Þjóðviljinn - 17.01.1987, Qupperneq 14

Þjóðviljinn - 17.01.1987, Qupperneq 14
ALÞÝÐUBANDALAGK) ABK Opinn kynningarfundur í Kópavogi Geir Ólafur Ásdís Opinn kynningarfundur verður í Þinghóli, Hamraborg 11, mánudaginn 19. janúar kl. 20.30. Dagskrá: 1) Kynntur listi Alþýðubandalagsins á Reykjanesi. Efstu menn listans, Geir, Ólafur Ragnar, Ásdís, Bjargey og Jóhanna flytja stutt ávörp og sitja fyrir svörum ásamt Elsu, Þórunni og Birni. 2) Undirbúningur kosning- anna: Valþór Hlöðversson. 3) Önnur mál. Fjölmennum. - Stjórnin. Alþýðubandalagið Norðurlandi vestra Aukakjördæmisþing Aukakjördæmisþing AB í Norðurlandi vestra verður haldið laugardaginn 17. janúar kl. 14.00 í Villa Nova á Sauðárkróki. Dagskrá: 1) Framboðslisti fyrir næstu alþingiskosningar. 2) Kosningaundirbúningur.3) önnur mál. Stjórn kjördæmisráðs. Alþýðubandalagið Vestfjörðum Kjördæmisráðsfundur Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins á Vestfjörðum boðar til fundar í Verka- lýðshúsinu í Bolungarvík, laugardaginn 17. janúar kl. 14.00 Fundarefni: 1) Ákvörðun um framboðslista fyrir alþingiskosningar. 2) Mál- efni Vestfirðings. 3) Fjármál kjördæmisráðs. Stjórn kjördæmisráðs. Alþýðubandalagið Kópavogi Bæjarmálaráðsfundur Bæjarmálaráðsfundur verður haldinn í Þinghól laugardaginn 17. janúar kl. 10.00 um fjárhagsáætlun. Heimir Pálsson mun skýra frá gangi mála. Stjórn bæjarmálaráðs Alþýðubandalagið i Reykjavík Félagsfundur um G-listann ABR boðar til félagsfundar laugardaginn 17. janúar klukkan 14.00 á Hótel Sögu, Súlnasal. Á fundinum verður gengið frá framboðslista flokksins fyrir þingkosningarn- ar í vor. Hrafn Magnússon kynnir niðurstöður kjörnefndar. Guðmundur Ólafsson leikari les Ijóð eftir Snorra Hjartarson. Stutt ávörp. Kaffiveitingar. Fundarstjóri: Þráinn Bertelsson ritstjóri. Félagar fjölmennið! Stjórn ABR Fulltrúaráð ABR Fundur að Hverfisgötu 105 laugardaginn 17. janúar klukkan 13.00. Fundarefni: Afgreiðsla framboðslista til félagsfundar. Alþýðubandalagið Hafnarfirði Félagsfundur um kosningar og fjárhagsáætlun Stjórnir ABH og bæjarmálaráðs bjóða til almenns félagsfundar laugardag- inn 17. janúar, kl. 13:30, i Skálanum, Strandgötu 41. Dagskrá: 1. Kosningastarfið framundan. Gunnar Rafn Sigurbjörnsson reifar málin. 2. Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar 1987. Magnús Jón Árnason kynnir áætlunina. 3. Önnur mál. Stjórnirnar Alþýðubandalagið Starfshópur um utanríkis- og friðarmál Fundur verður haldinn fimmtudaginn 22. janúar kl. 20.00 í Flokksmiðstöð- inni, Hverfisgötu 105. Starfshópar taka til starfa. Hrafn Alþýðubandalagið Akureyri Bæjarmálaráðsfundur Fundur í bæjarmálaráði, mánudaginn 19. janúar kl. 20.30 í Lárusarhúsi. Dagskrá: 1) Fjárhagsáætlun Akureyrarkaupstaöar. 2) Skólamál. Stjórnin _____________MINNING________ Séra Eiríkur J. Eiríksson Fæddur 22. júlí 1911 - Dáinn 11. jan. 1987 Séra Eiríkur er dáinn. Þessi er gangur lífsins þótt vissulega sé erfitt að sætta sig við það eftir að hafa rætt við hann glaðan og reifan við vígslu hins nýja húss Fjölbrautaskóla Suðurlands að- eins sólarhring áður. Ekki mun ég framar finna þétt tak hans um handlegginn eins og hans var vandi þegar hann þurfti að vekja athygli viðmælanda á einhverju sem honum hafði flogið í hug. Séra Eirík þekkti ég af afspurn þegar á unga aldri enda var hann einn þeirra er verða goðsögn í lif- anda lífi. Kynni okkar hófust þó ekki fýrr en á síðustu árum þegar hann annaðist gæslu á lesstofu Fjöl- brautaskólans á Selfossi. Kennarar og nemendur fundu brátt að þeir áttu hauk í horni þar sem séra Eiríkur var einkum þeg- ar leita þurfti heimilda um hin margvíslegustu efni er lutu að rit- gerðavinnu nemenda. Ósjaldan gerðist það líka ef nauðsynlegt rit var ekki til staðar á hinum vanbúnu bókasöfnum staðarins, að það var komið næsta morgun og þá úr einkasafni séra Eiríks. Við komumst fljót- lega að því kennararnir að þrátt fyrir ýmsa lærdómstitla urðum við fyrst og fremst þiggjendur þegar fræðin voru rædd við séra Eirík. Slík var þekking hans að viðræðustundin gat orðið sem háskólafyrirlestur. Hann var einkum fundvís á snjallar samlík- ingar í sögu nútíðar og fortíðar og hafði alþjóðlega yfirsýn er byggði á þjóðlegum grunni. Þrátt fyrir söknuðinn yfir því að geta ekki lengur haft séra Eirík að viðmælanda er mér þó efst í huga þakklæti fyrir að hafa átt hann að samferðarmanni um stund. Á okkar síðasta fundi minntist hann