Þjóðviljinn - 24.09.1986, Síða 14
MINNING
Friögeir Guðjónsson
Fœddur 31.10. 1918 - Dáinn 14.9. 1986
í dag er til grafar borinn frá
Kapellunni í Fossvogi Friðgeir
Guðjónsson vörubflstjóri Álfhól-
sveg 111 í Kópavogi. Friðgeir
andaðist hinn 14. þ.m. eftir
skamma legu en hafði kennt sjúk-
dóms um nokkurn tíma.
Friðgeir var fæddur að Við-
borði á Mýrum í Hornafirði 31.
október 1918. Foreldrar hans
voru hjónin Pálína Jónsdóttir og
Guðjón Gíslason bóndi. Árið
1936 þegar Friðgeir var 17 ára
gamall flutti hann með foreldrum
sínum að Kotströnd í Ölfusi en
aðeins einu ári síðar lést faðir
hans og tók Friðgeir þá við búinu
með móður sinni. Var hann þar
aðal fyrirvinna fjölskyldunnar
þar til móðir hans lést árið 1944.
Var þá jörðin seld og flutti Frið-
geir þá til Vopnafjarðar. Á
Vopnafirði kynntist Friðgeir eft-
irlifandi konu sinni Ólöfu Sigur-
björnsdóttur. Ekki vildi hann þó
setjast að á Vopnafirði heldur
fluttu þau í Kópavog og keyptu
lítinn sumarbústað við Álfhóls-
veginn þar sem þau hafa búið síð-
an.
Friðgeir Guðjónsson var alinn
upp við erfiðar aðstæður og mikla
fátækt á uppvaxtarárum sínum
eins og algengt var í sveitum
landsins á þeim tíma. Lífsbarátt-
an var líka hörð fyrstu árin við
Álfhólsveginn. Þar var byrjað
með lítil efni en með miklum
dugnaði og atorku bættu þau
hjónin hag sinn og byggðu sér og
börnum sínum gott heimili. Litla
sumarbústaðnum breyttu þau
smátt og smátt í snoturt íbúðar-
hús eftir því sem fjölskyldan
stækkaði.
Þau hjónin eignuðust 8 börn, 6
dætur og tvo syni. Eldri son sinn
misstu þau þegar hann var á
barnsaldri og var þeim að því
mikill harmur, en að öðru ieyti
bjuggu þau við mikið barnalán og
tel ég að það hafi verið þeirra
mesta lífsgleði.
Hjónin að Álfhólsveg 111
stunduðu ekki skemmtanalíf
borgarinnar eða skemmtireisur
heldur sóttu þau lífsfyllingu í
störf sín, uppbyggingu heimilis-
ins og uppeldi bamanna. Nú eru
dætumar allar giftar og hafa
stofnað sín eigin heimili, en son-
urinn sem er yngstur systkinanna
býr enn í foreldrahúsum og er að
ljúka námi í húsasmíði. Aðeins
tveimur ámm eftir að þau hjónin
fluttu í Kópavog keypti Friðgeir
sinn fyrsta vörubfl og hóf akstur
frá Vömbflastöðinni Þróttur.
Varð akstur vömbfla hans aðal
lífsstarf að undanteknum þeim
tíma sem hann vann hjá Strætis-
vögnum Kópavogs.
A vörubílastöðinni naut hann
mikilla vinsælda meðal félaga
sinna og samstarfsmanna. Átti
hann sæti í stjórn stéttarfélagsins
í nokkur ár. Þegar Strætisvagnar
Kópavogs vom stofnaðir árið
1957 kom Friðgeir þar til starfa
sem vagnstjóri og störfuðum við
þar saman samfellt í 10 ár. Fyrir
það samstarf og ómælda aðstoð
var ég aldrei búinn að þakka eins
og hugur minn stóð til, en geri
það nú þó að seint sé. Óeigin-
gjörn störf hans fyrir Strætis-
vagna Kópavogs verða aldrei
fullþökkuð.
Á fyrstu árum í rekstri Stræti-
svagna Kópavogs voru starfsað-
stæður oft erfiðar, einkum í
vetrarveðmm og reyndi þá oft
mikið á hvem einstakan starfs-
mann. Var þá oft leitað til Frið-
geirs af mér og öðmm starfs-
mönnum eftir aðstoð og hjálp-
semi hans brást aldrei. Það var
samstilltur hópur sem starfaði hjá
Strætisvögnum Kópavogs fyrstu
árin. Þar ríkti sérstök stemmning
yfir þeirri djörfu ákvörðun bæjar-
stjórnar að bæjarfélagið skyldi
annast rekstur vagnanna. Allir
starfsmenn vagnanna lögðu sig
fram um að reksturinn gengi vel
og ekki verður annað sagt en það
hafi tekist.
