Þjóðviljinn - 20.12.1986, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 20.12.1986, Qupperneq 3
Fjárlögin FRETTIR Skipbmt Þorsteins Fjárlagahallinn óx úr 1600 milljónum í2,8 milljarða króna. Geir Gunnarsson: Hefaldrei séð jafnmiklafjármuni hverfa á svo skömmum tíma Eg hef aldrei séð jafnmikla fjármuni ríkissjóðs hverfa í útgjöld á jafnskömmum tíma og ætti ég þó að vera orðinn ýmsu Suðurlandskratar Konan út í kuldann „Það voru landfræðiieg sjón- armið sem réðu því að víxlað var á öðru og þriðja sæti í tillögu meirihluta kjördæmisráðs um uppstillingu listans,“ sagði Magn- ús H. Magnússon, efsti maður lista Alþýðuflokksins á Suður- landi. Elín Alma Arthúrsdóttir hefur neitað að taka þriðja sæti listans og hótar að segja af sér öllum trúnaðarstöðum á vegum flokksins. Úrslit prófkjörsins fyrr í vetur urðu á þá leið að Elín Alma, for- maður flokksfélagsins í Vestmannaeyjum, varð í öðru sæti og Þorlákur Helgason, úr BJ, í þriðja sæti. Magnús, einnig frá Vestmannaeyjum, varð í fyrsta sæti. Meirihluti stjórnar kjör- dæmisráðs lagði svo til að sætun- um yrði víxlað á milli Elínar og Þorláks. „Það er erfitt og vont að breyta niðurstöðu prófkjörs,“ sagði Magnús, „en vandamálið með landafræðina var fyrir hendi.“ En hvað með jafnvægi milli kynja? „Landafræðin var kynja- jafnvæginu yfirsterkari þarna.“ Magnús tók það fram að kjör- dæmisráðið skæri endanlega upp úr með listann á fundi á milli jóla og nýárs. -Sáf vanur. Ja, hvflík veisla, sagði Geir Gunnarsson alþingismaður m.a. í umræðum um fjárlögin á alþingi í gær, en eins og fram hef- ur komið hefur halli á ríkisjóði vaxið úr tæplega 1600 milljónum króna í 2,8 milljarða á örfáum dögum. Fjárlagafrumvarpið verður af- greitt frá alþingi í dag og að því loknu fara þingmenn í mánaðar- jólaleyfi. Fjölmargar breyting- artillögur liggja fyrir frá öllum flokkum, m.a. tillögur um hækk- un skatta á fyrirtæki og aukin framlög til ýmissa málaflokka. í gærkvöldi var áformað að af- greiða lánsfjárlög og nokkur stjórnarfrumvörp áttu að verða að lögum í gær. Geir Gunnarsson fór hörðum orðum um fjármálastjórnun ríkisstjórnarinnar. Hann minnti á það markmið stjórnarinnar að minnka hallann á ríkisjóði um þriðjung og benti á að í stað þess mun fjárlagahallinn aukast um hvorki meira né minna en 40%, enda þótt góðærið hafi fært ríkis- sjóði 3 milljarða tekjuauka. „Skipbrot stjómarsíefnunnar varðandi þetta markmið blasir nú við þjóðinni,“ sagði Geir. Pálmi Jónsson formaður fjár- veitingarnefndar sagði hækkun útgjalda ríkissjóðs eiga sér þrenns konar rætur, í fyrsta lagi nefndi hann ákvarðanir fjárveit- inganefndar um aukin útgjöld, í öðru lagi 915 milljón króna hækkun vegna kjarasamning- anna og í þriðja lagi uppfærslu verðlags og launa um rúmlega 2,5 milljarða. Jón Baldvin Hannibalsson for- maður Alþýðuflokksins sagði fjárlagahalla aldrei hafa aukist svo mikið á svo skömmum tíma. Hann sagði hallann á ríkissjóði vera stærsta vandamálið í efna- hagslífi íslendinga og sagði menn verða að horfast í augu við að skilgreina þyrfti hlutverk ríkis- búskapsins upp á nýtt. Alþýðuflokkurinn hefur lagt fram tillögur um að lækka hall- ann úr 2,8 milljörðum niður í 652 milljónir króna. Þetta vilja þing- Fjárlögin verða afgreidd í dag, síðasta þingdag fyrir jól. Sennilegt er að þau fái að minnsta kosti eitt atkvæði - fjármálaráðherrans uppí vinstra horni mvndar- innar. (Ljósm.: E.