Þjóðviljinn - 11.01.1987, Síða 20
Lótusmusteri Bahó'ía vígt
Á aðfangadag var vígt musteri
Bahá'í í Nýju Dehli á Indlandi.
Hefur það vakið mikla athygli fyrir
sérkennilegan og glæsilegan
arkitektúr. Minnir það á lútus-
blóm, sem er að opna krónu sína.
Arkitekt byggingarinnar heitir
Fariburz Sahba. Hann valdi
lótusblómið sem fyrirmynd, enda
hefur það haft mikla þýðingu í
trúarbrögðum Indverja, bæði í
Hinduismanum og Búdddisman-
um. Er blómið tákn hreinleikans.
í miðri byggingunni er hvelfing
og í kringum hana þrjár raðir og
samanstendur hver röð af níu
krónublöðum. Umhverfis bygg-
inguna eru svo níu tjarnir, sem
tákna laufblöð lótusblómsins og
sjá byggingunni fyrir kælingu.
Það tók tvö og hálft ár að tölvu-
vinna aðal form lótusins, en eng-
ar beinar línur eru í byggingunni.
Við bygginguna var svo notuð
nýjasta tækni auk gamallrar ind-
verskrar byggingatækni. Tókst
að reisa musterið með lágmarks-
kostnaði.
Musterið var sjö ár í byggingu
og veitti alls 800 manns atvinnu,
en Bahá‘íar á Indlandi eru um ein fjórir Bahá'íar til að vera við-
milljón talsins. Frá íslandi fóru staddir vígsluna.
Sum happdrætti eru öðruvísi en önnur.
Þannig er Happdrætti SÍBS - happ-
drætti bæði fyrir heppna og óheppna.
Happdrætti SÍBS er rekið sérstaklega
fyrir þá sem eru svo óheppnir að
»* 'rf^slasast eða veikjast og
• ® ' þurfa endurhæfingu
“ $seðaaðstoðtilþessað
, . .• ®takastáviðdaglegu
_ .5' störfin. Þúsundir og
aftur þúsundir íslendinga
hafa notið þeirrar þjónustu.
En jafnframt er Happdrætti SÍBS
spennandi leikur þar sem 19 þúsund
og þrír heppnir íslendingar
deila með sér hundrað og
tólf milljónum þetta árið.
Það verður margur heppinn
„ þarendahafatugirog
aftur tugir þúsunda hlotið vinning í SÍBS.
En hver er heppinn og hver óheppinn?
Það sér enginn fyrir - þess vegna spilum
við með í SÍBS. Við drögum 13. janúar.