Eiginkona, og nú ekkja Frið-
geirs Guðjónssonar, Ólöf Sigur-
björnsdóttir nýtur þess nú við
missir eiginmannsins að eiga stór-
an barnahóp, samtals 29 afkom-
endur. Við hjónin sendum henni
og allri fjölskyldunni innilegar
samúðarkveðjur.
Ólafur Jónsson
Friðgeir nágranni minn er
látinn. Hann hafði um alllangt
skeið verið haldinn erfiðum sjúk-
dómi, hvítblæði, en banamein
hans var heilahimnubólga. Mér
verður margt til hans hugsað.
Ég er ekki fróður um formleg
atriði f æviferli Friðgeirs. Þó veit
ég að hann var fæddur á Viðborði
í Hornfirði 31. okt. 1918; hann
varð því tæpra 68 ára gamall. For-
eldrar hans voru hjónin Pálína
Jónsdóttir frá Flatey á Mýrum og
Guðjóns Gíslason á Viðborði.
Þar bjuggu þau og eignuðust 6
börn. Árið 1936 fluttust þau að
Kotströnd í Ölfusi, og þangað fór
Friðgeir með foreldrum sínum og
átti heima um hríð. Síðan fer
hann að heiman til að stunda sjó,
fyrst frá Hornafirði og síðar frá
Vopnafirði, og þar var það sem
hann kynntist eftirlifandi eigin-
konu sinni, Ólöfu Sigurbjörns-
dóttur - Ólu, eins og vinir og
kunningjar kalla hana. Þau
bjuggu fyrst á Vopnafirði, en
fluttu til Reykjavíkur 1945 og
áttu þar heima stuttan tíma.
Friðgeir og Óla settust að á
Digraneshálsinum 1947, byggðu
þar hús á landi sem þau fengu
leigt á erfðafestu. Það hús fékk
síðar númerið 111 við Álfhóls-
veg. Þar hafa þau átt heima alla
tíð síðan. Þau voru frumbýlingar í
Kópavogi.
f mínum huga hefur það sér-
Iega jákvætt inntak að hafa verið
frumbýlingur í Kópavogi. Ég er
sjálfur ekki af þeim hópi, en
margir þeirra hafa staðið mér
nær. Fjölskylda Helgu, konu
minnar var þeirra á meðal, næstu
nágrannar Friðgeirs og Ólu.
Margt af þessu fólki komst til
mikils þroska í harðri lífsbaráttu.
Lítið sem ekkert var lagt upp í
hendurnar á því, og á fátt var að
treysta nema eigið vit og atorku
og pólitísk samtök sem gengu
þvert á flokksbönd. En ekki síst
er að nefna samhjálp granna, sem
sýknt og heilagt varð þessu fólki
til lausnar á vandkvæðum og til
lífsfyllingar. Það er gleðileg
lífsreynsla að koma í samfélag
þessa fólks og mega eiga það að.
Til dæmis um hjálpsemi Friðgeirs
má hér nefna, að í allmörg ár
bjuggu frumbýlingarnir á hálsin-
um við vatnsskort, og þurfti að
sækja það að langa leið. Friðgeir
sótti vatn á vörubfl sínum fyrir
margar fjölskyldur og tók aldrei
greiðslu fyrir. Börnin sem þá
voru í byggðinni munu líka vel
þegar hann setti pallhús á bflinn
sinn og ók krakkaskaranum þar í
grenndinni í berjamó.
Eins og sönnum frumbýlingum
sæmdi, unnu þau Friðgeir og Óla
hörðum höndum til að koma
undir sig fótum og til að komast
af. Þau eignuðust níu börn. Sjö
þeirra lifa, öll manndómsfólk:
Erla, Þóra, Sigurbjörg, Pálína,
Hulda, Fríða og Guðjón Hreinn.
í þessu lífsstríði efldust
mannkostir Friðgeirs. Hann var
bæði kappsamur og verklaginn
og jafnframt ódeigur að fást við
hvað sem gera þurfti. Hann var
einyrki og mátti sem fleira vera
sinn eiginn læknir, lögfræðingur
og kennari. Prestverk má líklega
undanskilja, en ljósmóðurstörf
veit ég að hann vann a.m.k. einu
sinni, þegar fæðingu dótturbarns
hans bar brátt að. Hvort sem
þurfti að vinna við húsbyggingu
eða gera við bfl, þá kunni Frið-
geir á því tök, og ég hygg að dag-
leg heimilisstörf hafi ekki farið
honum illa úr hendi. Hann var
bflstjóri að atvinnu, lengst af
vörubflstjóri, og ég held að hann
hafi lítt til annarra leitað um við-
gerðir eða viðhald á bifreið sinni.
