Þjóðviljinn - 27.08.1986, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 27.08.1986, Blaðsíða 9
Háskóli Islands 75 ára rannsóknir Björn Björnsson er prófessor í félagslegri siðfræöi við Guðfræðideild Háskóla íslands og er forstöðumaður Guðfræðistofnunar. Björn var inntureftirhelstu rannsóknum sem stofnunin stæði fyrir og annarri starfsemi á vegum hennar. „Við höfum nú haft vissa sér- stöðu hér á þann veg að Guð- fræðistofnun hefur verið til á pappírum í rösklega tíu ár, eða frá 1975. Allan þann tíma hefur hún verið í fjársvelti, og það var í fyrsta sinn í fyrra sem stofnunin fékk fé úr ríkissjóði. Þetta hefur vitanlega sett sinn svip á starf- semina, stofnunin hefur ekki get- að sinnt þeim verkefnum sem hún á að sinna samkvæmt reglu- gerð, vegna fjárskorts. Árið 1982 bregður hins vegar aðeins til betri tíðar. Þá var 60 ára starfsafmæli elliheimilisins Grundar og af því tilefni afhenti forstjóri Grundar, Gísli Sigur- björnsson, stofnuninni veglega minningargjöf. Þá var myndaður svokallaður starfssjóður Guð- fræðistofnunar. Síðan þá hefur Gísli fært stofnuninni gjafir, síð- ast til minningar um látna borgar- stjóra Reykjavíkur og í tilefni af 200 ára afmæli borgarinnar; gaf stofnuninni 200 þúsund krónur. Trúarlíf íslendinga Það er því fyrst um þessar mundir sem starfssjóðurinn er orðinn það stór að hægt er að taka til hendinni, getum við sagt. Núna fyrst ræður stofnunin við einhver útgjaldasöm verkefni og eitt slíkt er langt komið í undir- búningi. Það er rannsókn á trúar- lífi og trúarlegum viðhorfum Is- lendinga. Við höfum lengi haft áhuga á að rannsaka þetta á fé- lagsfræðilegan hátt. Það má segja að þessi rannsókn falli undir það sem kallað er trúarlífsféiags- fræði. Slíkar rannsóknir hafa aldrei verið gerðar, að vísu hefur Erlendur Haraldsson athugað þetta með áherslu á ýmsa dul- ræna þætti, en aldrei verið gerð víðtæk rannsókn á trúarlegu at- ferli. Slíkar rannsóknir eru hins- vegar mjög algengar erlendis. Aukin hvatning til slíkrar rann- sóknar var Hagvangskönnunin sem gerð var 1984. Það var víð- tæk könnun á gildismati og mannlegum viðhorfum íslend- inga. Þar á meðal voru nokkrar spurningar um trúmál, og þau svör sem þar voru gefin gefa til- efni til víðtækari könnunar. Ég og dr. Pétur Pétursson sem starf- ar við háskólann í Lundi höfum unnið uppúr niðurstöðum þessar- ar könnunar um trúarlega þáttinn og birtum um það grein í fyrsta hefti Kirkjuritsins á þessu ári. Við erum sem fyrr segir langt komnir með að undirbúa mikla könnun á þessum þáttum, úrtaks- könnun þar sem við reynum að fá talsvert gleggri upplýsingar og betri mynd af trúarlegum við- horfum íslendinga. Við stefnum að því að senda út spurningalista seint í september og könnunin mun standa skulurn við segja mánuðina september og október, og síðan mun taka langan tíma að ýmsu tagi. Guðfræðin er svo vítt og umfangsmikið fræðasvið. í stórum dráttum þá kennum við hér Biblíufræði, bæði Gamla og Nýja testamentisins, Kirkjusögu íslenska og almenna, Almenna trúarbragðafræði, trúarlífsfélags- fræði og trúarlífssálarfræði, kristna trúfræði og krístna sið- fræði. Þar við bætist kenni- mannleg guðfræði, sem greinist í helgisiðafræði, sálusorgun, kirkjurétt og fleira sem lýtur að starfi hins þjónandi prests. Og auk þess er hér kennd litúrgísk söngfræði. En þetta er lítill skóli og við getum ekki sinnt öllum greinum guðfræðinnar sem skyldi vegna smæðarinnar." Björn Björnsson - „Siðfræðilegar spurningar hrannast upp“. Mynd E.