Þjóðviljinn - 20.12.1986, Síða 2

Þjóðviljinn - 20.12.1986, Síða 2
—SPURNINGIN— Hvaða skoðun hefur þú á vœntanlegum stórhcekk- unum á opinberri þjón- ustu? Óskar Árnason, hárskeri: Þær eru alveg nauðsyn- legar til að halda öllu gang- andi. En það er nú vonandi að þið á Þjóðviljanum komist í stjórn næst, þá lagast þetta. Haraldur Norðdahl, tollvörður: Mér finnst þetta ekki nógu vel hugsað. Hálfgerð naflapólitík. Kolbrún Sigfúsdóttir: Eru þeir ekki bara að taka af okkur kjarabæturnar? Helga Hannesdóttir, hús- móðir: Mér finnst þetta varla geta staðist miðað við það sem þessir ráðamenn eru búnir að lofa okk- ur. Ég verð afar skúffuð ef úr þessu verður. Kolbrún Gunnarsdóttir: Eflaust eru þær nauðsynlegar, en samtímis er náttúrlega búið að skerða kauphækkanir almenn- ings. FRÉTTIR Kvosin Niðuirifið samþykkt Kvosarskipulagið samþykkt með atkvœðum Sjálfstœðisflokks og Framsóknar Tillaga að nýju skipulagi í Kvosinni var samþykkt í horg- arstjórn á fimmtudaginn með at- kvæðum borgarfulltrúa Sjálf- stæðisflokksins og Framsóknar- flokks. Fulltrúar Alþýðubanda- lags, Alþýðuflokks og Kvenna- lista hafa lagst hart gegn sam- þykkt tillögunnar. Enda þótt tillagan hafi nú verið afgreidd frá borgarstjórn gefst áhugamönnum um Kvosina enn færi á að gera athugasemdir við hana. Átta vikur eru til stefnu með það, en síðan verða slíkar tillögur vegnar og metnar. Að því loknu teist tillagan endanlega af- greidd. Borgarfulltrúar Alþýðubanda- lagsins lögðu til á fundinum á fimmtudaginn að ekkert niðurrif skuli leyft í Kvosinni án þess að fyrir liggi nákvæm fjárhags- og framkvæmdaáætlun um upp- byggingu á lóðinni. Tillögunni var vísað til borgarráðs. Tillögu um að leyfa ekki ný- byggingar í Aðalstræti nema að undangengnum fornleifarann- sóknum var einnig vísað til borg- arráðs. Talið er að í Aðalstræti sé að finna minjar frá fyrstu byggð í Reykjavík, jafnvel allt frá landnámsöld. Ingibjörg S. Gísladóttir Kvennalista lagði fram tillögu um að gerð yrði kostnaðaráætlun um framkvæmd skipulagsins og var þeirri tillögu sömuleiðis vísað til borgarráðs. Samtökin Líf og land hafa sent borgaryfirvöldum bréf þar sem segir að í ljósi þeirrar víðtæku gagnrýni sem fram hefur komið á skipulagstillöguna, telji stjórn samtakanna mjög brýnt að unnt verði að ná breiðri samstöðu um skipulagið. Þá hefur húsafriðunarnefnd einnig varað alvarlega við þeim niðurrifsáformum sem tillagan ber með sér og skorað á borgaryf- irvöld að fresta afgreiðslu tillög- unnar um sinn. -gg Vilhjálmur af Baskerville leitar sannleikans gegnum gleraugu sín. Háskólabíó Rósin fnimsýnd Miðaldamorðgáta Umberto Eco á hvíta tjaldið um jólin að er kalt í ritsalnum, mig verkjar í þumalinn. Eg skil þessar skriftir eftir, ekki veit ég hverjum, ekki veit ég um hvað: Stat rosa pristina nomine, nom- ina nuta tenemus. Þannig lýkur hinn aldni Adso bókinni um ferð sína og Vil- hjálms frá Baskerville til klaustursins mikla þarsem saman hrannast bækur, morð, trúvill- ingar, guðfræði, holdsins nautn og hláturspeki: Nafn rósarinnar. Verk Umberto Eco fór sigurför um metsölulista heimsbyggðar- innar, og nú hefur Rósin lagt upp í aðra reisu, í þetta skipti í kvik- myndaformi; frumsýning í Há- skólabíó