Þjóðviljinn - 03.09.1986, Síða 15
ÍÞRÓTTIR
England
Wimbledon efst!
-þegar 4. umferð er hálfnuð.
WestHam og Tottenham töpuðu.
Smáfélagið Wimbledon gerði
sér lítið fyrir og skaust á topp
ensku 1. deildarinnar. Wiinble-
don sigraði Charlton á útivelli 0:1
er því efst þegar 4. umferðin er
hálfnuð.
Það var Dennis Wise sem
tryggði Wimbledon sigurinn með
marki á 87. mínútu. Þetta er ótrú-
legt afrek hjá þessu litla félagi, en
það er aðeins níu ár síðan liðið
hóf keppni í ensku deildarkeppn-
inni og eru nú í fyrsta sinn í 1.
deild.
Frank Mcavennie kom West
Ham yfir á 19. mínútu gegn Nott-
ingham Forest, en Nigel Clough
og Neil Webb skoruðu 2 mörk á
tveimur mínútum og tryggðu
Forest sanngjarnan sigur.
Colin Clarke skoraði eftir að-
eins 3 mínútur fyrir Southampton
gegn Tottenham og var það hans
fimmta mark á keppnistímabil-
inu. Tottenham sótti mun meira
en Peter Shilton stóð sig mjög vel
og hélt hreinu. Það var svo
Danny Wallace sem gulltryggði
sigur Southampton þremur mín-
útunt fyrir leikslok.
Það leit allt út fyrir jafntefli í
leik Everton og Oxford í síðari
hálfleik. Trevor Steven kom
Everton yfir snemma í síðari hálf-
leik en Ray Houghton jafnaði
stuttu síðar. Alan Harper kom
svo Everton yfir á 72. mínútu og
Kevin Langley bætti þriðja mark-
inu við átta mínútum fyrir leiks-
lok.
Það voru þeir Niall Quinn og
Tony Adams sem tryggðu Arse-
nal sigur á Sheffield Wednesday.
Chelsea hefur gengið erfiðlega
2. deild kvenna
Aftur og
nýbúið
KA-stúlkurnar léku nákvsem-
lega sama leik og KA-strákarnir
gegn Skallagrími á Akureyri á
laugardaginn. KA vann Skal-
lagrím 13-0 í síðasta leik A-riðils
2. deildar kvenna. Anna
Gunnlaugsdóttir gerði 5 mörk,
Hjördís Ulfarsdóttir 3, Valgerður
Jónsdóttir 3, Erla Sigurgeirsdótt-
ir 1 og Tinna Óttarsdóttir. Sá mis-
skilningur hafði átt sér stað að
Skallagrímur hefði gefið þennan
leik fyrr í sumar, en það var ekki
rétt.
-K&H/Akureyri
Ítalía
Udinese
upp aftur
ítalska liðið Udinese, sem eins
og kunnugt er var dæmt til að
leika í 2. deild mun leika í 1. deild
komandi keppnistímabil.
Udinese var dæmt til að leika í
2. deild fyrir mútur og getrauna-
svindl. Þeir áfrýjuðu og nú um
helgina var málið tekið fyrir að
nýju. Niðurstaðan var sú að
Udinese leikur í fyrstu deild, en
hefur keppni með 9 stig í mínus.
Liðið sem koma átti í stað Udin-
ese, Pisa, leikur því áfram í 2.
deild.
Þá mun Lazio, sem búið var að
dæma til að leika í 3. deild, halda
sæti sínu í 2. deild, en á sömu
skilmálum og Udinese.
-Ibe/Reuter.
að skora. Hafa aðeins skorað eitt
mark í 4 leikjum og gerðu í gær
markalaust jafntefli við Covent-
ry.
Wimbledon er því efst með 9
stig, Everton í öðru sæti með 8
stig og svo koma Tottenham, Li-
verpool, West Ham og Notting-
ham Forest með 7 stig.
