Þjóðviljinn - 17.01.1987, Blaðsíða 2
p-'SPURNÍNGIN-n
Hvaö finnst þér um brott-
vikningu menntamála-
ráöherra á fræðslustjóra
umdæmisins?
Þorsteinn Þorsteinsson,
sundlaugavörður:
Auðvitað er það skrýtið að
mönnum skuli vikið svona fyrir-
varalaust úr starfi án þess að um
augsýnileg brot sé að ræða.
Sigursveinn Jóhannesson,
kennari:
Það sem mér finnst vanta i þessa
umræðu svo menn geti gert sér
fulla grein fyrir því sem hefur gerst,
eru skýringar ráðherra á brottvikn-
ingunni. Mér finnst þær alls ekki
fullnægjandi eins og þær hafa
komið frá honum hingað til.
Bárður Halldórsson, kenn-
ari:
Hafi maðurinn óhlýðnast, þá ber
honum auðvitað að fara. Ég er ekki
sammála Sturlu Kristjánssyni um
að það sé þörf fyrir alla þessa sér-
kennslu í fræðsluumdæminu.
Örn Ingi Gíslason, mynd-
verkamaður:
Ég bæði gleðst yfir því og harma
það í leiðinni. Sé Sverrir Her-
mannsson að brjóta af sér í þessu
máli hefur hann vafalaust hugrekki
til að segja af sér. Annars er póli-
tískt óbragð af þessu.
(ristján Jósteinsson, fé-
agsráðgjafi:
Þetta er forkastanleg valdnýðsla
ráðherra. Á fræðslustjóra eru born-
ar órökstuddar sakir og hann látinn
gjalda framsækinnar skólastefnu í
Norðurlandskjördæmi eystra.
FRÉTT1R
Sovéski sendiherrann
Reynum að lægja öldur
Nýstárlegur blaðamannafundur í sovéska sendiráðinu.
„Mannlega þœttinumuverður nú meiri sómi sýndur heima fyrir
Igor Krasavin á blaðamannafundinum (Ljósm. Smar).
Reykjavíkurfundurinn í haust
leið mun vafalaust auðvelda
þeim verkefnið, sem efla vilja
samskipti íslands og Sovétríkj-
anna á ýmsum sviðum, sagði Igor
Krasavin sendiherra Sovétríkj-
anna, sem í gær brá á það nýmæli
að halda blaðamannafund um so-
vésk viðhorf til alþjóðamála.
Fundurinn var haldinn í tilefni
orðsendingar sem Gorbatsjof
sendi framkvæmdastjóra SÞ fyrir
skemmstu og fjallar um framlag
Sovétmanna til „friðarársins
1986“. Sendiherrann sagði á þá
leið að þótt ekki hefði tekist í
fyrra að semja um afvopnun, þá
stæði friðarárið undir nafni vegna
þess að ekki hefði athygli al-
mennings fyrr verið jafn rækilega
beint að friðarmálum. Hann
sagði Reykjavíkurfundinn hafa,
þrátt fyrir ágreininginn sem þar
kom upp, þokað afvopnunarmál-
um að áður óþekktum landamær-
um.
Mannrettindi
Sendiherrann var spurður um
mannréttindamál og Afganistan.
Hann svaraði á þá leið, að í gangi
væri lýðræðisþróun í Sovétríkj-
unum og opnari umræða og hin-
um „mannlega þætti“ yrði nú
meiri sómi sýndur. Kæmi þetta
og fram í því að Sovétmenn hefðu
stutt alþjóðlegar samþykktir um
mannréttindi, aukin samskipti
einstaklinga, sameiningu fjöl-
skyldna og þar fram eftir götum,
og legðu nú til að haldin yrði ráð-
stefna um mannréttindamál í
Moskvu. Hann sagði og sem svo,
að þessi mál (m.a. þau sem lúta
að ferðafresli) væru „ekki
auðveld", þar rækjust á hags-
munir einstaklinga á fullveldis-
réttur einstakra ríkja sem ekki
vildu íhlutun um sín innri mál, en
samt ætti að vera hægt að leysa
slík mál.
Afganistan
Um Afganistan sagði hann, að
þar væru að verða þáttaskil með
tilboði Kabúlstjórnarinnar um
þjóðasátt, sem öll pólitísk öfl
ættu aðild að sem vildu „sjálfstætt
og óháð Afganistan utan hernað-
arblakka". Eftir því hvernig
þeirri innanlandsþróun miðaði
áfram og eftir því hvernig tækist
að stöðva erlenda íhlutun um
stríðið („ákveðin erlend öfl
kynda undir hjaðningavíg“) -
færi það, hvenær sovéski herinn
færi úr landi. Tengdi sendiherr-
ann nokkrar vonir við næstu um-
ferð viðræðna fulltrúa Kabúl-
stjórnarinnar og Pakistanstjórn-
ar í Genf, en þar er m.a. fjallað
um áætlanir um brottflutning so-
véska hersins.
