Þjóðviljinn - 09.09.1986, Side 16
1936-1986 ÞJÓÐVIUINN 50 ÁRA
Þriðjudagur 9. september 1986 203. tðlublað 51. árggngur
Aðalsími: 681333. Kvöldsími: 681348. Helgarsími: 681663.
Kaffibaunamálið
Sigurður gaf fyriimælin
SigurðurÁ. Sigurðsson viðurkennir að hafa gefið fyrirmœli umfaktúrufalsanir.
Erlendur og Hjalti neita allri ábyrgð. Sigurður segist hafa haft samráð við Hjalta
Sigurður Árni Sigurðsson for-
stöðumaður skrifstofu SÍS í
London og éður deildarstjóri fóð-
urvörudeildar viðurkenndi í yfir-
heyrslum fyrir Sakadómi í gær að
hafa gefið fyrirmæli um að notað
yrði tvöfalt kerfi vörureikninga
vegna kaupa Sambandsins á
kaffibaunum í Brasilíu. Hins veg-
ar hafi hann ekki tekið ákvörðun
um það, heldur gert það í sam-
ráði við Hjalta Pálsson fram-
kvæmdastjóra innflutnings-
deildar.
Hjalti og Erlendur Einarsson
forstjóri SIS hafa fram að þessu
neitað að hafa borið ábyrgð á ó-
löglegum kaffibaunaviðskiptum
Sambandsins og undandrætti af-
sláttar sem ganga átti til Kaffi-
brennslu Akureyrar. Ber Er-
lendur við nær algerum þekking-
arskorti á málinu. Jónatan
Sveinsson ríkissaksóknari telur
sig hins vegar hafa ástæðu til að
ætla að Erlendur viti meira en
hann upplýsir.
Þeir Erlendur, Hjalti, Sigurð-
ur, Gísli Theódórsson og Arnór
Valgeirsson eru ákærðir fyrir að
hafa á árunum 1980 og 1981 náð
undir SÍS með refsiverðum hætti
um 200 miljónum með því að
halda eftir í sjóðum fyrirtækisins
afslætti af kaffibaunum, sem átti
að renna til Kaffibrennslu Akur-
eyrar og til neytenda í iækkuðu
vöruverði. Auk þess eru þeir
ákærðir fyrir skjalafals og gjald-
eyrisbrot.
Greiðslur inn á bankareikning
í Sviss sem skráður var á Pierre
Luogon er þáttur í rannsókninni,
sem ekki hefur fengist upplýstur.
Bæði Erlendur og Hjalti segjast
ekkert kannast við þær greiðslur.
-gg
Ráðstefna
á norður-
slóðum
r
Igær var sett á Hótel Loftleiðum
ráðstefna um uppgræðslu
Jands á norðurslóðum sem haldin
er á vegum Alþjóða-
norðurskautsráðsins. Ráðstefn-
an stendur út þessa viku og sitja
hana 90 manns víðs vegar að úr
heiminum. Ráðið var stofnað
árið 1979 og forseti þess er Louis
Rey frá Sviss, en höfuðstpðvar
þess eru í Mónakó, þar sem það
var stofnað.
„í Mónakó hefur alltaf verið
mjög mikill áhugi á umhverfis-
vernd og þess má geta að Prins
Albert var um aldamótin mikill
frumkvöðull og áhugamaður um
verncjun gróðurs“ sagði Louis
Rey í samtali við blaðið í gær.
Þetta er 7. ráðstefna ráðsins og
kvaðst Rey mjög ánægður með
hversu margt fræðimanna væri á
ráðstefnunni. Alla ráðstefnudag-
ana verða haldnir fyrirlestrar um
skógrækt á norðurslóðum,
iandnám, þróun og röskun gróð-
urs og framleiðslu á sáðvöru svo
örfá dæmi séu tekin. -vd.
Sjónvarp
Páll fluttur
Páll Magnússon varafrétta-
stjóri sjónvarpsins hefur verið
ráðinn fréttastjóri nýju stöðvar-
innar sem taka mun til starfa í
næsta mánuði.
í gær var haft eftir Páli í útvarpi
að launamál ráði miklu um að
hann ákveður að söðla um.
