Þjóðviljinn - 24.09.1986, Side 5

Þjóðviljinn - 24.09.1986, Side 5
DJÚÐVIUINN Umsjón: Páll Valsson „Góðu sprettirnir eru flestir tengdir þeim Guðmundi Olafssyni og Bríeti Héðinsdóttur“, segir Sverrir Hólmarsson. Hér er Guðmundur í hlutverki Sólmundar ásamt Ragnheiði Arnardóttur. UPPRUNAFRÆDI Leikfélag Reykjavíkur sýnir: UPP MEÐ TEPPIÐ, SÓLMUNDUR eftir Guðrúnu Ásmundsdóttur o.fl. Leikstjóri: Guðrún Ásmundsdóttir Leikmynd: Guðrún Eria Geirsdótt- ir. Leiksýning þessi er til komin af þeim sökum að á næstunni heldur þetta gamla og gróna leikfélag okkar upp á stórafmæli, fyllir brátt níunda tuginn. Þótti þá ástæða til að líta yfir farinn veg og rifja upp ýmislegt úr sögu félags- ins á fyrstu árum þess, allt frá því er iðnaðarmenn reistu veglegt samkomuhús í Reykjavík og gerðust þess hvetjandi að stofnað yrði félag til að gangast fyrir sjónleikjahaldi í húsinu. Fjalla raunar flest skemmtilegri atriði sýningarinnar um samskipti iðn- aðarmanna og leikara. Síðan er brugðið upp ýmsum myndum úr starfseminni og birtast á sviðinu ýmsir frumkvöðlar íslenskrar leiklistar, Indriði Einarsson og Einar Kvaran svo og þeir leikarar sem mest settu svip á starfið fyrstu áratugina. Inn í þessi atriði er svo skotið hlutum af nokkrum sýningum félagsins. Þarna er langt atriði úr fyrsta verkefninu, Ævintýri í Rósenborgargarði eftir Johan Ludvig Heiberg, einnig úr Álfhól eftir sama höfund, svo og úr Einu sinni var eftir Holger Drachmann. Þessi samtíningur verður satt að segja helsti tætingslegur og sundurlaus. Höfundur reynir að halda atriðunum saman með persónunum Sólmundi og Guð- rúnu, en það nægir ekki til að gefa verkinu stefnu. Ýmis ein- stök atriði eru prýðilega gerð, en það er revíusnið á heildinni og auk þess sligast hún illilega af alltof löngum atriðum úr gömlum og leiðinlegum leikritum sem erf- itt er að sjá hvaða tilgangi þjóna. SVERRIR HÓLMARSSON Þrátt fyrir ýmsa góða spretti verður sýningin of löng og ólán- leg í laginu til að vekja verulega gleði. Góðu sprettirnir eru flestir tengdir þeim Guðmundi Ól- afssyni og Bríeti Héðinsdóttur sem fara með hlutverk Sólmund- ar trésmiðs og Guðrúnar frá Súl- unesi. Guðmundur fær hér tæki- færi til að sýna margvíslega hæfi- leika sína, ótrúlega agaða og kraftmikla raddbeitingu, mikinn líkamsstyrk og kostulega kímni- gáfu. Bríeti tókst með tæknilega agaðri hófstillingu að gera kostu- lega en einnig hjartnæma per- sónu úr konu sem hrekst til höf- uðborgarinnar undan suðurlandsskjálftanum og endar sem hvíslari, saumakona og vinn- ustúlka hjá Thomsen kaup- manni. En þessi tvö hlutverk eru líka það bitastæðasta í textanum, aðr- ar persónur eru lítið annað en Tónleikar Tón- verk ungra tón- skálda Flutt afungu tónlistarfólki í Norræna í kvöld Þrjú af tónskáldunum sem verk eiga á tónleikum U.N.M. í kvöld: Kjartan Ólafsson, Haukur Tómasson og Mist Þorkelsdóttir. Fjórða tónskáldið er Helgi Pétursson sem ekki er til á mynd hér á blaðinu. Ungttónlistarfólkstendurfyrir tónleikum í Norræna húsinu í kvöld klukkan 21 og eru þeir haldnirformlegaávegum U.N.M. (Ung nordiskmusik). Tónleikarnir eru haldnir til kynningar og fjáröflunar fyrir þátttöku íslands í árlegri tónlist- arhátíð norræns æskufólks, sem verður haldin að þessu sinni í Ár- ósum dagana 4.