Eftir að ég eignaðist heimili í
næsta nágrenni við Friðgeir, fyrir
um 20 árum hef ég oft notið
kunnáttu hans og reynslu. Sam-
hjálp frumbýlinganna teygði
anga sína inn í neysluþjóðfélagið.
Eða kannski fremur: neyslu-
þjóðfélagið með lífsfirringu sinni
óx utan um samfélag frumbýling-
anna, en hið síðar nefnda lifði
áfram eins og ríki í ríkinu. Ég á
Friðgeiri ekki einungis að þakka
ýmis verk og viðvik í mína þágu,
heldur og góðar samverustundir.
Við hittumst að vísu ekki nógu
oft síðustu árin, en kynnin voru
góð. Hann var greindur maður,
las talsvert og fylgdist vel með
þjóðfélagsmálum, og stéttvís var
hann í besta lagi. Hann vissi víst
aldrei hvað ég lærði af því að tala
við hann um pólitík.
Friðgeir var maður skapríkur,
þykist ég vita, en vel fór hann
með það. Mér er þó lífsgleðin
minnisstæðari. Þótt lífsbaráttan
væri hörð, fór því fjarri að hún
næði að uppræta lífsnautn
mannsins. Á efri árum sínum,
þegar börnin voru flest uppkom-
in, sköpuðu þau hjónin sér að-
stöðu til að njóta betur lífs og
lands en þau gátu meðan þau
bjuggu við mikla ómegð. Þau
ferðuðust talsvert, og þau keyptu
sér sumarbústað í Kjósinni og
dvöldust þar oft. Milli heimila
okkar var alltaf nokkur sam-
gangur, og kemur mér þá fyrst í
hug, að marga nýársnótt höfum
við Helga mátt njóta gestrisni
Ólu og Friðgeirs og .gleðilegrar
samveru. Saman gengum við
grannarnir á veiðar nokkrum
sinnum. Seint fer mér úr minni
útilega okkar og Haralds Briem í
leitarmannakofa undir Bláfelli í
upphafi rjúpnaveiðitímans 1975.
Friðgeir var mjög góður veiðifé-
lagi, áhugasamur, léttur í lund og
umfram allt hjálpsamur. Og
kunni flest, líka matseld.
Sambúð þeirra Friðgeirs og
Ólu var orðin löng, nær hálfri
öld. Ég hygg að þau hafi verið svo
samrýnd og hvort öðru háð, að
ekki sé ofmælt að hún hafi nú
misst snaran þátt af sjálfri sér. Ég
vildi að hún mætti í þessum línum
skynja samúð mína og fjölskyldu
minnar og mágafólks, og hið
sama ber ég börnum þeirra og
öllum aðstandendum.
Ég hef skrifað þessar línur
vegna þess að ég hef notið nábýlis
og vinsemdar Friðgeirs Guðjóns-
sonar meira en ég fæ þakkað.
Líka vegna þess að hann hefur oft
vakið aðdáun mína. í huga mín-
um er hann lifandi dæmi um al-
þýðumann sem þroskast og
menntast í hörðum reynsluskóla.
Ég leyfi mér að vitna til Stefáns
G. og halda því fram að hann hafij
boðið samferðamönnum sínum
hvassan skilning, haga hönd/
hjartað sanna og góða.
Fínnur Torfi Hjörleifsson
Þór Eiiing Jónsson
verktaki
Fœddur 17. janúar 1939 - Dáinn 16. september 1986
Kveðjafráfélögum í Lionsklúbbnum
Muninn, Kópavogi
Síðastliðið vor er við félagarnir
héldum upp á fimmtán ára afmæli
klúbbsins okkar gátum við stoltir
heiðrað 6 starfandi stofnfélaga.
Þór Erling Jónsson var einn
þeirra. En nú er skarð fyrir skildi
í Lionsklúbbnum okkar.
Þór Erling, eins og hann jafnan
var nefndur, var sonur Ingu Ket-
ilríðar Þorsteinsdóttur og Jóns
Hákonar Kristjánssonar en hann
fórst með Heklunni er Þór Erling
var aðeins 3 ára gamall. Seinni
maður Ingu, Jón Þorsteinsson
trésmiðameistari, gekk honum í
föður stað og saman stóðu þeir
m.a. að stofnun Lionsklúbbsins
Munins í Kópavogi.
Tólf ára gamall flutti Þór Er-
ling í Kópavog og hér bjó hann og
starfaði lengst af sem verktaki.
