Þjóðviljinn - 29.01.1987, Page 5
S-Þing.
Markaðs
málin
fbrgangs-
verkefni
Frá bœndafundi í
Ýdölum
Landsbyggðin birtir í dag
ályktanir þær, sem bændafundur
í Ýdölum samþykkti þann 15.
janúar s.l., en þær voru fluttar af
stjórn Búnaðarsambands Suður-
Þingeyinga. Eftirfarandi ályktan-
ir, sem einnig voru samþykktar
fluttu þeir Friðjón Guðmunds-
son, bóndi á Sandi í Aðaldai og
Þorgrímur Starri, bóndi í Garði í
Mývatnssveit:
1. Stöðvuð verði verslun með
fullvirðisrétt.
2. Framleiðnisjóði ber, á þessu
ári, að verja fjármagni sínu til
markaðsöflunar og markaðsupp-
byggingar utan lands sem innan, í
stað þess að kaupa upp fram-
leiðslurétt bújarða.
3. Sameiginlegt átak í markað-
smálum landbúnaðarvara á að
vera forgangsverkefni á þessu
ári. Eðlilegt væri að ríkið legði
þar nokkuð af mörkum, t.d. í
sambandi við milliríkjasamninga
og vöruskiptaverslun.
4. Kanna þarf hvernig létta megi
ýmsum álögum af rekstri búanna
svo og lækkun milliliðakostnaðar
í meðferð búvara.
5. Fundurinn lýsir undrun sinni á
neitun stjórnar Framleiðnisjóðs
varðandi umsókn Landssamtaka
sauðfjárbænda um fjárframlag til
markaðsmála. Krefst fundurinn
þess að stjórn Framleiðnisjóðs
endurskoði þá afstöðu sína.
6. Að undirbúningur verði hafinn
að atvinnuskógrækt þar sem skil-
yrði leyfa, og njóti skógræktin
hliðstæðra styrkja og aðrar nýbú-
greinar.
7. Að innflutningsbanni á kjöti
verði fylgt eftir.
8. Að minni bú en 300 ærgilda
verði ætíð undanþegin skerð-
ingu.
9. Að niðurgreiðslur ríkisins á
mjólkur- og sauðfjárafurðum
verði auknar.
10. Að réttarstaða og sjálfstæði
bændasamtakanna gagnvart
stjórnvöldum verði efld.
- mhg
Umsjón:
Magnús H.
G/slason
Naustavík við Skjálfanda. Hætt er við að eyðibýlunum fari ört fjölgandi á næst unni ef svo fer fram sem horfir í landbúnaðarmálum.
S-Þing.
Of skammur aölögunartími
Ályktanir bœndafundar í Ýdölum
Þann 15. janúar s.l. boðaði
stjórn Búnaðarsambands Suður-
Þingeyinga til almenns bænda-
fundar í Ydölum. Fundurinn var
Ijölsóttur og umræður miklar.
Frummælendur voru þeir Jón
Helgason, landbúnaðarráðherra
og Ingi Tryggvason, formaður
Stéttarsambands bænda. Fund-
urinn samþykkti eftirfarandi
ályktanir, sem fluttar voru af
stjórn Búnaðarsambandsins.
1. Almennur bændafundur
Suður-Þingeyinga lýsir áhyggjum
yfir þeirri stöðu, sem landbúnað-
urinn og dreifbýlið allt er komið
í. Fundurinn telur þann tíma,
sem búvörulögin í upphafi settu
til breytinga á framleiðslu of
skamman og ekki megi minnka
fullvirðisrétt einstaklinga meira
en orðið er. Hér verði því að
nema staðar í samdrættinum
meðan menn eru að fóta sig, og
hin víðtæku áhrif framleiðslu-
minnkunnarinnar, jafnt í þéttbýli
sem dreifbýli, eru að skýrast. Svo
stórfelldar búháttabreytingar,
sem hér þurfa að koma til, verða
að fá lengri þróunartíma, ella er
fyrirsjáanlegt hrun á stórum
svæðum. Fundurinn skorar því á
stjórn Stéttarsambandsins að
reyna til hins ýtrasta að ná strax á
þessum vetri búvörusamningum
við ríkið fyrir verðlagsárin 1989-
89 og 1980-90, sem tryggi fullt
verð fyrir jafna framleiðslu og
síðasti samningur. Jafnframt
hvetur fundurinn stjórn lands og
héraðs, svo og íbúa dreifbýlis, til
að leita allra leiða til nýtingar at-
vinnutækifæra heima í héraði.
2. Fundurinn varar við öllum
hugmyndum um að breyta hlut-
falli einstakra svæða í heildar-
framleiðslu frá gildandi reglu-
gerð og minnir á, að hlutverk
svæðabúmarks var frá upphafi
hugsað það, að standa vörð um
rekstrargrundvöll afurðastöðva
svæðanna, ásamt búsetu á
landinu öllu.
3. Fundurinn telur að þær
framleiðslutakmarkanir, sem
þegar hafa verið ákveðnar, hafi
gengið of nærri afkomumögu-
leikum margra bænda og leggja
því til, að verði um áframhald-
andi sölu eða leigu fullvirðisrétt-
ar að ræða, þá komi hluti þess
réttar til endurúthlutunar á við-
komandi svæði.
4. Fundurinn leggur áherslu á
nauðsyn þess, að komið verði á
stjórnun allrar kjötframleiðslu í
landinu og mótmælir harðlega
óeðlilegum afskiptum aðila vinn-
umarkaðarins af stjórnun bú-
vöruframleiðslunnar.
