Þjóðviljinn - 27.01.1987, Page 10

Þjóðviljinn - 27.01.1987, Page 10
ORDIEYRA Norðri, Suðri og Vestri skrifa: Lambaket handa vinum vorum R-r-r-r-r-r-r-r... r-r-r-r-r-r-r... r-r-r-r-r-r-r-r... - Yes, hello. - Hello, and good day, is that you? - Yes. (Af tillitssemi við þá örfáu ís- lendinga sem enn hafa ekki kom- ist upp á lag með að skilja enska tungu verður þetta samtal birt í lauslegri íslenskri þýðingu. Suðumesjamaður einn, áhuga- maður um fjarskipti, varð óvart fyrir því að hlera þetta símtal og tók það jafnframt upp á segul- band): R-r-r-r-r-r-r-... r-r-r-r-r-r-r... r-r-r-r-r-r-r... - Já, halló. - Halló, og góðan daginn, ert þetta þú? - Já. - Sæll og blessaður, herra for- seti. Þetta er Matti. - Mattý? Ertu gengin af vitinu manneskja? Er ég ekki búinn að margbanna þér að hringja í mig í vinnuna? - Ha? - Maður veit aldrei hver liggur á línunni - og hvað hefðirðu gert ef konan mín hefði orðið á undan að svara í símann? - Ég hefði bara spurt eftir þér. - Já, Mattý mín, svona lagað dugir ekki. Ég vil ekki hafa að þú sért að hringja hingað. Þú verður að vera róleg. Lilli þinn kemur í heimsókn á fimmtudaginn og þú verður að hafa biðlund þangað til. Bæ, sweetheart. (Bless elsk- an). - Heyrðu, þetta er einhver mis- skilningur. Þetta er Matti Matt. - Hvaða Mattý? - Ekki Mattý heldur Matti. Matti Matt. ísland manstu. Kefl- avík. Bang, bang, Rússar, NATO, ha? -Matti Matt, já blessaður. Fyrirgefðu. Ég hélt þetta væri hún Mattý, hún er hérna sko, hmm, hmmm, ritarinn minn, sjáðu til. Ég ætlaði síst að skilja í því hvað hún væri djúprödduð manneskjan. En svo ert það bara þú, sæll vertu Matti minn. Hvað er að frétta af klakanum? - Æ, ég veit það ekki. Það á að fara að kjósa! - Kjósa hvað, vinur? - Það eru alþingiskosningar í vor. - Jájájájájá. Ég fékk einhver skilaboð út af því um daginn og ætlaði alltaf að slá á þráðinn til þín. En ég hef bara ekki komist til þess. Það var smávesen hérna hjá mér. Leki í kjallaranum, og ég hef verið að láta gera við hann. Nú og svo þurfti ég að fara í Matti - ekki „Mattý“ smáaðgerð. Maður mæðist í mörgu. - Það var út af þessum kosning- um sko. Við erum í smáveseni út af þessum kosningum. - Eigum við þá ekki bara að láta fresta þeim um óákveðinn tíma? Talaðu bara við aðmírálinn þarna í Keflavík. Ég er búinn að senda nýjan í staðinn fyrir þenn- an sem var alltaf að klípa stelp- urnar. Talaðu bara við hann, Matti minn. - Nei, nei, það yrði bara leiðindi út af því. - Nú, hvað get ég þá gert fyrir þig, vinur? - Það er nú það. Svoleiðis er að við höfum áhyggjur af því að þú sért ekki nógu vinsæll hérna, sér- staklega ekki eftir fundinn með honum Gorbatsjov... - Minnstu ekki á þann auglýs- ingaskrumara í mín eyru... HJÓÐVILJINN 45 68 13 33 alþýóu;, blaðió I 45 68 18 66 Tímiiin 45 68 63 00 - Og svo eftir þessa afskipta- semi út af hvalveiðunum og Rainbow-máliið og allt það... - Ég hélt ég væri nú búinn að kippa því í liðinn. Þetta er eins og að rétta skrattanum litla fingur- inn, þið rellið alltaf meira og meira. Hvað vantar ykkur núna? Á ég að láta reisa Disneyland í Reykjavík? - Eða í Hafnarfirði? Það gæti nú verið gaman að því, svona fyrir krakkagreyin, ha? En það var nú eiginlega