Þjóðviljinn - 09.09.1986, Side 13

Þjóðviljinn - 09.09.1986, Side 13
HEIMUMNN Herlög tekin í gildi í Chile eftir misheppnað banatilrœði gegn Pinochet Santiago - Lýst var yfir her- lögum í Chile í gær eftir að vinstri sinnaðir skæruliðar höfðu gert misheppnað bana- tilræði gegn Augusto Pinochet forseta landsins. Fimm af sex lífvörðum hans létu lífið en hann slapp með skrámu á vinstri hendi. Pinochet birtist í sjónvarpinu í gær með vinstri höndina í sára- bindum og sagði hann þar frá til- ræðinu. Hann bætti við að nú stæði yfir styrjöld „milli Marxista og lýðræðis eða milli upplausnar og lýðræðis“. Vinstri sinnaðir skæruliðar hafa lýst yfir ábyrgð sinni á til- ræðinu og sagt að í næsta skipti muni þeim ekki mistakast. Þetta tilræði var gert aðeins fjórum dögum áður en þess verður minnst í Chile að þrettán ár eru liðin síðan her landsins steypti Salvador Allende forseta úr stóli og kom á einræðisstjórn. Pinochet slapp... Kínverska lögreglan hefur handtekið 63 menn i héraðinu Shanxi í miðhluta Kína og lagt hald á tugi þúsunda verðmætra forngripa, sem glæpa- flokkar ætluðu að selja olöglega, að sögn Alþýðudagblaðsins í Pek- ing. Erlenda útgáfa blaðsins segir að „ákveðnir menn og hópar“ hafi fært sér í nyt ferðamannastraum- inn til landsins síðan 1979 til að selja útlendingum dýrmætar forn- minjar. Shanxi-hérað og höfuð- borg þess Xian, eru talin vagga kínverskrar menningar í fornöld og er þar mikið af fornum minjum. Alþýðudagblaðið sagði að lög- reglan hefði gómað fjölmarga glæpaflokka í tveimur borgum í héraðinu og lagt hald á meira en 26000 forngripi. Einnig hefði lög- reglan handtekið smyglara frá borginni Macao, sem er undir stjórn Portúgala, og lífvörð hans: er smyglaranum gefið að sök að hafa smyglað munum út úr Kína ellefu sinnum á einu ári. Samkvæmt herlögunum fá stjórnvöld í Chile vald til að tak- marka upplýsingafrelsi, funda- frelsi og ferðafrelsi,koma á rit- skoðun á fréttum, einkabréfum og öðru, og handtaka menn án dóms og laga og senda þá í útlegð utanlands eða innan. Síðast voru herlög í gildi í Chile frá nóvember 1984 til júnímánaðar 1985 og voru þá sex tímarit og blöð stjórnarandstöðunnar bönnuð, útgöngubann var fyrirskipað og miklar handtökur voru í fátækra- hverfum. Samkvæmt fréttum frá Chile voru a.m.k. tveir stjórnmálamenn stjórnarand- stöðunnar handteknir í gærmorg- un og hermenn gerðu húsleit í fá- tækrahverfum í Santiago. Ráðist var á bifreið Pinochet seint í fyrrakvöld um 29 km fyrir austan Santiago, þegar hann var að koma til bæjarins frá sveita- setri sínu. Lokuðu u.þ.b. tólf skæruliðar veginum með vagni en aðrir skæruliðar komu í bifreið á eftir forsetanum og var ráðist á hann með vélbyssum, rifflum og sprengjum. Kom þá til bardaga milli skæruliða og lífvarða Pino- chets, og biðu fimm lífverðir hans bana en tíu særðust, en Pinochet sjálfan sakaði ekki að öðru leyti en því að hann fékk skrámu af sprengjubroti á vinstri hendi. Sprengutilræði í Stokkhólmi Stokkhólmi - Sprengja sprakk í húsi í miðhluta Stokkhólms í gær, þar sem útlægir fulltrúar Þjóðarflokks Afríku höfðu bækistöðvar sínar, og olli hún miklum skemmdum en ekkert manntjón varð. Sten Anderson, utanríkisráð- herra