Þjóðviljinn - 26.09.1986, Síða 9
Þorsteinn frá Hamri.
Elías Mar raaðir við Sigurð A. Magnússon.
Ingibjörg Haraldsdóttir: af raunum blaðamanns..
Þjóðviljaafmœlið
Velheppnað
liaðakvSU
Ljóðakvöld sem efnt var til á
miðvikudagskvöld ítilefni
Þjóðviljaafmaelis, fór hið
besta fram að viðstöddum
fullum sal áheyrenda.
Verk eftir eliefu skáld af eldri
og yngri kynslóð voru lesin upp.
Þau voru Vilborg Dagbjartsdótt-
ir, Jón úr Vör, Þorsteinn frá
Hamri, Ingibjörg Haralds, Elías
Mar, Nína Björk Árnadóttir,
Þóra Jónsdóttir, Elísabet Jökuls-
dóttir, Bragi Ólafsson og Finnur
- og Geirlaug Þorvaldsdóttir las
úr verkum Þuríðar Guðmunds-
dóttur. Ása Ragnars stjórnaði
samkomunni.
Sum þessara skálda eiga sér
talsverða „Þjóðviljasögu“ - til að
mynda hefur Elías Mar starfað
lengur við blaðið en nokkur ann-
ar. Þessarar sögu var stundum að
nokkru getið áður en upplestur
kvæða hófst. Til dæmis las Vil-
borg Dagbjartsdóttir kvæði sem
fyrst birtust í blaðinu og hafði
annað valdið talsverðu fjaðra-
foki. Ingibjörg Haraldsdóttir rifj-
aði m.a. upp í ljóði raunir blaða-
manns andspænis lítt merkum
hvunndagsleik, sem skyggir á hin
stærri málin. Jón úr Vör rifjaði
það upp fyrir viðstöddum hvað
gerðist á fundi í Fjalakettinum
fyrir fimmtíu árum, þegar Einar
Ólgeirsson tilkynnti að Theódóra
Thoroddsen hefði boðið, að hið
nýja blað bæri nafn þess blaðs
sem Skúli maður hennar hafði
gefið út og hve vel því var fagnað.
Og Finnur sagði nokkra rauna-
sögu af viðskiptum ungs skálds
við blaðið.
Ljóðin voru bæði ný og gömul,
birt áður eða óbirt. Og menn
töluðu saman um það yfir borð-
um meðal annars, hvernig stæði á
því misræmi, sem er á milli góðr-
ar aðsóknar að ljóðakvöldi (og
ekki aðeins þessu hér) og sorg-
lega takmarkaðs áhuga á bókum
skálda...
Nlna Björk Ámadóttir.
Vilborg Dagbjartsdóttir: svona máttu ekki yrkja f Þjóðviljann...
Jón úr Vör: í Fjalakettinum fyrir fimmtíu árum.
Föstudagur 26. september 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9