Þjóðviljinn - 13.01.1987, Qupperneq 8

Þjóðviljinn - 13.01.1987, Qupperneq 8
MANNLIF Annað af tveimur húsum Félags einstæðra foreldra: Öldugata 11. Mynd E.ÓI Einstœðir foreldrar Fátækt er sannar- lega til Rœtt við StelluJóhannsdóttur starfsmann Félags einstœðraforeldra Stella Jóhannsdóttir starfsmaður Fólags einstæðra foreldra: Það gerist æ algengara að kornungar stúlkur eignist börn. Mynd E.ÓI Félag einstæðra foreldra var stofnað árið 1969 og á félagaskrá þess hafa komið um 5000 manns. Virkir fé- lagar nú eru um 1000 manns að sögn Stellu Jó- hannsdóttur starfsmanns FEF, en hún er í fullu starfi á skrifstofu félagsins í Trað- arkotssundi 6. Auk skrifstofunnar rekur félagið einnig verslun sem kallast Flóafriður og var opnuð skömmu fyrir jólin. Hún er við Laugaveg 34 b og selur aðallega notuð föt og ýmis konar gagnlegt dót. „Það felst ansi margt í þessu starfi,“ sagði Stella þegar ég spurði hana um vinnuna á skrifstofunni. „Ég er til viðtals allan daginn og veiti allar þær upplýsingar og ráðgjöf sem ég get. Það eru ótrúlega margir sem spyrja um hvernig að sækja um dagvistun fyrir börnin og þá sér- staklega konur sem hafa unnið lengi heima. Eg segi fólki hvaða leiðir eru færar og hvaða rétt það hefur varðandi dagvistun og trygginga- bætur. Við erum með lögfræðing á launum við að veita lagalega ráðgjöf og upplýsingar og sú þjónusta er gífurlega mikið not- uð. Það kemur að jafnaði einn forræðislaus faðir í viku til þess að fá ráðleggingar um hvernig hann á að fá umgengnisrétt við barn sitt og álíka margar konur koma vegna þess að barnsfeður þeirra hirða ekkert um börnin. Við útvegum fólki einnig hús- næði til bráðabirgða á meðan það leitar að öðru, og eigum til þess tvö hús sem við gerðum upp sjálf. Annað er á Oldugötu, hitt á Skeljanesi og samtals getum við hýst um 21 fjölskyldu í þessum íbúðum gegn lágri leigu. Húsin eru alltaf fullnýtt og því miður getum við ekki annað öllum um- sóknum, frekar en Reykjavíkur- borg sem vísar fólki oft á okkur. Húsnæðisvandræði mjög algeng Húsnæðisvandræði eru gífur- lega algeng á meðal einstæðra foreldra og það segir sig sjálft að manneskja með 25.000 krónur í mánaðarlaun getur ekki greitt 20.000 krónur í leigu. Auk þess eru leiguíbúðir oft leigðar í stutt- an tíma í senn og þess vegna er mikið flakk á fólki.“ Máli sínu til sönnunar sýnir Stella mér félagakort ungrar konu sem hefur verið í félaginu í átta ár. Á kortið hafa verið skráð sjö heimilisföng. „Svona spjald er einsog lítil bók um ævi mann- eskjunnar,“ segir Stella. „Enda þótt hægt sé að fá íbúðir á leigumarkaðnum ræður fólk oft alls ekki við leiguna, launin eru svo lág.“ - Hversu algengt er að einstæð- ir foreldrar séu fátækir? „Það fer eftir því hvað er átt við með fátækt. Ef það er fátækt að eiga ekki fyrir húsaleigunni enda þótt viðkomandi sé í fullu starfi þá er fátækt vissulega til meðal einstæðra foreldra." Stella grípur þykka möppu af borðinu hjá sér, flettir og les upp starfsheiti og laun félaga í FEF af handahófi. Flestireru ófaglærðir, sumir vinna í verksmiðjum, aðrir á dagheimilum, við ræstingar, f bönkum, við afgreiðslu í verslun- um eða heimilishjálp. Launatöl- urnar eru frá 12.000 krónum og upp í tæpar 30.000 krónur. Vinningstölurnar 10. janúar 1987 1. vinningur var kr. 2.344.041,- Þar sem enginn fékk fyrsta vinning, flyst hann yfir á fyrsta vinnmg i næsta útdrætti. 