nýlátins samferða- manns með þessum orðum: „Það má segja að hann hafi verið lif- andi til síðasta augnabliks“. Ævikvöldi séra Eiríks verður varla betur lýst en með þessum orðum. Eiginkonu, börnum og ástvin- um öllum votta ég mína innileg- ustu samúð. Björn Pálsson Fyrir tveim misserum eða svo héldu framfaraviljug samtök málþing hér á Selfossi í þeirri von að hraða þróun fjölmiðlunar í héraðinu. Upphófst þar hið mesta ramakvein um að við Sunnlendingar værum ævinlega seinastir til á landsmælikvarða og virtist enn ætla svo að verða, í þessu máli sem öðrum. Var fund- urinn orðinn skelfilega leiðin- legur. Síra Eiríki þótt nóg um harmagrátinn og kvaddi sér hljóðs. Eigi væri rétt að áfellast oss Sunnlendinga svo, til þess stæðu ekki rök. Við hefðum oft brugðið við skjótt, stundum fyrs- tir, eins og t.a.m. á Alþingi hérna um árið, þegar við tókum við kristni, hérna á Þingvöllum. Eftir þetta var fundurinn mjög skemmtilegur. Þar kom reyndar ekki aðeins til röksemdin, og vissulega nefndi hann til fleira en ég nú gat um, heldur einnig það rafurmagn sem af þessum manni jafnan stafaði þegar hann tók til máls, sú útgeislun sem gjörði til- heyrendum gjörsamlega ómögu- legt að dotta. Samhengið í sögu vorri var gengið síra Eiríki í merg og bein. Engum hef ég kynnst sem ferðað- ist jafn erfiðislaust um aldirnar ellefu og hann gerði hversdags- lega. Jafnan er ég hitti hann var það spenningur minn hvort ég myndi mæta Jóni Arasyni, Giss- uri jarli eða ísleifi biskupi. En hvern sem ég hitti hjá honum þá var hláturinn vís og upplyftingin, ég var alltaf miklu drýgri við moksturinn á eftir. Við töldum til frændsemi, af Bakkanum báðir, mikið sé ég eftir að hafa ekki kynnst honum fyrr. Ég þakka honum gleðistundirnar og sam- starfið við Fjölbrautaskóla Suð- urlands s.l. 4 ár. Ástvinum síra Eiríks tjái ég djúpa samúð skólafólksins, mína eigin og fjölskyldu minnar. Þór Vigfússon Með síra Eiríki J. Eiríkssyni er fallinn frá mikill öndvegismaður íslenzkrar kristni og þjóðmenn- ingar. Vitsmunir hans og lær- dómur, ásamt yfirburða þekk- ingu á sögu og arfi lands og þjóð- ar, skipaði honum í fylkingar- brjóst þar, sem hann fór, og þeg- ar við bættist sú gáfa hans, að hann var afar næmur á manneðlið og samtíð sína, gat það engum leynzt, sem með honum voru, að þar fór afburðamaður. Síra Eiríkur var kennimaður mikill; orðsnillingur og skörung- ur á stóli. Þar fór saman lærdóm- ur og þekking og boðunin gegnsýrð þjóðlegri reynzlu. Því var hann alþýðlegur kennimaður í bezta máta og gagnaðist vel, þótt hann miðlaði af djúpri vizku og háleitum sannindum. Síra Eiríkur var gleðimaður, þótt ekki væri hann glaummaður. Hann var allra manna fyndnast- ur, þegar því var að skipta, og samræðulistin var honum svo töm, að þá var hann oft áhrifarík- astur, þótt fáir væru hans jafn- ingjar af stólnum. Hjá honum fór enda saman mikil víðsýni og góð- semi, svo hann var þeim þarfur, sem hlýða kunnu og hafa vildu not hans. Þegar hann fann að, var það með þeim hætti gjört, að ekki sámaði, nje heldur var hægt að fyrtast við ábendingunum. Fyrst því var hann friðarmaður, án þess hann keypti friðinn við órjettvísi. Gæfumaður var síra Eiríkur, og átti þar ekki minnstan hlut að kona hans, Kristín Jónsdóttir. Þau voru hvort öðru samboðin, því Kristín ber af í sínum reit. Fáir eru hennar jafningjar. Henni og börnum þeirra vott- um vjer innilegustu samúð með blessunaróskum. Geir Waage Reykholti f Útboð Innkaupastofnun Reykjavíkur, fyrir hönd Raf- magnsveitu Reykjavíkur, óskar eftir tilboöum í götuljósastólpa. Utboösgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frí- kirkjuvegi 3, Reykjavík. Tilboðin verða opnuö á sama staö þriðjudaginn 24. febrúar nk. kl. 14. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Simi 25800 Atvinna Sjúkraliðar og aðstoðarfólk óskast til starfa. Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 91-29133 frá kl. 8.00-16.00. Vinnu- og dvalarheimili Sjálfsbjargar. Frá Borgarskipulagi Á Borgarskipulagi, Borgartúni 3, verður til kynn- ingar tillaga að skipulagi verslunarlóðarinnar í miðhverfi Ártúnsholts frá 19.01 .-02.02. ’87 frá kl. 08.30-16.15 á virkum dögum. Tillagan gerir ráð fyrir verslunarhúsnæði ásamt nokkrum íbúðum. Athugasemdum eða labendingum varðandi til- löguna sé komið til Borgarskipulags fyrir 6. febr. 1987. Auglýsið í Þjóðviljanum 14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.