Þjóðviljinn - 29.01.1987, Blaðsíða 16
SAMVINNUÐANKI
ÍSLANDS HF.
HAB
BSRB
Stjómin veitir gálgafrest
Viðræður
staðnaðar
Stjórn HitaveituAkraness og Borgarfjarðar varð ígœr við tilmælum sveitarstjórnanna um
frestun á gjaldskrárhœkkun. Jóhann Arsœlsson: Bíðum eftir ríkisvaldinu.
Albert Guðmundsson: Getekkertgertí málinu
Við viljum bíða átekta og sjá
hvort það skýrist ekki í febrú-
ar hvað ríkisvaldið ætlar að taka
til bragðs og því ákváðum við á
þessum fundi að nýta okkur ekki
heimild iðnaðarráðherra til
hækkunar á gjaldskrá í janúar,
sagði Jóhann Arsælsson stjórnar-
maður í Hitaveitu Akraness og
Borgarfjarðar í samtali við Þjóð-
viljann í gær.
Stjórn hitaveitunnar fékk um
það tilmæli frá hreppsráði Borg-
arness og bæjarráði Akraness að
fresta gildistöku 14,6% hækkun-
ar á gjaldskrá hitaveitunnar, sem
átti að taka gildi 1. janúar.
Fyrr í þessum mánuði höfðu
sömu aðilar farið þess á leit við
forsætisráðherra, fjármálaráð-
herra og iðnaðarráðherra, að
þeir færu fram á það við stjórn
veitunnar að gildistöku hækkun-
arinnar yrði frestað um tvo mán-
uði, í trausti þess að gripið yrði til
ráðstafana til að rétta hag hita-
veitunnar.
Viðbrögð við þeirri málaleitan
hafa aðeins borist frá Albert
Guðmundssyni iðnaðarráðherra,
sem segist í raun og veru ekkert
geta gert í málinu, hans sé aðeins
að staðfesta beiðnir um hækkan-
ir. í svari Alberts er ekki að finna
neina viljayfirlýsingu um að létt
verði á 1500 milljóna króna
skuldum veitunnar.
Gjaldskrá HAB er sú hæsta á
landinu. Forráðamenn veitunn-
ar, ásamt hitaveitu Akureyrar og
Fjarhitun Vestmannaeyja, hafa
farið fram á það við ríkisvaldið að
það grípi til ráðstafana sem gætu
létt á skuldum þessara fyrirtækja,
sem samtals skulda um 4
milljarða króna. Nefnd sem unn-
ið hefur í málinu á vegum iðnað-
arráðuneytisins mun hugsanlega
skila af sér í næsta mánuði.
-gg
Viðbrögð viðscmjenda eru
mjög treg en af þeim orsökum
má segja að viðræður séu staðn-
aðar í bili, sagði Kristján Thor-
lacius formaður BSRB í gær-
Eins og greint hefur verið frá í
Þjóðviljanum hefur gengið illa að
koma saman heildarkröfugerð
fyrir BSRB og hefur verið ákveð-
ið að láta félögin reyna til þrautar
í sérviðræðum áður en annað er
reynt. Kristján sagði að það væri
tilfinning samningsfulltrúa að í
þessum viðræðum virtust við-
semjendur bæjarstarfsmanna,
annarra en borgarinnar, vera víð-
sýnni en aðrir viðsemjendur.
-K.Ól.
Þingeyri
Gagnslausir
gólftusku-
samningar
Fiskvinnslufólk á
Þingeyri mjög óánœgt
Stór hluti fasstráðins fiskverka-
fólks á Þingeyri skrifaði í síð-
ustu viku undir áskorun til
Verkalýðsfélagsins Brynju á
Þingeyri og vinnu veitenda um að
leiðrétta nú þegar fastráðning-
arsamninga sem talið var að gæfu
fólki rétt á 4 vikum á launum eftir
uppsögn en 5.janúar síðastliðinn
var fólkið tekið af launaskrá
vegna sjómannaverkfallsins og
sett á atvinnuleysisbætur.
„Á fundi sem við héldum hér
luku allir upp einum munni um
það að þeir væru mjög óánægðir
með þessa samninga, því þeir
gefa okkur engan rétt“ sagði
Kristjana Vagnsdóttir verkakona
í frystihúsinu í samtali við Þjóð-
viljann. „Þetta eru gólftusku-
samningar sem hafa ekkert gildi.
-vd.
Æskulýðsmál
Stórátak í
Hafnarfirði
„Hér eru öll hjól á fullu og það
er virkilega gaman að taka þátt í
því átaki sem verið er að gera í
æskulýðsmálum í Hafnarfirði
enda er mikill og góður vi|ji hjá
bæjaryfirvöldum að stokka þessi
mál upp“, sagði Árni Guðmunds-
son nýskipaður Æskulýðsfulltrúi
Hafnfirðinga i samtali við Þjóð-
viljann í gær.
