Þjóðviljinn - 27.08.1986, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 27.08.1986, Blaðsíða 15
IÞROTTIR EM/Frjálsar Munaði 12 sentimetrum Einarþrettándi en 12 komustáfram. Sigurður í28. sæti Einar Vilhjálmsson var 12 sent- imetrum frá því að komast í úr- slitakeppni spjótkastsins á Evr- ópumeistaramótinu í Stuttgart í gærkvöldi. Hann varð þrettándi af 30 keppendum, kastaði 77,76 metra, en tólfti maður, David Ottley frá Bretlandi, kastaði 77,88 metra. Sigurði Einarssyni gekk ekki vel. Hann kastaði aðeins 71,54 metra ogvarðí28. sæti. Fimmtán efstu í spjótkastinu urðu eftir- taldir: Klaus T afelmeier, V. Þýskalandi.82,68 Heino Puuste, Sovétríkjunum.....82,54 Gerald Weiss, A. Þýskalandi......81,40 Marek Kaieta, Sovétríkjunum......81,32 ViktorYevsyukov, Sovétríkjunum..80,48 Detlef Michael, A.Þýskalandi....79,84 Sejad Krdzalic, Júgóslavíu.......79,46 Jyrki Blom, Finnlandi...........79,02 Wolfram Gambke, V.Þýskalandi....78,94 • StanislawGorak, Póllandi.......78,32 Michael Hill, Bretlandi.........77,94 David Ottley, Bretlandi..........77,88 EinarVilhjálmsson, Islandi.......77,76 JormaMarkus, Finnlandi..........77,32 Dag Wennlund, Svíþjóð............76,88 Um helgina setti Alþjóða frjálsíþróttasambandið bann á þrjár tegundir spjóta, þar á með- al þá sem Einar hefur mest æft með. Hann hefur hinsvegar náð 80 metra kasti með þeirri tegund sem hann notaði í staðinn í gær- kvöldi. Maria Cruz Diaz, 17 ára England Wimbiedon vann fyrsta heimaleik Arsenal tapaði í Coventry Wimbledon, sem lék utan deilda þar tii fyrir níu árum, vann sigur í sínum fyrsta heimaleik í 1. deild ensku knattspyrnunnar í gærkvöldi. Nýliðarnir unnu Ast- on Villa 3-2 í sögulegum leik þar sem Gary Williams þjá Villa var vísað af leikvelli strax á 14. mín- útu. Glyn Hodges, John Fashanu og Kevin Gage skoruðu fyrir Wimbledon en Garry Thompson gerði seinna mark Villa á síðustu mínútunni. Úrslit í ensku knattspyrnunni í gærkvöldi: 1. deild: Coventry-Arsenal 2-1 Luton-Sbuthampton 2-1 Q.P.R.-Watford 3-2 Wimbledon-Aston Villa 3-2 2. deild: Millwall-Hull 0-1 spænsk stúlka, hlaut fyrstu gullverðlaunin á mótinu þegar hún sigraði í 10 km göngu kvenna í gær. Rétt á eftir kom hin portúg- alska Rosa Mota í mark sem yfir- burðasigurvegari í maraþon- hlaupi kvenna á 2 klukkustund- um, 28,38 mínútum. Heidi Krie- ger frá A. Þýskalandi sigraði í kúluvarpi kvenna með 21,10 metra kasti og Stefano Mei frá Ítalíu sigraði í 10 km hlaupi karla eftir æsispennandi keppni við hinn fræga landa sinn og fyrrum Evrópumeistara, Alberto Cova. Annars voru undanrásir hinna ýmsu greina aðallega á dagskrá í gær og svipað verður uppi á ten- ingunum í dag. -VS/Reutcr Einar Vilhjálmsson verður fjarri góðu gamni í úrslitakeppninni í dag. Delldabikarinn, helstu leikir: Cardiff-Fulham..................5-4 Hartlepool-Middlesboro..........1-1 Huddersfield-Halifax............3-1 Orient-Cambridge................2-2 Rochdale-Burnley................1-1 Shrewsbury-Crewe................0-0 Sunderland-York.................2-4 Swindon-Torquay.................3-0 Wigan-Blackburn.................1-3 Wolves-Lincoln..................1-2 Nick Pickering skoraði sigur- mark Coventry gegn Arsenal 5 mínútum fyrir leikslok. Cyrille Regis hafði komið Coventry yfir með