Þjóðviljinn - 03.09.1986, Qupperneq 16
Lífeyrissjóðirnir
Ovissa
um önnur
lán
Eftir þær miklu breytingar sem
átt hafa sér stað hjá lífeyrissjóð-
um landsins, þar sem þeir kaupa
skuldabréf af Húsnæðisstofnun
fyrir 55% af ráðstöfunarfé sínu,
er allt í óvissu um hvað tekur nú
við með aðra lánastarfscmi
þeirra. Þess vegna eru nú fyrir-
huguð mikil fundahöld í þessum
mánuði og næsta.
Hrafn Magnússon fram-
kvæmdastjóri SAL sagöist ekki
þora að spá í hvað verður í þessu
máli. Hann sagðist þó búast við
að sumir sjóðirnir myndu halda
uppi einhverri lánastarfsemi
áfram, þótt hún yrði minni en
hingað til. Hann benti á að hætt
væri við að lífeyrissjóðsfélaga
skorti veð til frekari lántöku eftir
að vera búnir að fá fullt lán hjá
Húsnæðisstofnun.
Þjóðviljinn hefur hlerað að
sumir sjóðir, þeir sterkustu,
hyggist halda uppi fullri lána-
starfsemi, aðrir muni veita fé-
lögum smálán og enn aðrir hætta
allri lánastarfsemi. -S.dór
Samvinnubankinn
Þefur í
útibúinu
Dagbjört Höskuldsdóttir
útibússtjóri. Óánœgja hjá
bankamönnum sem sóttu
um stöðuna. Pólitískur
þefur af ráðningunni
Dagbjört Höskuldsdóttir hcfur
verið ráðin útibússtjóri Sam-
vinnubankans í Grundarfirði.
Hefur ráðning hennar vakið reiði
bankamanna sem sóttu um stöð-
una, þar sem Dagbjört mun
aldrei hafa starfað að bankamál-
um, en aftur unnið fyrir kaupfé-
lög.
Þykir vera pólitískur þefur af
ráðningunni, þar sem Dagbjört
hefur mikið tekið þátt í pólitísku
starfi Framsóknarflokksins, hef-
ur meira að segja glímt við Alex-
ander Stefánsson í prófkjöri í
Vesturlandskjördæmi. Nú sár-
vantar konu á lista Framsóknar á
Vesturlandi í næstu kosningum
og mun Dagbjört þykja þar áiit-
legur kostur.
Þessa Framsóknarfléttu sætta
bankamenn sig ekki við og ríkir
reiði meðal þeirra vegna alls
þessa. -S.dór
Hundahald
Vátlamir í
hund ogkött
Hundaeftirlitsmenn íReykjavík vœðasttal-
stöðvum. Reykvískir hundar lúsalausir
„Það er mikið í húfi, hundarnir
bíða ekkcrt eftir okkur og þá
þurfum við að geta verið snöggir í
snúningum við að grípa þá. „Því
höfum við nú fest kaup á talstöðv-
um í bílana til að geta verið í
stöðugu sambandi okkar í milli.“
Þetta sagði Oddur R. Hjartarson,
framkvæmdastjóri heilbrigðiseft-
irlits Reykjavíkursvæðis.
Oddur sagði að tvær mann-
eskjur væru á ferð um borgina til
að sinna kvörtunum vegna
hundahalds og til að hafa uppi á
hundum sem ganga lausir. Að-
spurður um það yfir liverju væri
kvartað varðandi óþrif sagði
hann þar væri helst um að ræða
að fólk léti oft vita þegar það sæi
hundaeigendur leyfa hundum
sínum að gera þarfir sínar á
gangstéttir. Oddur sagðist ekki
vita til þess að flær fyndust á
hundum, ekki heldur lús.
Hvað varðar hunda á víxlum
sem minnst var á í Þjóðviljanum í
gær, sagði Oddur að fólki hefði
verið boðið að greiða árgjaldið
fyrir að halda hund, með víxlum
þegar það sagðist myndu eiga í
erfiðleikum með að kljúfa kostn-
aðinn, 4800 krónur. „Þetta fór
allt í hund og kött,“ sagði Oddur.
„Víxlarnir féllu og þurfti særingar
til að fá fólk til að greiða. Nú er
þetta hins vegar orðið í góðu lagi,
fólk hefur greitt nokkuð skilvís-
lega.“ Oddur bað fyrir þau skila-
boð að menn settu hunda sína
kirfilega í hreinsun sem fram fer í
október og nóvember hjá dýra-
læknum.
-IH
Þetta er hundurinn Lubbi í örmum Hildar Garðarsdóttur. Hún heldur á merki
sem þýðir að búið er að borga fyrir hann. Lubbi greyið hlaut annars þann
vafasama heiður að leika í nýlegri mynd sem ku fjalla um Reykjavík.
Síldarsamningarnir
Kanadamenn undirbjóða
Samninganefnd Sovétríkjanna kemur ínæstu viku.
Samningar við Pólverja og Tékka hefjastí vikulokin.
j
Vesturbær
Hljóðfæri í
Frostaskjól
Borgarráð ákvað í gær að verja
500 þúsund krónum tii kaupa á
hjóðfærum í Félagsheimilið
Frostaskjól. Hljóðfærin verða
notuð til kennslu yngri barna, en
verða í eigu félagsheimilisins.
