Þjóðviljinn - 25.09.1986, Side 6
ATVINNULÍF
Mjög hressandi
Mér fínnst þetta alveg ágætis
starf og hressandi að vera búinn
að bera út áður en maður sest inn
í skólastofuna klukkan 8.00 á
morgnana, sagði Inga Dóra Helg-
adóttir blaðberi í samtali við
Þjóðviljann.
Inga Dóra á heima að Safamýri
44 og er 16 ára gömul. Hún ber út
í Álftamýri, Safamýri og Lág-
múla og við spurðum hana hve-
nær hún vaknaði á morgnana?
„Ég vakna kl sex til hálfsjö en á
svo að vera mætt í skólann klukk-
an átta. Ég ber út Þjóðviljann,
Tímann og Alþýðublaðið, sam-
tals um 8o blöð. Það er langmest
af Þjóðviljanum enda er hann
auðvitað besta blaðið!“.
Og hvenœr byrjaðirðu á þessu
starfi?
„í fýrrasumar og ég ætla að
bera út áfram, að minnsta kosti í
vetur því það er gott að hreyfa sig
svona á morgnana og svo fær
maður auðvitað borgað fyrir
þetta.“
Hvað fcerðu á mánuði í kaup?
„Ef mér gengur vel að rukka
áskriftargjaldið fæ ég 7000 kr á
mánuði, sem er ágætis vasapen-
ingur með skólanum. Yfirleitt
gengur mér vel að rukka en samt
verður maður að fara nokkrar
umferðir áður en allir eru búnir
að borga.“ •
Er eitthvað sérstakt sem þú ert
óánœgð með í starfinu?
„Mér líkar mjög vel við starfið
sem slíkt en hins vegar finnst mér
asnalegt hvernig sumar blokkirn--
ar eru hannaðar. Sum staðar í
Álftamýrinni eru póstkassarnir á
bak við læstar dyr þannig að mað-
ur verður að hringja á einhverri
bjöllunni til að komast að kössu-
num. Ég held að arkitektarnir
ættu að bera út einn morgun til að
finna sjálfir hvað þetta er fárán-
legt,“ sagði Inga Dóra Helga-
dóttir að lokum.
-v.
Inga Dóra Heigadóttir ber út I Saf-
amýri og Álftamýri og er ánægð
með ailt nema arkitektana!
Inga Dóra: ágætt að fá 7000 kr á mánuði í vasapening. Ljósm. E.ÓI.
FLÓAMARKAÐURINN
íbúð óskast
Starfsmaður Þjóðviljans óskar eftir
að taka á leigu 2-3ja herb. íbúð sem
fyrst. Tvennt í heimili. Reglusemi og
öruggar mánaðargreiðslur. Uppl. í
síma 681331 kl. 9-17.
fbúð óskast
26 ára einstæð móðir með eitt barn
óskar eftir 2ja herb. íbúð sem fyrst.
öruggar mánaðargreiðslur. Góðri
umgengni heitið. Meðmæli ef ósk-
að er. Uppl. í s. 73426 eftir kl. 17.
íbúð óskast
Systkin óska eftir 3ja-4ra herb.
íbúð. Öruggar mánaðargreiðslur, s.
73426 eftir kl. 17.
Til sölu eru eftirtalin
húsgögn og munir
Hjónarúm úr tekki með áföstum
náttborðum án dýna, dívan (sófi)
með Ijósum viðarörmum, strau-
borð, eldhúsvaskur með áföstu frá-
leggsborði og forn skíði. Ennfremur
gardínubrautir af ýmsum lengdum.
Verð ákveður kaupandi. Nánari
upplýsingar er að fá í síma 30672
eftir kl. 19.
Elnstæð móðir óskar eftir
léttu sófasetti gefins, kommóðu
eða skáp (ekki stórum) og litlum ís-
skáp. Uppl. í síma 77337.
Tll sölu
Lítil Siemens eldavél með 2 hellum
og ofni á kr. 4.000.-, Yhamaha
þjóðlagagítar 6 strengja með poka
kr. 5.000.-, Candy SA-98 þvottavél
með 12 kerfum á kr. 4.000.-, spor-
öskjulaga eldhúsborð 120x80 cm á
kr. 3.500.-, ónotuð rússnesk skák-
klukka. Uppl. í síma 14381 eftir kl.
18 á kvöldin virka daga.
TII sölu
2 servantar úr maghony með
marmaraborðplöturn. Selst á góðu
verði. Uppl. i síma 621486 eftir kl.
18.
Óska efttr að kaupa þvottavél,
Öu og sjónvarp. Vinsamlegast
í síma 18490 eftir kl. 16.
Óska eftlr litlu sv/hv sjónvarpl.
Vinsamlegast hringið í síma 29734.
Tll sölu
nýleg frystikista 410 I Elektrolux
verð kr. 15 þús. og Elektrolux ís-
skápur nýlegur 154x59 cm. Verð kr.
15 þús. Uppl. í síma 31216.
