Þjóðviljinn - 09.09.1986, Page 1

Þjóðviljinn - 09.09.1986, Page 1
1936-1986 ÞJÓÐVILJINN 50 ÁRA 9 september 1986 þriðju- dagur 203. tölublað 51. árgangur PJÖÐVIUINN ÍÞRÓTTIR MANNUF VIÐHORF Góðœri Mesta af laár sögunnar Um 900.000 tonn hafa borist á land á árinu. Metafli hjá rœkjubátum og smábátum N ú stefnir í mesta aflaár ís- landssögunnar, um 900.000 tonn hafa borist á land fyrstu átta mánuði ársins samkvæmt tölum Fiskifclags íslands, og er það meira en nokkurn tima áður. Ágústmánuður er metmánuð- ur í rækjuafla, um 5.200 tonn hafa veiðst af rækju síðastliðinn mánuð en á sama tíma í fyrra veiddust rúmlega 2.800 tonn. Aukningin stafar að miklu leyti af því að aukinn fjöldi báta gerirút á rækju því verð er mjög hátt nú. Ef sami afli næst á land næstu Knattspyrna Vikufrí til að fagna Húsvíkingar glaðir, Völsungur í 1. deild í fyrsta sinn Gífurleg fagnaðarlæti brutust út á Húsavík seint á sunnudaginn þegar Ijóst var að knattspyrnu- liðið Völsungur hafði unnið sér þátttökurétt í fyrstu deild að ári. Það var engu líkara en liðið hefði unnið sjálfan íslandsmeistaratit- ilinn. Á næsta ári eru liðin 60 ár frá stofnun íþróttafélagsins Völsungs og er árangurinn í 2. deild nú kærkomin afmælisgjöf til félagsins. Liðið hefur aldrei áður leikið í 1. deild meistaraflokks karla og í gleðskap í félagsheimili Húsavíkur á sunnudagskvöldið' mátti sjá margar aldnar kempur með tár í augum. Forráða- mönnum félagsins bárust heilla- óskir í formi blóma og skeyta og formaður Völsungs, Freyr Bjarnason, sagðist ætla að taka sér vikufrí til þess eins að fagna langþráðum áfanga. AB/Húsavík Sjá íþróttir bls. 9-12 fjóra mánuði og í fyrra, má búast við að heildaraflinn á árinu nái 30.000 tonnum sem er meira en nokkurn tíma áður. Sömu sögu er að segja af smá- bátaveiðum, afli báta undir 10 tonnum var í lok ágúst 24.720 tonn en í fyrra veiddust 20.600 tonn sem þótti mjög gott. Þetta virðist því ætla að verða besta aflaár smábáta einnig, og þakka menn bæði fleiri trillum á miðun- um og betra tíðarfari en var á síð- asta ári. - vd. Karpoff fer halloka Fjórtánda skákin í einvígi Karpoffs og Kasparoffs fór í bið í gær eftir talsverðar sviptingar, og hefur heimsmeistarinn allgóðar vinningslíkur. Staðan fyrir 14. skákina var 7-6 fyrir Kasparoff, og vinni hann biðskákina í dag stendur hann mjög vel að vígi, þarsem heimsmeistari telst sigurvegari við jafna vinninga, og þyrfti Karpoff því að vinna þremur skákum meira en Kasparoff af þeim tíu sem eftir eru verði allar skákir tefldar. JT/-m gjfi 2 Ærslast í Sandgerðislaug: Daníel, Nína Rut, Brynja, Ólöf, Rannveig, Freyja, æðislegt að vera", sögðu krakkarnir um leið og þau busluðu framan í Ijós- Sylvia, Arney, Helga, Sigrún sem heldur á Helgu litlu fyrir framan sig. „Hér er myndarann. Ljósm.: Sig. Heilsubót jpm jC u r u u u Æði i laugmni Sundlaug Sandgerðinga endurbœtt á 100 ára afmælinu Maður skilur nú ekki hvar krakkarnir léku sér áður því hér hefur ætíð verið mikið af börnum í leik og námi síðan sund- laugin opnaði enda er þetta eina útisundlaugin hér suður