Þetta var samþykkt samhljóða í
borgarráði, en Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir benti á að einnig
þyrfti að leysa vanda Tónskóla
Vesturbæjar, sem ekki hefur
fengið endanlega umfjöllun og
afgreiðslu í borgarkerfinu.
- gg
Erfiðasta vandamálið í síldar-
sölusamningum okkar um
þessar mundir er gegndarlaust
undirboð Kanadamanna á
heimsmarkaði. Þeir hafa að vísu
undirboðið undanfarin ár en
sjaldan eins og nú. Matthías
Bjarnason viðskiptaráðhcrra
sagði í gær að samningar við So-
vétmenn hæfust i næstu viku, en
við Pólvcrja og Tékka í vikulokin.
Matthías sagði að fyrir utan
undirboð Kanadamanna hefði
fall dollarans og lækkandi
olíuverð áhrif á samningana við
Sovétmenn. Þeir hefðu lýst yfir
vilja sínum á að kaupa af okkur
verkaða síld, en verð hefði enn
ekki verið nefnt.
Sovéska viðskiptakerfið er
þungt í vöfum, sem kunnugt er og
ekki bætir það úr að nýr maður
hefur tekið við þessum við-
skiptum við íslendinga, en sá er
fór frá hafði séð um þá um árabil
og þekkti vel til þeirra viðskipta.
Vitað er að Sovétmenn hafa
gert kröfur um sérverkun síldar-
innar sem er mjög erfið í fram-
kvæmd og hafa menn leitt getum
að því að þessar kröfur séu settar
fram til að fá íslendinga til að
falla frá samningum, vegna
undirboða Kandamanna í síldar-
viðskiptum við Sovétmenn. En
þessi mál ættu að skýrast í næstu
viku þegar sovéska viðskipta-
nefndin kemur til íslands.
-S.dór
UðÐVIUINN tlífI JHfirirtJWÁRA
1936-1986 ÞJÓÐVILJINN 50 ÁRA Miðvikudagur 3. september 1986 198. tölublað 51. árgangur Aðalsími: 681333. Kvöldsími: 681348. Helgarsími: 681663.
Frystihúsavandinn
Taka erlend lán
Ríkisstjórnin samþykkti áfundi sínum í gœr að taka 300 miljón króna erlent lán til
að leysa vandafrystihúsanna. Auk þess erþvíbeint til Seðlabanka og Landsbanka
að leysa vanda nokkurra beturstœðrafiskvinnslufyrirtœkja
Það var samþykkt tillaga frá
mér á ríkisstjórnarfundi rétt
áðan um að gera ráð fyrir fjár-
magni á lánsfjáráætlun næsta
árs, sem í gegnum Byggðasjóð
verði veitt til þeirra frystihúsa,
sem þar eru til meðferðar, en á
fimmtudaginn var fjallaði ríkis-
stjórnin einnig um vanda frysti-
húsanna og þá var samþykkt að
fela Landsbanka og Seðlabanka
að leysa vanda ákveðinna frysti-
húsa með lánum, sagði
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra í gær, að loknum
ríkisstjórnarfundi. Þá var og
samþykkt að Seðlabankinn láni
Byggðastofnun fé til að leysa að
hluta þann vanda sem hann glím-
ir nú við til að bjarga nokkrum
frystihúsum.
„Ég held aö meö þessu sé þetta
mál sæmilega afgreitt frá ríkis-
stjórninni, jafnvel þau hús sem
talað hefur verið um að erfitt sé
að bjarga eru inní þessu dæmi,“
sagði Steingrímur.
Tillagan sem samþykkt var á
ríkisstjórnarfundi í gær hljóðar
svo:
„Ríkisstjórnin ákveður að
Byggðastofnun skuli á lánsfjárá-
ætlun 1987 heimilað að taka lán
allt að 300 miljónir króna, eða
jafnvirði þess í erlendri mynt. Fé
þetta skal endurlána fiskvinnslu -
fyrirtækjum íþví skyni að bæta
lausafjárstöðu þeirra, eða endur-
lána eigendum fiskvinr.slufyrir-
tækja, til aukningar á eigin fé
fyrirtækjanna.Þar sem fjárhags-
vandi margra fiskvinnslufyrir-
tækja er mikill beinir ríkisstjórn-
in því til Seðlabanka íslands að
hann hlutist nú þegar til um að
útvega Byggðastofnun þann
hluta af lánsfénu sem hún þarf í
þessu skyni á árinu 1986. Fé þetta
mun endurgreitt Seðlabankanum
1987, enda mun ríkisstjórnin
beita sér fyrir því að heimild til
lántöku verði veitt á lánsfjár-
áætlun þess árs“.
Þá sagði Steingrímur Her-
mannsson að jafnframt þessu
væri gert ráð fyrir því að fram fari
skuldbreyting hjá frystihúsunum.
Að mati forstjóra Byggðastofn-
unar ætti þetta að fara langt með
að bjarga vanda fiskvinnslufyrir-
tækjanna.
-S.dór