Þjóðviljinn - 20.12.1986, Side 1

Þjóðviljinn - 20.12.1986, Side 1
Laugardagur 20. desember 1986 291. tölublað 51. árgangur Vísitölusvikin Sneitt að Alexander Húsnœðismálastjórn samþykkir eftirgjöfvegna ofreiknaðrar lánskjaravísitölu þráttfyrir óljós fyrirmœli ráðherra. Gildir um9300 lán. SigurðurE. Guðmundsson: Allt óljóst um framkvœmd. Alexander Stefánsson: Endurgreiðslur gilda ekki um Byggingasjóð verkamanna ó að samráð hafi verið haft við Félagsmálaráðuneytið um framkvæmd vísitölumálsins og ráðuneytinu kunnugt um fram- kvæmdina allan tímann er nú orðið Ijóst, að cftirgjöf sú, sem ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í ágústlok 1983 að veita húsbyggjendum, skal gilda út all- an lánstímann hjá viðkomandi aðilum, en ekki einu sinni, eins og talið var að bréf Fél- agsmálaráðuneytisins frá 2.09.83 gæfi til kynna, segir í samþykkt sem Húsnæðismálastjórn gerði á fundi sínum í gær vegna ofreikn- aðrar lánskjaravísitölu sem snerta lánveitingar stofnunarinn- ar. Á fundi Húsnæðismálastjórnar var jafnframt samþykkt að eftir- gjöfin skuli ná til allra lána, sem verðtryggð eru með lánskjara- vísitölu og komu til greiðslu úr Byggingasjóði ríkisins fram til ág- ústloka 1983, samtals um 9.300 lán. Þá samþykkti stjómin að undirbúningur skyldi þegar haf- inn. Loks segir að tillögur um framkvæmdina skuli hljóta sam- þykkt Félagsmálaráðuneytisins. Sigurður E. Guðmundsson sagði í santali við Þjóðviljann í gær að enn væm engar línur komnar í það hvemig standa ætti að framkvæmdinni, hvort endur- borga ætti lánþegum ofreiknaða lánskjaravísitölu eða hvort af- borganir af lánum yrðu lækkaðar það sem eftir er af afborgunart- íma þeirra. Sigurður sagði jafn- framt að enn væri óljóst um hvaða upphæðir væri að ræða. í Kastljósþætti með Fél- agsmálaráðherra í gærkvöldi var ekki annað af orðum ráðherra að skilja en aðeins um 12 miljónir króna yrðu endurgreiddar lán- þegum en lánin verði ekki færð niður eftir því sem nemur of- reiknuðum höfuðstól. Jafnframt mátti á máli hans skilja að ekki stæði til að endurgreiða vísitölu- lækkunina frá Byggingasjóði verkamanna. -K.ÓI. Sjá Nafn vikunnar og leiðara bls. 17 í sunnudagsblaði Okur Sökin er Seðlabanka Hæstiréttur úrskurðaði í gær að Seðlabankinn hefði árin 1984 og ’85 brugðist lagaskyldu sinni um auglýsingu hámarks- vaxta, og sýknaði því lögfræðing- inn sem fyrstur var dæmdur í ok- urmálunum útfrá viðskiptum Hermanns Björgvinssonar. Má búast við að þarmeð detti botninn undan nánast öllum ok- urmálunum. í ákæru á Hermann sjálfan var krafist yfir 500 milljóna greiðslu. -m Gleraugu Sjóndepran hátolluð Einsog fram hefur komið í fréttum Þjóðviljans er algengt að álagning á sjóngler í gleraugu sé um 100%. En það eru ekki bara gleraugnasalar sem taka sinn toll heldur rfkið einnig, því gjöld á sjóngler eru samanlagt um 50%. Nærsýnisgler að styrkleika -3 sem kostar um 10 þýsk mörk er- lendis eða 220 krónur íslenskar getur því kostað 1188 krónur út úr búð á íslandi eftir að öll gjöld og álagning hafa verið reiknuð út. Dæmið lítur svona út: burðar- gjald 100 krónur, 1% vátrygging- argjald 3 krónur, 24% vörugjald 78 krónur, 1% tollgjald 3 krónur, tollmeðferðargjald 21 króna, 100% álagning gleraugnaversl- unar 425 krónur og loks 25% söluskattur í smásölu 238 krónur. Samtals 1188 krónur. Á gler- augnaumgjörðum eru sömu gjöld en á snertilinsum er ekkert vöru- gjald. Þess má geta að Tryggingar- stofnun ríkisins tekur engan þátt í greiðslum . á venjulegum sjón- glerjum nema að kaupandi þjáist af alvarlegum augnsjúkdómum. í slíkum tilfellum eru greidd ein gleraugu á ári þar til viðkomandi telst læknaður af sjúkdómnum. -vd. Við vitum ekki hvaða erindi hann átti í bæinn, en það hefur sjálfsagt verið eitthvert jólavafstur. E.ÓI. rakst á snjókarlinn á puttanum á Kringumýrarbrautinni í gær. Helgarpósturinn Ingólfur segir upp Ragnar Kjartansson upplýsir um ókeypis Hafskipsflutninga fyrir Ingólf Margeirsson ritstjóra. Ingólfur segir starfi sínu lausu Ingólfur Margeirsson, annar tveggja ritstjóra Helgarpósts- ins hefur sagt starfi sínu lausu, eftir að Ragnar Kjartansson fyrr- verandi stjórnarformaður Haf- skips birti gögn sem benda til þess að Ingólfur hafi árið 1983 borgað flutninga með skipafélaginu með reikningi fyrir auglýsingu sem aldrei birtist. Undanfarnar vikur hafa þeir Ragnar og Ingólfur ást við í Morgunblaðsgreinum végna bú- ferlaflutninga Ingólfs með Haf- skipi 1983 og ’84. f Morgunblað- inu í fyrradag birti Ragnar reikning sem Ingólfur skrifar undir og er greiðsla fyrir auglýs- ingu í Helgarpóstinum. Ragnar segir enga Hafskipsauglýsingu hafa birst í Helgarpóstinum það ár, og sé reikningurinn í raun pappírsgreiðsla fyrir víxil sem Hafskip hafi sjálft innleyst. Ingólfur sendi í gær frá sér fréttatilkynningu þar sem segir að skrif Ragnars gefi til kynna „að greiðsla fyrir flutning hafi verið felld niður með þeim hœtti að eðlilegt sé að líta á sem mistök af minni hálfu. “ „Ég vil taka skýrt fram“ segir Ingólfur í tilkynningunni „að þessi viðskipti hafa aldrei haft nein áhrifá störfmín sem ritstjóri Helgarpóstsins eða á ritstjórnar- stefnu blaðsins. En þar sem um- rœða þessi öll er komin á það stig að hún getur valdið blaðinu og samstarfsfólki mínu ófyrirsjáan- legum erfiðleikum tel ég mér skylt að segja starfi mínu lausu sem rit- stjóri Helgarpóstsins. Mér er það Ijóst að undir engum kringum- stæðum má varpa skugga á nafn blaðsins eða störf ritstjórnar. “ Ingólfur vildi engu bæta við þegar Þjóðviljinn hafði samband við hann í gær. -m

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.