Þjóðviljinn - 17.01.1987, Page 12
MINNING
LEIKHÚSIÐ 1 KIRKJUNNI
sýnir leikritið um
KAJ MUNK
í HALLGRÍMSKIRKJU
4. sýning sunnudaginn 18. janúar kl. 16, upp-
selt
5. sýning mánudaginn 19. janúar kl. 20.30, upp-
selt
6. sýning sunnudaginn 25. janúar kl. 16, upp-
selt
7. sýning mánudaginn 26. janúar kl. 20.30
8. sýning sunnudaginn 1. febrúar kl. 16.
Miðapantanir allan sólarhringinn í síma 14455,
miðasala opin: sunnudaga frá kl. 13.00 og mán-
udaga frá kl. 16.00 og á laugardögum frá kl.
13.00-18.00 fyrst um sinn.
Utboð
Byggingamefnd flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli
býður út gróður innanhúss í nýrri flugstöð.
Afhendingu skal vera lokið x3. apríl (fyrri áfanga)
og 1. júní 1987 (síðari áfanga).
Útboðsgögn verða afhent á Almennu verkfræði-
stofunni, Fellsmúla 26 Reykjavík frá og með
mánudeginum 19. jan. gegn 20.000 kr. skila-
tryggingu.
Fyrirspurnir og óskir um upplýsingar skulu berast
Almennu verkfræðistofunni eigi síðar en 6. febr
1987.
Tilboðum skal skilað til bygginarnefndar, Varn-
armálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins Skúla-
götu 63, 105 Reykjavík, fyrir kl. 14.00 föstudag-
inn 13. febr. 1987.
Byggingarnefnd fiugstöðvar
á Kefiavíkurflugvelli
Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hluttekningu við
andlát sonar míns og bróður okkar
Bjarna Vestmar Björnssonar
Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks á deild A 7 á Borgar-
spítalanum.
Guð blessi ykkur öll.
Guðbjörg Jónsdóttir
Bára, Bragi, Boði, Birgir og Bergiind.
Jóhannes Pálsson
Fœddur31. maíl951 -Dáinn 23. nóv. 1986
Þann 24. nóvember s.l. var mér
borin sú fregn, að Jóhannes Páls-
son, æskuvinur minn og jafn-
aldri, hefði verið annar þeirra
tveggja manna sem fórust með
trillunni Arnari ÍS-125, eftir sjó-
slys austan Grindavíkur, daginn
áður. Þessi fregn var mér sem
reiðarslag, því vinátta okkar Jó-
hannesar var svo gróin, að við
vissum löngum vel hvor af öðr-
um, þótt oftast væru vegalengdir
langar á milli okkar.
Við höfðum verið félagar og
vinir frá æsku, barist saman í
þeim skærum sem þá þóttu sjálf-
sagðar meðal uppvaxandi kyn-
slóðar á Skagaströnd. Sem inn-
bæingar gerðum við oft herhlaup
yfir á landssvæði útbæinga og var
þá oft hart barist, þótt ekki væru
vopnin annað en trésverð og
bambusrenglurm Er það mér í
minni hvað Jóhannes var vígreif-
ur og jafnan í hættunni miðri í
þessum orrustum. Þótt hann
fengi þung högg og stór, hopaði
hann hvergi, heldur sótti fram og
ruddi sér braut þótt við illvíga
væri að eiga.
Jóhannes var jafnan hugmynd-
aríkur og tillögugóður í herráði
okkar innbæinga og lagði oft
fram hernaðaráætlanir sem voru
djarfar og spennandi. í þessum
æskuleikjum komu strax fram í
Jóhannesi þeir eiginleikar hans
sem löngum voru einna mest
áberandi í fari hans, að vera gjarn
á að halda sínum hlut, að hvika
hvergi og vera fremstur í flokki
og bregða sér ekki þótt á móti
blési, að sýna hörku og einarða
afstöðu.
Jóhannes var fæddur 31. maí
1951, sonur Páls Jóhannessonar
frá Garði og konu hans, Gest-
heiðar Jónsdóttur, en þeim varð
þriggja barna auðið. Hann ólst
upp á Skagaströnd og bar alltaf
mikla tryggð til æskustöðvanna,
var alltaf Skagstrendingur í húð
og hár og unni Borginni og Höfð-
anum af huga og sál. Hann
kvæntist æsku-unnustu sinni,
Önnu Margréti Kristjánsdóttur
frá Háagerði á Skagaströnd, og
fékk þar ágæta konu, af góðu
fólki komna. Eignuðust þau
hjónin þrjú börn, einn son og
tvær dætur.
í þessum eftirmælum ætla ég
ekki að rekja ættir Jóhannesar
eza lýsa æviferli hans í smáat-
riðum, heldur bregða upp mynd
af þeim manni sem hann var. Mér
finnst ríkust þörfin á því vegna
þess að Jóhannes var engan veg-
inn auðskilinn maður. Ég veit að
hann var mjög misskilinn af sín-
um samferðarmönnum og bar
margt til að svo var. Hann var að
eðlisfari dulur og ekki við allra
skap; fals og yfirdrepsskapur var
honum andstyggð og hann reyndi
aldrei að vinna sér vinsældir með
því að haga orðum sínum á dipl-
ómatískan hátt. Hann sagði sína
meiningu, skýrt og skorinort, ef
hann taldi þörf á því, og hirti þá
ekki um hvernig það kom við
aðra. Hann fylgdi sannfæringu
sinni og hún átti sinn fasta grund-
völl.