ÓI. íslendingar eru bjartsýnis trúar Rætt við Björn Björnsson prófessor í guðfræði um rannsóknir á vegum Guðfræðistofnunar og fleira vinna úr svo yfirgripsmikilli könnun.“ Guð sem alheimsandi - Ef þú dregur nú saman helstu niðurstöður úr Hagvangskönn- uninni, sem að þér fundust at- hyglisverðar? „Það kom þar fram sterk guðs- trú íslendinga. Hún virðist vera ákaflega mikil ef borið er saman við aðrar þjóðir. Hér játa um 80% þeirra sem svara trú á Guð. Hins vegar vekur það athygli að íslendingar virðast ekki vera eins vissir um að þessi Guð sé per- sónulegur Guð, sem hægt er að snúa sér til, heldur virðast menn ímynda sér hann sem einhvers konar alheimsanda. Það er því nokkuð óljóst um innihald því- líkrar guðstrúar. Þá koma líka fram að íslend- ingar trúa nánast allra þjóða mest á líf eftir dauðann. Og á tilveru sálarinnar, það kom mjög glöggt fram hversu vissir f slendingar eru um að „sálin“ sé til.“ - Er ekki hugsanlegt að inní þessa almennu trú á líf eftir dauðann, spili sem kalla má heiðnar rætur, til að mynda mikil trú á huldufólk, spíritismi og fleira af því tagi? „Ef maður reynir að túlka þetta, þá má kannski orða það þannig að íslendingar séu bjartsýnistrúar. Ég held að ein skýringin á þessari bjartsýnistrú séu erfið lífskjör fólks á íslandi í gegnum tíðina. Það má segja að lslendingar hafi þurft á bjartsýn- istrú að halda til þess að lifa af. íslendingar hafa lifað í nánum tengslum við náttúruna og búið við ýmsan háska, til dæmis við sjómennsku og fleira. Þannig að trú á æðri máttarvöld kann að tengjast hörðum lífskjörum ís- lendinga til sjávar og sveita. Þeir eru ekki eins afhelgaðir og ýmsar þjóðir sem búa við yfirmáta ör- yggi, mikla tækni og trúa á ver- aldlegar lausnir allra mála. ís- lendingar treystu á æðri máttar- völd þegar menn voru vanmátt- ugir gagnvart náttúruöflunum. Þeir áttu meira undir þeim. Nú, önnur niðurstaða sem var nokkuð eindregin var að svo virð- ist sem hægt sé að skipta þjóðinni í fjóra afmarkaða hópa í afstöð- unni til trúarinnar. Um það bil 7% töldu sig vera ákveðið kristna og voru sjálfum sér samkvæmir í því og nánast sama hlutfall manna taldi sig ókristið. Á milli voru svo tvær breiðfylkingar sem skipta má í tvennt, önnur mjög jákvæð ca. 50% og hin ca. 35% er lítið trúuð og er sjálfu sér sam- kvæm í því líka, sýnir trúmálum lítinn áhuga og trúin skiptir litlu fyrir þeirra líf. Síðan var þetta á alla lund, stór hópur var jákvæður á ýmsum sviðum en einnig var stór hópur sem lítinn áhuga hafði á trúmál- um. í sambandi við kirkjusókn og þátttöku í kirkjulegu starfi, kom í ljós að það er mjög svipað hlutfall og á hinum Norðurlöndunum. Það voru um 11% sem sögðust fara í kirkju einu sinni eða oftar í mánuði. Og mjög stór hópur sagðist einungis fara um hátíðir, jól eða páska.