Þjóðviljinn - 24.09.1986, Qupperneq 16
1936-1986 ÞJÓÐVILJINN 50 ÁRA
Miðvikudagur 24. september 1986 216. tölublað 51. örgangur
Aðalsími: 681333. Kvöldsími: 681348. Helgarsími: 681663.
Hafrannsóknarstofnun
Minni sókn í þorskinn
Hafrannsóknarstofnun leggur til að þorskafli verði 300.000 tonn á næsta ári tilþess
að nýta stóra árgangafrá 1983 til 1984 til endurreisnar stofnsins. Ekkert skammaðir
Hagsmunaaðilar í sjávarútvegi
skömmuðust ekki neitt þegar
Útvarp
Hagvangs-
könnun
marklaus
við kynntum skýrsluna fyrir
þeim, aldrei slíku vant, sagði Jak-
ob Jakobsson forstjóri Hafrann-
sóknarstofnunar í gær þegar
stofnunin kynnti skýrslu sína um
aflahorfur fyrir árið 1987. Af
þorskstofninum er það helst að
frétta að árgangarnir frá 1983 og
1984 eru báðir óvenju sterkir, en
það eru að minnsta kosti tveir
áratugir síðan það gerðist síðast
að tveir stórir árgangar fóru sam-
an.
„Pað er því tækifæri núna til að
breyta um nýtingu á þorskstofn-
inum og nota þessa árganga til
þess að byggja stofninn upp, en
að okkar mati hefur verið sótt of
harkalega í hann“, sagði Jakob.
Þess vegna leggur Hafrannsókna-
stofnun nú til að aflinn verði tak-
markaður við 300.000 tonn árin
1987 og 1988. Til samanburðar er
gert ráð fyrir því að þorskafli í ár
verði 350.000 tonn. Verði miðað
við þá tölu næsta ár spáir stofnun-
in því að veiðistofninn fari hægt
vaxandi og hrygningarstofn hald-
ist óbreyttur.
Hafrannsóknarstofnun telur
æskilegt að óbreyttri sókn verði
haldið í ýsustofninn næstu árin,
eða að veidd verði 50.000 íonn á
næsta ári og 55.000 tonn 1988. Þá
leggur stofnunin til að afli verði
takmarkaður við 65.000 tonn af
ufsa á næsta ári, 75.000 tonn af
karfa, 25.000 tonn af grálúðu,
10.000 tonn af skarkola, 70.000
tonn af síld, 2.700 tonn af humri
og 14.550 tonn af hörpudiski.
- vd.
Kvennaathvarf
100 þúsund
frá Kópavogi
í gær samþykkti bæjarstjórn
Kópavogs að vísa til bæjarráðs
tillögu um 100 þúsund króna
aukastyrk til kvennaathvarfsins í
Reykjavík.
„Kvennaathvarfið hefur hing-
að til fengið það sem það hefur
beðið um hjá okkur“, sagði Val-
þór Hlöðversson bæjarfulltrúi
Alþýðubandalagsins og flytjandi
tillögunnar. „Nú er hins vegar
mjög erfitt ástand hjá því, og
þessvegna flutti ég þessa tillögu.
Ég á von á því að bæjarráð sam-
þykki fjárframlagið strax á næsta
fundi sínur^og get ekki merkt að
félagar mínir í meirihlutanum séu
annað en samþykkir styrknum“.
-ÖS.
„Ég skal vera fyrstur manna til
að viðurkenna það að hlustenda-
könnun Hagvangs var ekki vís-
indaleg könnun og ekki nærri því
eins áreiðanleg og vísindaleg
könnun hefði orðið“, sagði
Ólafur Stephensen formaður
Sambands íslenskra auglýsinga-
stofa þegar hann var inntur álits á
grein Þórólfs Þórlindssonar próf-
essors í Morgunblaðinu í gær, en
þar segir hann niðurstöður
könnunarinnar marklausar,
bendir á að úrtak spurðra var of
lítið og telur upp ýmsa aðra galla
við framkvæmdina.
„Það mátti sjá það í upphafi að
miklir annmarkar yrðu á þessu en
SÍA þótti ekki stætt á að hafa
könnunina viðameiri, og við telj-
um að hún hafi gefið okkur mjög
góða vísbendingu“, sagði Ólafur.
