Þjóðviljinn - 27.01.1987, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 27.01.1987, Blaðsíða 12
Aðalsími 681333 Kvöldsími 681348 Helgarsími 681663 þjómnuiNN Þriðjudagur 27. janúar 1987 20. tölublað 52. drgangur SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF. Þingkosningar Kvennalisti Alþýðubandalagsins Konur hafa aldrei skipað jafnmörg baráttusæti á fram- boðslistum Alþýðubandalags- ins eins og fyrir komandi þing- kosningar. Efstu menn á listum flokks- ins í öllum kjördæmum báru saman bækur sínar í Reykja- vík um helgina og var þá þessi mynd af Kvennalista Alþýðu- bandalagsins tekin fyrir utan Flokksmiðstöðina að Hverfis- götu 105. Frá v.: Svanfríður Jónasdóttir í 2. sæti á Norður- landi eystra, Ólöf Hildur Jónsdóttir 3ja sæti á Vestur- landi, Unnur Sólrún Braga- dóttir 2. sæti á Austuriandi, Jóhanna Axelsdóttir 5. sæti Reykjanesi, Bjargey Einars- dóttir 4m sæti Reykjanesi, Margrét Frímannsdóttir 1. sæti Suðurlandi, Álfheiður Ingadóttir 4. sæti Reykjavík, Olga Guðrún Árnadóttir 5. sæti Reykjavík, Ásdís Skúla- dóttir 3. sæti Reykjanesi, Guðrún Helgadóttir 2. sæti Reykjavík og Unnur Krist- jánsdóttir 3. sæti Norðuriandi. vestra. Mynd: E.Ól. Sjá nánar umfund frambjóðenda á bls. 2 Reykjavíkurlistamenn Þrír fá níu starfslaun Tillaga frá minnihlutanum í borgarstjórn kominfram í nýrri mynd: Þrír listamennfá starfslaun hjá borginni nœstu þrjú árin. Alls níu starfslaun Reykjavíkurborg hefur ákveð- iðað verja auknu fé í starfslaun til handa listamönnum. Borgin hef- ur fram til þessa greitt einum listamanni laun ár hvert, en nú hefur verið ákveðið að veita þremur listamönnum þriggja ára starfslaun næstu þrjú árin, þeim fyrsta 18. ágúst n.k. og hinum tveimur á sama tíma næstu tvö árin. Þetta mál hefur verið í umræðu undanfarna mánuði. Upphaf þess var að minnihlutaflokkarnir, eða lýðræðishlutinn, fluttu til- lögu í borgarstjórn um að veita þremur listamönnum starfslaun árlega. Tillögunni var vísað til menningarmálanefndar, þar sem nú fyrir skömmu kom upp svipuð tillaga frá fulltrúum meirihlut- ans, en nú skyldi tengja þetta af- mælisárinu og binda þetta við þrjú næstu ár. -gg Vestfirðir Fjögur félög með verkfalls- heimild Ekkert miðaði í samningavið- ræðum Alþýðusambands Vest- fjarða og vinnuveitenda á fundi þeirra í gærdag og átti Pétur Sig- urðsson formaður sambandsins ekki von á því að fundur dciluað- ila i gærkvöldi skilaði árangri. Fjögur verkalýðsfélög á Vest- fjörðum hafa nú fengið verkfalls- heimild en það eru Verkalýðsfé- lagið Baldur á ísafirði og Verkalýðs- og sjómannafélögin í Bolungarvík, Súgandafirði og Patreksfirði. -K.Ól. Iðja Stjómin sjálfkjörín Aðeins listi stjórnar og trúnaðarráðs komfram Sjálfkjörið var í stjórn og trún- aðarmannaráð Iðju, félags verk- smiðjufólks í Reykjavík. Fram- boðsfrestur rann út í lok sl. viku og kom aðeins einn listi fram sem var listi stjórnar og trúnaðar- mannaráðs. í þetta sinn var kosið eftir nýj- um lögum félagsins þannig að stjórnarmenn eru kjömir til tveggja ára í senn og varamenn eru felldir út en þess í stað skipa nú stjórnina 11 manns. í stjóm Iðju eiga nú sæti: Guð- mundur t>. Jónsson, formaður. Hildur Kjartansdóttir, varafor- maður. Una Halldórsdóttir, rit- ari. Sigurjón Gunnarsson, gjald- keri. Meðstjórnendur em þau: Ólína Halldórsdóttir, Jón Helgi Eiðsson, Sumarlína Ólafsdóttir, Guðbjörg Þómnn Guðnadóttir, Hannes Ölafsson, Ámi J. Árna- son og Halldóra Georgsdóttir. -lg.i Snót Óskar eftir veikfalls- heimild Engin hreyfing varð I samn- ingaviðræðum Verkakvcnnafél- agsins Snótar í Vestmannaeyjum og vinnuveitenda í gær, en í gær- kvöldi var haldinn félagsfundur hjú Snót þarsem stjórn ogtrúnað- armannaráð óskuðu eftir verk- fallsheimild hjá félögum. Vilborg Þorsteinsdöttir for- maður Snótar sagði í satntali við Þjóðviljann í gær að fengist verk- fallsheimild þá gætu vinnu- veitendur sagt sér hvernig málin gætu snúist. „Ef ekki þá tekur bara harkan við,“ sagði Vilborg. -K.ÓI. Ríkisstjórnin Hvenær koma stóru málin? Svavar Gestsson: Engin hemja að draga bankamálin og skattamálin til síðasta dags. Tíminn að rennafrá þinginu Verði málefni Útvegsbankans ekki flutt inn í sali alþingis á allra næstu dögum, er Ijóst að málið kemst ekki í gegn fyrir þinglok, sagði Svavar Gestsson m.a. þegar hann krafði forsætis- ráðherra sagna í upphafl þing- fundar í gær um tillögur ríkis- stjórnarinnar varðandi Útvegs- bankann og skattamálin. Svavar sagði Alþýðubandalag- ið reiðubúið til samstarfs um að koma staðgreiðslukerfi skatta og lyktum Utvegsbankamálsins í gegnum þingið, en til þess þyrftu menn að fara að sjá framaní ein- hverjar raunhæfar tillögur frá ríkisstjóminni. „Það er engin hemja að draga þessi mál fram á síðasta dag“, sagði Svavar. „Stjórnarandstaðan þarf að fá tíma til að fara yfir málin.“ Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra sagði unnið að báð- um þessum málum „af fullum krafti“ í viðskiptaráðuneyti og fjármálaráðuneyti. Gmndvallar- hugmyndir varðandi stað- greiðslukerfi skatta hefðu þegar verið kynntar en hann gæti ekki sagt til um hvenær framvarp þar um yrði tilbúið. Bankamálin væru sömuleiðis f athugun og meðferðar hjá þingflokkum stjórnarinnar og yrði framvarp þar um tilbúið mjög fljótlega. „Ríkisstjóminni er að sjálfsögðu ljóst að málefni Útvegsbankans þarf að afgreiða á þessu þingi“, sagði Steingrímur að lokum _ ÁI.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.