Svíþjóðar, sem kom á stað- inn skömmu eftir sprengjutil- ræðið, sagði að þetta væri brjál- æðisleg aðgerð, og sagðist hann ætla að biðja leiðtoga flokksins í Lúsaka persónulega afsökunar á því að slíkt skyldi geta komið fyrir í Svíþjóð. Hann sagði einnig að menn Þjóðarflokksins ættu rétt á auknu öryggi í landinu. enda hefði tilræðið getað orðið mörgum mönnum að bana. Þegar blaðamenn spurðu utan- ríkisráðherrann hvort draga bæri þá ályktun af tilræðinu að flugu- menn frá Suður-Afríku væru að störfum í Svíþjóð, svaraði hann, að tilræðið væri verk geðveiks manns og væri það hlutverk lög- reglunnar að hafa upp á honum. Engin samtök hafa enn sem kom- ið er lýst yfir ábyrgð á verknaðin- um. Svíar hafa lengi barist gegn að- skilnaðarstefnu í Suður-Afríku og veita þeir Þjóðarflokknum fjárhagslegan stuðning, en þeir hafa ekki viljað stöðva viðskipti við landið. Sprenging í ráðhúsi Parísar Mannfall í flug- vélar- Sjötugur kínverskur eftirlaunamaður kom hjólandi inní Lhasa, höfu&borg Tí- bet, á föstudaginn og lauk þannig 27.000 km löngum reiðhjólatúr í gegnum öll héruð Kína, að því er fréttastofan Nýja Kína sagði í gær. Þessi ferð hafði tekið meira en tvö og hálft ár. Reiðhjólakappinn, Wu Jisheng að nafni hafði áður unnið í úraverksmi&ju í bænum Chong- qing í héraðinu Sichuan í miðhluta Kína, og var hann í góðri þjálfun eftir að hafa æft hjólrei&ar í flmmtán ár. Hann hoppaði á bak reiðhjóli sinu í júlí 1983, og síðustu 7000 km hjólaði annar áhugamað- ur, Chen Kaiming 61 árs að aldri, með honum. Wu sag&i fréttastof- unni að hann hefði í huga a& fara í annan hjólreiðatúr gegnum Suðaustur-Asíu. París - Mikil sprenging varð í gær í pósthúsi við hliðina á ráðhúsi Parísar, og var talið að um sprengjutilræði væri að ræða. Kona ein lét lífið og sex- tán særðust. Allir þeir sem voru staddir í ráðhúsinu yfir- gáfu það þegar í stað og héldu slökkviliðsmenn og sprengju- sérfræðingar á vettvang. Jacq- ues Chirac, forsætisráðherra, sem einnig er borgarstjóri Par- ísar, var á fundi með nokkrum ráðherrum til að ræða um al- mannaöryggi, en hann fór einnig strax á staðinn, þar sem sprengingin haföi orðið. Þessi sprenging varð aðeins hálftíma eftir að tólf Kúrdar, sem höfðu lagt undir sig skrifstofu flugfélags íraks í hjarta Parísar og tekið átta menn í gíslingu, höfðu gefist friðsamlega upp fyrir lög- reglunni. Kúrdarnir höfðu með- ferðis handsprengjur og sprengi- efni og sögðust þeir vera að mót- mæla fjöldamorðum, sem her ír- ERLENDAR FRÉTTIR EINAR MÁR/d r i t~t C D JÓNSSON /R E U I E R aks hefði framið á Kúrdum. Áður en þeir gáfust upp, hótaði einn skæruliðinn að sprengja bygging- una í loft upp. Pósthúsið var í rústum eftir sprenginguna og virtist sprengj- unni hafa verið komið fyrir við afgreiðsluborðið. Mikill viðbún- aður hefur verið í París, síðan misheppnað sprengjutilræði var gert í neðanjarðarlest í borginni í síðustu viku. Óttast menn að skæruliðar frá Austurlöndum nær, sem krefjast þess að hryðju- verkamenn í frönskum fangels- um verði látnir lausir, hefji nýja hermdarverkaherferð, og hefur þess vegna aukið lögreglulið ver- ið flutt til borgarinnar. ram Karachi - Tala þeirra sem féllu, þegar víkingasveitir