Þjóðviljinn - 20.12.1986, Blaðsíða 4
LEIÐARI
Góð frétt af
Andrei Sakharof
í gær bárust frá Moskvu fregnir, sem öllum
þeim munu gleðilegar þykja, sem fylgst hafa
með mannréttindabaráttu sovéska eðlisfræð-
ingsins Andrei Sakharofs og baráttu margra
ágætra manna fyrir því að aflétt verði „útlegð“
þeirri sem hann og kona hans, Elena Bonner,
hafa sætt í borginni Gorkí við Volgufljót nú um
nær sex ára skeið. Fregnirnar eru þær, að Sak-
harofhjónunum verði leyft að snúa aftur til
Moskvu - m.ö.o. að aflétt sé banni á ferðafrelsi
þeirra innan Sovétríkjanna. En ekki er enn vitað
hvort Sakharof verður leyft að flytja úr landi ef
hann óskar þess - stundum hefur hann talið að
hlutverk sitt væri heima, hvað sem á gengi, en á
seinni misserum hefursvo mjög að honum sorf-
ið að hann hefur gefið til kynna að hann færi af
landi ef hann gæti.
Saga Sakharofs er merkileg saga af mann-
legri reisn andspænis ofurefli. Andrei Sakharof
átti ungur verulegan þátt í því, að Sovétríkjunum
tókst að eignast atómvopn á borð við Banda-
ríkjamenn og var m.a. kosinn í Vísindaaka-
demíu Sovétríkjannayngsturallramanna. Fyrst
slettist upp á vinskap hans við æðstu menn
landsins þegar hann á sjöunda áratug aldarinn-
ar mælti mjög gegn því, að haldið yrði áfram
tilraunum með kjarnorkuvopn, sem þá hafði
enn ekki verið samið um milli risaveldanna. Enn
syrti í álinn, þegar Sakharof bar fram óvenjuleg-
ar hugmyndir um friðsamlega sambúð risa-
velda og hugsanafrelsis einmitt um það leyti
sem sovéskur her réðist inn í Tékkóslóvakíu.
Sakharof var rekinn úr starfi og sætti margvís-
legum árásum og áreitni. Ekki aðeins vegna
þess að hann hefði aðrar skoðanir á vígbúnað-
arkapphlaupinu en þáverandi ráðamenn, held-
ur - og kannski fyrst og fremst - vegna þess, að
hann gerðist mjög virkur þátttakandi í baráttunni
fyrir mannréttindum heima fyrir.
Hann leitaðist við að fylgjast sem best með
málum einstaklinga og hópa (t.d. Krím-Tartara)
sem misrétti eða ofsóknum sættu, bar fram rök-
sterk mótmæli, kom upplýsingum á framfæri við
erlenda fréttamenn. Stjórnvöld ákváðu svo að
refsa honum fyrir þetta starf með því að senda
hann í ársbyrjun 1980 í útlegð í borginni Gorkí.
Áður en að því kom hafði margt verið gert til að
einangra Sakharof og torvelda honum baráttu
hans- m.a. með því að handtaka vini hans, eða
neyða þá beint og óbeint til að fara úr landi. í
Gorkí var svo fylgst mjög rækilega með þeim
hjónum og æ þéttara net um þau riðið - í þeim
tilgangi að koma í veg fyrir að rödd Sakharofs
heyrðist.
Hér skal engum getum að því leitt, hvað hefur
ráðið mestu um það, að Gorkíútlegðinni er nú
létt af Sakharof-hjónunum. Margir áhrifamiklir
aðilar erlendir hafa lagt inn gott orð fyrir þau
hjón og það hefur vafalaust haft sitt að segja.
Ekki skal því heldur gleymt, að síðustu mánuði
hefur öll opinber umræða í Sovétríkjunum tekið
miklum stakkaskiptum - menn ræða nú tiltölu-
lega opinskátt um spillingu, misferli og réttinda-
brot ýmiskonar, sem áður lá á bannhelgi. Nú
síðast hefur verið rætt af miklu kappi bæði um
náttúruspjöll, sem hafa verið viðkvæmt pólitísk
feimnismál, ranga og stranga dóma, og sjálf
ritskoðunin er ekki friðhelg lengur. Allt er þetta
partur af þeirri „umsköpun“ sem Gorbatsjof hef-
ur boðað. Enginn veit enn hve langt sú hreyfing
muni ganga, né heldur hver verða endanleg
afdrif hennar. En vonandi eru tíðindin af
Sakharof-hjónunum marktæk vísbending um
að þessi umbótavilji sé enn að sækja í sig veðr-
ið. ÁB
Ljósmvnd Sigurður Mar.
LJOSOPIÐ
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandi: Útgáfufólag Þjóöviljans.
Rltstjórar: Ámi Bergmann, Þráinn Bertelsson, össur
Skarphéðinsson.
Fróttastjórl: Lúðvík Geirsson.
Blaðamenn: Garðar Guðjónsson, Ingólfur Hjörleifsson, Kristín
Ólafsdóttir, Magnús H. Gíslason, Mörður Ámason, ÓlafurGíslason,
SigurðurÁ. Friðþjófsson, Valþór Hlöðversson, Vilborg Davíðsdóttir,
Víðir Sigurðsson (íþróttir), Yngvi Kjartansson (Akureyri).
Handrfta- og prófarkalesarar: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Ljósmyndarar: Einar Ólason, Sigurður Mar Halldórsson.
Utlttstelknarar: Sœvar Guðbjömsson, GarðarSigvaldason.
Framkvæmdastjórl: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson.
Auglýsingastjóri: Sigríður Hanna Sigurbjörnsdóttir.
Auglýsingar: Ásdís Kristinsdóttir, Guðbergur Þorvaldsson, Olga
Clausen, Guðmunda Kristinsdóttir.
Símvarsla: Katrín Anna Lund, SigríðurKristjánsdóttir.
Húsmóðir: Ólöf Húnfjörð.
Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Afgreiðslustjóri:HörðurOddfríðarson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pótursdóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, ÓlafurBjörnsson.
Útkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn:
Síðumúla 6, Reykjavfk, sími 681333.
Auglýsingar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310.
Umbrotog setning: Prentsmlðja Þjóðviljanshf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 50 kr.
Helgarblöð:55 kr.
Áskrlftarverð á mánuöi: 500 kr.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 21. desember 1986