Þjóðviljinn - 20.01.1987, Side 3

Þjóðviljinn - 20.01.1987, Side 3
FRETTIR Suðurnes/togaraútgerð Framtíð óljós Margt bendir til aðfjöldi togara verði seldur burt afsvœðinu. Voru áður 14 eru nú 8 og hugsanlega aðeins 2 innan tíðar Suðurnesjamenn hafa nú mikl- ar áhyggjur af framtíð togar- aútgerðar á svæðinu. Ekki eru mörg ár síðan gerðir voru út 14 togarar frá Suðurnesjum, en nú aðeins 8 gerðir þaðan út og margt bendir til að þeim muni fækka hugsanlega niður í 2 á næstu mán- uðum. Eigendur togarans Gauta frá Garði hafa þegar skrifað undir kauptilboð frá Hraðfrystihúsinu í Grundarfirði sem býður mun hærra í togarann en heimamenn segjast geta borgað. Mikil óvissa er um framtíð Hraðfrystihúss Keflavíkur en á þess vegum eru nú gerðir út 2 togarar, sömuleiðis eru erfið- leikar hjá systurfyrirtækjum Sjöstjörnunnar en á þeirra veg- um eru gerðir út 2 togarar. Guðmundur Finnsson hjá Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur sagði í gær að það væri alveg ljóst að ef rekstur fyrirtækj- anna legðist af þá yrði atvinnu- ástand mjög alvarlegt á svæðinu. Nú um nokkurt skeið hefur verið nokkur þensla og hefur m.a. Flugstöðvarbyggingin krafist verulegs vinnuafls og hefði bygg- ing hennar ekki komið til, væru trúlega um 60-80 karlmenn atvinnulausir um þessar mundir. Byggingu hennar lýkur nú í vor og hvað þá tekur við er ekki ljóst, en eitthvað nýtt og mikið verður að koma til. ÖRFRÉTTIRj Stjórn samtaka aldraðra hefur sent frá sér ályktun þar sem harmað er að hækkun ellilauna skuli ekki fylgja hækkun lægstu launa og skorar á stjórnvöld að endurskoða hækkun ellilauna og tekjutryggingar fyrir aldraða. Útköllum slökkviliðs Reykjavíkur á nýliðnu ári fækkaði frá árinu á undan. Þá voru útköllin 581 en 564 í fyrra. Slökkva þurfti eld í 330 skipti þar af 86 sinnum í sinu. Sjúkraflutningar voru 10.187 á árinu eða mjög svipaðir og á umliðinum árum. Listahátíð 1988 er þegar farið að undirbúa og hef- urframkvæmdastjórn hátíðarinn- ar tekið til starfa. Hana skipa Jón Þórarinsson tónskáld, formaður. Valur Valsson bankastjóri, Karla Kristjánsdóttir safnvörður, Arnór Benónýsson leikari og Gunnar Egilsson skrifstofustjóri. í undir- búningsnefnd Kvikmyndahátíðar eiga sæti þau Sigurður Sverrir Pálsson, Kristín Jóhannesdóttir, Friðrik Þór Friðriksson og Hilmar Oddsson. Framfærsluvísital- an í janúar er 2.32% hærri en í des- emberbyrjun. Sl. 12 mánuði hef- ur vísitalan hækkað um 12.8% en hækkunin nú í desember svarar til 31.7% árshækkunar. Frá upphafi árs 1986 til ársloka hækkaði framfærsluvísitalan um 13% og er það minnsta hækkun vísitölunnar á heilu ári frá 1972. Sjávarafurðadeild SÍS framleiddi á nýliðnu ári um 50 þús. lestir af frystum sjávarafurð- um. Það er um 4.4% aukning frá árinu á undan. Dagvistun Hálftóm dagheimili Nýjustu dagheimilin íborginni hálftóm. Neyðarástandskapastef uppsagnir takagildi Nokkur skortur er á starfsfólki á dagvistunarstofnunum borgar- innar, sérstaklega vantar víða fóstrur til starfa, enda launakjör- in ekki eftirsóknarverð. Bergur Felixson sagði blaðinu að ástandið væri svipað og verið hefði að undanförnu. Uppsagnir fóstra væru enn í gildi og samn- ingaviðræður í gangi milli BSRB og ríkis og bæja og væru mál öll á viðkvæmu stigi. Nokkuð væri um að fóstrur væru í