í fyrrakvöld var tekin í notkun
ný hverfamiðstöð fyrir unglinga í
suðurbænum sem er í nýbyggingu
við Öldutúnsskóla og meirihluti
Æskulýðsráðs hefur lagt til við
bæjaryfirvöld að fest verði kaup á
Veitingahúsinu Skiphól í miðbæ
Hafnarfjarðar fyrir æskulýðsmið-
stöð bæjarins.
Þá hefur æskulýðsráð ákveðið
að gera tilraun með rekstur á
daggæsluheimili fyrir „lykla-
börn“ á aldrinum 7-11 ára í gamla
æskulýðsheimilinu sem fyrir
löngu er orðið of lítið fyrir æsku-
Iýðsstarfsemi í bænum. Einnig
eru uppi hugmyndir um að koma
á fót vísi að útideild á vegum
æskulýðsráðs. - lg.
Nýja hverfamiðstöðin í öldutúnsskóla er þegar komin í fullan gang og f gær var æfing hjá unglingaleikhúsinu f Firðinum.
Með á myndinni eru þeir Gísli Ásgeirsson umsjónarmaður miðstöðvarinnar og Árni Guðmundsson æskulýðsfulltrúi.
Mynd: Sig.
Staðgreiðsla skatta
Farmenn/útgerðarmenn
Tillögur um 35% brúttóskaftt
Stjórnarflokkarnir velta enn vöngum yfir tillögum skattanefndarinn-
ar. 27% skattur til ríkis og 8% útsvar. 8000 kr. persónuafsláttur á
Stjórnarandstaðan hefur enn
ekki fengið í hendur tillögur
sérstakrar nefndar, sem nú vinn-
ur að undirbúningi frumvarps
um staðgreiðslukerfi skatta.
Stjórnarflokkarnir hafa haft til-
lögurnar til umfjöllunar í nokk-
urn tíma og er búist við að frum-
varp liggi fyrir um næstu helgi.
Samkvæmt tillögunum er gert
ráð fyrir að lagður verði flatur
brúttóskattur á allar launatekjur.
Til ríkisins renni 27% skattur og
útsvarið verði 8% þannig að
brúttóskatturinn yrði samtals
35% Hann leggist undantekning-
mánuði
arlaust á allar launatekjur
launþega og sjálfstætt starfandi
atvinnu einstaklinga í rekstri þar
með talda dagpeninga, ferða-
kostnað og bílastyrk, sem nú er
skattfrjálst.
í tillögunum er gert ráð fyrir að
30 þúsund króna mánaðartekjur
verði undanþegnar skatti og
nemur skattaafslátturinn því um
8 þúsund krónum á mánuði eða
um 100 þúsundum á ári. Nú eru
tekjuskattsmörkin um 27 þúsund
og útsvarsmörkin um 22 þúsund.
Þá er gert ráð fyrir að barnabætur
verði borgaðar beint út en sérs-
takt húsnæðisframlag og hugsan-
lega sjómannaafsláttur komi til
uppí skattinn.
Deilur eru uppi milli stjórnar-
flokkanna um hvort skattleggja
eigi dagpeninga, ferðakostnað og
bílastyrki sem önnur laun og vill
Sjálfstæðisflokkurinn hafa þessar
tekjur undanþegnar skatti meðan
Framsókn hallast að skattlagn-
ingu. Þá er óljóst hvernig ætlunin
er að skattleggja tekjur af
eignum, en Sjálfstæðisflokkurinn
hefur barist hart á móti því að
vaxtatekjur verði skattlagðar
eins og Álþýðubandalagið leggur
til.
-ÁI
Ekkert mjakast
Samningsaðilarsvartsýnir áframhaldið. Jón
Steindór Valdimarsson: A ekki von á að
deilan leysist á nœstu dögum
Ekkert hafði mjakast í viðræð-
um farmanna og útgerðar-
manna um kvöldmatarleytið í
gær og voru samningsaðilar
svartsýnir á framhaldið.
Jón Steindór Valdimarsson hjá
Vinnumálasambandi Samvinnu-
félaga sagði að eins og staðan
væri nú væri ekki útlit fyrir að það
tækist að semja á næstu dögum.
Kristinn Skúlason fulltrúi í samn-
inganefnd farmanna var ekki
bjartsýnni. Hann sagði að út-
gerðarmenn væru mjög stífir á
því að bjóða ekki meira en tilboð
þeirra nú hljóði uppá, sem er
annars vegar tilboð sem er í stór-
um dráttum grundvallað á jóla-
föstusamningunum og hins vegar
tilboð sem felst í kjarabótum sem
farmenn fengju samfara
breytingum á vinnuramma far-
manna. Sagði Kristinn að það
væri útilokað að farmenn gætu
gengist inná þetta tilboð enda
hefði félagsfundur farmanna ný-
verið gefið skýrt tjl kynna að
samninganefndin hefði enga hei-
mild til þess að víkja frá þeim
kröfum sem farmenn hefðu sett
upp, sem væru lágmarkslaun á
bilinu 33-35 þúsund og 73% yfir-
vinnuálag. -K.Ól.