Afvopnun og
Norðurlönd
Sendiherrann var spurður að
því, hvort Sovétmenn mundu
bera fram tillögur um einstakar
aðgerðir í afvopnunarmálum við
Bandaríkin, nú eftir Reykjavík-
urfundinn, eða hvort þeir mundu
halda að sér höndum þar til
mannaskipti verða í Hvíta hús-
inu?
Sendiherrann sagði, að sem
fyrr væri niðurskurður kjarn-
orkuvopna og fráhvarf frá
Stjörnustríðsáformum Reagans
„í einum pakka“. En Sovétmenn
mundu reyna að draga úr áhrifum
vígbúnaðarkapphlaupsins með
ýmsu móti, híca á vissum svæð-
um. Til dæmis hefðu þeir þegar
gert ýmislegt til að greiða fyrir
framgangi hugmynda Finna um
kjarnorkuvopnalaust svæði á
Norðurlöndum - teknar hefðu
verið niður allar meðaldrægar
eldflaugar búnar kjarnoddum á
Kolaskaga, sömuleiðis verulegt
magn skammdrægra eldflauga á
Leningradsvæðinu og í Eystra-
saltslöndum, þeir væru og reiðu-
búnir til að hafa enga kafbáta
búna kjarnorkuvopnum í
Eystrasalti. Þetta er, sagði sendi-
herrann, dæmi um það sem hægt
er að gera til að bæta ástandið á
tilteknum svæðum.
Sendiherrann sagði, að
Reykjavíkurfundurinn mundi
hjálpa sér og öðrum við að beina
athygli að ýmsu sem varðaði sam-
skipti íslands og Sovétríkjanna.
Hann var ánægður t.d. með sölu
sovéskra bfla til landsins, en taldi
ýmsa möguleika vannýtta, m.a.
að því er varðar kaup á sovéskum
tæknibúnaði. Þá mætti og velta
upp nýjum formum samskipta
eins og Ryzhkof forsætisráðherra
gerði í Finnlandi á dögunum. En
þá var m.a. samið um stofnun
sovésk-finnskra fyrirtækja, sem
er nýmæli í samskiptum Sovét-
manna við Vestur-Evrópulönd.
-áb
Gausdal-skák
Vænt útlit hjá Jóni og Jóhanni
Svœðismótinu lýkur um helgina
Að tveimur umferðum ólokn-
um á svæðismótinu í Gausdal
eiga báðir Jóhann Hjartarson og
Jón L. Arnason góða möguleika á
tveim efstu sætum, þótt Svíinn
Ernst tróni sem stendur einn í
fyrsta sæti.
Jóhann og Jón L. gerðu jafn-
tefli í 7. umferðinni í fyrradag,
Guðmundur Sigurjónsson tapaði
fyrir 0gaard, og Sævar Bjarna-
son fyrir Yrjolá.
í gær var ekki teflt, en staða
efstu manna fyrir lokaumferðirn-
ar tvær er þessi: 1. Ernst (S) 5Vi
v., 2. Jóhann 5 V., 3.-5. Jón L.,
Karlsson (S), Mortensen (D) V/i
v., 6.-8. Agdestein (N), 0gaard
(N), Hellers (S) 4 v„ 9.-11. Tiller
(N), Hector (S), Yrjolá (F) 3>/2 v.
Guðmundur Sigurjónsson er
með 3 vinninga, Sævar neðar.
Keppendur eru alls sautján, allir
Norðurlandamenn.
Helstu tíðindi eru slök frammi-
staða hins unga Simens Agde-
stein sem Norðmenn töldu lík-;
legan til sigurs en á nú varla,
möguleika. Jóhann og Jón L.
hafa þegar keppt við flesta sterk-
ustu menn og ætti þeim að léttast
róðurinn nú um helgina.
Sigurvegari í svæðismótinu
heldur áfram í millisvæðamót, sá
í öðru sæti keppir við næstefsta
mann á öðru svæðismóti um
framhaldsrétt. Svæðismótin eru
fyrsti áfangi f keppninni um
heimsmeistaratitilinn. -m
Eldri borgarar
Opið
hús
Félag eldri borgara í Reykjavík
og nágrennis heldur áfram starfi
sínu af fullum krafti og hefur í dag
opið hús í Sigtúni frá klukkan tvö.
Rætt verður um stofnun
leikhóps og kemur Höskuldur
Skagfjörð leikari á staðinn. Frá
klukkan fimm verður dansað við
harmónikkuleik. Eldri borgarar
allir velkomnir.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 17. janúar 1987