Þjóðviljinn - 09.09.1986, Side 14

Þjóðviljinn - 09.09.1986, Side 14
FLÓAMARKAÐURINN (búð óskast Starfsmaður Þjóðviljans óskar eftir að taka á leigu 2-3ja herb. íbúð sem fyrst. Tvennt í heimili. Reglusemi og öruggar mánaðargreiðslur. Uppl. í síma 681331 kl. 9-17. íbúð til sölu Til sölu er einstaklingsíbúð i Laugarneshverfi. Ný teppi, nýmál- uð. Ibúðin er ósamþykkt, en mjög snyrtileg. Uppl. í síma 83809. ' Örlagið hefur ánægju að kynna Dagbók Lasarusar, nýja Ijóðabók eftir Kjart- an Árnason. Bók sem lyftir andan- um og er til sölu hjá höfundi. Hamrahlíð 33A, Máli og menningu, Eymundssyni og Laxdalshúsi á Ak- ureyri. Örlagið, sími 32926. Tilboð óskast í 24 hestafla loftkælda Lister dieselvél með stefnisröri og skiptiskrúfubúnaði. Uppl. í s. 51018. Vel með farinn Swit-Hun barnavagn til sölu Verð ca. 5 þús. kr. Uppl. veitir Björg ísíma 20095 til kl. 16.00. Kalkoff, 3ja gíra reiðhjól til sölu Verðhugmynd kr. 6 þús. Uppl. í s. 32098. Lftil sambyggð trésmíðavél til sölu Uppl. í síma 37666. Mig vantar gamla saumavól fyrir lítinn pening. Sími 76803. Hjónarúm Til sölu lítið notað hjónarúm ásamt náttborðum úr massífri furu. Selst ódýrt aðeins kr. 14.000.- Þeir sem hafa áhuga, hringi í síma 84310. Skólaföt á börnin Jogging-gallar úr bómullar- og glansefnum á kr. 1.500.- Ennfrem- ur allskyns sérsaumur. Spor í rétta átt, sími 15511. Ódýrt fullorðinsreiðhjól óskast Sími 622829. Sófasett til sölu ódýrt Sími 18038 eftir kl. 5. Húsnæði óskast Ungt og reglusamt par í algjörum húsnæðisvandræðum óskar eftir íbúð til leigu sem allra fyrst. Góðri umgengni og skilvísum greiðslum heitið. Sími 13174. Rösk og ábyggileg unglingsstúlka óskast til ræstinga í heimahúsi í Þingholtunum 1 sinni í viku, 4-5 tíma í senn. Þarf að kunna til verka. Uppl. ís. 27989 eftir kl. 18. Barnahúsgögn til sölu Samstætt skrifborð og hillur frá Ný- borg til sölu ódýrt. Sími 38153 á kvöldin. 2ja metra langur tekkborðstofuskápur fæst gefins. Uppl. í s. 37898 eftir kl. 9 á kvöldin. Óska eftir að kaupa rúm og kommóðu fyrir 4ra ára barn. Sími 16461. Á sama stað er til sölu ungbarnarúm og sæng. Bókasafnsfræðingur með barn óskar eftir lítilli íbúð í Reykjavík eða á Seltjarnarnesi. Uppl. í s. 21792 eftir kl. 5. Hjól hefur tapast frá Seljabraut 78. Hjólið er gult og blátt drengjahjól, ítalskt BÍMX-gerð með handbremsu. Finnandi láti vita í síma 73668. . Kolakyntur suöupottur fæst gefins gegn brottflutningi. Sími 10329. Kvenúr fannst við Osta- og smjörsöluna við Snorrabraut fimmtudaginn 28. ág- úst. Uppl. í s. 14987. Hæ, hæ allir hressir húseigendur Viljum taka á leigu lítið hús eða íbúð í Reykjavík. Erum mjög róleg og reglusöm. Getum borgað einhverja fyrirframgreiðslu ef nauðsyn krefur. Vinsamlegast hafið samband við Hjördísi í s. 79126 í kvöld og næstu kvöld. Karlmaður óskar eftir herb. í vesturbæ má vera í kjallara. Uppl. í s. 15564. Til athugunar fyrir skólanemendur sem vetursetu hafa í borginni o.fl. Til sölu mjög ódýrt skrifborð, bóka- hillur nokkur stykki, 2 stærðir, smá- borð, ofl. Sími 33094. Austin Allegro árg. ’78 til sölu á kr. 10.000.- Uppl. í síma 37666. 4 ungir páfagaukar fást gefins og 2 búr fylgja. Uppl. í s. 40511 eftir kl. 5. Til leigu er 4ra herb. ibúð fyrir reglusamt fólk. Uppl. í s. 34879 eftir kl. 18. Ung hjón með eitt barn óska eftir 2ja-3ja herb. íbúð, helst í Hólahverfi. Reglusemi og mögu- leiki á fyrirframgreiðslu. Uppl. í s. 31471. 