Tvö skáld
óska eftir ódýru og hentugu vinnu-
húsnæði. Helst tveimur litlum sam-
liggjandi herbergjum. Uppl. í síma
22843 eftir kl. 19.
2ja ára gamalt IKEA fururúm
160x200 til sölu. Lélegar svamp-
dýnur fylgja með ef vill. Verð kr.
4.000.-. Uppl. í síma 14751.
Tll sölu tvö rúm.
Annað gamalt barnarúm sem hægt
er að stækka. Hitt er einsmanns-
rúm með háum göflum. Á sama
stað er óskað eftir sterku reiðhjóli.
Sími 17087.
Hjónarúm án dýnu tll sölu.
Selst ódýrt. Uppl. I síma 611720
eftir kl. 18.00. (Erla).
Hefilbekkur og sv/hv sjónvarp
til sölu. Uppl. í síma 618152.
fbúðaeigendurl
Ungt par óskar eftir 2ja herb. íbúð í
miðborginni. Greiðslugeta 14 þús.
á mánuði og 6 mán. fyrirfram. Uppl.
fást í síma 24658 eftir kl. 17.
2 Nlkon myndavélar
og 2 Motordrive, 28 mm linsa, 55
micro og 135 mm. Sími 39571.
Tll sölu
Amstrad CPC 464 með þýskri 320
K minnisstækkun, diskdrifi, fjólda
bóka og forrita. Selst ódýrt. Uppl. í
síma 40552.
Saxofónn.
Vil kaupa saxófón. Uppl. I síma
13574 eftir kl. 19.
Kvöld- og helgarvinna óskast.
Rafeindavirkjanemi með stú-
dentspróf óskar eftir vinnu með
námi. Vanur ýmiss konar vinnu.
Get unnið eftir kl. 18.00 virka daga
og allan daginn um helgar. Uppl. í
síma 74335.
Óskum eftir fbúð,
3-4ra herbergja. Uppl. í síma 17792
eða 20979. Þröstur og Guðný.
Tll sölu.
Vegna flutninga er til sölu eldhús-
borð, hillusamstæða og horn-
skápur- allt úr furu, Nilfisk ryksuga
og hárþurrka með hjálmi. Uppl. í
síma 15305 eftir kl. 20.
Herstöðvaandstæðlngar.
Landsráðstefna Samtaka her-
stöðvaandstæðinga verður haldin
laugardaginn 25. okt. Uppl. í síma
17966.
Sllver Cross barnavagn
til sölu og svefndýna 30 cm þykk.
Uppl. í síma 32228.
Lftið skrlfborð óskast
gefins eða til kaups. Uppl. veittar á
Uppeldis- og meðferðarheimilinu
Sólheimum 7, sími 82686.
________________MINNING___________________
Ragnhildur Kristhjörg Þorvarðsdóttir
Fœdd 24. febrúar 1905 - Dáin 16. september 1986
Góðar manneskjur lifa aldrei
nógu lengi. Hver stund í návist
þeirra er dýrmæt og eftirsjáin við
andlát þeirra mikil og sár. Þannig
er því farið nú þegar amma mín
elskuleg hefur lokið sínu lífs-
hlaupi, á áttugasta og öðru ald-
ursári. Við sem bárum gæfu til að
þekkja hana og elska hefðum
viljað hafa hana hjá okkur svo
miklu lengur.
Hildur amma var seinni kona
Ömólfs afa míns, en hann var
áður kvæntur móðurömmu
minni, Finnborgu Kristjánsdótt-
ur, sem lést úr spönsku veikinni
árið 1918, fáeinum dögum eftir
fæðingu Finnborgar móður
minnar og einkadóttur þeirra
hjóna. Þegar amma var sjö ára
gekk afi að eiga Ragnhildi, sem
sögur herma að hafi verið einhver
besti og glæsilegasti kvenkostur
þar um slóðir, enda mun Örnólf-
ur hafa lagt hug á hana sem púr-
unga stúlku, og beið hennar þol-
inmóður þar til í fyllingu tímans.
Hildur amma reyndist móður
minni ávallt vel, og okkur stjúp-
dótturbörnum sínum var hún
sönn amma, ekki síður en sínum
eigin barnabörnum, og var þar
aldrei nokkum mun á að fínna.