í dag. Eiginlega hefur gjörvöll Vestur-Evrópa lagt saman í myndina, sem er ein af dýrustu myndum álfunnar. Skotinn Sean Connery leikur aðalhlutverkið, Vilhjálm, - helsta andstæðinginn leikur reyndar Bandaríkjamað- urinn Murrey Abrahams (Salieri í Amadeus). Leikstjórinn er Frakki, Jean-Jacques Annaud (Leitin að eldinum o.fl.), fram- leiðandinn þýskur, Bernd Eich- inger, sá sem á peningaheiðurinn af Sögunni endalausu, tökur í Suður-Þýskalandi og Róm, og þykir þeim sem séð hafa ekki minnst til um vandvirkni og góð-‘ an smekk við staðarval og leik- mynd. Nafn rósarinnar varð metsölu- bók hérlendis fyrir tveimur árum í rómaðri þýðingu Thors Vil- hjáimssonar, og varla efi að jóla- mynd Háskólabíós verður vel sótt og um rædd. Af rósinni forðum stendur nafnið eitt; vér höldum aðeins í nakin nöfn. -m Skoðanakannanir Töluvert ólíkar niðurstöður Gunnar Maack hjá Hagvangi: Mjög ólík vinnubrögð. Vísindalegra hjá okkur og Háskólanum en dagblöðunum Iskoðanakönnun sem Hagvang- ur Iét vinna í fyrstu viku des- ember um fylgi stjórnmálaflokk- anna fyrir komandi þingkosning- ar eru niðurstöður á suman hátt nokkuð ólíkar þeim niðurstöðum sem bæði Dagblaðið og Helgarp- ósturinn hafa birt nýverið. Eink- um er fylgi Alþýðuflokksins hærra í dagblaðskönnunum en þjá Hagvangi og fylgi Alþýðu- bandalags, Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks lægri en könn- un Hagvangs gefur til kynna. - Ég held að einn hluti af skýr- ingunni á þessum mismun sé sá að það er staðið á mjög ólíkan hátt að könnun dagblaðanna annars vegar og könnun okkar og Félagsvísindastofnunar Há- skólans hins vegar, sagði Gunnar Maack hjá Hagvangi í samtali við Þjóðviljann. - Miðað við þær aðferðir sem eru notaðar, bæði við val á úrtaki og framkvæmd könnunar þá tel ég að kannanir okkar og þeirra í Háskólanum séu raunsannari. Það eru alltaf ákveðnar kerfis- bundnar villur í könnunum sem þessum sem við vitum um og höf- um jafnvel verið að velta fyrir okkur að gefa út kosningaspár út frá niðurstöðum könnunar þar sem tekið sé tillit til skekkjunnar, sagði Gunnar. I könnun Hagvangs sem náði til 1000 kjósenda um allt land náðist til um 77,5% af brúttóúr- taki. Af þeim sem tóku afstöðu söguðust 14,2% styðja Alþýðu- bandalagið, 22,2% Alþýðuflokk- inn, 0,4% BJ, 16% Framsóknar- flokkinn, 6,4% Kvennalistann og 40,5% Sjálfstæðisflokkinn. Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar var fylgi flokk- anna með tilliti til aldurs kjós- enda nokkuð breytilegt. Fylgi Framsóknarflokksins var mest hjá 50 ára og eldri en Alþýðu- flokkurinn átti minnst fylgi í elstu aldurshópum. Fylgi Alþýðu- . bandalagsins var mest í yngsta aldurshópnum en minnst hjá 50 ára og eldri. Mest fylgi Kvenna- lista var hjá fólki 18-29 ára og hjá Sjálfstæðisflokknum í elsta aldur- shópnum. -Ig- Leiðrétting Þau mistök urðu í Jólablaði Þjóðviljans, að nafn Stefáns Jónssonar fyrrverandi alþingis- manns féll niður, en hann skrifaði greinina „Minning um Pál Zóp- hóníasson“ á bls. 15 til 17 í blað- inu. Eru lesendur og höfundur beðnir velvirðingar á þessum mistökum. 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 20. desember 1986

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.