í Valhallarheimilinu: eitt rúm setið, annað autt. Launin of lág, enginn fæst til starfa. (mynd: Sig)
Valhöll
Bömin send heim
Foreldrar skiptast á að hafa börnin heima vegna skorts á
starfsfólki. Lág launfœlafrá
Eins og er vantar okkur ófag-
iært fólk. Nánar tiltekið tvo
aðstoðarmenn á deild fyrir 10
mánaða til tveggja ára börn. Við
höfum auglýst eftir starfsfólki í
nokkrar vikur en ekkert gengur,
sagði Ingibjörg Snævarr for-
stöðumaður barnaheimilisins
Valhöll við Suðurgötu. „Þess
vegna þurftum við að grípa til
þess ráðs í gær að leita eftir sam-
starfi við foreldrana og biðja þau
um að skiptast á að hafa börnin
sín heima. Hluti barnanna var
heima í gær og annar hluti þeirra
verður heima í dag.“
Ingibjörg sagði að foreldrarnir
hefðu sýnt málinu mikinn skiln-
ing. Aðspurð um ástæðuna fyrir
því að fólk virðist ekki vilja vinna
þessi störf sagði Ingibjörg vera
lág laun. „Byrjunarlaun hjá 18
ára ófaglærðri stúlku eru 20.500 á
mánuði. Margar hafa sýnt þessu
starfi áhuga en hætta við vegna
lágra launa. Ég hef stundum
haldið að þetta væri allt að smella
saman en þá hætta stúlkurnar
við. Ein ætlaði til dæmis að hefja
störf en hætti við því hún gat
fengið sömu laun fyrir hálfsdags
vinnu annarstaðar. Ingibjörg
sagði ennfremur að þetta vanda-
mál væri ekkert einsdæmi á Val-
höll. „Þetta er víðtækt vandamál
vegna lágra Iauna.“ Að lokum
sagði hún að hún vonaðist til þess
að það þyrfti ekki að vísa börnun-
um frá Valhöll lengi enn.
SA.
SUJ
Ungkratar gegn hemum
Vilja uppsögn varnarsamningsins. Framsókn hvíli sig
þingi Sambands ungra jafn-
aðarmanna á laugardaginn
samþykkt ályktun um að rétt
að segja upp svokölluðum
narsamningi við Bandaríkja-
Talið er „ekki sæmandi frjálsri
þjóð að vera með erlent herlið í
landi sínu“ og sagt ljóst að „eftir-
litshlutverk" herstöðvarinnar sé
hægt að leysa af hendi með miklu
minni umsvifum en nú. Með tilliti
til þessa og samskiptaörðugleika
við Bandaríkjastjórn eigi að
segja upp samningnum, en nú
strax þurfi að takmarka starfið
við nauðsynlegt eftirlit, auka
forræði og þátttöku íslendinga í
eftirlitinu, láta íslensk lög gilda í
herstöðinni og „afnema með öllu
einokun einstakra fyrirtækja“ á
herframkvæmdum.
Á SUJ-þinginu var samþykkt
stjórnmálaályktun þarsem lögð
er áhersla á að Alþýðuflokkurinn
verði í stjórn eftir næstu kosning-
ar. Þar segir einnig að Framsókn-
arflokknum sé best að einbeita
sér að endurhæfingu utan ríkis-
stjórnar.
Nýr formaður SUJ var kjörinn
María Kjartansdóttir úr Hafnar-
firði.
-m
Vari
Jón býst við
rannsókn
Þessar ásakanir eru þannig vaxnar
að ég tel óhjákvæmilegt annað en að
þau verði athuguð nánar, sagði Jón
Helgason dómsmálaráðherra í sam-
tali við Þjóðviljann í gær aðspurður
um hvort orðið yrði við beiðni um
opinbera rannsókn á öryggisþjónust-
unni Vara.
Nokkrir starfsmenn Securitas fóru
fyrir skömmu fram á að starfsemi
Vara og Securitas yrði rannsökuð og
týndu/til fjöimörg atriði sem gera
starfsemi Vara vafasama. Jón sagði í
gær að „það væri nauðsynlegt að
kanna hvort þessar ásakanir ættu við
rök að styðjast.“ -gg