Þjóðviljinn - 11.01.1987, Side 4

Þjóðviljinn - 11.01.1987, Side 4
Steindór Hjörleifsson í Irlandskortinu eftir Brian Friel, sem er einn af þeim nýju erlendu höfundum, sem Leik- félagið hefur kynnt íslenskum leikhúsgestum. Bandaríski hérinn gengur á Land míns föður eftir Kjartan Ragnarsson, en hann hefur á undanförnum árum skrif- að mörg leikrit, sem færð hafa verið upp af Leikfólaginu. Stefán Baldursson, lelkhússtjóri, horfir um öxl og rýnirfram á veginn á 90 ára afmœli Leikfélags Reykjavíkur Hanna Maria Karlsdóttir og Sigurður Skúlason í hlutverkum sínum í Bros úr djúpinu eftir sænska leikskáldið Lars Norén, en hann þykir um þessar mundir eitt athyglisverðasta leikskáld á Norðurlöndunum. - Máttu vera að því að hinkra við eitt andartak, sagði Stefán Baldursson, leikhússtjóri Leikfélags Reykjavíkur, þegar undirritaður hitti hann í saln- um I Iðnó. Á sviðinu var sviðs- myndin úr Degi vonar, eftir Birgi Sigurðsson, en leikritið verðurfrumsýnt I dag, sunnu- dag, á afmælisdegi Leikfé- lagsins. Leikfélag Reykjavík- ur er 90 ára og þótti ástæða til að minnast þess með því að frumsýna nýtt íslenskt leikverk, eftir eitt fremsta leikritaskáld okkar I dag. Úr hátölurunum barst gáskafull- ur hljómur saxófóns, en undir leiknum mátti þógreinatrega hljóðfærisins. Við hlið Stefáns sat Þórunn Sigríður Þorgríms- dóttir, leikmyndaog búninga- teiknari, og voru þau að ræða tónverkið. Því er ætlað að fylla uppí tómarúmið á milli þátta leikritsins, þegarleikararnir drífa sig I fataskipti baksviðs. Þegar síðasti tónninn deyr út gefur Stefán I skyn að hann sé ánægður með útkomuna. „Er ekki best að við setjumst upp,“ segir hann og við förum upp á kaffistofuna og komum okkur fyrir við einn gluggann með útsýni yfir tjörnina. Stefán kveikir sér í vindli og viðtalið er hafið. Leigjandi Iðnaðarmanna „Leikfélagið hefur alltaf verið til húsa hér í Iðnó. Það tók til starfa 11. janúar 1897 í þessu húsi. Iðnaðarmannafélag Reykjavíkur hafði byggt húsið og þegar búið er að byggja hús þarf að fylla það af starfsemi. Þá á- kvað Iðnaðarmannafélagið, ásamt ýmsum leikurum sem höfðu starfað hér í bæ, að stofna Leikfélag Reykjavíkur. Síðan hefur Leikfélagið verið hér til húsa að staðaldri og það er ennþá nú níutíu árum seinna, leigjandi í húsinu. Það er því löngu tíma- bært að Leikfélagið komist í hús- næði, sem það hefur full yfirráð yfir. Haustið 1989 er ætlunin að flytja í Borgarleikhúsið. Nú í jan- úar opnum við reyndar nýtt leikhús, í gamalli skemmu í vest- urbænum þar sem við frumsýnum leikgerð Kjartans Ragnarssonar af Djöflaeyju Einars Kárasonar. Það er langt síðan að Leikfé- lagið sprengdi utan af sér þennan ramma, þennan litla sal hér, með starfsemi sinni. Hátt í annan ára- tug vorum við með miðnætursýn- ingar um helgar í Austurbæjar- bíói. Þetta var mjög vinsæll sýn- ingartími og sýndum við þarna verk af léttara taginu. Sýningarn- ar gengu mjög vel og þær fjárm- ögnuðu að hluta til reksturinn hér í Iðnó. Á undanförnum árum hefur skemmtanamunstrið hjá al- menningi breyst, framboðið hef- ur aukist að miklum mun þannig að þessar sýningar eru ekki lengur gefnar í aðsókn." Samkeppnin nauðsynleg Ef við hverfum aftur til fyrstu ára Leikfélagsins. Hvernig var verkefnavalið þá? „Strax og húsið var tilbúið hóf- ust reglulegar sýningar hér í Iðnó. Fyrstu árin voru þetta litlar sýningar, danskir söngva- og gamanleikir, en fljótlega upp úr aldamótum fór Leikfélagið að glíma við stærri og metnaðarfyllri verk. Annar áratugur aldarinnar var blómaskeið í íslenskri leikrit- un og voru þá mörg íslensk verk færð upp á sviðinu hér í Iðnó. Ef við förum fljótt yfir sögu, þá er hægt að tala um tvenn tímamót í sögu Leikfélagsins. í fyrsta lagi þegar Þjóðleikhúsið var stofnað árið 1950. Þjóðleikhúsið hafði verið lengi í byggingu og var ætl- unin að starfsemi Leikfélagsins flytti í nýja húsið þegar það yrði tekið í gagnið. Þegar að því kom æxlaðist það svo, að stór hópur leikara Leikfélagsins ákvað að halda áfram starfseminni í Iðnó. Það var mjög heilladrjúg ákvörð- un því með því að tvö leikhús voru starfrækt í borginni skapað- ist ákveðin samkeppni og aðhald á milli þessara tveggja húsa, sem hefur verið til góðs fyrir íslenska leiklist. Hin tímamótin eru 1963 þegar Leikfélagið er gert að atvinnu- leikhúsi. Fram að því hafði eng- inn verið fastráðinn við leikhús- ið, þó við það starfaði ákveðinn kjarni leikara, sem lék mjög mikið. 1963 var starfseminni hinsvegar breytt og leikarar og leikhússtjóri fastráðnir. Fyrsti leikhússtjórinn var Sveinn Ein- arsson og stjórnaði hann Iðnó í níu ár. Þá tók Vigdís Finnboga- dóttir, núverandi forseti, við. Hún var við Leikfélagið í átta ár en þá tókum við Þorsteinn Gunn- arsson, leikari og arkitekt, við stjórn hússins. Stjórnuðum við saman í þrjú ár og var tilgangur- inn með því sá, að við gætum auk 4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 11. janúar 1987

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.