Þjóðviljinn - 13.01.1987, Qupperneq 1
Þriðjudagur 13. janúar 1987 8. tölublað 52. árgangur
Ríkisstjórnin
Kjaradómur á sjómenn
Óskar Vigfússon formaður Sjómannasambandsins: Erum sárir, reiðir og svekktir.
Guðjón A. Kristjánsson forseti Farmanna- og fiskimannasambandsins:
Hagur útvegsmanna. Alþingi kemur saman í dag.
Svavar Gestsson: Alþýðubandalagið berst gegn þessum lögum
Ríkisstjórnin ákvað í gærmorg-
un að grípa inní sjómanna-
deiluna og mun leggja fram á Al-
þingi í dag frumvarp um kjara-
dóm á sjómenn. Ljóst er að um-
ræður um kjaradómslögin munu
standa á Alþingi fram eftir þess-
ari viku en Alþýðubandalagið
hefur lýst yfir harðri andstöðu
við frumvarp stjórnarinnar.
-Sjómenn eru sárir, reiðir og
svekktir yfir því að löggjafinn sé
að grípa inn í deiluna, sagði Ósk-
ar Vigfússon formaður Sjómann-
asambandsins í samtali við Þjóð-
viljann í gær. Taldi Óskar að
samningsgerð hefði ekki verið
fullreynd þegar uppúr slitnaði í
fyrrinótt. Þá höfðu samngavið-
ræður staðið með litlum hléum á
þriðja sólarhring. Sjómenn
höfðu þá lækkað kröfu sína um
kostnaðarhlutdeild í 79% og að
hún yrði tengd olíuverði en út-
vegsmenn buðu ekki hærra en
73%. Samningar höfðu þá tekist
um ýmis önnur sérmál.
-Ég tel að útvegsmenn álíti að
þeir hafi hag af því að ríkisstjórn-
in ljúki þessari deilu. Við erum
orðnir langþreyttir á því að
stjórnvöld grípi inní okkar kjara-
deilur, sagði Guðjón A. Krist-
jánsson forseti Farmanna- og
fiskimannasambandsins í gær.
Taldi hann ekki ólíklegt að sjó-
menn myndu mæta þessum að-
gerðum með hópuppsögnum.
-Þingflokkur og framkvæmda-
stjórn Alþýðubandalagsins fund-
uðu um fyrirhugaða lagasetningu
í gær eftir að þingflokkurinn
hafði átt fund með fulltrúum sjó-
manna. -Þegar tæpur hálfur sól-
arhringur er liðinn síðan síðasta
gagntilboð sjómanna berst er
ríkisstjórnin tilbúin með frum-
varp að kjaradómslögum. Við
Alþýðubandalagsmenn erum
alfarið andvígir þessu og munum
beita okkur gegn þessum lögum á
Alþingi, sagði Svavar Gestsson
formaður Alþýðubandalagsins.
-d&'K.ÓI.
Tvöföld vinna
æ algengari
Fátœkt og húsnœðisvandrœði algeng meðal
einstœðra foreldra. Margir vinna á tveimur
vinnustöðum til að geta séð fyrir sér
Húsnæðisvandræði og fátækt
eru mjög algeng meðal ein-
stæðra foreldra, enda segir það
sig sjálft að manneskja með
25.000 krónur í mánaðarlaun
greiðir ekki 20.000 krónur í húsa-
leigu, sagði Stella Jóhannsdóttir
starfsmaður Félags einstæðra
foreldra í samtali við Þjóðviljann.
Félagið á tvö gömul hús sem
geta hýst 20 fjölskyldur og að
Skipulag björgunarmála
Ráðuneytið
boðar til funda
„Ég ræddi þetta mál við Gunn-
ar Bergsteinsson og Harald Hen-
rysson í dag og ætlunin er að hefja
viðræður næstu daga um hvernig
eigi að haga þessum málum,“
sagði Jón Helgason dómsmála-
ráðherra í samtali við Þjóðvilj-
ann í gær, aðspurður um við-
brögð ráðuneytisins vegna deilna
Slysavarnafélagsins og Landhelg-
isgæslunnar um yfirstjórn björg-
unarstarfa.
„1985 var rætt um tilhögun
þessara mála milli Landhelgis-
gæslunnar, Slysavarnafélagsins,
Flugmálastjórnar, Siglingamála-
stofnunar og Pósts og síma en þá
fengust ekki niðurstöður vegna
sérstöðu Slysavarnafélagsins.
-vd.