Ólafur sagði að ekki yrði hætt að
skipta við Hagvang en fyrirhugað
væri að Félagsvísindastofnun
gerði 6 kannanir árlega um út-
varpshlustun og sjónvarpsgláp.
„Það er vonast til að þrjár slík-
ar kannanir verði gerðar fyrir
áramót og þá getum við borið þær
saman við könnun Hagvangs",
sagði Ólafur Stephensen.
- vd.
Sjúkraliðar
Uppsagnir
streyma inn
, J>að streyma hér inn uppsagn-
ir frá sjúkraliðum og samstaðan
er mjög góð“, sagði Hulda S. Ól-
afsdóttir formaður Sjúkraliðafé-
lags íslands, en félagsfundur þess
skoraði á sjúkraliða í starfs-
mannafélögum Reykjavíkur-
borgar og ríkisins að segja upp
störfum frá og með 1. október.
Uppsagnirnar taka gildi um ára-
mót og á sama tíma eru samning-
ar lausir.
„Ummæli Geirs Haarde eru
einu viðbrögðin sem við höfum
fengið frá ríkisvaldinu, en hér er
um uppsagnir að ræða, ekki ólög-
mætt verkfall“, sagði Hulda þeg-
ar hún var spurð álits á ummælum
Geirs Haarde í DV á mánudag
þar sem hann segir fjöldaupp-
sagnir vera ólögmætt verkfall ef
BSRB veitir stuðning úr verk-
fallssjóði. „Við erum auðvitað að
knýja á um betri kjör og því fylgja
miklir annmarkar að grípa til svo
róttækra aðgerða. Ég vísa til um-
mæla Kristjáns Thorlaciusar
varðandi stuðning úr verkfalls-
sjóði og auk þess hafa formenn
starfsmannafélaganna tveggja,
þeir Einar Ólafsson og Haraldur
Hannesson lýst yfir stuðningi við
aðgerðir okkar.“
- vd.
Munch til íslands. Lengst tll vinstri er kappinn á sjálfsmynd, en uppsetjendur framan við: Ríkharður Hördal, Hilmar Einarsson, Ólafur Kvaran og
Knut ódegárd. (Mynd: Sig).
Norræna húsið
Munch í Vatnsmýrinni
Fjörutíu verk norska meistarans íjyrsta sinn á íslandi. Sýningin tryggðfyrir rúman milljarð
Komin eru til landsins 40 verk
eftir norska málarann Edvard
Munch. Þetta er fyrsta stórsýning
hér á landi á verkum hins mikla
málara og því um mikinn listvið-
burð að ræða.
Verkin koma hingað frá
Munch-safninu í Oslo og spanna
tímabilið 1903 til andláts Munchs
1944. Þau eru sérstaklega valin til;
að sýna þá hlið listamannsins
„sem nú væri tímabærust með til-
liti til aðalstrauma í myndlist
dagsins, hinnar djörfu „grófu" og
frjálslegu tjáningar tilfinning-
anna í nýrri málaralist", eins og
segir í sýningarskrá.
Að undirbúningi sýningarinn-
ar hefur verið unnið í hálft annað
ár og hún hefur kostað mikið fé
og mikla vinnu. í sýningarnefnd
eru Arne Eggum forstöðumaður
Munch safnsins í Oslo, Ólafur
Kvaran listráðunautur Norræna
hússins og Knut Ödegard for-
stjóri þess. Verkin eru tryggð
fyrir rúman milljarð íslenkra
króna og verndari sýningarinnar
er Vigdís Finnbogadóttir, forseti
íslands. Ame Eggum fyrirlestur um list udag, en sýningin verður opnuð á
I tengslum við sýninguna flytur Munchs í Norræna húsinu á sunn- laugardag. -GH
LJOÐAKVOLD PJ0Ð VILJANS
I tilefni af50 ára afmæli Pjóðviljans höldum við
ljóðakvöldíHlaðvarpanum, Vesturgötu 3,
miðvikudagskvöldið 24. sept. kl. 20.00.
15 ljóðskáldlesa úreigin verkum.
Ljóða unn en d ur!
Missið ekki afþessu einstæða tækifæri.
Léttar veitingará vægu verði.
ENGINN AÐGANGSE YRIR.
Afmælisnefn din.