Þjóðviljinn - 11.01.1987, Blaðsíða 19
Green
hefur
lengi
fylgst
með
„stelpu-
legum“
strákum
Richard Green
Sumir eru
bara öðruvísi
Bandarískur sálfræðingur
hefur gefið út rit um hómó-
sexúalisma, sem byggirá
rannsókn hans á körlum, sem
ungir drengir voru mjög
„stelpulegir1' í háttum og
leikjum, og urðu ótrúlega
margirþeirra síðar
hommar eðahneigðirtil
beggjakynja.
Deilur um ástæður þess að til-
tekinn hluti karla - og kvenna að
sjálfsögðu - kýs fremur eigið kyn
en hitt kynið hafa lengi staðið.
Sálgreiningarmenn hafa um
alllangt skeið veitt þau svör helst,
að hommahneigðir séu fyrst og
fremst tengd tiltekinni hegðun
foreldra. Homminn eigi gjarna
sterka og stjórnlynda móður sem
ofverndar hann og veiklyndan og
hlédrægan föður.
Ýmsir hafa orðið til þess að
andmæla þessari einföldun og
einn þeirra er Richard Green í
bók sinni „The Sissy Boy Synd-
rorne". Hann segir þar frá
drengjum sem hann fylgdist með
frá því í bernsku (að beiðni á-
hyggjufullra foreldra) og höguðu
sér í mörgu eins og stelpur - léku
sér að brúðum, klæddu sig í
mömmuföt, tóku að sér stelpu-
hlutverk íleikjum o.s.frv. Aðeins
einn þessara drengja varð síðar
transvestit (karl sem vill sem
mest líkjast konum og klæðast
eins og þær), en flestir urðu hom-
mar (75%). Og skýringin er blátt
áfram sú, að „mörg börn eru blátt
áfram öðruvísi allt frá fæðingu.
Svo virðist, sem þessir drengir
séu fæddir án árásarhneigðar
karla, sem einkennir aðra pilta.“
Það kemur á daginn í starfi
Greens að tilraunir foreldra til að
hafa áhrif á „stelpuhegðunina",
þegar þeir verða hræddir um að
synirnir verði hommar, bera ekki
árangur.
Green heldur því samt ekki
fram að menn séu fæddir homm-
ar og síðan ekki söguna meir.
Hann viðurkennir ýmsa samfé-
lagsþætti og uppeldisþætti, sem
geta ýtt undir hommahneigð (ósk
feðra eftír að eignast dóttur en
ekki son, tilhneiging sumra for-
eldra til að punta syni sína eins og
brúður, fjarvera föður eða dauf
samskipti við hann geta og haft
sitt að segja). Sem fyrr eru engin
endanleg svör fengin; forsendur
hómósexualisma eru einatt
ófyrirsjáanleg blanda erfða, upp-
eldis og menningaráhrifa.
Útboð -
hljóðkerfi
Hagkaup hf. Lækjargötu 4, Reykjavík, óskar eftir
tilboði í útvegun og uppsetningu á hljóðkerfi fyrir
Verzlanamiðstöðina í Kringlumýri í Reykjavík.
Tilboðið óskast m.a. í eftirtalda verkþætti:
- Sameignarkerfi
- Verslanir Hagkaups
Verkinu skal að fullu lokið 1. ágúst 1987.
Útboðsgögn verða afhent á Verkfræðistofu Sig-
urðar Thoroddsen hf. Ármúla 4, Reykjavík frá og
með mánudeginum 12. janúar 1987 gegn 5.000.-
kr. skilatryggingu.
Tilboðum skal skilatil Hagkaups hf., Lækjargötu
4, Reykjavík fyrir kl. 11.00 þriðjudaginn 11. febrú-
ar 1987 en þá verða þau opnuð þar að viðstödd-
um þeim bjóðendum sem þess óska.
HAGKAUP H.F., Lækjargötu 4, Reykjavík.
MYNDUSTA-
OG HANDÍÐASKÓLI
ÍSLANDS
Ný námskeið
1. í teiknun og málun fyrir börn og unglinga
hefjast 3. febrúar 1987. Kennari: Katrín
Briem.
2. í bókbandi hefjast 19. janúar 1987. Kennarar:
Einar Helgason og Hrefna Valdimarsdóttir.
Skólastjóri.
ÞJÓÐVILJINN - SfÐA 19
Eftirtaldar greinar eru í boði á vorönn 1987, ef
þátttaka leyfir:
TUNGUMÁL:
íslensk málfræði og stafsetning. íslenska fyrir
útlendinga. Danska 1 .-4. flokkur. Norska 1 .-4. fl.
Sænska 1.-4. fl. Enska 1.-6. fl. Þýska 1.-3. fl..
Þýska samtalsfl. ítalska 1.-4. fl. (talskar bók-
menntir. Spænska 1.-4. fl. Spænskar bók-
menntir. Franska 1.-4. fl. Portúgalska. Gríska.
Hebreska. Tékkneska.
VERSLUNARGREINAR:
Vélritun. Bókfærsla. Tölvunámskeið. Stærðfræði
(grunnskólastig/framhaldsskólastig).
VERKLEGAR GREINAR:
Fatasaumur. Myndbandagerð. Myndmennt.
Leðursmíði. Smelti. Formskrift. Postulínsmálun.
Smíði.
Einnig verður boðið upp á kennslu í dönsku,
sænsku og norsku fyrir börn 7-10 ára, til að
viðhalda kunnáttu þeirra barna sem kunna
eitthvað fyrir í málunum. Kennsla hefst í febrúar.
í almennri deild er kennt einu sinni eða tvisvar í
viku, ýmist 2, 3 eða 4 kennslustundir í senn í 11
vikur.
Kennsla fer fram í Miðbæjarskóla, Lauga-
lækjarskóla, Gerðubergi og Árseli.
Námsgjald fer eftir kennslustundafjölda og
greiðist við innritun.
INNRITUN fer fram 13. og 14. janúar kl. 17-20 í
Miðbæjarskóla. Kennsla hefst 19. janúar.
St. Jósefsspítali, Landakoti
Lausar stöður
Starfskraftur á skurðstofu-
gang
Starfskraft
á skurðstofugang vantar í 100% vaktavinnu.
Einnig vantar starfskraft á sama stað í 50% starf
frá kl. 9.00-13.00.
Upplýsingar veitir ræstingarstjóri í síma 19600-
259 milli kl. 9.00-14.00.
Reykjavík 6.1. 1987.
Heilbrigðisfulltrúi
Laust er til umsóknar starf heilbrigðisfulltrúa hjá
heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðarsvæðis. Um laun
fer samkvæmt samningi Hafnarfjarðarbæjar og
Starfsmannafélags Hafnarfjarðar.
Umsóknir skal senda til héraðslæknis Reykja-
neshéraðs, formanns svæðisnefndar um
heilbrigðiseftirlit, Strandgötu 8-10, 220 Hafnar-
firði, fyrir 1. febrúar nk.
Nánari upplýsingar um starfið veitir fram-
kvæmdastjóri heilbrigðiseftirlitsins á sama stað,
sími: 65-18-81.
Heiibrigðiseftirlit Hafnarfjarðarsvæðis.
Vélstjórar - vélstjórar
Aðalfundur Vélstjórafélags íslands verður hald-
inn sunnudaginn 18. janúar kl. 14 að Borgartúni
18. Dagskrá samkvæmt félagslögum.
Félagar fjölmennið. Munið félagsskírteinin.
Stjórn Vélstjórafélags íslands.