Sjá síðu 2
sögn Stellu er aðsókn það mikil
að alls ekki hægt að sinna öllum
sem þurfa á húsnæði að halda.
Svo er einnig um Reykjavíkur-
borg og oft kemur fyrir að fólki er
vísað á Félag einstæðra foreldra
vegna húsnæðiseklu.
Einstæð móðir sem Þjóðviljinn
ræddi við kvaðst þurfa að vinna á
tveimur vinnustöðum, í banka á
daginn og í vídeóleigu eitt til þrjú
kvöld í viku og þriðju hverja helgi
til þess að geta séð fyrir sér og
bami sínu.
„Vinnuálagið bitnar mest á
barninu en pirringnum reyni ég
að halda fyrir sjálfa mig og láta
hann ekki koma niður á dóttur
minni,“ sagði hún.
Að sögn Stellu er tvöfaldur
vinnudagur algengur meðal ein-
stæðra foreldra.
„Einstæð móðir sem á eitt barn
á rétt á rúmlega 7000 krónum í
mæðralaun og meðlag á mánuði
og sé hún með 25.000 krónur á
mánuði í laun og þurfi að greiða
20.000 krónur í húsaleigu á hún
um 12.000 krónur eftir fyrir
öllum nauðsynjum," sagði Stella.
„ Auk þess sem hún þarf að greiða
3000 krónur í barnagæslu, sé hún
svo heppin að búa í Reykjavík,
en það er eina sveitarfélagið sem
greiðir að fullu þann mun sem er
á greiðslum til dagmæðra og dag-
vistunarheimila. Slíkt er hverju
sveitarfélagi í sjálfsvald sett.“
Sjá síður 8 og 9 og leiðara.
-vd.
Heitast á íslandi
Einsog sjá má af þessarri mynd er engu líkara en vorið sé á næsta leyti og
hversu ótrúlega sem það nú hljómar er hæsta hitastigið í Vestur-Evrópu nú
á islandi, og þarf að fara alla leið til Spánar til að finna önnur eins hlýindi.
Um suðvestan og vestanvert landið var 3-6 stiga hiti í gær og á Norður-og
Austurlandi var léttskýjað, sunnangola og 1-3 stiga hiti á meðan grannar
okkar á Norðurlöndum og í Evrópu skulfu úr kulda í 25-45 stiga frosti.
Að sögn Markúsar Á. Einarssonar á Veðurstofunni megum við búast við
sams konar veðri í dag. Mynd: Sig. _va
Djúpivogur
Kaupfélagið
íþrot
Kaupfélag Berufjarðar á
barmi gjaldþrots.
Skuldar 120 milljónir
króna. Fékk greiðslu-
<itöðvun um áramótin
Þetta dæmi var orðið vonlaust
og það er spurning hvort ekki
hefði átt að grípa til þessa ráðs
fyrr. Fyrirtækið skuldar 120
milljónir króna, langt umfram
eignir, sagði Oli Björgvinsson
stjórnarformaður Kaupfélags
Berufjarðar á Djúpavogi í samtali
við Þjóðviljann í gær, en kaupfé-
lagið sótti um þriggja mánaða
greiðslustöðvun um áramótin.
„Þessi tími verður nýttur til
þess að gera þetta upp og reyna
að koma í veg fyrir að menn tapi
miklu á þessu og þá á ég einkum
við almenna viðskiptamenn okk-
ar,“ sagði Óli.
Kaupfélagið hefur rekið versl-
un á Djúpavogi, sláturhús og
mjólkursamlag. Kaupfélag A-
Skaftfellinga á Höfn hefur leigt
verslunina og mjólkursamlagið,
þannig að starfsemin stöðvast
ekki. 18 manns voru í vinnu hjá
kaupfélaginu.
„Þetta er vissulega mikið áfall
fýrir þorpið, en við vonum að
þetta muni ekki hafa mikil áhrif á
atvinnulífið hér,“ sagði Óli í gær.
-gg
Skák
Jóhann
enn efstur
Jóhann Hjartarson stór-
meistari er enn einn í efsta sæti á
svæðismótinu í Gausdal í Noregi.
Jóhann gerði jafntefli í gær við
Aagárd og er kominn með 3Vi
vinning eftir fjórar umferðir.
Agdenstein frá Svíþjóð er í
öðru sæti með 3 vinninga en þeir
Jóhann tefla saman í dag. Guð-
mundur Sigurjónsson vann Sæ-
var Bjarnason í gær og er kominn
með 2 vinninga, Jón L. tapaði og
er með 1 Vi vinning en Sævar er
með 1 vinning.