þrumumarki en Viv Ander- son jafnað fyrir Arsenal. Martin Allen, Wayne Fereday og Gary Bannister komu QPR í 3-0 en Brian Talbot og John Barnes svöruðu fyrir Watford. Robert Wilson og Brian Stein skoruðu fyrir Luton en Colin Clarke fyrir Southampton, sitt fjórða mark í tveimur leikjum. -VS/Reuter Akureyri Þór vann Þór sigraði KA 3-1 í minn- ingaleik um Oskar Gunnars- son knattspyrnumann úr Þór á Akureyrarveliinum í gær- kvöldi. Oskar lést sl. vor en hann var leikmaður með meistaraflokki Þórs frá 1975 til 1986. Siguróli Kristjánsson kom Þór yfir og Einar Arason skoraði síðan glæsimark, 2-0 í hléi. Tryggvi Gunnarsson svaraði fyrir KA og talsverð spenna var í leiknum en Einar innsiglaði sigur Þórs með sínu öðru marki mínútu fyrir leiks- lok -K&H/Akureyri England Leetil Lundúna QPR keypti í gær Sammy Lee frá Liverpool fyrir 230 þúsund pund. Lee er 27 ára gamall og á að baki 14 leiki með enska landslið- knattspyrnu en hefur átt í inu erfiðleikum með að komast í lið Liverpool síðustu tvö árin. -VS/Reuter Kvennaknattspyrna KA vann alla sína leiki Missti 30 mörk þegar ÍR hœtti keppni KA vann sigur í A-riðli 2. Úrslit síðustu leikja í A-riðli: deildar kvenna með fullu húsi Grundarfjörður-Stokkseyri...2-1 stiga, fékk 30 stig af 30 mögu- Grundarfjörður-Skallagrímur..4-0 legum. Grindavíkurstúlkurnar SghmTcSrincfavík::::::::.....o-4 voru síðast lagðar að velli, 3-0 á Skallagrfmur-Stokkseyri.....5-1 Akureyri á sunnudaginn. Anna Afturelding-Grindavfk.........6-0 Gunniaugsdóttir, Hjördís úifars- dottir og Valgerður Jónsdottir skoruðu mörkin. Lokastaðan í riðlinum varð þessi: tt . , ... ,n , ka.............10 10 0 0 39-3 30 KA skoraði 69 mork 1 sumar en Afturelding....10 7 1 2 47-13 22 heil 30 strikast út þar sem ÍR gaf Grindavík.......10 6 1 3 17-13 19 síðustu leiki sína og var þar með Gi-undarfjörður.10 2 1 7 9-28 7 vísað úrkeppninni. KA vann ÍR s.S!:::!2 028 ll°9 2 9-0 og 21-0 og Hjordis Ulfars- Leikir ÍR strikaöir út. dóttir skoraði t.d. 7 mörk í seinni v A , .. ,. , ,u leiknum og þau verða ekki talin leiicnr 11* ^eil9 næsta sum- með svo hún missir þannig af ar asam* Stjörnunni sem hefur markakóngstign deildarinnar. ser slSur f B-riðli- -VS Skagamenn Hættviðað leika heima s 1A mætir Sporting í Laugardalnum. Hikstuðum á þremur atriðum, segirJón Akurnesingar hafa ákveðið að hætta við að leika gegn Sporting Lissabon í UEFA-bikarnum í knattspyrnu á sínum heimavelli í haust. Þess í stað verður leikið á Laugardalsvellinum, miðviku- daginn 17. ágúst. „Það má segja að við höfum hikstað á þremur mikilvægum at- riðum. Fyrir það fyrsta eigum við ekki möguleika á að setja upp síma og fullnægjandi aðstöðu fyrir alla þá útvarps- og blaða- menn sem verða á leiknum. Þá eru vissar reglur um heiðursstúku og mótttöku gesta sem hefðu skapað mikið vandamál og í þriðja lagi treystum við því ekki að völlurinn standist það álag sem á honum verður í haust og yrði enn meira síðustu dagana fyrir svona leik,“ sagði Jón Gunnlaugsson formaður knatt- spyrnuráðs ÍA í samtali við Þjóð- viljann í gær. Jón sagði að þetta væru mikil vonbrigði, ekki síst fyrir fólkið á Akranesi. í staðinn yrði reynt að koma til móts við þá sem vildu fara og sjá leikinn á Laugardals- vellinum. -VS Kvennaknattspyrna Breiðablik í öðni