gerðu árás á flugræningjana, sem höfðu rænt þotu frá Pan Am flugfélaginu á fliígvellinum í Karachi, komst upp í nítján í gær. Sögðu talsmenn sjúkra- húss að þrír hefðu látist af sár- um stnum. Af þeim sem biðu bana fyrir kúlum ræningjanna voru þrettán Indverjar, tveir Bandaríkjamenn og tveir Paki- stanar en um þjóðerni tveggja var ekki vitað. Hin opinbera fréttastofa landsins skýrði frá því að af þeim hundrað mönnum sem særðust væru 32 enn á sjúkrahúsum í Kar- achi. Nokkrir voru fluttir tii Frankfurt og Bombay í fyrra- dag og aðrir hafa fengið að fara úr sjúkrahúsi. Lögreglan hefur haldið uppi víðtækri leit að mönnum sem kynnu að hafa verið í vitorði með flugvélarræningjunum. Fjórir ræningjar voru handteknir og munu þeir hafa gefið upp einhver nöfn við yfirheyrslur. Yfir þeim vofir dauðarefsing. Haft er eftir lögreglumönnum, að þeir hafi gert húsleit í ýmsum húsum í tveimur fínum hverfum í Karachi og einnig leitað í farfuglaheimil- um að hugsanlegum vitorðs- mönnum. Nokkrar deilur hafa verið um frammistöðu víkingasveitar- manna, sem handtóku ræningj- ana, og hefur Rajiv Gandhi, for- sætisráðherra Indlands, ásakað þá fyrir klaufaskap. Segja sumir að þeir hafi ekki komið á vett- vang fyrr en fimmtán mínútum eftir að skothríðin hófst. Danmörk Hægri klúbbur rægirGert Petersen Frá Gesti Guðmundssyni, fréttaritara Þjóö- viljans I Kaupmannahöfn: Að undanförnu hafa hvað eftir annað birst opinberlega, ásakan- ir á hendur Gerts Petersen for- manns Sósíalíska þjóðarflokksins fyrir að hafa verið nasisti á yngri árum. Að vísu hefur Gert Petersen fyrir löngu viðurkennt að hann var félagi í samtökum ungnasista í nokkra mánuði þegar hann var 13 ára en hann hefur um leið sýnt framá að síðar snerist hann á sveif með andspyrnuhreyfingunni. Bæði flokksfélagar og andstæð- ingar Gerts Petersen hafa lýst því yfir að bernskubrek hans sé löngu liðin tíð og enginn efist lengur um hollustu hans við lýðræðið. Samt hafa þessar ásakanir haldið áfram að birtast í hægri blöðum, lesendabréfum, og nú síðast í vikublaðinu Se og hör sem birti mynd af einkennisklæddum ungnasistum og hélt því fram að einn þeirra væri Gert Petersen. Síðar kom það í ljós að Gert Pet- ersen hafði aldrei í slíkan búning komið og unglingurinn á mynd- inni líktist honum ekki einu sinni. Á föstudaginn afhjúpaði viku- blaðið Sosialistisk week-end hvernig á þessari rógsemi stend- ur. Hún er skipulögð af ofstækis- fullum samtökum and- kommúnista sem kalla sig Varð- berg (Selskabed til værnd for dansk folkestyrelse). Samtökin eru hálfgerður leyniklúbbur, en meðal stuðningsmanna þeirra eru Erhard Jacobsen formaður Mið-demókrata, Færeyingurinn Ole Breckman og ýmsir frammá- menn í Framfaraflokki Glistrups. Samtökin hafa sent út fjölritað uppkast af gögnum gegn Gert Petersen til allra félaga og stuð- ingsmanna og þau hafa beitt ítökum sínum í fjölmiðlum til að hamra á róginum. Flokkur Gert Petersen nýtur vaxandi vinsælda og það verður stöðugt líklegra að hann taki við stjórnartaumunum ásamt kröt- um eftir næstu kosningar. Rógs- herferð Varðbergs mun tæplega ná þeim tilgangi sínum að draga úr þessum líkum.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.