Oldham komst í efsta sæti 2.
deildar með sigri á Ipswich 0:1 á
útivelli. Oldham er með 10 stig,
en næstu lið eru Birmingiiam,
Hull, Sheffield United og
W.B.A. með 7 stig.
Úrslit leikja á Englandi í gær:
1. deild:
Arsenal-Sheff. Wed................2:0
Charlton-Wimbledon 0:f
Chelsea-Coventry..................0:0
Everton-Oxford...................3:1
Southampton-Tottenham.............2:0
WestHam-Nottm.Forest............. 1:2
2. deild:
Barnsley-Leeds...................0:1
Hull-Portsmouth...................0:2
Ipswich-Oldham...................0:1
Shetf.Utd.-Millwall..............2:1
Stoke-W.B.A......................1:1
Þá voru einnig leiknir seinni
leikirnir í 1. umferð enska
deildarbikarsins. Heildarúrslit í
sviga:
Blackburn-Wigan..............2:0(5:1)
Bolton-Bury..................0:0(1:29
Brentford-Southend...........2:3(2:4)
Bristol C-Bournemouth........1:1 (2:1)
Burnley-Rochdale.............1:3(2:4)
Cambridge-Orient.............1:0(3:2)
Crewe-Shrewsbury.............0:4(0:4)
Darlington-Scunthorpe........1:2(1-4)
Halifax-Huddersfield.........2:2(3:5)
Lincoln-Wolves...............0:1 (2:2)
Mansfield-Walsall............2:4(2:5)
Middlesbrough-Hartlepool 2:0(3:1)
Newport-Exeter...............1:0(1:0j
Plymouth-Cardiff 0:1 (4:6)
Preston-Blackpool.......... ... 2:1 (2:1)
Rotherham-Doncaster..........4:1 (5:2)
Swansea-Hereford.............5:1 (8:4)
Torquay-Swindon..............2:3(2:6)
Tranmere-Stockport...........3:3(4:5)
Wrexham-Chesterfield.........2:2(4:2)
York-Sunderland..............1:3(5:5)
- Ibe/Reuter
íslands- og Bikarmeistarar í 2. flokki, KR. Þeir tryggðu sér Bikarmeistaratitilinn, nú fyrir stuttu, með sigri á Fram 4:2 í
úrslitaleik. Mynd: E.ÓI.
V-Pýskaland
Stórsigur Leverkusen
Frá Jóni H. Garðarssyni, frétta-
manni Þjóðviljans í V-Þýskalandi
Bayer Leverkusen styrkti stöðu
sína á toppi Bundesligunnar með
stórsigri á Köln 1-4 á útivelli. En
sex leikir voru í Bundesligunni í
gær.
Köln byrjaði vel á móti Le-
verkusen og átti síst minna í
leiknum fyrstu mínúturnar, en
þegar líða tók á leikinn fór Le-
verkusen að sækja í sig veðrið.
Wolfgang Rolff og Herbert Vaas
komu Leverkusen yfir í fyrri hálf-
leik. Köln fékk gott tækifæri til að
minnka muninn, en Klaus Allofs
brenndi af í vítaspyrnu. Florian
Hinterberger og Christian Schei-
er bættu svo tveimur mörkum við
fyrir Leverkusen í síðari hálfleik,
en Stefan Engels minnkaði mun-
inn með marki úr vítaspyrnu.
Það var Manfred Kaltz sem var
maðurinn á bakvið 2-0 sigur
Hamburg á Frankfurt. Hann
lagði upp bæði mörkin og átti
stórleik. Það voru Heinz
Gruendel og Thomas Von Hees-
en.
Bayer Uerdingen kom á óvart
gegn Schalke. Liðið spilaði stífan
varnarleik, en varð að sætta sig
við tap 2-1. Werner Buttgereit
kom Úerdingen yfir með glæsi-
legu skoti af 25 metra færi, hans
6. mark á fimm árum. En það
dugði ekki til Schalke sótti mun
meira. Andre Bistram og Werner
Buttgereit skoruðu mörk
Schalke.
Werder Bremen vann ósann-
gjarnan sigur á Gladbach 1-2.
