Þjóðviljinn - 16.09.1986, Page 12
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið á Austurlandi
Boðað hefur verið til aðalfundar kjördæmisráðs á Austurlandi á
Fáskrúðsfirði 11.-12. október. Samkvæmt reglum ráðsins skal
hvert aðildarfélag kjósa einn fulltrúa fyrir hverja 8 félagsmenn eða
brot úr þeirri tölu. Er því áríðandi að þau félög sem ekki hafa haldið
aðalfund geri það hið fyrsta til að kjósa í kjördæmisráðið.
Framkvæmdanefnd.
Alþýðubandalagið Selfossi og nágrenni
Aðalfundur
Aðalfundur félaasins verður haldinn fimmtudaginn 25. sept. kl. 20.30 að
Kirkjuvegi 7, Selfossi. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf og önnur
mál.
Félagar fjölmennið.
Stjórnin.
ÆSKULÝÐSFYLKINGIN
Hagfræðinámskeið!
Efni: Þjóðhagsreikningar og Hugtök í Hagfræði.
Leiðbeinandi: Ari Skúlason.
Fróðleiksfúsir sem hafa áhuga þurfa að taka frá í
dagbókinni sinni fimmtudagskvöldin 18. og 25. sept-
ember næstkomandi (kl. 20:00). Fjöldinn verður tak-
markaður við 20 þátttakendur. Skráning í síma 1 75
00, hjá Æskulýðsfylkingunni.
Áhugahópur um fræðsiumiðlunarstarf.
Haustfagnaður, Haustfagnaður!
Árlegt glens, grín, fjör, og gaman að hætti ÆF-félaga verður 20. sept.
n.k. Þá verður kaffihús um daginn milli 14:00 og 18:00, þar sem ýmsir
þjóðkunnir sem óbreyttir félagar verða teknir á beinið og látnir skemmta
bæði sér og öðrum. Einstök kvöldvaka hefst svo klukkan 22:00, þar sem
skerpt verður á söngröddinni með dynjandi baráttumúsik fram á nótt.
Fjartengslahópur
Landsþing!
Kæri félagi nú fer senn að líða að landsþingi, þannig að það er ekki seinna
vænnna að fara að plotta. Þingið verður haldið 3. til 5. október í Ölfusborg-
um. Dagskrá verður auglýst siðar og ef þú ert skráður félagi í ÆF mátt þú
eiga von á pappírsbunka um bréfalúguna einhvern daginn. Ef þú vilt koma
einhverjum hugmyndum á framfæri, hvað sem það kynni nú að vera þá
getur þú annað hvort skrifað okkur á skrifstofuna Hverfisgötu 105, eða
hreinlega mætt á staðinn í kaffi og kjaftað við okkur. Skrifstofan hjá ÆF
verður op.n daglega fram að þingi frá 9-18.
Framkvæmdaráö ÆFAB
HÆ ÞÚ!
Landsþing, landsþing!
Viltu bylta, þarf að breyta? Ef þú ert með hugmyndir, komdu þeim þá
endilega á framfæri við félaga þína og ræðum þær svo á landsþinginu þar
sem við hittumst öll. Pappírsbunkinn sem boðað hefur komu sína inn um
bréfalúgu ÆF-ara verður sendur út um miðja næstu viku.
Þú getur komið á framfæri lagabreytingum, tillögum, ályktunum og bara
hugrenningum þínum yfirleitt í þessum bunka. Komdu þessu bara til Ónnu
á skrifstofunni Hverfisgötu 105 eigi síðar en á þriðjudaginn 16. október, þú
aetur gert það hvort sem er símleiðis, bréfleiðis eða komuleiðis.
Á skrifstofunni getur þú fengið vélritunaraðstöðu og þær upplýsingar sem
liggja fyrir. Hafðu samband.
Framkvæmdaráð ÆFAB
Æskulýðsfylkingin á Austfjörðum
Erindreki fylkingarinnar verður með fundi á eftirtöldum stöðum á Austfjörð-
um á næstu dögum:
Neskaupstaöur - þriðjudaginn 16. sept.
Egilsstaðir - miðvikudaginn 17. sept.
Seyðisfjörður - fimmtudaginn 18. sept.
Nánari upplýsingar í síma 91-17500.
KALLI OG KOBBI
GARPURINN
^Hef ég sagt ykkur frá "\ OFT OG MORGUM { M\ w ^Þá er sumsé búi að veltaV
öllum börnunum sem ég j umræðuefninu það oft upp '
ætla að eignast þegar ég J er orðin stór? J m MÖRGUM SINNUM! > < að við getum farið að ræða) það af alvöru? ^
7 0 o Hjjl r) o H
í BLÍDU OG STRÍÐU
Tilkynning
til sauðfjáreigenda
Athygli sauðfjáreigenda skal hér með vakin á
breyttum matsreglum fyrir hrútakjöt:
Samkvæmt 1. gr. 2. tl. e-lið reglugerðar nr. 342/
1986 skal meta kjöt af fullorðnum hrútum í tvo
gæðaflokka, HI og HII. í HI skal meta vöðvafyllta
og vel útlítandi skrokka, hafi hrútarnir verið geltir
að vori eða slátrað ekki síðar en 10. október. í H
II skal meta rýra og/eða útlitsljóta skrokka af
hrútum sem slátrað er ekki síðar en 10. október
og allt kjöt af hrútum sem slátrað er eftir þann
tíma. Enn fremur skal meta í þennan flokk
skrokka af lambhrútum sem slátrað er 1. nóvem-
ber eða síðar.
Landbúnaðarráðuneytið,
15. segtember 1986.
'H' 2 □ ■ 5 3 7
n •
0 10 □ 11
12 ■ 13 n 14
• 15 16 m
17 18 m 18 20
21 M 22 23 □
24 s 25
KROSSGÁTA
Nr. 17
Lárétt: 1 sæti 4 kvenmannsnafn
8 boltar 9 orrusta 11 lágfóta 12
ætla 14 rykkorn 15 mynt 17 lamp-
inn 19 uppvæg 21 hlass 22 bitl-
ingur 24 auli 25 bölv
Lóðrétt: 1 reik 2 munntóbak 3
hvassa 4 spilið 5 arinn 6 ganga 7
fjall 10 læsa 13 hönd 16 stynja 17
ástsæl 18 farfa 20 mylsna 23
mælir
Lausn á síðustu krossgátu
Lárétt: 1 flog 4 stæk 8 feitara 9
asni 11 ekur 12 Skafti 14 mm 15
lokk 17 ætlun 19 var 21 stó 22
nein 24 taða 25 iðar
Lóðrétt: 1 flas 2 ofna 3 geiflu 4
steik 5 tak 6 ærum 7 karmur 10
• skotta 13 tonn 16 kvið 17 æst 18
lóð 20 ana 23 ei
16 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 16. september 1986