frá, sagði Erla Eyjólfsdóttir baðvörð- ur í sundlauginni í Sandgerði er Þjóðviljamenn kíktu þar inn. Ýmsar framkvæmdir hafa stað- ið yfir við íþróttamannvirkin í Sandgerði, en skólinn, íþróttahús og útisundlaug eru á einum stað. Erla sagði að búningsaðstaðan hefði verið slæm hingað til, sér- staklega yfir sumartímann þegar knattspyrnutímabilið stendur yfir. Það stæði hins vegar til bóta því nú væri verið að innrétta nýja klefa, sem kæmu í góðar þarfír. f Grunnskóla Miðneshrepps sækja nemendur allt grunnnám nema 9. bekk,sem ekki hefur ver- ið starfræktur ennþá. Þurfa þeir nemendur því að sækja nám til Keflavíkur. Kiarasamningar Ut úr vrtahringnum Asmundur StefánssonforsetiASI: Uppstokkun launakerfisins meginverkefni nœstu samninga. Dreifðir samningar hugsanleg leið Uppstokkun launakerfisins var frestað við gerð síðustu kjara- samninga, en það er alveg Ijóst að við verðum að taka á henni í næstu samningum. Það er mjög erfitt að finna flöt á því að gera róttækar breytingar með því að gera allt í sömu andránni á cinu borði og því velti ég þeirri spurn- ingu upp hvort dreifðir samingar séu ekki rétta svarið, sagði Ás- mundur Stefánsson forseti ASÍ í samtali við Þjóðviljann í gær. Ásmundur setur þá hugmynd fram í leiðara í nýjasta tölublaði Vinnunnar hvort ekki sé rétt að verkalýðsfélögin semji jafnvel sjálf við einstök fyrirtæki í næstu samningum. Hann sagði í gær að tilgangurinn með því yrði fyrst og fremst að komast út úr þeim víta- hring yfirborgana sem launakerf- ið væri í nú. „Það má finna galla á öllum aðferðum og ég geri mér grein fyrir að þessi aðferð getur haft fjölmarga ókosti í föi með sér. Það er varla hægt að svara því fyrirfram hvaða starfsgreinar yrðu útundan ef samið yrði með þessum hætti, en það er ljóst að mismunandi staða fyrirtækja og atvinnugreina getur leitt til mis- vægis í samningum. En staðan er jú þannig í dag vegna mismun- andi yfirborgana og út úr þeim vítahring verðum við að komast Þetta kerfi þarf hins vegar ekki að verða til frambúðar og það mætti vel hugsa sér að næstu samningar verði síðan nýttir til samræmingar, sagði Ásmundur. Vilhjálmur Egilsson hagfræð- ingur VSÍ sagði í gær að þessa hugmynd þyrfti að ræða gaumgæfilega. „Þetta hefur augljósa kosti og galla, en það er sjálfsagt að ræða þessa hugmynd eins og aðrar. Þessi aðferð gæti í mörgum tilvikum verið mjög þung í vöfum og við þetta myndu báðir aðilar að vissu leyti missa samtakamáttinn,“ sagði Vil- hjálmur. -gg Forsœtisráðherra Á flótta með falskt skegg Fyrrverandi forsætisráðherra Túnis flúði í síðustu viku til Alsír og komst yfir landamærin skrýddur rauðri tyrkjahúfu, með dökk sólgeraugu og falskt yfir- skegg. Múhameð Mzali hafði verið forsætisráðherra frá 1980 og ver- ið talinn „erfingi“ hins aldna Bo- urgiba þar til hann féll í ónáð í júlí í sumar. Að sögn fréttastofunnar Tab í Túnis laumaðist hann útum bakdyrnar á húsi sínu í úthverfi Túnisborgar, var ekið að alsírsku landamærunum og laumaðist yfir þau dulbúinn. - reuter.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.