-12. október næstkomandi. Áætlað er að 13 manna hópur ungra hljóðfæra- leikara og tónskálda sæki hátíð- ina af íslands hálfu og flutt verða átta íslensk tónverk. Á efnisskrá tónleikanna í Nor- ræna húsinu verða fjögur þessara verka. Frumflutt verður „Tríó“ eftir Hauk Tómasson. Flytjendur eru Gerður Gunnarsdóttir á fiðlu, Bryndís Björgvinsdóttir á selló og Anna Guðný Guðmunds- dóttir á píanó. Anna Guðný mun einnig leika undir víólu Helgu Þórarinsdóttur í „Dimmu“ Kjartans Ólafssonar, en geta má þess, að þetta verk hreppti verð- laun í tónsmíðasamkeppni Ríkis- útvarpsins á síðasta ári. Eftir Misti Þorkelsdóttur verður flutt „Danslag“, en það heyrist nú í fyrsta sinn í útfærslu fýrir sópr- anrödd. Það er Jóhann Linnet, sem syngur við gítarundirleik Páls Eyjólfssonar. Fjórða verkið á efnisskránni er raftónverk eftir Helga Pétursson og ber það titil- inn „Trans I-II“. flatar pappafígúrur. Það er til dæmis sorglegt að Gísli Halldórs- son skuli ekki fá meira úr að moða í hlutverki Kristjáns Ó. Þorgrímssonar, sem maður hefði fyrirfram ætlað að væri kjörið tækifæri fyrir hann að gera úr verulega skemmtun, en nei, því er ekki að heilsa, hann fær eina góða setningu og eiginlega ekkert meir. Stefanía Guðmundsdóttir gerir ekki annað í þessu verki en að ganga inn á sviðið og segja, ég er Stefanía, glæsilegasta leikkona íslands, og standa svo og taka sig út. Þetta gerir Ragnheiður Arn- ardóttir að vísu með glæsibrag, en hefði átt betra skilið. Sömu sögu er að segja um aðra gamla leikara sem hér eru dregnir upp á svið, það verður undur lítið úr þeim. Öllu meira púður er í Guð- birni trésmíði sem Guðmundur Pálsson leikur með töluverðum húmor, einkum þegar hann verð- ur reiður. Leikstjórinn Guðrúnar Ás- mundsdóttir er sýnu betri en handrit hennar og hún sýnir víða næmt auga fyrir skopi. En atriðin úr gömlu leikritunum bregðast henni algerlega, hún hefur ekki fundið þeim stfl, sem gæti gert þau skemmtileg. Guðrún Erla Geirsdóttir hefur gert leiktjöld í naífum stíl sem er ekki alltaf al- veg sannfærandi naífur, t.d. ekki hofið uppi á Akrópólis. En bún- ingar hennar eru hrein snilld eins og við var auðvitað að búast. Lýs- ing er víða skemmtileg, t. d. þegar gömlu sviðskantlýsingunni er beitt. Eins og oftast í Iðnó var söng- urinn afbragð. Jóhann G. Jó- hannsson og Guðmunda Elías- dóttir eiga heiður skilinn fyrir að stjórna honum af skörungsskap. Minnisstæð atriði eru Furusjóar- kvartettinn, Guðmundur Ólafs- son í Álfhólslaginu og lokakór- inn. Þessi sýning minnir okkur á þau gömlu sannindi að það er vandasamt að skrifa fyrir leikhús - og erfitt að gera góða sýningu úr gölluðum texta. Sverrir Hólmarsson. ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 5.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.