Þjóðviljinn - 16.09.1986, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 16.09.1986, Blaðsíða 12
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Alþýðubandalagið á Austurlandi Boðað hefur verið til aðalfundar kjördæmisráðs á Austurlandi á Fáskrúðsfirði 11.-12. október. Samkvæmt reglum ráðsins skal hvert aðildarfélag kjósa einn fulltrúa fyrir hverja 8 félagsmenn eða brot úr þeirri tölu. Er því áríðandi að þau félög sem ekki hafa haldið aðalfund geri það hið fyrsta til að kjósa í kjördæmisráðið. Framkvæmdanefnd. Alþýðubandalagið Selfossi og nágrenni Aðalfundur Aðalfundur félaasins verður haldinn fimmtudaginn 25. sept. kl. 20.30 að Kirkjuvegi 7, Selfossi. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf og önnur mál. Félagar fjölmennið. Stjórnin. ÆSKULÝÐSFYLKINGIN Hagfræðinámskeið! Efni: Þjóðhagsreikningar og Hugtök í Hagfræði. Leiðbeinandi: Ari Skúlason. Fróðleiksfúsir sem hafa áhuga þurfa að taka frá í dagbókinni sinni fimmtudagskvöldin 18. og 25. sept- ember næstkomandi (kl. 20:00). Fjöldinn verður tak- markaður við 20 þátttakendur. Skráning í síma 1 75 00, hjá Æskulýðsfylkingunni. Áhugahópur um fræðsiumiðlunarstarf. Haustfagnaður, Haustfagnaður! Árlegt glens, grín, fjör, og gaman að hætti ÆF-félaga verður 20. sept. n.k. Þá verður kaffihús um daginn milli 14:00 og 18:00, þar sem ýmsir þjóðkunnir sem óbreyttir félagar verða teknir á beinið og látnir skemmta bæði sér og öðrum. Einstök kvöldvaka hefst svo klukkan 22:00, þar sem skerpt verður á söngröddinni með dynjandi baráttumúsik fram á nótt. Fjartengslahópur Landsþing! Kæri félagi nú fer senn að líða að landsþingi, þannig að það er ekki seinna vænnna að fara að plotta. Þingið verður haldið 3. til 5. október í Ölfusborg- um. Dagskrá verður auglýst siðar og ef þú ert skráður félagi í ÆF mátt þú eiga von á pappírsbunka um bréfalúguna einhvern daginn. Ef þú vilt koma einhverjum hugmyndum á framfæri, hvað sem það kynni nú að vera þá getur þú annað hvort skrifað okkur á skrifstofuna Hverfisgötu 105, eða hreinlega mætt á staðinn í kaffi og kjaftað við okkur. Skrifstofan hjá ÆF verður op.n daglega fram að þingi frá 9-18. Framkvæmdaráö ÆFAB HÆ ÞÚ! Landsþing, landsþing! Viltu bylta, þarf að breyta? Ef þú ert með hugmyndir, komdu þeim þá endilega á framfæri við félaga þína og ræðum þær svo á landsþinginu þar sem við hittumst öll. Pappírsbunkinn sem boðað hefur komu sína inn um bréfalúgu ÆF-ara verður sendur út um miðja næstu viku. Þú getur komið á framfæri lagabreytingum, tillögum, ályktunum og bara hugrenningum þínum yfirleitt í þessum bunka. Komdu þessu bara til Ónnu á skrifstofunni Hverfisgötu 105 eigi síðar en á þriðjudaginn 16. október, þú aetur gert það hvort sem er símleiðis, bréfleiðis eða komuleiðis. Á skrifstofunni getur þú fengið vélritunaraðstöðu og þær upplýsingar sem liggja fyrir. Hafðu samband. Framkvæmdaráð ÆFAB Æskulýðsfylkingin á Austfjörðum Erindreki fylkingarinnar verður með fundi á eftirtöldum stöðum á Austfjörð- um á næstu dögum: Neskaupstaöur - þriðjudaginn 16. sept. Egilsstaðir - miðvikudaginn 17. sept. Seyðisfjörður - fimmtudaginn 18. sept. Nánari upplýsingar í síma 91-17500. KALLI OG KOBBI GARPURINN ^Hef ég sagt ykkur frá "\ OFT OG MORGUM { M\ w ^Þá er sumsé búi að veltaV öllum börnunum sem ég j umræðuefninu það oft upp ' ætla að eignast þegar ég J er orðin stór? J m MÖRGUM SINNUM! > < að við getum farið að ræða) það af alvöru? ^ 7 0 o Hjjl r) o H í BLÍDU OG STRÍÐU Tilkynning til sauðfjáreigenda Athygli sauðfjáreigenda skal hér með vakin á breyttum matsreglum fyrir hrútakjöt: Samkvæmt 1. gr. 2. tl. e-lið reglugerðar nr. 342/ 1986 skal meta kjöt af fullorðnum hrútum í tvo gæðaflokka, HI og HII. í HI skal meta vöðvafyllta og vel útlítandi skrokka, hafi hrútarnir verið geltir að vori eða slátrað ekki síðar en 10. október. í H II skal meta rýra og/eða útlitsljóta skrokka af hrútum sem slátrað er ekki síðar en 10. október og allt kjöt af hrútum sem slátrað er eftir þann tíma. Enn fremur skal meta í þennan flokk skrokka af lambhrútum sem slátrað er 1. nóvem- ber eða síðar. Landbúnaðarráðuneytið, 15. segtember 1986. 'H' 2 □ ■ 5 3 7 n • 0 10 □ 11 12 ■ 13 n 14 • 15 16 m 17 18 m 18 20 21 M 22 23 □ 24 s 25 KROSSGÁTA Nr. 17 Lárétt: 1 sæti 4 kvenmannsnafn 8 boltar 9 orrusta 11 lágfóta 12 ætla 14 rykkorn 15 mynt 17 lamp- inn 19 uppvæg 21 hlass 22 bitl- ingur 24 auli 25 bölv Lóðrétt: 1 reik 2 munntóbak 3 hvassa 4 spilið 5 arinn 6 ganga 7 fjall 10 læsa 13 hönd 16 stynja 17 ástsæl 18 farfa 20 mylsna 23 mælir Lausn á síðustu krossgátu Lárétt: 1 flog 4 stæk 8 feitara 9 asni 11 ekur 12 Skafti 14 mm 15 lokk 17 ætlun 19 var 21 stó 22 nein 24 taða 25 iðar Lóðrétt: 1 flas 2 ofna 3 geiflu 4 steik 5 tak 6 ærum 7 karmur 10 • skotta 13 tonn 16 kvið 17 æst 18 lóð 20 ana 23 ei 16 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 16. september 1986

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.