3 ungiingarúm með dýnum o.fl. fást gefins gegn því að þau verði sótt. Sími 37745. Bíll til sölu Góð Lada til sölu árg. 1976. Verð- hugmynd 35.000,- Staðgreidd. Uppl. í síma 688204 eftir kl. 9 á kvöldin. Fatlaður maður óskar eftir aö kaupa lítið notað lit- asjónvarp með fjarstýringu. Uppl. í s. 14637. Körfustóiar - gítar Tveir körfustólar til sölu kr. 1.500.- kr. stk. Kosta 3.000.- nýir. Einnig Yamaha þjóðlagagítar til sölu. Selst ódýrt. Uppl. í s. 22461. íbúð óskast 26 ára einstæð móðir með eitt barn óskar eftir 2ja herb. íbúð sem fyrst. Öruggar mánaðargreiðslur. Góðri umgengni heitið. Meðmæli ef ósk- að er. Uppl. í s. 73426 eftir kl. 17. íbúð óskast Systkin óska eftir 3ja-4ra herb. íbúð. Öruggar mánaðargreiðslur, s. 73426 eftir kl. 17. Óska eftir ýmsum notuðum handverkum til trésmíði svo sem smergeli, lítilli hjólsög o.fl. Sími 72072. Ford Cortina árg. ’69 til sölu Ekin 90 þús. km. Uppl. í síma 74008 síðdegis og á kvöldin. Til sölu vel útlítandi svaiavagn kr. 1.800.-, sem nýr ungbarnastóll kr. 900.- og Silver Cross kerra með svuntu, skermi og innkaupagrind kr. 4.800.- Uppl. s. 27628 eða 53805 eftir kl. 19. Atvinna óskast Ég er 17 ára stúlka og mig vantar atvinnu nú þegar. Vinsamlegast hafið samband í síma 84563. Á mölinni mætumst með bros á vör — ef bensíngjöfin HEIMURINN Ástralía Sömu íhaldsúiræðin Stjórn Verkamannaflokksins íklípu - Stirðnandi sambúð við Bandaríkin - Niðurskurður á velferðarkerfinu Bob Hawke forsætisráðherra. Stjórn Verkamanna- flokks Bobs Hawkes í Ást- ralíu er í slæmri klemmu: hún þarf að „stjórna krepp- unni“ og sýnist ekki hafa önnur ráð á prjónum en sí- gild íhaldsúrræði. Ástra- líumenn hafa búið við versnandi greiðsluhalla, þeir hafa safnað feiknar- lega miklum erlendum skuldum og er ein helsta ástæðan sú, að helstu út- flutningsvörur þeirra hafa lækkað mjög í verði og þá ekki síst málmar. Og Bob Hawke ætlar nú að svara því ástandi með miklum niðurskurði á fjárlögum, sem mun m.a. höggva stór skörð í velferðarkerfi í landinu. Keating fjármálaráðherra ger- ir ráð fyrir að halli á fjárlögum verði miljarði ástralíudollara minni en gert var ráð fyrir. Samt sem áður verður verulegur halli á fjárlögum. En breytingar þær sem stærstar eru frá fyrra fjárlag- aári eru þessar: útgjöld ríkisins verða skorin niður um þrjá milj- arði ástralíudollara. Þar af eru 500 miljónir skornar af velferð- arkerfinu, 300 miljónir af fram- lögum til heilbrigðismála. Lagðar eru á nýjar álögur uppá 1,4 milj- arði dollara (á bensín, vín, lúxus- bíla - og svo á heilbrigðisþjónust- una). Þeir éta okkar köku Keating var bersýnilega meira en lítið argur útí umheiminn þeg- ar hann flutti fjárlagaræðu sína. Hann sagði, að aðrir hefðu skorið rækilega af þjóðarköku Ástralíu- manna og það er ekki út í bláinn sagt. Markaðsöflin hafa leikið málmútflutninginn grátt, en svo hefur það valdið Ástralíu- mönnum miklum erfiðleikum, að Bandaríkin hafa dembt á niður- greiddu verði af offramleiðslu sinni á korni og sykri yfir ýmsa helstu kaupendur ástralskra mat- væla - Sovétmenn og Kínverja. Ástralíumenn hafa að sönnu ekki átt í þeim djúptæka ágreiningi um kjarnorkumál við Bandaríkin sem hefur hrakið Nýja Sjáland út úr hernaðarbandalaginu ANZ- US, en það er til dæmis um versnandi sambúð við Bandarík- in, að