hálfu starfi og væru dæmi um, td. að Foldaborg, nýju dag- heimili í Grafarvogshverfi, að erfiðlega gengi að manna vakt- irnar og vantaði þar fóstrur eftir hádegi og því ekki hægt að taka við þeim fjölda barna sem hús- næðið þó leyfir. Borgarnes Bara timbrið eftir Þakfauk afverslun í rokinu um helgina „Þetta er með því mesta veðri sem hefur komið hér, það flcttist nær allur pappinn af þakinu á versluninni og dreifðist yfir bíla og næstu hús,“ sagði Stefán Har- aldsson kaupmaður í Borgarnesi í samtali við Þjóðviljann í gær en verslun hans skemmdist töluvert í hvassviðrinu á laugardaginn. „Þetta var alveg nýr pappi sem var settur á í sumar, það var bara timbrið eftir. Pappinn skemmdi þrjá bíla og fauk á hús og í garða nálægt versluninni. Pað var rosa- lega hvasst en það varð ekkert annað tjón á við þetta í Borgar- nesi, nema lausadót fauk til,“ sagði Stefán. -vd. Noregur Sjávaiútvegur blómstrar Útflutningur jókst um 53 miljónir dollara Arið 1986 var einkar hollt norskum sjávarútvegi, og ár- ið í ár lítur út fyrir að verða enn hagstæðara, samkvæmt frétt- astofunni norinform. Norðmenn fluttu út fiskafurðir fyrir 1133 miljónir dollara í fyrra, 53 miljónum dala meira en ’85. Þó varð samdráttur í útflutningi sfldarafurða um 66 miljónir doll- ara, en annar útflutningur jókst um 16,5% eða 160 miljónir doll- ara. Haft er eftir sjávarútvegs- ráðherra Norðmanna, Bjarne Mörk Eidem, að útlitið í þorsk- veiðum sé einkar gott. Vegna nýgerðra samninga.við Sovétmenn um veiðar í Barents- hafi er ætlað að þorskafli Norð- manna á þessu ári verði meiri en í áratug. Norðmenn hyggjast tvö- falda markað sinn í Japan á næstu þremur árum, og hafa þær áhyggjur einar að Efnahags- bandalagið hátollar fiskafurðir, - þeir tollar segir Eidem að verði helsta verkefni norska sjávar- útvegsráðuneytisins á árinu. -m Ragnhildur Missti af myndatöku Valgeir Guðjónsson, Stuð- maður, hafði samband við Þjóð- viljann vegna smáfréttar í Sunnu- dagsblaðinu um auglýsingaher- ferð, sem Landlæknisembættið er að undirbúa. Sagði Valgeir það rangt með farið að Ragnhild- ur Helgadóttir, heilbrigðis- og tryggingaráðherra, hafi ekki vilj- að láta ntynda sig með smokka, heldur sé hún ekki með þar sem hún þurfti að fara til útlanda áður en myndatökur hófust. Þá segir Valgeir það rangt að hann stjórni herferðinni. Hann hafi bara verið fenginn af auglýs- ingastofunni Svona gerum við, til að hafa samband við aðila vegna myndatökunnar. Bókagerðarmenn Samningum náð Á laugardag tókust samningar á milli Félags íslenskra bóka- gerðarmanna og Félags íslenska prentiðnaðarins. Samkvæmt heimildum Þjóðviljans eru samn- ingarnir ekki frábrugðnir samn- ingum ASÍ og VSl sem gerðir voru í desember sl. Samningarnir verða bornir undir trúnaðarm- annaráð í kvöld og undir fél- agsfund á fimmtudaginn. -K.ÓI. Vinningstölurnar 17. janúar 1987 Heildarvinningsupphæð: 8.939.150.- 1. vinningur var kr. 5.644.580,- og skiptist hann á milli 5 vinningshafa, kr. 1.128.916,- á mann. 2. vinningur var kr. 989.904,- og skiptist hann á 503 vinningshafa, kr. 1.968,- á mann. 1. vinningur var kr. 2.304.666,- og skiptist á 12.663 vinningshafa, sem fá 182 krónur hver. Upplýsingarsími: 685111. Þriðjudagur 20. janúar 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.