Þjóðviljinn - 29.01.1987, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 29.01.1987, Blaðsíða 15
ÍÞRÓTTIR HKRR Háta'ð í HöHinni Reykjavík-Landið hjá körlum og konum England Uveipool steinlá í Luton! Luton gjörsigraði Englands- og bikarmeistara Liverpool, 3-0, í 3. umferð ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu í gærkvöldi. Liðin höfðu áður gert tvö markalaus jafntefli. Brian Stein kom Luton yfir og síðan sótti liðið látlaust uns Mick Harford og Mike Newell bættu við mörkum. Annar þriggja marka sigur Luton á Liverpool í vetur, á gervigrasinu umdeilda. Luton fær QPR í heimsókn í 4. umferð. í öðrum leik í 3. umferð í gær- kvöldi vann Stoke stórsigur á Grimsby, 6-0, og mætir Cardiff á heimavelli í 4. umferð. -VS/Reuter 2. deild Ovænt að Varmá Fylkir lagði Aftureldingu Handknattleiksráð Reykjavík- ur heldur í kvöld uppá 45 ára af- mæli sitt með mikilli handknatt- leikshátíð í Laugardalshöllinni í kvöld. Hún hefst kl. 19.30 með leik Reykjavíkur og Landsins í Kvennakarfa KR vann KR vann mjög mikilvægan sigur á ÍBK í kvennadeildinni í körfuknattleik í gærkvöldi, 64- 52. Leikið var í Keflavík og stað- an í hléi var 26-21, KR í hag. Kristjana Hrafnkelsdóttir skoraði 22 stig fyrir KR og Linda Jónsdóttir 17. Katrín Eiríksdóttir gerði 18 stig fyrir ÍBK en Björg Hafsteinsdóttir 16. -VS Erla Rafnsdóttir skoraði 11 mörk þegar Stjarnan vann léttan sigur á Ármanni, 37-13, í 1. deildinni í gærkvöldi. Leikið var í Digranesi og Stjarnan hafði mikla yfirburði allan tímann, staðan var 20-6 í hléi. Mörk Stjörnunnar: Erla Rafnsdóttir 11, Margrét Theodórsdóttir 6, Steinunn Þor- steinsdóttir 6, Guðný Gunnsteinsdóttir 5, Hnind Grétarsdóttir 4, Brynhildur Markús- dóttir 2, María Grétarsdóttir 2, Ingibjörg Andrésdóttir 1. Mörk Ármanns: Margrét Hafsteinsdótt- ir4, HallaGrétarsdóttir3, Ellen Einarsdóttir 2, Elísabet Albertsdóttir 2, Guðbjörg Ágústsdóttir 1, Bryndís Guðmundsdóttir 1. Kvennahandbolti Fundur með þjálfurum Kvennalandsliðsnefndin í hand- knattleik heldur f kvöld fræðslufund fyrir þjálfara kvennaflokka. Hann fer fram í Iþróttamiðstöðinni í Laugardal og hefst kl. 20. Fjallað verður um ár- angur landsliðsins og áætlanir um æfíngar og leiki þess, uppbyggingu á þjálfun yngri flokka, varnarleik, séræfingar, íþróttamciðsli ofl. kvennaflokki en síðan mætast hljómsveitin Greifarnir og Eirík- ur Hauksson & félagar í knatts- pyrnuleik. Kl. 21.15 mætast síð-l an Reykjavík og Landið í karla- flokki. Seint í gærkvöldi var orðið nánast öruggt að landsliðsmenn- irnir gætu leikið með í karla- leiknum og verður þá valinn maður í hverju rúmi í báðum lið- um. Þar verða þá að sjálfsögðu allir þeir bestu úr íslensku félags- Iiðunum en með Reykjavíkur- liðinu leika að auki Sigurður Sveinsson og Páll Olafsson og með liði Landsins verður Krist- ján Arason. Þetta er kjörið tæki- færi til að sjá flesta bestu leik- menn landsins í einum og sama leikíum. -VS Staðan í 1. deild: Fram......... 13 12 0 1 292-212 24 FH........... 13 10 0 3 276-201 20 Stjarnan..... 12 8 0 4 285-207 16 KR........... 13 5 2 6 224-245 12 Valur........ 12 5 1 6 248-222 11 Víkingur..... 12 5 1 6 232-210 11 IBV........... 9 1 0 8 117-199 2 Ármann....... 