ÓI.) menn flokksins gera með því að hækka eignar- og tekjuskatt á fyr- irtæki, áætla hagnað af ÁTVR meiri og hækka launaskatt um 0,5%, og auka þannig tekjur um 1650 milljónir. Auk þess hafa þeir lagt til að útgjöld verði skorin niður um 500 miljónir.-gg El salvadornefndin Hjálparstarf framhjá stjómvöldum Jólasöfnun El Salvadornefndarinnar til fórnarlamba jarðskjálftanna í San Salvador. Ragnar Stefánsson: Stjórnvöld hafa misnotað hjálpargögn E1 Salvadornefndin hefur nú hafið sína árlegu jólasöfnun til bágstaddra hópa í EI Salvador en að þessu sinni verður söfnunar- fénu varið til hjálpar þeim sem Sjóslys Tjaldur enn ófundinn Fórst í ísafjarðardjúpi ífyrrinótt með þremur mönnum innanborðs. Víðtœk leit ekki borið árangur Tjaldur ÍS-116 frá ísafirði sem fórst í ísafjarðardjúpi í fyrri- nótt með þremur mönnum innan- borðs er enn ófundinn. Á þriðja tug báta auk flugvéla leituðu í Djúpinu í fyrrinótt og allan gær- dag auk þess sem gengnar voru fjörur. Báðir björgunarbátarnir og lítilsháttar brak hefur fundist. Annar báturinn fannst um tvö- lcytið í fyrrinótt vestarlega á Grunnavík, út af Bjarnanúp þar sem talið er að báturinn hafi sokkið en hinn fannst skammt utan við Bolungarvík í gærmorg- un. Leit hófst þegar að bátnum þegar hann kom ekki til ísafjarð- ar á tilskyldum tíma í fyrrakvöld. Ljóst er að Tjaldur hefur sokk- ið mjög snögglega því engin um- merki sáust á björgunarbátunum og ekkert neyðarkall barst frá skipverjum. Ágætis veður var á þessum slóðum í fyrrinótt. Um miðjan dag í gær töldu menn sig greina bátinn á hafsbotni í Grunnuvík en leit með neðan- sjávarmyndavél á svæðinu bar engan árangur. Skipverjarnir á Tjaldi voru all- ir ísfirðingar. Sá elsti þeirra 59 ára en hinir tveir um þrítugt. Tjaldur var 29 lesta eikarskip smíðað í Danmörku árið 1956. Hann var á skelfiskveiðum í Djúpinu. fóru einna verst útúr jarðskjálft- unum í San Salvador fyrr á árinu. „Þrátt fyrir gífurlegan skaða og mikil vandamál sem komið hafa i kjölfar jarðskjálftanna hefur um- ræðan um þá verið lítil. Við vilj- um því með söfnuninni jafnframt vekja athygli á þessu ástandi," sagði Ragnar Stefánsson jarð- skjálftafræðingur og stjórnar- meðlimur E1 Salvadornefndar- innar þegar hann var spurður út í söfnunina. „Stjórnvöld í E1 Sal- vador hafa verið gagnrýnd mikið fyrir það að misnota hjálpargögn sem send hafa verið vegna skjálftanna. í dreifingu þeirra hefur fólki verið mismunað eftir búsetu, og þar með efnahag, en fátækrahverfin hafa verið iátin liggja milli hluta. Vegna þessa hefur myndast hreyfing sem sinn- ir hjálparstarfi framhjá stjórn- völdum og hefur UNTS, Alþýðu- samband E1 Salvador, haft um- sjón með því. Sambandið fær að starfa opinberlega og m.a.s. Þjóðfrelsisfylkingin hefur hvatt fólk til þess að senda hjálpargögn til UMTS“. Hvað er áætlað að það séu margir sem eru nú heimilislausir í E1 Salvador vegna skjálftanna? „Kannski u.þ.b. 200 þúsund manns, en u.þ.b. 40 þúsund manns hafa flúið til frelsuðu svæðanna. Annars er mjög erfitt að átta sig á fjöldanum. Stjórnvöld hafa tilhneigingu til þess að halda tölunum niðri,“ sagði Ragnar. Þeir sem vilja veita stuðning heimilislausum í E1 Salvador geta sent fé inná gíróreikning E1 Salvadornefndarinnar á númer 303-26-10401 og merkt seðilinn nefndinni. Auk þess verða jóla- annadagana, félagar úr nefndinni með söfnunarbauka hér og þar í miðbænum og ef augun verða höfð opin verður óhjákvæmilegt að koma auga á einhvern þeirra. -K.Ól. ^HITACHI vasa-diskó með útvarpi verð aðeins kr. 3.900.- Vilberg og Þorsteinn Njáisgotu 49 s: 10259

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.