sæti Vann ÍA 4-3. KR vann í Keflavík Breiðablik er öruggt með 2. sætið í 1. deild kvenna eftir 4-3 sigur á ÍA í miklum baráttuleik á Kópavogsvellinum í gærkvöldi. Kristrún Daðadóttir, ung og efnileg stúlka í liði Breiðabliks, skoraði fyrsta markið eftir 17 mínútur. Skagastúlkurnar tóku þá fyrst við sér og skoruðu tvö mörk á 10 mínútum. Karítas Jónsdóttir og Ásta Benedikts- dóttir voru þar að verki, 1-2, og þannig var staðan í hálfleik. Bæði liðin komu ákveðin til síðari hálfleiks en það var ekki fyrr en á 20. mín. sem Blikastúlk- ur náðu að jafna. Þ’að var Ásta B. Gunnlaugsdóttir, nýkominn inná sem varamaður, 2-2. Erla Rafns- dóttir bætti við þriðja markinu eftir mikla sókn, 3-2 og aðeins fjórum mínútum síðar fiskaði Magnea Magnúsdóttir víta- spyrnu sem Ásta María Reynis- dóttir skoraði úr, 4-2. Skagast- úlkur voru ekki af baki dottnar og Karítas skoraði með þrumuskoti í þverslána og inn þegar 5 mínútur voru eftir af leiknum, 4-3. í Keflavík vann KR sann- gjarnan sigur á ÍBK, 1-0. KR lék mun betur og Helena Ólafsdóttir skoraði eina mark fyrri hálfleiks. Hún bætti síðan við marki eftir hlé en Margrét Sturlaugsdóttir náði að laga stöðuna fyrir ÍBK, 1-2. -MHM/VS Sovétríkin Kiev á uppleið Sammy Lee yfirgefur nú fæðingar- borg sína, Liverpool, í fyrsta sinn til að leika með öðru félagi. Dynamo Kiev mjakast nú hægt og rólega upp sovésku 1. deildina í knattspyrnu. Fyrir skömmu sat liðið á botninum, með 10 stig úr 8 leikjum en þá höfðu önnur lið leikið 15 leiki. Skýringin á þessu er sú að Kiev er í dag nánast það sama og sovéska landsliðið og var því í fríi á meðan heimsmeistara- keppnin stóð yfir en hin liðin léku á meðan. Nú er Kiev með 22 stig úr 15 leikjum og í 5. sætinu en Zenit Leningrad er á toppnum með 24 stig úr 20 leikjum. Það stefnir því allt í að Kiev verji meistaratitilinn en óneitanlega verður mikið álag á liðinu síðustu England Rush bíður dóms Ian Rush, miðherji Liver- pool og velska landsiiðsins, á yfir höfði sér sektir frá enska knattspyrnusambandinu. Eins og fram hefur komið var hann „rekinn af velli“ fyrir að segja dómaranum til synd- anna í lok leiks Liverpool og Manchester City í 1. deild ensku knattspyrnunnar í fyrrakvöld. Atvikið átti sér . stað eftir að flautað hafði ver- ið til leiksloka þannig að um sjálfkrafa leikbann er ekki að ræða. Rush fær tækifæri til að verja mál sitt en í svipuðu til- felli í fyrravor var enski lands- liðsmiðvörðurinn Terry Butcher sektaður um 1500 dollara. -VS/Reuter vikur keppnistímabilsins. Meðal verkefna er leikur í Evrópu- keppni landsliða gegn íslandi á Laugardalsvellinum 24. sept- ember og þátttaka í Evrópu- keppni meistaraliða um svipað leyti. -VS Golf Haustmót á Hornafirði Golfklúbbur Hornafjarðar heldur opið haustmót um næstu helgi, laugardag og sunnudag. Leiknar verða 36 holur, með og án forgjafar. Flugleiðir bjóða kylfingum 25 prósent afslátt af flugi til Horna- fjarðar af þessu tilefni og gefur einnig aukaverðlaun fyrir holu í höggi, flugfar fram og baka milli Hafnar og Reykjavíkur. Hótel Höfn býður kylfingu ódýra gist- ingu um helgina. Þá eru veitt aukaverðlaun fyrir að vera næst holu á 7. og 8. braut- kútur fullur af marineraðri sfld og glæsileg humaraskja! ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.