Þór Erling var áhugasamur um
félagsmál í bæjarfélaginu og lét
þau til sín taka. Þannig var hann
einnig einn af stofnendum JC
Kópavogur og var formaður þess
klúbbs 1971-1972. Stjórnmál
voru og hans áhugaefni og starf-
aði hann bæði í Félagi ungra
sjálfstæðismanna og var þar for-
maður um skeið sem og í
flokksfélagi Sjálfstæðisflokksins í
Kópavogi.
Mér er til efs að önnur þau fé-
lög sem Þór Erling gekk í og starf-
aði með hafi notið starfskrafta
hans sem Lionsklúbburinn Mun-
inn. Hann var eins og áður segir
einn af stofnendum hans og
gegndi þar flestum þeim störfum
sem þar til falia og var alla tíð
verkdrjúgur félagi. Hann var
m.a. formaður klúbbsins 1975-
1976.
Einn er þó sá þáttur í starfi
klúbbsins sem tengt er nafni
hans, það var moldarsala klú-
bbsins. Öflun fjár til líknarmála
er eitt af tímafrekustu störfum
Lionsklúbba og góðar fjárö-
flunarleiðir eru ekki á hverju
strái. Því vakti það nokkra eftir-
tekt innan hreyfingarinnar er
þessi háttur var tekinn upp. Og
þannig var það um langt árabil í
lífi okkar Lionsfélaganna að vor-
ið, moldarsala Munins og Þór Er-
ling voru fastir fylgifiskar.
Árið 1964 giftist Þór Erling,
Guðnýju Sverrisdóttur. Eignuð-
ust þau 6 mannvænleg börn en
ólu auk þess upp dóttur Guðnýj-
ar, Hildi. Þau eru Inga, Sverrir,
Jón Kristinn, Ingibjörg, Selma og
óskírður 5 mánaða sonur. Þór Er-
ling var börnum sínum um-
hyggjusamur faðir og jafnan voru
þau ásamt honum í fjölskyldu-
ferðum klúbbsins.
Eiginkonu og börnum hans
sendum við Lionsfélagarnir í
Muninn innilegar samúðarkveðj-
ur og biðjum góðan Guð að
styðja þau og blessa í sorg þeirra.
Blessuð veri minning Þórs Er-
lings Jónssonar.
Lionsfélagar
í dag, 24. sept. verður jarðsett-
ur frá Kópavogskirkju, kl. 15.00,
Þór Erling Jónsson, verktaki.
Hann var fæddur í Reykjavík,
sonur Ingu K. Þorsteinsdóttur og
Jóns H. Kristjánssonar en faðir
hans lést þegar Mikki var 3ja ára.
Síðar giftist Inga, Jóni Kr. Þor-
steinssyni, sem reyndist honum
sem be'sti faðir alla tíð á meðan
hann lifði. Þegar Mikki var 12
ára, þá fluttist hann í Kópavog en
það var einmitt skömmu síðar
sem við kynntumst, því hann
kom fljótlega í götuna okkar,
Skjólbrautina, aðeins nokkur hús
á milli.
Árið 1964,12. desember giftist
hann eftirlifandi konu sinni,
Guðnýju Sverrisdóttur úr Kópa-
vogi og eignuðust þau saman 6
mannvænleg börn en Guðný átti
eitt fyrir, sem er Hildur, síðan er
Inga, Sverrir, Jón, Ingibjörg,
Selma 3ja ára og það yngsta, sem
er 5 mánaða gamall drengur, sem
er óskírður. Börnin 7 búa öll í
Funafoldinni en Inga gifti sig
þann 13. þessa mánaðar, Þor-
steini Sigtryggssyni og eiga þau
eitt barn, Steinþór.
Mikki vann lengst af sem verk-
taki á Stór-Reykjavíkursvæðinu
en síðustu árin hjá Hreiðari Svav-
arssyni veitingamanni í Smiðju-
kaffi og Y.
Mikki var einnig mjög félags-
lyndur og var formaður í fjöi-
mörgum félögum, t.d. í Félagi
ungra sjálfstæðismanna, Félagi
sjálfstæðismanna, J.C., stofnfé-
lagi og formaður í Lionsklúbbn-
um Muninn. Hann vann mikið
fyrir öll þessi félög enda var hann
einstaklega greiðvikinn og hjálp-
samur svo af bar.
Það verða erfiðir dagar fram-
undan hjá þessari stóru fjöl-
skyldu eftir að verða að sjá á bak
ástkærum eiginmanni, föður,
tengdaföður og afa, en við von-
um að Guð hjálpi þeim í raunum
þeirra og styrki þau á allan hátt.
Við hjónin erum þakklát fyrir
að hafa átt Mikka að vini öll þessi
ár. Við sendum okkar innilegustu
samúðarkveðjur til Guðnýjar og
fjölskyldu.
Vippa og Siggi
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvlkudagur 24. september 1986