5. Fundurinn ályktar að meiri
áherslu þurfi að leggja á vöruþró-
un búvöru og sölustarfsemi bæði
á innlendum og erlendum
mörkuðum.
6. Fundurinn átelur þann
seinagang, sem verið hefur á af-
greiðslu afurðalána til afurða-
stöðva og krefst þess að tryggt
verði að lánafyrirgreiðsla til af-
urðastöðva geri þeim kleift að
fara að lögum við útborgun afur-
ðaverðs.
7. Fundurinn bendir á nauðsyn
þess, að sá hluti umsaminnar
búvöruframleiðslu, sem ekki
selst á innlendum markaði á
hverju verðlagsári sé fluttur úr
landi til að rýma til á markaði og í
birgðahaldi.
- mhg
Geiri á Gónhól
Ein lítil kómedía aff sirkusi Steina stuð
Fyrir fjórum árum stofnaði
Reykvíkingur nokkur sirkus.
Maður þessi hefur fengist við
margt, með misjöfnum árangri
þó. Eftir snöggsoðnar æfingar tók
sirkusinn til starfa í maí 1983, og
við opnunina jós stofnandinn
krógann vatni og skírði hann
Sirkus Steina stuð. Við athöfnina
sagði Steini stuð fréttamönnum,
að fyrirmyndin að nafngiftinni
væri Billy Smart, sá frægi sirkus-
maður.
Sýningar sirkussins fengu mis-
jafna dóma, en þó þóttu skárst
takast kollsteypur af ýmsu tagi og
stundum varð atgangur svo harð-
ur í kollsteypunum, að göt komu
á sirkustjaldið. Voru götin jafnan
bætt með yfirdráttarseðlum frá
Nordali, og þótti fordild. En
mjög juku bætingar þessar lit-
auðgi tjaldsins.
Sýningar sirkussins fengu því
verri dóma sem tímar liðu fram,
og þar kom að Steini stuð sá sig
tilneyddan að láta helming sirk-
usfólksins hafa hlutverkaskipti.
Almenningur lét sér fátt um finn-
ast og taldi sýningar síst betri en
áður, en Steini stuð var í sjöunda
himni og sagðist nú geta boðið
upp á heimsins besta sirkus.
Þegar sirkusinn var stofnaður
komst í hann línudansari, sem
eiginlega átti þar ekki að vera.
Hann hafði áður verið í Show-
flokki einum, en þaðan var hon-
um kastað út, enda gamall orðinn
og fótfúinn. Steini stuð hafði
mikið álit á karli þessum og tók
hann í flokk sinn. En þar kom, að
karl yfirgaf sirkusinn og situr nú í
góðri elli í musteri Mammons. í
stað þess gamla kom í sirkusinn
snaggaralegur strákur, Trítill
trúður. Trítill hafði mjög þráð að
komast í sirkusinn við stofnun
hans, en fengið synjun. Steini
stuö harmaði mjög brottför áð-
urnefnds karls og var varla
mönnum sinnandi. Trítill trúður
átti í fórum sínum meðal, sem
hann nefndi Frjálshyggjulífselex-
ír og lét hann Steina stuð dreypa
daglega á meðalinu og fór þá
brátt að rjátlast harmurinn af
Steina. Ekki er talið að meðal
þetta sé í neinni líkingu við Kína-
lífs-elexírinn gamla.
Ekki alls fyrir löngu efndi
sirkusinn til mikillar sýningar.
Ætlaði Steini stuð sjálfum sér
stórt hlutverk í þessari sýningu,
en þar sem hann taldi Trítil trúð
manna vísastan til þess að stela
frá sér senunni fór undirbúningur
fram á laun og þegar að sýning-
unni kom, sendi Steini stuð Trítil
eitthvað suður á bæi og sagði
honum að hann mætti vera or-
lofsnæturnar, ekkert lægi á. En
sem Trítill var í góðum fagnaði
syðra, barst honum á síðustu
stundu njósn um hvað í bígerð
væri hjá sirkusstjóra. Hann snar-
aðist á bak bykkjunni og „lætur
pískinn hesti hraða heim á Mót-
gangsstað," eins og segir í fræg-
um brag eftir Pál Jónsson skálda.
Heim kominn að sirkustjaldinu
snaraðist Trítill af baki, smaug
undir tjaldskörina og hljóp upp á
sviðið og var þá Steini stuð að
brillera í hlutverki sínu. Trítill
steypti sér kollhnís og velti sér að
fótum Steina stuð með þvílíku
afli, að Steini datt á rassinn.
Tjaldið var snarlega dregið fyrir
og sýningunni þar með lokið. En
þar með er sagan ekki alveg öll.
Einn af reyndustu trúðum sirk-
ussins neitaði að taka þátt í þess-
ari sýningu og sagði að nú væri sér
ekki til z-unnar boðið, því hann
hefði þarfara verk að vinna en að
taka þátt í skemmtanabransa
með Steina stuð. Hann lagði leið
sína norður yfir heiðar og þangað
kominn sprengdi hann púður-
kerlingar með miklum gný og til-
heyrandi eldglæringum. Fór síð-
an suður á firði og læddist þar
með veggjum um sinn.
Nú er hver höndin upp á móti
annarri í sirkusnum, hnútum
kastað og klögumálin ganga á
víxl. Þykir nú einsýnt að sirku-
sinn setji upp tærnar á komandi
vori, og að honum gengnum mun
það margra mál, að farið hafi fé
betra.
Geiri á Gónhól
Fimmtudagur 29. janúar 1987 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5