2. vinningur var kr. 701.946,- og skiptist hann á milli 619 vinningshafa, sem fá kr. 1.134,- á mann. 3. vinningur var kr. 1.635.390,- og skiptist á milli 12.114 vinningshafa, sem fá 135 krónur hver. Búast má vi& að fyrsti vinningur næsta laugardag verfti 4-5 milljónir króna. Upplýsingarsími: 685111. Tilkynning til söluskattsgreiðenda Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því, að gjald- dagi söluskatts fyrir desember-mánuð er 15. janúar. Ber þá að skila skattinum til innheimtumanna ríkis- sjóðs ásamt söluskattsskýrslu í þríriti. Fjármálaráðuneytið. „Við getum tekið dæmi af éin- stæðri móður sem hefur 26.000 krónur í laun og greiðir 20.000 í húsaleigu á mánuði," segir Stella. „Hún á rétt á rúmlega 7000 krón- um í mæðralaun og meðlag með einu barni samanlagt. Hún þarf að greiða 3000 krónur í dagheim- ilisgjald fyrir eitt barn ef hún er svo heppin að fá pláss á barnahei- mili. 10.000 fyrir öllum nauðsynjum Sé barnið hjá dagmömmu þarf móðirin að snara út 10.000- 12.000 krónum í upphafi hvers mánaðar en upp úr 20. fær hún endurgreiddan mismuninn sem er á dagmömmugjaldi og dagheimilisgjaldi ef hún býr í Reykjavík. Það er hverju sveitarfélagi í sjálfsvald sett hvort það endurgreiðir þennan mismun og það er hvergi gert alveg að fullu nema í Reykjavík. Mörg smærri sveitarfélaganna úti á landi harðneita að greiða þennan mismun. Þegar þessi útgjöld hafa verið greidd á einstæða móðirin sem við tókum dæmi af eftir 10.000 krónur til þess að greiða fyrir mat, hita, rafmagn, síma, ferðir til og frá vinnustað og barna- gæslu, fatnað og aðrar nauðsynj- ar. Það er því töluvert algengt að einstæðir foreldrar vinni á tveimur vinnustöðum.“ Barnshafandi í 9.bekk - Flestir verða einstæðir for- eldrar eftir skilnað, sambúðarslit eða fráfall maka. En fjórði hóp- urinn, stúlkur sem eignast börn án þess að vera í föstu sambandi, hefur hann stækkað eða minnkað? „Sá hópur hefur tvímælalaust stækkað. Það eru æ fleiri nýir fé- lagar í FEF sem tilheyra honum. Þetta eru kornungar stelpur, margar hafa orðið óléttar í 9.bekk. Ég treysti mér ekki til að gefa neina eina skýringu á þessu en þetta er staðreynd. Stór hluti þessarra stúlkna er að baksa við að halda áfram í skóla og sem betur fer eiga marg- ar þeirra góða að, en uppeldi barnana lendir oft á ungum ömm- unum. Það má heldur ekki gleyma því að það er ekki sama hvernig við fullorðna fólkið verjum tíma okkar með börnum okkar og unglingum. Það er tvímælalaust minna eftirlit með unglingum en áður var vegna óhóflegs vinnuá- lags á foreldrum og það hefur sín áhrif. -vd. PÓST- OG SÍMAMÁLASTOFNUNIN óskar að ráða BRÉFBERA til starfa í Reykjavík. Um er að ræða hálfsdagsstörf frá kl. 8 til 12. Nánari upplýsingar verða veittar á skrifstofu póstmeistarans í Reykjavík að Ármúla 25. 8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.