Hann fyrirleit alla tilgerð og
gat verið meinhæðinn í garð
þeirra sem vildu setja sig á háan
hest, án þess að hafa nokkra
verðleika til þess. Eitt var það, til
dæmis, sem mér fannst alltaf
óvenjulegur þáttur í eðlisgerð Jó-
hannesar, en það var umburðar-
lyndi hans. Hann gat sýnt alveg
ótrúlegt umburðarlyndi og var þó
jafnframt harður og óvæginn
bæði við sjálfan sig og aðra. Þess-
ar andstæður í fari hans komu oft
fram á eftirtektarverðan hátt og
ég man, að við ræddum um það
eitt sinn, og hló hann þá við og
taldi, að flestir væru byggðir upp,
að einhverju leyti, á andstæðum,
og urðum við sammála um að lík-
lega væri það rétt.
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
Jóhannes hafði til að bera mjög
sterka réttlætiskennd og var því
alltaf fús til að taka málstað lít-
ilmagnans. Það bjó í eðli hans, að
gera uppreisn gegn allri rangs-
leitni. Hann hugleiddi mjög mál-
efni lands og þjóðar, var einnig á
vissan hátt heimspekilega sinnað-
ur og trúmál voru honum hug-
stæð.
Við ræddum margt og mikið,
nánast allt milli himins og jarðar,
þegar til þess gáfust stundir, og
þá leið tíminn hratt. Okkur var
báðum ánægja að því að rök-
ræða, og oftar en ekki komumst
við að niðurstöðu sem báðir gátu
fallist á.
Við stofnuðum Skákfélag
Skagastrandar á útmánuðum
1974, ásamt einum félaga okkar,
og var Jóhannes fyrsti formaður
þess. Á vegum félagsins hafa far-
ið fram mót á hverju ári síðan og
mjög margir komið þar við sögu.
Jóhannes var ekki nema 35 ára
gamall þegar hann mætti sinni
hinstu stund í þessari veröld. Það
er sárt til þess að hugsa að hann sé
fallinn í valinn, svo löngu fyrir
tímann.
Mér reyndist hann ætíð dreng-
ur góður, og mér er til efs að
nokkur, utan fjölskyldu hans,
hafi þekkt hann betur en ég.
Megi hann hvfla í friði, handan
þess tíma og rúms sem við þekkj-
um, í þeirri veröld sem framliðn-
um er búin.
Minning hans verður okkur
ætíð kær sem þekktum hann og
virtum. Eiginkonu hans, börn-
um, foreldrum og systkinum
sendi ég mínar innilegustu sam-
úðarkveðjur.
Ég verð að láta í Ijóði
í Ijós þá þökk sem býr
mér heit í hjartablóði
og huga til þín snýr,
því sœmd með sanni barstu
og sýndir dug og þor,
og góður vinur varstu,
það votta öll þín spor.
Við vorum sáttir saman
og sórum vinareið,
það var svo gott og gaman
að ganga vorsins leið.
Ég man svo margt sem skeði,
úr myndum tímans les,
um okkar yndi og gleði
í œsku - Jóhannes.
Svo lauk þá lífi þínu
svo langl frá heimaströnd.
Ég legg með Ijóði mínu
í látna vinarhönd,
það alit sem andinn tjáir
við endalokin stríð.
Það allt sem yndi spáir
á endurfundatíð.
Ég kveð þig - lífi er lokið,
þú lést við skyldustörf.
í fyrri skjól er fokið
og framar engin þörf,
að meta mál í dögum
að mannfélagsins sið,
því undir ceðri lögum
þú öðlast hefur frið.
Þú áttir huginn hrausta
og heill að málum vannst,
og lund svo trygga og trausta,
að tál þar aldrei fannst.
Nú ertu undanþeginn
að ævikvöð sé brýn,
því upp á æðri veginn
þér opnast hefur sýn.
Þú löngum varst að leita
og líf þitt átti þrá,
svo dula, djúpa og heita
um dýrðarhvelin há,
þú vildir fá að vita
um veröld þá sem felst
í geislum Ijóss og lita
og Landið helga telst.
Og nú er sál þín svifin
frá sárum brimsins gný,
og upp til himna hrifin
í hendur Guðs á ný.
Því hinstu raunir rakna,
þig reisir armur Hans.
Þú nœrð á ný að vakna
í nafni Frelsarans.
Rúnar Kristjánsson
St. Jósefsspítali, Landakoti
Lausar stöður
Aðstoðarræstingastjóri
Aðstoðarræstingarstjóri óskar sem fyrst. Upplýs-
ingar gefnar á skrifstofu hjúkrunarforstjóra sími
19600/220.
Sjúkraliðar
Lausar stöður á handlækningadeildum l-B og
ll-B og lyflækningadeild l-A.
Hjúkrunarfræðingar
Laus staða hjúkrunarfræðings (kvöldvaktir) á lyf-
lækningadeild ll-A.
Nánari upplysingar gefnar hjá hjúkrunarfram-
kvæmdastjórum viðkomandi deilda. Sími 19600/
220.
Röntgendeild
Lausar stöður röntgenhjúkrunarfræðinga,
röntgentækna og aðstoðarstúlku/manns. Upp-
lýsingar veitir deildarhjúkrunarfræðingur í síma
19600/330.
Býtibúr
Starfsfólk óskast á kvöldvaktir í býtibúr. Vinnutími
kl. 15.30-21.00. Unnið 7 daga, frí 7 daga. Upp-
lýsingar veitir ræstingastjóri í síma 19600/259 kl.
10.00-14.00.
Reykjavík,
13.1. 1987.