annað sem mig langaði til að nefna við þig. Mesti vináttuvottur sem hægt er að sýna íslendingum fyrir utan að hafa heyrt á þá minnst er að kaupa af þeim lambaket. Svo að ef þið keyptuð nú nokkra skrokka núna fyrir kosningarnar er ég viss um að það mundi mælast ofsalega vel fyrir. Fólk mundi sjá að þið eruð vinir okkar, og svo yrðum við endurkosnir og ég fengi áfram að vera ráðherra. No problem, sko! - Lambaket? Ég er ekki viss um að ég skilji við hvað þú átt, en ef þú ert að meina það sem ég held þú sért að meina þá kemur það ekki til greina. Ég hef sagt mínum mönnum að skipta sér ekki af því þótt fáeinar gærur svindli sér inn á völlinn, svona í skemmtiferð. En við förum ekki að kaupa þær í stórum stíl. No sör! - Nei þú misskilur þetta. Ég er bara að tala um venjulegt lamb- aket. Kótilettur sko. Eins og þú fékkst á íslandi. - Þetta hvíta sem ég varð veikur af? - Nei, það var hákallinn. - Ertu að meina svörtu and- litin? - Já, svona í og með. - Má ég benda þér á að það er bandaríski herinn sem er í Kefla- vík - ekki deild úr Kúkluxklan. Það er ekki hægt að setja hvað sem er á matseðilinn. - En kannski bara kótilettum- ar? Þær eru ekki svo slæmar þeg- ar það er búið að skera af þeim fituna. Nú og svo gætum við selt ykkur svínakjöt líka, er það ekki uppáhaldsmaður Gyðinga? Og jafnvel kjúklinga og svoleiðis. Þetta yrði ofsavinsælt. - Ertu að tala um mikið af þessu? - Nei, bara smávegis svona eitthvað fram yfir kosningar. - Hvenær eru þessar kosning- ar? - Bara núna rétt strax í apríl. - Ég skal athuga þetta, góði. En ég ansa þá ekki meira suði í bráð. - Neinei. - Og svo viljum við hafa vinnu- Is- lenska lamb- iö. frið þarna. Án þess að það sé alltaf verið að rekast í því sem við erum að gera. - Jájá - Og ekkert friðar- og afvopn- unarkjaftæði, nema þetta venju- lega. Og ekkert röfl um kjarnork- uvopnalaus svæði. - Neinei. - Ókei, Matti minn. Við segj- um það þá. - Þakka þér innilega fyrir. En heyrðu, hvað á ég að segja við blaðamenn að þú ætlir að kaupa mikið? - Það veit ég ekki. Vertu bara borginmannlegur og segðu að við séum ekki að tala um einn eða tvo skrokka. - Ókei sör - og þakka þér ofsa- lega vel fyrir. - Allt í lagi, Matti minn. Hvað gerir maður ekki fyrir vini sína? (Það er lagt á). - Jibbí-í-í-í-í.... Vestri Blaðburður er BESTA TRIMMIÐ og borgar sig Blaðbera vantar Garðabæ Hafnarfjörð Eskihlíð Skerjafjörð DJOÐVIIJINN W, Félag járniðnaðarmanna Félagsfundur veröur haldinn fimmtudaginn 29. janúar 1987 kl. 20.00 að Suðurlandsbraut 30, 4. hæð. Dagskrá: 1. Félagsmál. 2. Frá Lífeyrissjóði málm- og skipasmiða. 3. Önnur mál. Mætið vel og stundvíslega. Stjórn félags járniðnaðarmanna. °- w Cy Lögreglustöð a Selfossi Tilboð óskast í jarðvinnu fyrir nýbyggingu lögreglustöðvar og sýsluskrifstofu á Selfossi. Graftarmagn er um 10.000 m3 og fylling nýrra efna um 5.600 m3. Verkinu skal að fullu lokið 30. apríl 1987. Útboðs- gögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, Reykjavík, gegn 2.000 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 11. febrúar 1987 kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN RIKISINS Borgartúni 7, sími 26844

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.