. Tilgangurinn með þessari vegagerð er fyrst og fremst sá að auðvelda flutning hráefnis frá Þorlákshöfn til Eyrarbakka og Stokkseyrar, en höfn er varla til á þessum stöðum, og því verða bátar frá Stokkseyri og Eyrarbakka að landa í Þor- lákshöfn og flytja aflann síðan iandleiðina. -€g Afbrot Fleiri manndráp hér en í grannlöndunum 29 manns létust vegna manndrápa 1972-1982. Meira en annars staðar á Norðurlöndum Manndráp eru fleiri hér á landi en í nágrannalöndum okkar Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Þessar upplýsingar koma fram í ritgerð Hildigunnar Ólafsdóttur um þróun afbrota á íslandi sem var birt í 2. tölubiaði nýs Verndar-blaðs. Ennfremur kemur fram að á þriggja ára tímabili á síðasta áratug voru 14 manns ákærðir fyrir manndráp en í fjórum manndrápsmálum voru átta einstaklingar ákærðir fyrir manndráp á fjórum einstaklingum. Samanborið við Norðurlönd er þetta hátt hlutfall manndrápa og eru tölurnar næstum því eins háar og í Finnlandi, segir Hildigunnur í ritgerð sinni. Þróunin er sú sama í þessum tveimur löndum, mann- drápum fjölgar á seinni hluta síðasta áratugar. Eftir 1980 fækkar skráðum afbrotum vegna manndrápa aftur. Þegar tíðni manndrápa hækkaði varð sú breyting á tengslum afbrotamanns og fórnarlambs að fleiri en áður hafa verið drepnir af ókunnugum. Alls hefur 51 látið lífið vegna manndrápa hér á landi á árunum frá 1951 til 1982, þar af 29 manns síðan 1972. -vd Afmælisveislan 20 milj. framúr áætlun Beinn kostnaður við afmœlishaldið var kominn 20 miljónumfram úr áœtlun þ. 31 júlí-óskað eftir sundurliðuðum kostnaði við afmœlið Búið var að greiða 20 miljón- um meira úr borgarsjóði til af- mælishalds borgarinnar þ. 31. júlí en áætlað hafði verið að greiða til afmælishaldsins fyrir 18. ágúst, en sú áættun hljóðaði uppá 14-16 miljónir. A fjárhagsá- ætlun borgarinnar var fyrirhug- að að verja alls 19 miljónum til afmælishaldsins, en þar er ein- göngu innifalinn beinn kostnað- ur. Þessar upplýsingar voru lagðar fram á borgarráðsfundi í gær. Á sama fundi lagði fulltrúi Kvennalistans í borgarstjórn Ing- ibjörg Sólrún Gísladóttir fram bókun þar sem hún óskaði eftir sundurliðuðu uppgjöri fyrir þá þætti afmælishaldsins sem verða afstaðnir 16. september n.k. Þá óskaði Ingibjörg Sólrún einnig eftir áætluðum kostnaði þeirra þátta afmælishaldsins sem þá verður ólokið og yfirliti yfir kostnað vegna tækjakaupa og framkvæmda sem tengjast af- mælishaldinu. Auk bókunarinnar lagði Ingi- björg Sólrún fram fyrirspurn á fundi borgarráðs þar sem hún óskaði eftir svörum við því hversu mikið þrír aðilar sem störfuðu við undirbúning afmæl- ishalds borgarinnar, þeir Kjartan Ragnarsson, Baldur Hermanns- son og Gísli B. Björnsson, hafi fengið greitt fyrir sérstök verk- efni sem þeir unnu af hendi. -K.Ól. Afbrot Nauðgun í fyrrinólt Karlmaður handtekinn Konu var nauðgað í fjölbýlis- húsi í Breiðholtinu í fyrrinótt og í gærmorgun var karlmaðurinn handtekinn fyrir verknaðinn. Kallað var á lækni og sjúkrabíl vegna meiðsla konunnar, en ekki reyndist nauðsynlegt að flytja hana á slysadeild. Bæði voru þau gestkomandi ífjölbýlishúsinu, en maðurinn forðaði sér í annan bæjarhluta eftir verknaðinn, þar sem hann síðan var handtekinn. -gg ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.