“ Rannsóknir olnbogabarn - Önnur starfsemi Guðfræði- stofnunar? „Stofnunin má segja að skipu- leggi rannsóknastörf og efli sam- band kennslu og rannsókna. Með henni fæst betra yfirlit yfir þær rannsóknir sem í gangi eru. Stofnunin er líka tæki til að efla fjárveitingar, rannsóknastofnan- ir eru til þess að efla veg rannsókna og tryggja fjárhags- legan grundvöll, en rannsóknir hafa verið hálfgert olnbogabarn um nokkurt skeið. Og ég legg áherslu á það að Guðfræðistofn- un á líka að tryggja fræði- mönnum utan Háskólans að- stöðu til fræðilegra starfa, en það vill oft reynast erfitt því stofnunin hefur til dæmis enga starfsað- stöðu. Við ætlum á næsta ári að hefja útgáfustarfsemi, sem okkar markmið er að verði öflugur þátt- ur í starfi stofnunarinnar. Við vonumst til að þá komi út 1. hefti í ritröð Guðfræðistofnunar, sem mun aðallega geyma fræðilegar ritgerðir kennara vð deildina. Við viljum líka efla samstarfið við samsvarandi stofnanir er- lendis og við höfum boðið hingað erlendum fyrirlesurum og fram- hald verður á því. Þá er einnig tímabært að okkar áliti að hefja söfnun og athuganir á guðfræði- legum heimildum íslenskum. Saga íslenskrar guðfræði er mikið til ókunn, það þarf að finna og skrásetja heimildir, og varðveita eftir atvikum. Þarna er mikið starf óunnið. En það er auðvitað ekki bara stofnunin sem stendur fyrir rann- sóknum. Rannsóknir eru mikil- vægur hluti af starfi hvers háskól- akennara og kennarar hér við guðfræðideildina sinna allir sín- um eigin rannsóknum, sem eru af Vandi í kjölfar tœkni - Að hverju beinast þínar eigin rannsóknir aðallega? „Ég er prófessor í félagslegri siðfræði og kenni að auki trúar- lífsfélagsfræði og rannsóknir mínar beinast einkum að þessum sviðum. Aðallega þó að siðfræði fjölskyldulífs og hjúskaparmála. Um það efni skrifaði ég mína doktorsritgerð og hef lengi starf- að með barnaverndarnefnd og Félagsmálastofnun. Núna upp á síðkastið hef ég reynt að sinna ýmsum uppákomum vegna nýrra viðhorfa sem tilkomin eru vegna tæknibyltingar síðustu ára, eink- um í læknisfræði, líffræði og erfðafræði. Það má segja að komið hafi upp siðfræðileg álitamál við upp- haf lífs og dauða. Það hafa safn- ast saman siðfræðilegar spurning- ar við upphafið og endalokin, um fóstureyðingar, tæknifrjóvganir, tilraunir á fóstrum, glasabörn og fleira þvflíkt. Það hefur komið fram ný tækni sem gerir þetta að mjög erfiðum en um leið áleitnum spurningum. Og það virðist vera ríkjandi mikil tækni- hyggja, þar sem menn álykta sem svo að ef eitthvað er tæknilega mögulegt þá sé það siðfræðilega réttlætanlegt. Maður verður var við slík viðhorf á mörgum svið- um. Endalokin eru ekki síður vett- vangur erfiðra spurninga. Hversu lengi á að halda lífinu í fólki með vélrænum hætti, það er með hjálp tækja? Hvenær á að taka úr sam- bandi? Ég hef sinnt þessu dálítið, m.a. með því að skrifa um þetta og að reyna að auka bókakost okkar hér urn þessi mál. Því það á við um okkar vísindi, einsog öll önnur svokölluð hug- vísindi, sem er reyndar rangnefni því auðvitað eru öll vísindi hu- gvísindi, að okkar tækjabúnaður er fyrst og fremst í bókum og tímaritum. Og slæm staða Há- skólabókasafns háir okkar starfi gríðarlega mikið. Safnið hefur bæði afskaplega þröngan húsa- kost og svo mjög þröngan fjárhag til bókakaupa. Maður vonar bara að eitthvað rætist úr hérna útá Melavelli. Það er líka nokkuð erfitt að koma sér upp góðu fræðilegu bókasafni sjálfur, bækur eru dýrar og kjör háskól- akennara eru nú ekki uppá það besta. Síðan beinast rannsóknir mín- ar að ýmsu sem heyrir undir trúarlífsfélagsfræði, og er fyrr- nefnd könnun þáttur í því.“ -pv Miðvikudagur 27. ágúst 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.