Gladbach sótti mun meira en
gekk illa að nýta færin. Michael
Kutzop kom Bremen yfir með
marki úr vítaspyrnu, en Guenter
Thiele jafnaði. Hans fyrsta mark
fyrir Gladbach, en hann var
keyptur frá Dusseldorf fyrir eina
milljón marka nú fyrir stuttu, en
hefur gengið illa í leikjum með
Gladbach. Kutzop bætti við öðru
marki fyrir Bremen, einnig úr vít-
aspyrnu og innsiglaði sigurinn.
Dusseldorf kom á óvart og sig-
raði Mannheim 2-0. Það var
áhugamaður, Michael Praetz,
sem kom Dusseldorf yfir með
sínu fyrsta marki í Bundesligunni
og Sven Demandt innsiglaði sig-
urinn með marki í síðari hálfleik.
Dusseldorf kom á óvart í þessum
leik. Lék mjög vel og sókn liðsins
var mjög góð.
Þá vann Borussia Dortmund
Homburg 3-0 og stefnir allt í það
að Homburg fari beint niður aft-
ur.
Frakkland
Platini ekki með
Henri Michel tilkynnti í gær 16
manna hópinn sem leikur gegn Is-
lendingum á Laugardalsvellinum
eftir viku. í þessum hópi eru 10
leikmenn úr HM-liði Frakka.
Michel Platini gefur ekki kost á
ser, segist ekki vera tilbúinn. Þá
eru þeir Maxime Bossis, Alain
Giresse og Dominigue Rochteau
hættir að leika með landsliðinu.
Þá er Jean-Pierre meiddur, en að
öðru leyti er þetta sterkasta lið
Frakka.
16 inanna hópurinn lítur því
svona út:
Markverðir: Joel Bats, Bruno
Martini.
Varnarmenn: Manuel Amor-
os, William Ayache, Patrick
Battiston, Basile Boli Jean-
Francois Domerque.
Miðjumenn: Luis Fernandez,
Jean-Marc Ferreri, Bernard
Genghini, Fabrice Poullain, jean
Tigana, Philippe Vercruysse.
Sóknarmenn: Gerard Busc-
her, Stephane Paille, Yannick
Stopyra.
Fyrirliðií stað Platinis er Batt-
iston. - Ibe/Reuter
Portúgal
Enginn úr
HM-hópnum
Portúgalar eru búnir að velja
40 manna hóp til æfínga fyrir for-
riðla Evrópukeppninnar. I þess-
um hópi er enginn úr þeim 22
manna hóp er tók þátt í
Heimsmeistarakeppninni í Mex-
íkó.
Ástæðan fyrir þessu er sú að 8
leikmenn liðsins voru dæmdir í
bann fyrir að hafa farið í verkfall
vegna bónusgreiðslna. Meðal
þeirra sem fóru í verkfall voru
markvörðurinn Bento og miðju-
leikmaðurinn Manuel. Hinir 14
sem eftir voru ákváðu þá að gefa
ekki kost á sér til að mótmæla
þessum dómi.
Þetta setur hinn nýja lands-
liðsþjálfara Ruy Seabra í miklum
vanda. Hann getur þó huggað sig
við það að hann fær að nota
markahæsta mann portúgölsku
deildarinnar, síðasta keppnis-
tímabil, fyrirliða Sporting Lissa-
bon, Manuel Fernandes, en hann
tók ekki þátt í HM vegna and-
stöðu sinnar við fyrrverandi
þjálfara landsliðsins, Jose Tor-
res.
Eins og kunnugt er gekk Port-
úgölum frekar illa í heimsmeist-
arakeppninni. Unnu England í
fyrsta leik, en töpuðu svo fyrir
Póllandi og Marokkó. Þá voru
þeir þó með sitt besta lið.
Portúgalar eru í riðli með
Sviss, Ítalíu, Svíþjóð og Möltu og
leika fyrst gegn Svíþjóð 12. októ-
ber. - Ibe/Reuter