Heimili þeirra Hildar ömmu og
Ömólfs afa var alla tíð snar þátt-
ur í lífí okkar bamabarnanna. Þar
var ávallt ýmislegt um að vera,
enda fjölskyldan mannmörg og
h'fleg, og við krakkamir nutum
þess að vera velkomnir í þessu
stóra húsi, þar sem við máttum
leika lausum hala að vild án þess
nokkm sinni væri amast við okk-
ur. Hjá afa og ömmu ríkti um-
burðarlyndi og einstök þolin-
mæði í garð æskunnar, þau sýndu
bömum reyndar sjaldgæfa virð-
ingu, og uppskáru hið sama hjá
þeim. Alltaf vom börnin
fullgildir þátttakendur, aldrei
homrekur eins og nú tíðkast svo
víða. Á hátíðum og örum tylli-
dögum þegar allir komu saman til
að gleðjast var sérstök rækt lögð
við að skemmta börnunum; þau
vom með í leikjum og spreyttu
sig á þrautum einsog þeir fullorð-
nu, og þegar kom að því að Hild-
ur amma settist við hljóðfærið
með „kindabókina" fyrir framan
sig var þess vandlega gætt að allir
fengju eitthvað við sitt hæfi, allt
til þess yngsta í hópnum. Þessar
söngstundir fjölskyldunnar vom
ómissandi þáttur í hverri veislu á
Langholtsveginum, þar fór sam-
an mikil sönggleði og góðir hæfi-
leikar, svo oft var unun á að
hlýða. Hildur amma átti þar ekki
minnstan þátt, hún var
menntaður organisti og bjó að
þeirri kunnáttu, auk þess sem
hún hafði hreina og fallega rödd
sem gott var að fylgja, þeim sem
skemmra var á veg kominn í
sönglistinni. Hinn kröftugi sam-
hljómur sem hreif með sér bamið
forðum lifir enn í minningunni,
og ófá sönglögin kann ég frá þess-
um samvemstundum fjölskyld-
unnar við píanóið.
Afi og amma voru eitt. Þó þau
væm orðin roskin á mínum
bemskuámm vom þau ástfangin
eins og unglingar, og mátti hvor-
ugt af hinu sjá. Kærleikur þeirra
hvors til annars var einstakur;
hann birtist í hverju andsvari,
hverju augnatilliti. Hann tengdi
þau saman í blíðu og stríðu og
gerði þau bæði að gæfumanneskj-
um. Þegar afi dó fyrir allmörgum
ámm sýndi Hildur amma ótrú-
legan styrk, hún lét ekki bugast
þá fremur en endranær, en hélt
áfram að lifa með þeirri reisn sem
hún sannarlega hafði til að bera.
Ég hef þá trú að á göngu hennar
um þetta mishæðótta og oft
grýtta landslag sem lífið er hafi
henni aldrei fundist hún vera ein
á ferðum. í huganum átti hún ást-
vininn sem aldrei yfirgaf hana í
raun, og hún átti sinn guð sem
aldrei myndi bregðast henni
heldur.
Eftir að ég komst á fullorðinsár
og fór að sjá mannkosti Hildar
ömmu í ljósi aukins skilnings og
út frá víðara sjónarhorni óx enn
aðdáun mín á þessari merku
konu. Hún fæddi tíu börn í heim-
inn, sem öll lifa hana utan Rúna
litla nafna mín, augasteinn móð-
ur minnar, sem dó á barnsaldri.
Við sem í dag eigum fullt í fangi
með barnafjölda vísitölu fjöl-
skyldunnar megum vita að slíkur
bamafjöldi á tímum frumstæðra
lífsþæginda hefur kallað á ómælt
þrek og erfiðar fómir. Vissulega
var ömmu mikill styrkur að afa,
sem tók virkan þátt í umönnun
bamanna, en starf hennar hefur
verið ærið samt. Þrátt fyrir barn-
afjöldann fann hún tíma til að
sinna öðrum hugðarefnum sín-
um. Hún var stórgáfuð kona og
starfskraftar hennar eftirsóttir
alls staðar þar sem hún lagði
hönd að verki. Góða menntun
hafði hún líka í vegamesti, því
auk tónlistamámsins var hún
menntaður kennari.
Amma varð aldrei ellinni að
bráð, enda þótt aldurinn setti
mark sitt á líkamshreysti hennar
síðustu árin. Jákvætt viðhorf
hennar til tilverunnar, kærleiks-
rík skaphöfn hennar og skilning-
ur á breyskleika mannanna gæddi
hana lífskrafti sem aldrei þvarr.
Það var ávallt gleðilegur viðburð-
ur að fá hana í heimsokn, og
áhugi hennar á velferð okkar hér
á heimilinu og ástúðleg umhyggja
fyrir bömunum mínum gladdi
mig innilega. Ef hún frétti af
ánægjulegum viðburðum í lífi
okkar stóð aldrei á hlýlegum
hamingjuóskum frá henni.
En nú er amma dáin. Þýði mál-
rómurinn hennar er þagnaður og
augun hennar fögm horfa inn í
eilífðina. En allar minningarnar
verða eftir í hugskoti okkar, það
sem hún kenndi okkur og gaf af
hreinu hjarta. Ég óska þess áð
hún verði mér nálæg um ókomna
tíma, að mér auðnist að draga
lærdóm af lífi hennar og verkum
til að rækta hið góða í kringum
mig. Ég kveð ömmu mína með
sámm trega, en jafnframt með
þakklæti fyrir að hafa fengið að
njóta samvista við hana svo lengi.
Olga Guðrún Árnadóttir
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 25. september 1986