12 0 0 12 173-361 0 Það er ákveðinn aðstöðumun- ur sem greinir íslenska landsliðið í handknattleik frá flestum öðr- um toppliðum heims - og hann felst f því hve stór hluti íslensku leikmanna leikur utan heima- lands síns. Þær sex þjóðir sem léku í Eystrasaltskeppninni á dögunum tefldu samtals fram 11 leik- mönnum sem leika með er- lendum félögum, og 7 þeirra voru frá íslandi. Einar Þorvarðarson, Kristján Arason, Sigurður Sveinsson, Páll Ólafsson, Bjarni Krfstján Arason reynist liði Landsins vafalítið góður styrkur gegn Reykjavík í kvöld. 3. deild ÍH vann í Hveragerði ÍH vann óvæntan sigur á Hvergerðingum, 26-20, í Hveragerði í gærkvöldi. Þetta var flmmti sigur Hafnarfjarð- arliðsins unga í röð í 3. deildinni í handknattleik og með þessu áframhaldi gæti það blandað sér í baráttuna um sæti í 2. deild. -VS Guðmundsson, Sigurður Gunn- arsson og Alfreð Gíslason. Hinir fjórir voru Svíarnir BjörnJilsen, PerCarlen ogPeder Jarphag, og Pólverjinn Jerzy Klempel. Þrjár þjóðanna sex, Austur-Þýskaland, Sovétríkin og Vestur-Þýskaland, tefldu því fram hreinum „heimaliðum" - allir þeirra landsliðsmenn leika með innlendum félagsliðum. Þegar bætt er við þeim íslensku landsliðsmönnum sem leika er- lendis og reiknað er með f undir- Fallbaráttulið Fylkis setti strik í reikninginn í toppbaráttu 2. deildar karla í handknattieik með þvf að leggja Aftureldingu óvænt að Varmá í gærkvöldi, 25-23. Þetta var aðeins annar sigur Ár- bæinga í deildinni í vetur. ÍR-ingar náðu á meðan fjög- urra stiga forskoti í deildinni. Þeir gerðu engin mistök gegn botnliði í A á Akranesi og sigruðu 30-15. Ólafur Gylfason var marka- hæstur hjá ÍR méð 8 mörk en Guðmundur Sveinsson gerði 6 fyrir ÍA. Staðan í 2. deild er þá þannig: (R.............. 11 9 2 0 274-204 20 Afturelding.... 11 7 2 2 269-222 16 ÞórA............. 9 5 2 2 188-183 12 IBK............. 10 4 2 4 210-201 10 HK.............. 10 5 0 5 249-208 10 IBV............. 10 5 0 5 224-210 10 búningnum fyrir Ólympíu- leikana, Atla Hilmarssyni, Þoi- bergi Aðalsteinssyni, Þorbirni Jenssyni og Steinari Birgissyni, ásamt Gunnari Gunnarssyni sem hefur verið nefndur í því sam- bandi sést vel við hve ramman reip íslensk handknattleiksfor- ysta á við að etja. Þetta þýðir að þótt undirbúningurinn sé mikill í sníðum og hafi aldrei verið um- fangsmeiri en einmitt nú, er mjög sjaldgæft að hægt sé að kalla allt liðið saman í einu til æfinga eða til leikja. ReynirS........ 9 2 4 3 200-222 8 Grótta..........10 3 1 6 216-257 7 Fylkir......... 11 2 1 8 210-257 5 lA.............. 9 1 0 8 175-251 2 -VS Úrvalsdeildin Haukar- Valur Fjórtánda umferð úrvals- deildarinnar í körfuknattleik hefst í kvöld. Haukar mæta Val í íþróttahúsinu í Hafnarfirði og byrjar leikurinn kl. 20. Annað kvöld leika toppliðin, UMFN og ÍBK, í Njarðvík og loks mætast KR og Fram á sunnudagskvöldið. Nokkrir hafa sjaldnar getað mætt til leiks eða æfinga en aðrir, t.d. Alfreð Gíslason og Sigurður Sveinsson. Þeir voru báðir með í Eystrasaltskeppninni, Alfreð í lykilhlutverki, án þess að hafa fengið neinn undirbúning og voru þar með lítið heima í þeim leikkerfum sem liðið hefur æft og notar. Þetta leiddi óhjákvæmi- lega af sér mistök og stirðleika í sóknarleik íslands í