Ástralíumenn hættu við að taka þátt í heræfingum með bandarískum sveitum „af sparn- aðarástæðum". Og utanríkisráð- herra landsins hefur gefið það til kynna að vel geti verið að Ástra- líumenn verði að hætta við vopn- akaup í Bandaríkjunum vegna þess tekjutaps sem stafar af bandarískum útsölum á niður- greiddum matvælum. Ástralíumenn bönnuðu ártð 1983 sölur á úrani til Frakka í mótmælaskyni við tilraunir þeirra með kjarnorkuvopn á Kyrrahafi. Og það segir sína sögu af því hve hart þeir telja sig keyrða í utanríkisviðskiptum nú, að nú verður þessi útflutningur aftur leyfður. Meira en járnfrúin þorir En eins og fyrr segir taka menn mest eftir þeim harkalega niður- skurði á útgjöjdum ríkisins sem þykir með miklum ólíkindum þegar Verkamannaflokkur á í hlut. Stjórn Hawkes ætlar m.a. að fresta hækkun á eftirlaunum, afnema námsstyrki og gera ýmis- legt fleira sem breska blaðið Gu- ardian segir, að frú Thatcher áræði ekki að gera í Bretlandi. Aftur á móti megi segja, að nið- urskurður á útgjöldum til heilsu- gæslu, framfærslu, kennslumála og áform um að halda launa- hækkunum innan þess ramma að þær séu ekki nema hálfdrættingar á við verðbólguna hverju sinni - allt þetta gæti verið komið beint úr breskum fjárlögum liðinna ára. Sem og frestun á lækkun tekjuskatta, sem lofað hafi verið og hærri skattar á bensín, vín og ýmsan munaðarvarning. Stjórn Bobs Hawkes trúir ber- sýnilega á hrossaskammta - öllum þeim ráðstöfunum sem fyrr voru nefndar dembt yfir lands- menn á einu bretti. Þar með ætlar stjórnin að minnka hallann á fjár- lögum um 40% og halda ríkisút- gjöldum fullkomlega í skefjum. Stjórnin kveðst nú vilja meiri fjárfestingar og minni neyslu og gerir samt ráð fyrir því, að áfram dragi úr hagvexti - í bili að minnsta kosti. Fari hann úr 4% niður í 2,5%, en verðbólgan verði áfram um 8%, sem sýnist ekki mikið en er samt meiri en hjá helstu viðskiptavinum Ástral- íumanna (ástralski dollarinn hef- ur verið á niðurleið að undan- förnu vegna þess misræmis m. a.). Fylgishrun Allt mun þetta vekj a upp mikla reiði í vinstri armi flokksins, eins og lög gera ráð fyrir. Bob Hawke hefur lengst af átt allgóða sambúð við verkalýðsfélögin, en forseti alþýðusambandsins, Simon Crema, hefur Iýst áhyggj- um sínum af þeim tilburðum til að frysta launin sem fram koma í efnahagsráðstöfunum stjórnar- innar. Leiðtogi stjórnarandstöð- unnar, John Howard, hefur eins og hægrimanns var von og vísa gagnrýnt ráðstafanirnar vegna þess að í þeim felst aukin skatt- heimta af ýmsu tagi - og líklegt er að það miðjufólk sem stutt hefur Verkamannaflokkinn taki undir þá kveinstafi. Þegar öllu er til skila haldið sýnist mjög ólíklegt að stjórn Bobs Hawkes takist á því rúma ári sem er til næstu kosninga að koma af stað nokkru því „efna- hagsundri" í Ástralíu, sem um muni og dugað gæti til að endur- heimta það fylgi sem nú hefur streymt frá honum. Fyrst fyrir þær sakir að ekki væri á málum tekið fyrr en um seinan, og svo fyrir það, að Verkamannaflokk- ur kann í hinu ástralska dæmi ekki önnur ráð en íhaldið. -áb tók saman Söngfólk Selkórinn á Seltjarnarnesi óskar eftir söngfólki í allar raddir. Bráðhress félagsskapur. Fyrirhuguð söngför er- lendis. Upplýsingar og skráning hjá: Stefáni sími 626434 Pálu sími 618357 Ástu sími 611446 18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.