Þjóðviljinn - 03.09.1986, Side 1

Þjóðviljinn - 03.09.1986, Side 1
4 1936-1986 ÞJÓÐVILJINN 50 ÁRA MENNING ÍÞRÓTTIR HEIMURINN Keflavíkurflugvöllur Mengun haldið leyndrí Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja ekki látið vita afþvíað vatnsból hernámsliðsins er orðið mengað. Auglýst eftir bandarískum aðilum til að athuga málið. Aðstoð Orkustofnunar og Verkfrœðistofu Sigurðar Thoroddsenhafnað. Varnarmáladeild: Auglýsingin farið fram hjá okkur. Vitum ekkihversvegna Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja var ekki látið vita Ljóst er að hernámsliðið á Keflavíkurflugvelli hefur ætl- að að halda leyndri mengun sem orðin er í vatnsbóli þess á Kefla- víkurflugvelli. Hernámsliðið hef- ur auglýst í Bandaríkjunum eftir þarlendum aðilum til að rann- saka mengunina. Fyrir tilviljun frétti Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen af auglýsingunni og sendi inn tilboð í samvinnu við Orkustofnun en því boði var hafnað af hernámsyfirvöldum. Þá er ljóst að herinn hefur haldið þessari mengun leyndri fyrir Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja, sem þó á að fylgjast með málinu. „Eg hef bara aldrei heyrt þetta fyrr og hef ég þó unnið í sam- vinnu við aðila á Keflavíkurflug- velli að heilbrigðismálum þar efra. Það hefur enginn nefnt þetta við mig,“ sagði Magnús Guðjónsson heilbrigðisfulltrúi Suðurnesja, í samtali við Þjóð- viljann í gær. Loftur Þorsteinsson fram- kvæmdastjóri Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen sagðist hafa fengið auglýsingu frá hem- um á Keflavíkurflugvelli senda frá Bandaríkjunum, þar sem ósk- að var eftir rannsókn á menguðu vatni á Keflavíkurflugvelli. Hann sagði að verkfræðistofan hefði þá í samvinnu við Orkustofnun sent inn tilboð í verkið en því hefði verið hafnað. Það væri ekki rétt sem komið hefði fram í útvarpinu að Orkustofnun og verkfræði- stofan hefðu sent inn tilboð í sitt hvoru lagi, þar hefði verið um samvinnu að ræða. Sverrir Haukur Guðjónsson Kjaradeilur Útvaips- menn sýknaðir hjá varnarmáladeild sagði að um- rædd vatnsból væru skammt frá öskuhaugum og teldu menn að rannsaka þyrfti efnamengun í vatninu. Hann sagði að auglýs- ingin sem birt hefði verið í banda- rísku blaði hefði ekki verið til- kynnt til varnarmáladeildar. Hann sagðist heldur ekki vita hvers vegna Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja hefði ekki verið Iátið vita. -S.dór Ragnar Arnalds leikskáld meðal Þjóðleikhússmanna. Brynja Benediktsdóttir, leikstjóri „Uppreisnarinnar" til vinstri. (Mynd E.ÓI.) Þjóðleikhúsið Ragnar afhjupadur Á stóra sviði Þjóðleikhússins í gær var hulunni svipt af því hver er höfundur leikritsins Uppreisn- in á Isafirði, sem Þjóðleikhúsið frumsýnir 25. september. Á svið- inu voru rúmlega 40 leikarar, sem allir fara með hlutverk í leiknum auk Brynju Benediktsdóttur, leikstjóra og Sigurjóns Jóhanns- sonar leikmyndasmiðs er höfund- urinn, Ragnar Arnalds þing- maður, gekk inn á sviðið og heilsaði öllum með handabandi. Uppreisnin á ísafirði fjallar um Skúlamálið svokallaða og að sögn Ragnars Arnalds byggir hann mikið á bókum Jóns Guðnasonar um Skúla Thorodd- sen, auk þess sem bók Þorsteins Thorarensen, Eldur í æðum, reyndist honum vel. „Það er býsna algengt að rit- höfundar séu fjölmennir í róttæk- um flokkum. Það er alþjóðlegt fyrirbæri,“ sagði Ragnar er hann var spurður hvers vegna svona margir þingmenn Alþýðubanda- lagsins hefðu fengist við bók- menntir. Ragnar vann að Uppreisninni sumarið ’83, ’84 og ’85. „Um leið og leikritið fjallar um söguleg átök er slegið á léttari strengi og þrátt fyrir allt endar leikritið frekar vel,“ sagði Ragnar að lok- um. -Sáf Varnarsáttmálinn Steingrímur vill endurskoðun / Steingrímur Hermannsson: Vaxandi stirðleiki ísamskiptum Islands og Bandaríkjanna Igær voru útvarpsmennirnir 10 sem ákærðir voru fyrir að stöðva útsendingar ríkisútvarps- ins með ólögmætum hætti þann 1. október 1984 sýknaðir. Voru útvarpsmennirnir, sem lögðu niður vinnu vegna þess að fastir starfsmenn höfðu ekki fengið mánaðarlaun sín greidd þann dag eins og lög gera ráð fyrir, sýknaðir á þeim forsendum að með verknaðar- og aðgerðar- leysi sínu hafi þeir ekkert gert sem truflaði útsendingar með ó - lögmætum hætti, en það er skil- yrði refsiábyrgðar þeirrar greinar sem kæran var grundvölluð á. - K.ÓI. Sjá bls. 3 Árekstrarmál eins og hvala- málið, Rainbow málið, kjötinn- flutningurinn og fleiri hafa valdið ákveðnum stirðleika í sam- skiptum okkar við Bandaríkja- menn og ef ekki finnst viðunandi lausn þá tel ég að við ættum að fara fram á endurskoðun varn- arsáttmálans, sagði forsætisráð- herra í samtali við Þjóðviljann í gær. Steingrímur nefndi sérstaklega útboð Bandaríkjamanna á rann- sóknum á vatnsbólum á Reykja- nesi og sagði slíkt háttalag ekki ná nokkurri átt. Aðspurður um hvað myndi felast í endurskoðun varnarsamningsins sagðist hann telja að íslendingar þyrftu að koma inn í hann ákvæðum um flutninga til hersins, kjötinnflutn- ing og rannsóknir á borð við þær sem Bandaríkjamenn hafa nú boðið út einungis til landa sinna. „Einnig er mögulegt að setja sérstök lög um að fTutningar verði háðir útboðum og til greina kem- ur að herða á lögunum um kjöt- innflutning frá 1928. Það má alls ekki skilja ummæli mín um end- urskoðun samningsins þannig að ég vilji losa okkur við herinn.“ -gg Heilaþvottur fyrir alla New York - „Dóttur minni er ekki haldið í gíslingu og hún klæðir sig ekki upp í fræg föt föður síns.“ Það er Priscilla Presley, fyrrum eiginkona rokkkóngsins sáluga sem fann hjá sér þörf til að lýsa þessu yfir í viðurvist frétta- manna. Hún sagðist vilja ræða þessi mál opinberlega þar sem hún gæti ekki lengur á sér setið vegna fréttaflutnings blaðanna af dóttur hennar. „Þeir segja líka að hún hafi verið heilaþvegin," sagði Priscilla. „Ef gott samband við móður, fjölskyldu og vini þýðir heilaþvottur, ættu allir að láta heilaþvo sig.“ - IH/Reuter

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.