keppninni - en samt mun minni en búast hefði mátt við. -VS Kvennahandbolti Erla með ellefu Miklir yfirburðir Stjörnunnar -MHM Eystrasaltskeppnin Athyglisverður aðstöðumunur Sjö af ellefu „útlendingum“ voru íslenskir England Hart deilt um gervigras Orlagaríkur fundur í dag. Gervigras bannað eða úrvalsdeild stofnuð? I dag halda ensku deildafélögin í knattspyrnu mikilvægan fund í London. Þar mun West Ham leggja fram tillögu um að ekki verði leyft að taka nýja gervigras- velli í notkun næstu þrjú árin - og þarf tvo þriðjuhluta atkvæða deildaliðanna 92 til að fá hana samþykkta. Fjögur félög hafa þegar tekið gervigras í notkun, QPR 0g Luton úr 1. deild, Oldham í 2. deild og Preston í 4. deild. Tólf til viðbótar hafa sótt um að fá að koma upp slíkum völlum, þar á meðal 1. deildarliðin Wimble- don, Charlton og Oxford. Margir telja að ef tillaga West Ham verði felld geti það orðið til þess að „stóru“ félögin beiti sér fyrir stofnun úrvalsdeildar og segi skilið við deildakeppnina en hug- myndir þess efnis voru svæfðar með málamiðlun sl. vetur. Verði hún samþykkt sjá hinsvegar margir fyrir sér skipbrot og gjald- þrot margra félaga, sérstaklega í neðri deildunum. Andstæðingar gervigrassins segja að það eyðileggji helstu ein- kenni ensku knattspyrnunnar, hraðann, „rennitæklingarnar“ og baráttugleðina og að á gervigrasi sé leikin gerviknattspyrna. Aðrir halda því fram að á gervigrasi séu meiri möguleikar á að þróa góða knattmeðferð og fallega knatt- spyrnu en á venjulegu grasi. Þau félög sem hafa komið sér upp gervigrasi hafa einnig hagnast verulega á því, í aurum talið, því vellina er hægt að nýta fyrir æfingar og keppni allan sólar- hringinn, allt árið um kring. Framfarir í gerð gervigrasvalla hafa orðið miklar síðustu misser- in. Völlur Luton sem var gerður 1985 er sagður margfalt betri en völlur QPR frá 1981 og vellir Oldham og Preston sem lagðir voru 1986 slá velli Luton auðveldlega við. En-Tout-Cas, brautryðjendur í gerð gervigrasvalla, segja að þeir þurfi sex ár í viðbót til að geta gert slíkan völl sem sé óþekkjan- legur frá venjulegum grasvelli. David Evans, stjórnarformaður Luton, segir að innan sex ára geti hann bundið fyrir augu Howards Kendall framkvæmdastjóra Everton, leitt hann inná gervigras- völl, og hann muni ekki geta greint hann frá „ekta“ velli. En þeir hjá En-Tout-Cas hafa hótað því að ef tillaga West Ham verði samþykkt muni þeir hætta rann- sóknum sínum með öllu. Það yrði gífurlegt áfall fyrir þá sem trúa því og treysta að gervigras sé framtíðin í ensku knattspyrn- unni. -VS/Reuter Knattspyrna Framarar á förum Guðmundur í Val Tveir knattspyrnumenn úr Fram munu ganga frá félaga- skiptum í þessari viku. Jónas Björnsson fer til KS á Siglufirði eins og við höfum áður sagt frá og Guðmundur Baidursson, fyrrum landsliðsmarkvörður, hefur ákveðið að ganga tU liðs við Vals- menn. Jónas lék einn leik með Fram í 1. deild sl. sumar og báða Evr- ópuleikina um haustið. Guð- mundur hefur ekki komist að í marki Fram síðan árið 1984 vegna góðrar frammistöðu Friðr- iks Friðrikssonar. -VS Flmmtudagur 29. janúar 1987 ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 15

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.